Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 Íslenska karla- landsliðið í handbolta hef- ur farið vaxandi á undanförnum árum og eftir uppbygg- ingu undanfarin misseri undir hand- leiðslu Guðmundar Guðmundssonar landsliðsþjálfara gætti nokkurrar bjartsýni þegar liðið mætti til leiks í Búdapest á Evrópumeistaramótið, sem nú stendur yfir. Liðið búið að spila sig saman, komið með dýrmæta reynslu, með óárennilega blöndu af ungum leikmönnum og marg- reyndum, sem margir spila í fremstu röð með félagsliðum á meginlandi Evrópu. Mótið var ekki fyrr hafið en svo virtist sem fótunum hefði verið kippt undan liðinu og vonin um að eiga gott mót væri að engu orðin. Veiran sem í tvö ár hefur gert heimsbyggðinni lífið leitt stakk sér niður meðal leikmanna og eins og hendi væri veifað voru nokkrir burðarásar liðsins komnir í ein- angrun. Guðmundur og liðsmenn hans hristu þetta högg hins vegar af sér með ótrúlegri seiglu. Frammi- staðan eftir að næstum hálft liðið var komið í einangrun var með ólíkindum. Landsliðið gerði sér lítið fyrir og vann alla leiki sína í riðlinum, þar á meðal viðureign við gestgjafana í lokaleiknum með heila íþróttahöll baulandi á sig og gegn andstæðingi, sem lagði allt í sölurnar til að verja stolt sitt og ná árangri á heimavelli. Frammistaðan í riðlinum skil- aði Íslandi inn í milliriðil með tvö stig í farteskinu sem landsliðinu hefur ekki tekist áður þrátt fyrir góðan árangur. Þar var fyrsti andstæðingurinn Danmörk, ríkjandi heimsmeist- ari. Ekki var að sjá að sú vegsemd andstæðinganna stæði í íslenska liðinu. Leikurinn gegn Dönum tapaðist reyndar, en íslenska liðið var sprækt og hleypti andstæð- ingnum aldrei langt frá sér og hefði með lagni getað náð í betri úrslit. Ólympíumeistarar Frakka voru næstir á dagskrá og þá átti liðið einn sinn besta leik á stór- móti. Ísland náði fljótlega for- skoti og hélt Frökkunum einfald- lega í skefjum allt til loka og niðurstaðan var stærsti ósigur þeirra á Evrópumeistaramóti frá upphafi. Eftirleikurinn er kunn- ur, eins marks tap á móti Króöt- um og tíu marka sigur á Svartfell- ingum. Tapið á móti Króötum gerði að verkum að ætti liðið að komast í fjögurra liða úrslit yrðu Danir að bera sigurorð af Frökkum. Þjálf- ari danska liðsins rifjaði upp að á Evrópumótinu fyrir tveimur ár- um, þegar Ísland vann Dan- mörku, hefði sigur Íslands á Ung- verjalandi hjálpað Dönum að komast áfram. Íslendingar hefðu hins vegar tapað. Danir skulduðu Íslendingum því ekki neitt. Danir ákváðu að hvíla sína bestu menn, en virtust þó lengi vel ætla að hafa betur. Á enda- sprettinum hrundi hins vegar leikur þeirra, Frakkar sigldu fram úr Dön- um, hrifsuðu af þeim efsta sætið í riðl- inum og Ísland varð að gera sér að góðu að leika um fimmta sætið við Norðmenn. Póker danska þjálfarans gekk ekki upp því að tapið þýddi að Danir mættu Spánverjum í undanúrslitum í stað Svía. Í gær lutu þeir í lægra haldi fyrir Spánverjum og misstu þar með möguleikann á Evr- ópumeistaratitli. Einhverjum kann að þykja þetta tilefni til að slíta stjórn- málasambandi við Dani, en stað- reyndin er sú að íslenska liðið hafði örlög sín í hendi sér og þau réðust í leiknum við Króatíu. Viðureignin við Noreg reynd- ist hins vegar hreint út sagt mögnuð. Oft skilur lítið á milli feigs og ófeigs í íþróttum. Loka- skot geigar svo engu munar, ann- að lekur inn um leið og leiktíminn rennur út. Sú var raunin í leikn- um í gær, leik sem hvorugt liðið átti skilið að tapa en úrslit urðu þó að ráðast. Ísland náði því sjötta sæti á mótinu, sem hefði þótt vel af sér vikið fyrir mót og er glæsilegur árangur. Það er auðvelt að leggjast í vangaveltur um hvað hefði gerst ef níu leikmenn íslenska liðsins hefðu ekki lent í einangrun vegna kórónuveirunnar. Þjóðverjar urðu fyrir svipuðum skakkaföll- um og íhuguðu af alvöru að draga lið sitt úr keppni. Hlaða má alla leikmenn liðsins lofi fyrir frammistöðuna. Þó er óhætt að nefna sérstaklega frammistöðu Frakkabanans Vikt- ors Gísla Hallgrímssonar og Óm- ars Inga Magnússonar, sem mik- ið mæddi á og fékk litla hvíld í fjarveru lykilleikmanna. Ólafur Stefánsson, einn besti leikmaður Íslands frá upphafi, sagði eftir leikinn við Norðmenn að frammi- staða hans væri sú besta hjá ís- lenskum leikmanni á stórmóti. Það er ekki lítið hrós. Í það heila hefur verið unun að fylgjast með liðinu spila, sjá sam- stöðuna og leikgleðina, þótt um leið hafi það tekið á taugar og skilið eftir neglur nagaðar upp í kviku og brotnar stólbríkur. Meira að segja á síðustu metr- unum eftir að hafa spilað átta leiki á 16 dögum létu leikmenn engan bilbug á sér finna. Álagið hefur þó örugglega verið farið að segja til sín og haft sitt að segja að Guðmundur gat ekki notað breiddina í hópnum. Íslenska landsliðið á allan heið- ur skilinn fyrir afrekið í Ung- verjalandi. Það sýndi hvers það er megnugt og getur boðið hvaða andstæðingi sem er byrginn á komandi árum. Framtíðin er svo sannarlega björt. Íslenska landsliðið sýndi á EM hvers það er megnugt og getur boðið hvaða andstæðingi sem er byrginn á komandi árum} Afrekið í Ungverjalandi Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í slendingar fengu ekki frelsi sitt aftur í gær. Þrátt fyrir að nú gangi yfir far- aldur í líkingu við hefðbundinn inflúensufaraldur eins og sérfræðingar um allan heim hafa sagt. Meira að segja sóttvarnalækni er ekki lengur stætt á því að neita þeirri þróun í opinberri umræðu, þó hann reyni. Ríkisstjórnin aflétti eins litlu og hægt var af þeim stórkostlegu og íþyngjandi takmörkunum sem lagðar eru á landann á blaðamannafundi sínum í gær. Þrátt fyrir að allar forsendur væru fyrir algerri afléttingu allra hafta og tak- markana á líf fólks og atvinnu þess. Þau völdu að gera það ekki. Þvert á móti var í raun ákveðið að fram- lengja höft og takmarkanir í rúmar sjö vikur. Í sjö vikur. Þegar nær enginn veikist, enn færri leggjast inn á spítalann, æ fleiri bólusetja sig í þriðja sinn og svo mætti lengi telja. Mér varð hugsað til Michaels J. Fox og Christophers heitins Lloyds og ferðalags þeirra í myndinni „Back to the Future“, þegar ríkisstjórnin kynnti af veikum mætti svo- kallaða afléttingaáætlun. Það rann nefnilega upp fyrir mér að verið væri að senda þjóðina aftur til 12. nóvember 2021, þegar nokkurn veginn sömu takmarkanir voru tilkynntar – en við allt aðrar aðstæður en nú eru uppi í faraldrinum. Fox og Lloyd ferðuðust fram í tímann en ríkisstjórnin sendi okkur aftur til fortíðar. Forsætisráðherra talaði um á blaðamannafundinum að hún væri stundum tímabundið þreytt á þríeyk- inu en svo liði það hjá. Fjármálaráðherra talaði um að hann ætlaði að veita styrki, sem auðvit- að eru ekkert annað en bætur, til fyrirtækja í veitingageiranum og á öðrum sviðum vegna takmarkana og lokana – semsagt meira af því sama. Hann hefði getað staðið í lappirnar fyrir hönd stærsta stjórnarflokksins og knúið það fram að atvinnulífinu væri einfaldlega leyft að selja þjónustu sína í friði frá ríkisvaldinu, þeim sem hana vilja kaupa, en hann gerði það ekki. Heilbrigðisráðherra rak svo lestina á blaða- mannafundinum og fór mæðulega yfir að farið hefði verið í öllu að tillögum sóttvarnalæknis. Það kom fáum á óvart enda löngu búið að út- vista stjórn landsins til þess embættis. Adam var þó ekki lengi í paradís því sóttvarnalæknir bar stuttu síðar til baka að svo hefði verið, þar skeikaði klukkustund í opnun öldurhúsa. Öll sinntu ráð- herrarnir þó hlutverki upplýsingafulltrúa sóttvarnalæknis með prýði. Ríkisstjórnin er föst í tækniatriðum og á flótta undan sjálfri sér og stuðningsmönnum sínum, þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn. Við verðum að losna úr þeim höft- um sem nú er uppi því það eru aðstæður til þess. Snúa aft- ur til fyrra lífs. Lofa fyrirtækjum og fólki í landinu að blómstra. Þessi pest sem Ómíkron-afbrigðið er kallar ein- faldlega ekki á annað. bergthorola@althingi.is Bergþór Ólason Pistill Aftur til fortíðar í stað frelsis Höfundur er þingmaður Miðflokksins. FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is H itastig hafsins hefur áhrif á bráðnun íslensku jökl- anna. Nýleg rannsókn hollenskra og íslenskra vísindamanna staðfestir það sem áð- ur var vitað, að tengsl væru þar á milli, að sögn Guðfinnu Th. Að- algeirsdóttur, jarðeðlisfræðings og prófessors í jöklafræði við Háskóla Íslands. „Þegar hafið í kringum Ís- land hlýnar þá hlýnar líka á landinu og það hefur áhrif á afkomu jökl- anna. Hitabreytingar hafa líka áhrif á hversu mikil úrkoma verður. Við getum í raun sagt að hafið stjórni loftslaginu á Íslandi og hafi þannig bein áhrif á bráðnun jöklanna,“ sagði Guðfinna. Nýtt loftslagslíkan notað Hollenskir vísindamenn áttu frumkvæði að rannsókninni sem staðfesti þetta. Þeir hafa þróað lofts- lagslíkan sem heitir RACMO. Ný- lega birtist fræðigrein í Geophysical Research Letters um niðurstöður rannsóknarinnar. Brice Noël er aðalhöfundur en Guðfinna Th. Að- algeirsdóttir og Finnur Pálsson verkfræðingur, bæði við Jarðvís- indastofnun HÍ, eru meðhöfundar ásamt fleirum. „Þeir höfðu samband við okkur vegna þess að við erum búin að mæla jöklana síðustu áratugi og höfum því mjög góð gögn til að sannprófa líkön þeirra,“ sagði Guðfinna. Hún sagði að afkoma Vatnajökuls hefði t.d. ver- ið mæld árlega frá 1992. „Frá 1995 hefur massatap Vatnajökuls verið frá hálfum og upp í einn metra á ári. Mjög mikið massatap var árið 2010 vegna ösku sem kom úr Eyja- fjallajökli. Askan dreifðist yfir jökl- ana og minnkaði endurkast sól- argeislanna og jók bráðnunina. Við sáum að allir stóru jöklarnir töpuðu miklum ís það sumar. Aukinn breytileiki milli ára Eftir 2010 hefur heldur hægt á massatapi jöklanna miðað við ára- tugina á undan en breytileiki milli ára hefur aukist. Sumarið 2019 var til dæmis mjög mikið massatap en heldur minna sumarið 2020. Í fyrra varð svo aftur mikið massatap mjög svipað og 2019.“ Hollenska loftslags- líkanið sýnir að tengsl séu á milli massataps jöklanna hverju sinni og hitastigs hafsins í kringum Ísland. Kaldi pollurinn í hafinu Kaldur pollur sem hefur myndast í hafinu suður af Grænlandi hafi valdið því að hægt hafi á massatapi jöklanna eftir 2010. Kaldi pollurinn er oft kallaður „bláa bólan“ vegna þess að kaldi sjór- inn myndar eins og bláan blett á hita- kortum af hafinu. Ýmsar kenningar eru um hvers vegna þessi kuldapollur hefur myndast. Ein þeirra er að svo mikið af fersku leysingavatni frá Grænlandsjökli berist í hafið að það hamli gegn Golfstraumnum, færi- bandi hafsins, sem hefur flutt hlýjan sjó sunnan úr höfum og norður með ströndum Íslands og Noregs. Fjallað var um rannsóknina á vef- síðunni euronews.com þann 26. janúar og rætt við Brice Noël. Þar kom m.a. fram að auk veikingar Golfstraumsins sem hafi leitt til myndunar „bláu ból- unnar“ geti hún hafa orðið til vegna lágskýja yfir svæðinu sem endurkasti sólargeislunum. Þegar hitastig hækk- aði að meðaltali um 1°C á síðustu öld kólnaði bólan um allt að 0,9°C. Jöklarnir á Íslandi hafi tapað um 16% af þeim massa sem þeir höfðu við lok „litlu ísaldar“ um 1890. Massatapið sem hófst 1995 var mikið þar til hægðist á því frá árinu 2011. Blaðið segir að aðra sögu sé að segja af Grænlandsjökli sem tapaði 166 milljörðum tonna af ís fyrstu átta mánuði ársins í fyrra. Massatap Grænlandsjökuls hefur sexfaldast frá lokum 20. aldar. Bráðnun Græn- landsjökuls er núna stærsta ástæða hækkunar sjávarborðs. Hægir á massatapi til 2050 Guðfinna sagði líkanið hafa ver- ið notað til að reikna út hvernig þró- un jöklanna geti mögulega orðið fram til loka aldarinnar. „Niðurstöð- urnar sýna að það hægir á massatapi jöklanna fram til ársins 2050. Það er sá tími sem þessi kuldapollur gæti haft áhrif til kælingar samkvæmt þessu líkani. Eftir 2050 sýnir líkanið að massatap jöklanna aukist aftur vegna þess að áhrif kuldapollsins minnka og hafið í kring hefur hlýnað töluvert,“ sagði Guðfinna. Hiti hafsins hefur bein áhrif á jöklana Bláa bólan í N-Atlantshafi Breyting á yfirborðshita á jörðinni 1901-2012 í ºC Rannsóknir benda til þess að kuldapollur sé í hafinu sunnan við Ísland og Grænland ºC Heimild: NASA Hvít svæði= upplýsingar vantar Golfstraumur Norður- Atlantshaf Noregs- hafÍshafs- straumur N-At lants hafs - strau mur Bláa bólan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.