Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.
Áratuga
reynsla
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Landakotsskóli hefur vaxið mikið og
eflst á seinustu árum og er nú orðin
brýn þörf á viðbótarhúsnæði vegna
fjölgunar nemenda. Nemendum við
alþjóðlegu deild-
ina, sem tók til
starfa árið 2016,
hefur fjölgað úr
24 nemendum í
upphafi í rúmlega
100 nemendur. Á
átta árum hefur
öllum nemendum
við Landakots-
skóla fjölgað úr
140 nemendum í
320 í almennu
grunnskóladeild skólans og í alþjóð-
legu deildinni.
Með stækkun gæti fjölgað í al-
þjóðlegu deildinni í 150
Uppi eru áform um stækkun
skólahúsnæðisins og að lokið verði
við byggingu nýrrar álmu sem þegar
hefur verið samþykkt á deiliskipu-
lagi. Ingibjörg Jóhannsdóttir, skóla-
stjóri Landakotsskóla, segir að með
stærra húsnæði gæti fjöldi nemenda
í alþjóðlegu deildinni farið upp í 150
nemendur.
„Það er búið að skipuleggja þessa
síðustu álmu og búið að samþykkja
hana í borgarskipulagi. Við myndum
mjög gjarnan vilja reisa hana,“ segir
Ingibjörg í samtali við Morgunblað-
ið. Kostnaður við nýja byggingu
skólans er áætlaður 400 milljónir
króna.
Nú er svo komið að hvert rými
skólans er nýtt til hins ýtrasta við
kennslu og aðra starfsemi skólans en
með nýrri byggingu verður til rými
fyrir fjórar nýjar skólastofur.
Lagt var fram erindi frá Landa-
kotsskóla á fundi borgarráðs síðast-
liðinn fimmtudag um stuðning
Reykjavíkurborgar við alþjóðlegt
nám skólans. Fram kemur á minnis-
blaði Ingibjargar sem fylgdi er-
indinu til borgarinnar að ýmiss kon-
ar tilfærsla og hagræðing hefur nú
þegar verið gerð innan skólans til að
nýta betur húsnæðið. Þetta hefur
meðal annars verið gert með sam-
nýtingu stofa, lítilli viðbyggingu og
viðbótarrými sem skólinn hafði ekki
til umráða áður. „Við höfum reynt að
nýta rýmið eins vel og kostur er á en
nú eru eiginlega allir möguleikar
uppurnir. Ég er til dæmis hérna í
rými sem var einu sinni fataklefi og
lítið eldhús,“ segir Ingibjörg í sam-
tali við Morgunblaðið.
Landakotsskóli er sjálfstætt starf-
andi grunnskóli og er nemendum við
skólann kennt frá fimm ára aldri og
upp í tíunda bekk. Skólinn hefur ver-
ið rekinn sem sjálfseignarstofnun frá
árinu 2005 með sjálfstæðri stjórn
þar sem sitja fyrrverandi og núver-
andi foreldrar.
Nemendur hefja nám í frönsku
og ensku í fimm ára bekk
Skólinn leigir húsnæði af kaþólsku
kirkjunni en er að öðru leyti ekki
tengdur henni. Mikil áhersla er lögð
á öflugt tungumálanám við skólann
og að sögn Ingibjargar hefja nem-
endur strax í fimm ára bekk nám í
frönsku og ensku. Í alþjóðlegu deild-
inni innan skólans eru bæði kenn-
arar og nemendur frá fjölmörgum
þjóðlöndum. Þar fer kennsla fram
samkvæmt viðurkenndri námskrá
Cambridge-samtakanna og á grund-
velli þjónustusamnings við Reykja-
víkurborg.
Ingibjörg segir að skólastarfið
með þessar tvær deildir, almenna
grunnskóladeild og alþjóðlegu deild-
ina, hafi gengið mjög vel, nemendur
kynnist á milli deilda og kennarar
kenni líka í báðum deildunum. ,,Al-
þjóðlega deildin styrkir líka skólann
í heild sinni,“ segir hún.
Ingibjörg segir á minnisblaðinu til
Reykjavíkurborgar að það sé kostn-
aðarsamt fyrir lítinn skóla að þróa
nám í takti við alþjóðlegar kröfur en
skólinn hafi ekki fengið neina styrki,
einungis fast rekstrarframlag frá
Reykjavíkurborg.
„Bekkjareiningar eru enn fremur
litlar í alþjóðadeild, þróunarkostnað-
ur nokkur, námskröfur Cambridge-
samtakanna eru miklar og ekki
möguleiki á mikilli hagræðingu þó
heildarfjöldi nemenda hafi vaxið
hratt.
Ljóst er að alþjóðlegt nám í
Reykjavík þjónar hagsmunum borg-
arinnar og er mikilvægur þáttur
þess að byggja upp fjölþjóðlegt at-
vinnuumhverfi. Að mati Landakots-
skóla er um að ræða áhugavert verk-
efni sem gæti nýst í víðara samhengi
í íslensku menntakerfi,“ segir þar.
Þörf á stækkun Landakotsskóla
- Nemendum við alþjóðadeild Landakotsskóla hefur fjölgað úr 24 í rúmlega 100 á sjö árum - Sækja
um stuðning til borgarinnar svo hægt verði að ljúka byggingu við skólann og mæta fjölgun nemenda
Morgunblaðið/Eggert
Landakotsskóli Með stærra húsnæði gæti fjöldi nemenda í alþjóðlegri deild farið upp í 150 nemendur.
Ingibjörg
Jóhannsdóttir