Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóð-
fylkingarinnar í forsetakosning-
unum sem verða í Frakklandi í apríl,
segir að sér sé brugðið og hún finni
til mikils sársauka eftir að náfrænka
hennar, fyrrverandi þingkonan Mar-
ion Marechal, lýsti því yfir í gær að
hún gæti hugsað sér að kjósa fram-
bjóðandann Eric Zemmour, sem er
yst til hægri í stjórnmálum og mikill
andstæðingur múslima.
Marion Marechal, sem er 20 árum
yngri en Marine, ákvað árið 2018 að
hætta að nota ættarnafnið Le Pen.
Deilur hafa lengi verið innan fjöl-
skyldunnar sem m.a. leiddu til þess
fyrir nokkrum árum að Marine Le
Pen rak föður sinn úr Þjóðfylking-
unni og yfirtók flokkinn.
Marion Marechal tók þó fram að
hún væri ekki búin að gera upp hug
sinn en sér litist vel á Zemmour og
málstað hans. Hún bætti því við að
yrði úr stuðningi hennar við Zemmo-
ur yrði það ekki bara til málamynda,
hún myndi þá hella sér út í barátt-
una af fullum krafti.
Í viðtali við fréttamann CNews í
París sagði Marine Le Pen: „Við
frænka mín höfum átt í einstöku
sambandi. Ég ól hana upp ásamt
systur minni fyrstu æviár hennar,
svo þessi orð hennar, sem eru sann-
arlega ruddaleg, eru mér mikið
áfall.“
Marion Marechal, sem er 32 ára
gömul og mjög hægri sinnuð, gaf í
skyn að hún væri að íhuga að hefja
stjórnmálaafskipti að nýju, en hún
var ung kosin á franska þingið 2012.
Hún kvaðst vilja að allir hægri menn
í Frakklandi sameinuðust í eina fylk-
ingu.
Skoðanakannanir benda til þess
að Marine Le Pen eigi meiri mögu-
leika en Zemmour á að komast í
seinni umferð forsetakosninganna
24. apríl, ef enginn frambjóðenda
fær hreinan meirihluta í fyrri um-
ferðinni. Macron forseti nýtur enn
mests stuðnings meðal kjósenda.
Barátta Le Pen í uppnámi
vegna fjölskyldudeilu
- Zemmour talinn græða á klofningi í Þjóðfylkingunni
AFP
Frakkland Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, ræðir við blaða-
menn fyrr í þessari viku. Hún er enn vígreif en er mjög brugðið.
Skýrslan um veisluhöld Boris John-
sons, forsætisráðherra Bretlands, á
Downingstræti 10 er væntanleg í
hendur ráðherrans, þrátt fyrir að lög-
reglan hafi óskað eftir því að hún yrði
ekki gerð opinber fyrr en rannsókn
yrði lokið í málinu. Ekki hefur þó ver-
ið gefinn nákvæmur tímarammi. Í
staðinn fyrir að draga birtingu henn-
ar verður skýrslan útfærð þannig að
litlar líkur séu á að hún hafi áhrif á
hlutdrægni við meðferð málsins. Það
fæst með því að afmá einstaka smáat-
riði.
Lögreglan í Lundúnum hafnaði í
gær öllum ásökunum um að reyna að
tefja birtingu skýrslunnar sem Sue
Gray, sérstakur saksóknari, vinnur
nú að í tengslum við meint sóttvarna-
lagabrot og veisluhöld í Downing-
stræti 10. Efni skýrslunnar mun
koma til með að skera úr um framtíð
Johnsons í embætti, en mögulegt er
að þingmenn Íhaldsflokksins leggi
fram vantrauststillögu á hendur hon-
um.
Niðurstöðu var að vænta í þessari
viku en eftir að lögregla hóf sjálf-
stæða rannsókn á mögulegum brot-
um á sóttvarnareglum í vikunni
flæktust málin.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni kom
fram að þess hefði verið farið á leit við
Gray að hún takmarkaði þær upplýs-
ingar sem gerðar yrðu opinberar í
skýrslu hennar á meðan rannsókn
lögreglunnar stæði yfir. Væri það
gert til að koma í veg fyrir mögulega
hlutdrægni.
Þá hefði ekki verið farið fram á
neinar takmarkanir á birtingum upp-
lýsinga um þær veislur sem lögreglan
er ekki með til rannsóknar. En svo
virðist sem lögregla telji að ekki hafi
brot á sóttvarnareglum átt sér stað í
þeim öllum.
Nú hefur lögreglan fengið í hend-
urnar öll þau gögn sem óskað var eftir
frá skrifstofu stjórnarráðsins. Næstu
skref í rannsókninni eru því að óska
eftir skriflegri málsvörn frá þeim sem
grunaðir eru um að hafa brotið gegn
sóttvarnareglugerð.
Þau brot sem um ræðir geta varðað
fésektir og því telur lögreglan rann-
sóknarhagsmuni standa í vegi fyrir að
viss atriði sem koma fram í skýrsl-
unni verði gerð opinber á þessu stigi
málsins, áður en sektir eru gefnar út.
Boris Johnson hefur verið undir
miklum þrýstingi, bæði frá almenn-
ingi og pólitískum andstæðingum sín-
um, frá því að upp komst um málið og
hefur hann verið sakaður um að villa
um fyrir þinginu. Johnson stendur þó
fast á því að veisluhöldin hafi alfarið
verið vegna vinnu. Þá lýsti hann því
yfir að hann myndi ávarpa þingið
vegna málsins, þegar skýrslan kemur
út. Skrifstofa forsætisráðherra hefur
lofað að birta skýrsluna um leið og
hún berst.
Frestar ekki afhendingu
- Skýrsla Sue Gray væntanleg - Afmá smáatriði vegna lögreglurannsóknar
- Boris Johnson mun svara þinginu þegar skýrslan birtist - Lögreglan neitar töf
AFP
Sóttvarnabrot Til rannsóknar eru
veisluhöld forsætiráðherra.
Það eru ekki margir kattavinir sem
eru eins stórtækir og Rússinn
Tatyana Zelenskaya, en þessi mikli
dýravinur hefur komið upp griða-
stað fyrir meira en eitt hundrað
ketti á heimili sínu í Novosibirsk.
Borgin er hin þriðja stærsta í Rúss-
landi og stundum kölluð höfuðborg
Síberíuhéraðs. Á heimilinu er allt
til staðar til að taka á móti flæk-
ingsköttum, köldum, hröktum og
svöngum. Sérstök búr eru á heim-
ilinu þar sem hver og einn köttur
fær að dvelja meðan frú Zelenskaya
sinnir honum, fæðir og hugar að
framtíð hans. Skjólið hefur spurst
út í kattasamfélaginu í borginni og
er aldrei skortur á mjálmandi gest-
um fyrir utan húsinu svo frúin hef-
ur nóg að iðja alla daga allan ársins
hring.
Stórtækur kattavinur í rússnesku borginni Novosibirsk
Með hundr-
að ketti á
heimilinu
AFP
Sex eldflaugum
var skotið að
flugvellinum í
Bagdad, höfuð-
borg Íraks, í gær
og hitti ein
þeirra ómannaða
farþegaflugvél
og skemmdi
hana. Engan sak-
aði. Vélin sem er
af gerðinni Bo-
eing 767 er í eigu íraska ríkisflug-
félagsins og var í viðgerð þegar
árásin var gerð. Bandarísk hern-
aðaryfirvöld í Írak segja að víga-
menn sem njóta stuðnings stjórn-
valda í Íran hafi staðið að baki
árásinni. Þeim er einnig kennt um
árásir sem gerðar hafa verið að
undanförnu á ýmis önnur skotmörk
í landinu, m.a. á bandaríska sendi-
ráðið og herlið Bandaríkjamanna.
Vígamennirnir vilja að bandaríski
herinn fari úr landi. Enn eru 2.500
bandarískir hermenn í Írak til að
aðstoða og þjálfa stjórnarherinn.
ÍRAK
Eldflaugum skotið
að flugvellinum
Stjórnarherinn í
viðbragðsstöðu
Kínversk stjórn-
völd sendu í gær
frá sér lista yfir
virðingarmenn
erlendra ríkja
sem þegið hafa
að sitja til borðs
með Xi Jinping,
leiðtoga lands-
ins, í mikilli
veislu sem hann
heldur á föstudag í næstu viku
þegar vetrarólympíuleikarnir
verða settir í höfuðborginni, Beij-
ing.
Gestirnir eiga það sammerkt
með gestgjafanum að vera litlir
vinir lýðræðis og mannréttinda. Í
hópnum eru m.a. Pútín Rúslands-
forseti, Fattah al-Sisi forseti
Egyptalands og krónprins Sádi-
Arabíu, Mohammed bin Salman,
auk fjölda ráðamanna í þekktum
einræðis- og valdstjórnarríkjum
um allan heim. Fulltrúar vest-
rænna ríkja sniðganga veisluna og
munu ekki sækja leikana.
KÍNA
Kínverjar kynna
borðnauta forsetans
Xi Jinping
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is