Morgunblaðið - 29.01.2022, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022
✝
Björn
Hallmundur
Sigurjónsson var
fæddur í Vík í Mýr-
dal 17. apríl árið
1940. Hann lést í
Vík 20. janúar 2022.
Foreldar hans voru
Sigurjón Björnsson,
fv. verkstæð-
isformaður hjá
Kaupfélagi Skaft-
fellinga, f. 1909, d.
1995, og Jóhanna Sigurbjörg
Guðmundsdóttir húsmóðir, f.
1914, d. 2000. Báðir foreldrar
Björns komu úr stórum systk-
inahópi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Systkini Björns eru Elín Hafdís,
f. 1945, og Guðmundur, f. 1958.
Björn kvæntist Kristínu S.
Ragnarsdóttur, f. 1944, árið
1966. Þau hafa alla tíð búið í Vík.
Kristín starfaði lengi hjá Pósti og
síma og var síðar fulltrúi Trygg-
ingastofnunar á Sýsluskrifstof-
sama félagi allt til ársins 1972.
Þá vann hann á eigin vörubifreið
við lagningu hringvegarins á
Skeiðarársandi 1972 til 1975.
Björn var gjaldkeri og umboðs-
maður Samvinnutrygginga hjá
K.S. í Vík 1975 til 1981.
Björn var útibússtjóri Sam-
vinnubankans í Vík og á Kirkju-
bæjarklaustri frá 1981 til 1991.
Frá árinu 1991 til ársins 2000
var hann útibússtjóri Lands-
banka Íslands á sömu stöðum.
Björn var virkur í félagsstörf-
um og sveitarstjórnarmálum.
Áhugamál Björns voru mörg.
Hann hafði frá barnæsku mikinn
bíla- og veiðiáhuga. Síðar á æv-
inni brennandi golfáhuga, var
liðtækur í dansi, kveðskap og
skákmaður góður. Hjónin nutu
þess að eiga sumarbústað sem
stendur á fögrum reit í Skaftár-
tungu. Björn og Kristín ferð-
uðust mikið innanlands sem utan.
Björn verður kvaddur frá Vík-
urkirkju í dag, 29. janúar 2022,
og hefst athöfnin kl. 14.
Í ljósi aðstæðna er takmark-
aður fjöldi leyfður í kirkjuna en
athöfninni verður streymt.
https://promynd.is/bjorn
https://www.mbl.is/andlat
unni í Vík.
Börn þeirra
Björns og Kristínar
eru: 1. Ragna, f.
1971, maki Birgir
Leó Ólafsson, f.
1970. Þau eru bú-
sett á Stangarlæk 1
í Grímsnesi. Þar
reka þau hestabú.
Börn þeirra eru Sig-
urbjörn Leó, f. 1997
og Kristín Lilja, f.
2002.
2. Sigurbjörg, f. 1978, maki
Karl Ágúst Hoffritz, f. 1975. Þau
eru búsett á Selfossi. Börn þeirra
eru Ólöf Eir, f. 1996 og Guðrún
Tinna, f. 2008.
Björn lauk sveinsprófi í húsa-
smíði frá Iðnskólanum á Selfossi
árið 1961 og meistaraprófi í
sömu iðn árið 1968. Björn vann
við smíðar, mest á trésmíðaverk-
stæði Kaupfélags Skaftfellinga
og við akstur vörubifreiða hjá
Líklega munum við best eftir
því sem frábrugðið er því hvers-
dagslega. Bjössi frændi og Stína
gáfu mér fjölmargar æskuminn-
ingar. Fyrir að hafa átt þau að
verð ég ævinlega þakklát. Á
heimili þeirra ríkti einstök ró, en
þar var líka oft glens og gaman.
Nú þegar Bjössi hefur kvatt okk-
ur vil ég færa þakkir og minnast
liðins tíma og margra gleði-
stunda. Fjölskylda mín flutti frá
Vík þegar ég var tólf ára gömul,
en tengingin við gömlu Víkina er
í huga mér mjög sterk.
Blessuð sé minning Bjössa
frænda. Megi Stína, Ragna, Sig-
urbjörg og allir aðstandendur
sem syrgja öðlast styrk.
Hvað hraðast líður,
það lengst af bíður
og gleymist síður
úr sinni og hug.
Þau öfl mig draga
til ættarhaga
með sólskins daga
og fanna flug.
(Einar Ben.)
Margrét Káradóttir.
Elskulegur móðurbróðir minn
er fallinn frá eftir erfiða baráttu
við illvígan sjúkdóm.
Hann Bjössi frændi var ein-
staklega handlaginn og bar
heimili þeirra á Mánabrautinni
þess glögglega merki. Allt var
svo fínt og fágað og öllu var hag-
anlega fyrir komið. Hann var
lánsamur með lífsförunaut og
voru þau hjónin samstíga í öllu
sem þau tóku sér fyrir hendur.
Ég á margar góðar minningar
frá æskuárum mínum í Vík.
Heimili þeirra Stínu og Bjössa
stóð mér alltaf opið og þótti mér
yndislegt að dvelja hjá þeim. Ég
var oft og tíðum í pössun hjá
þeim og var það móður minni
ómetanlegt að geta leitað til
þeirra þegar hún þurfti á aðstoð
að halda.
Bjössi átti mikið frímerkja-
safn og fékk ég að fletta í gegn-
um það mér til mikillar ánægju.
Allt var á sínum stað og allt svo
snyrtilegt hjá honum. Ætíð var
heimabakað bakkelsi á boðstól-
um. Allt var svo gott sem hún
Stína bakaði. Sem smástelpu
þótti mér nú ekki amalegt að fá
ískalda mjólk og kökusneið með
kvöldkaffinu.
Það var stutt í hláturinn hjá
Bjössa þó að alla jafna væri hann
alvörugefinn maður. Hann var
einstaklega ættfróður og tók
hann saman ættartölu foreldra
sinna.
Langvarandi veikindi settu
mark sitt á síðustu æviár hans.
Hann tók því af miklu æðruleysi
svo að eftir því var tekið. Stína
stóð þétt við hlið hans í veikind-
unum. Missir hennar, dætranna
og fjölskyldna þeirra er mikill.
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar allra.
Sigrún Káradóttir.
Góður vinur og samstarfs-
félagi til margra ára hjá Kaup-
félagi Skaftfellinga, Björn Hall-
mundur Sigurjónsson, er látinn.
Andlátið kemur eftir langa bar-
áttu við illvígan sjúkdóm sem að
lokum lagði hetjuna að velli.
Kynni okkar Björns hófust
stuttu eftir að undirritaður hóf
störf hjá Kaupfélagi Skaftfell-
inga árið 1974 en skömmu síðar
tók Björn við stöðu gjaldkera fé-
lagsins auk þess sem hann ann-
aðist umboð Samvinnutrygginga
á félagssvæði Kaupfélagsins í
Vestur-Skaftafellssýslu.
Björn var mikið snyrtimenni,
nákvæmur og reglufastur í öllu
sem hann tók sér fyrir hendur
svo eftir var tekið. Féll það ein-
staklega vel að verkefnum hans
og skyldum hjá félaginu og skipti
starfsemina miklu. Samstarf
okkar einkenndist ávallt af gagn-
kvæmu trausti og virðingu. Síðar
var Björn kallaður á aðrar víg-
stöðvar, þegar hann tók við
starfi útibússtjóra hjá Sam-
vinnubankanum í Vík.
Björn var vinsæll, vel liðinn og
lagði áherslu á að þjóna við-
skiptavinum sínum vel. Nú að 48
árum liðnum minnist ég vinar
míns og samstarfsmanns með
hlýhug og þakklæti. Við áttum
gott og víðtækt samstarf, í alls 10
ár, á tíma sem oftar en ekki ein-
kenndist af þungum rekstri
verslunar- og þjónustufyrir-
tækja sem oft áttu erfitt upp-
dráttar í strjálbýli á þessum ár-
um. Þá var dýrmætt að eiga
Björn að sem minn næsta full-
trúa sem og félaga. Hann þekkti
og skildi gangverk mannlífsins
fyrir austan betur en ég, ungur
aðkomumaðurinn, og var oftar
en ekki ráðagóður.
Góð og ævilöng vinátta og
samleið var með eiginkonum
okkar í félagsmálum og kóra-
starfi í Víkinni. Mér er það minn-
isstætt og kært þegar Björn
hringdi í mig stuttu eftir andlát
konu minnar Erlenar, fyrir rúmu
ári, og sagðist ekki hafa haft
kjark til að hringja fyrr en
nokkru eftir fráfallið. Hann var
svo miður sín við fráfall góðrar
vinkonu fölskyldu sinnar í gegn-
um árin. Þarna kristallast hlý-
leiki og hjartalag Björns, þessa
dagsfarsprúða ljúfa manns.
Björn starfaði um tíma mikið
að félags- og framfaramálum
sveitarfélagsins og lagði þannig
sitt af mörkum til samfélagsins
sem var honum kært eftir ævi-
langa búsetu í Víkinni. Aðrir
munu vitna betur um þann þátt
sem þekkja betur til en ég.
Ég og synir mínir, ásamt fjöl-
skyldum þeirra, sendum þér
elsku Kristín, dætrunum og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Kæri Björn Hallmundur takk
fyrir allt og allt. Minningin um
góðan og traustan félaga lifir.
Matthías Gíslason.
Þegar við Olga fluttum í Víkina
austan af fjörðum fyrir rúmri
hálfri öld og ég tók við skólastjórn
þar, þá þekktum við engan í Vík.
Fljótlega fórum við aðeins að
kynnast nágrönnunum á Fitinni.
Þar áttum við eftir að eignast
traust vinafólk og hefur sú vinátta
haldist alla tíð síðan. Í þeim hópi
voru Bjössi og Stína og enn traust-
ari urðu vinaböndin í gegnum
krakkana okkar sem voru á sama
aldri.
Björn Hallmundur var ákaflega
vandaður maður og allt sem frá
honum kom var vandlega unnið.
Þetta vissi ég og þegar mér datt í
hug að byggja hús í Vík, þá vissi ég
að hann hafði réttindi til að teikna
hús þótt hann væri starfandi úti-
bússtjóri bankaútibús í Vík. Eftir
nokkurn eftirgang fékk ég hann til
að teikna húsið að Suðurvíkurvegi
5 og er ég viss um að það eru fá hús
hérlendis sem eru teiknuð af starf-
andi bankastjóra. Það var alveg
sama að hvaða verki hann gekk,
allt varð að vera 100%. Þetta fékk
ég einnig að reyna þau ár sem
hann var formaður skólanefndar
Víkurskóla og áttum við þá mjög
gott samstarf.
Þau Bjössi og Stína voru mjög
samhent hjón og það var mjög
ánægjulegt að vera í kringum þau.
Þau komu í heimsóknir til okkar
eftir að við fluttum aftur austur á
Eskifjörð. Minnisstæðust verður
trúlega alltaf fyrsta heimsóknin,
ég var staddur í Reykjavík og ætl-
aði að vera í samfloti með þeim
austur. Ég náði þeim á Hornafirði
og gerði ráð fyrir að við yrðum
komin heim um kvöldmat en það
fór nú öðruvísi. Þegar við vorum
komin á móts við Gautavík í Beru-
firði þá sprakk á nýlegum Scout-
inum hjá Bjössa sem var svo sem
ekkert merkilegt miðað við hvern-
ig vegirnir voru. En Adam var ekki
lengi í Paradís því þegar við vorum
komin rétt fram hjá Breiðadalsvík
þá sprakk aftur og nú urðum við að
fara með tvö dekk og láta gera við.
Engir farsímar voru á þessum ár-
um svo við gátum ekkert látið vita
af okkur því hremmingarnar voru
ekki búnar. Um miðnætti urðum
við að skilja Scoutinn eftir í Hólma-
hálsi við Eskifjörð því þá hafði
sprungið tvisvar í viðbót. Alltaf var
Bjössi jafn rólegur yfir þessu öllu
og sagði mér seinna að það hefði
bara ekki sprungið hjá sér síðan.
Nú hefur þú vinur kær fengið
hvíldina eftir löng og erfið veikindi.
Við Olga sendum þér Stína mín,
Rögnu, Sigurbjörgu og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur um leið og við þökk-
um samfylgdina.
Hvíl í friði kæri vinur.
Jón Ingi.
Björn Hallmundur
Sigurjónsson
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...
Elsku maðurinn minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
PÉTUR S. VÍGLUNDSSON,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 3. febrúar klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat
og á https://langholtskirkja.is/
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir
Guðmundur S. Pétursson Elísabet Guðmundsdóttir
Margrét B. Pétursdóttir Björgvin M. Guðmundsson
Víglundur Rúnar Pétursson Hafdís Edda Stefánsdóttir
Sólborg Alda Pétursdóttir Hallgrímur H. Gunnarsson
Ragnar Pétur Pétursson Elma Karen Sigþórsdóttir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson Helga A. Haraldsdóttir
Sigurður Á. Sigurbjörnsson Auðbjörg Jakobsdóttir
Guðríður Sigurbjörnsdóttir Ómar Árnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Ástkær systir og frænka okkar,
INGIBJÖRG R. MAGNÚSDÓTTIR,
fyrrverandi skrifstofustjóri í
Heilbrigðisráðuneytinu,
lést fimmtudaginn 20. janúar á Grund.
Jarðsungið verður frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 1. febrúar klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á eftirfarandi slóð:
https://www.hljodx.is/index.php/streymi2.
Hlekkinn er jafnframt hægt að nálgast á mbl.is/andlat á
útfarardegi.
Blóm og kransar afþakkað. Þeir sem vilja styðja
Rannsóknarsjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur við Háskóla
Íslands geta lagt inn á bankareikning 0513-26-004057, kt.
Styrktarsjóða HÍ er 571292-3199 með „RIM“ sem skýringu.
Gunnar Víðir Magnússon
Magnús Friðrik Guðrúnarson Sverrir Helgi Gunnarsson
Eiríkur Snorri Ragnarsson Haraldur Ingi Gunnarsson
Leifur Ragnar Ragnarsson Guðrún Inga Bjarnadóttir
Ingjaldur Henrý Ragnarsson Árni Þór Bjarnason
Egill Þór Ragnarsson Gunnar Viðar Bjarnason
Birgir Sveinn Bjarnason Stefán Bragi Bjarnason
Eiginmaðurinn minn,
HILMAR VALDIMARSSON,
fv. fasteignasali,
lést þriðjudaginn 18. janúar á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 31. janúar klukkan 13.
Athöfninni verður streymt á hlekk: https://youtu.be/PpVX23ptE-I
Einnig má nálgast hlekk á streymi á www.mbl.is/andlat
Ásta María Sölvadóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Okkar elskaði
HJALTI ÁRNASON,
bóndi í Galtafelli,
lést á bráðamóttöku LSH 18. janúar.
Útförin fer fram í Hrepphólakirkju
þriðjudaginn 1. febrúar klukkan 13.30.
Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á
www.facebook.com/hrunaprestakall.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlát.
Guðrún Hermannsdóttir
Guðmundur Hjaltason Valborg Tryggvadóttir
Árni Hjaltason Dúna Rut Karlsdóttir
Inga Jóna Hjaltadóttir Borgþór Vignisson
afabörn, langafabörn og aðrir ástvinir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR GRÉTAR EGILSSON,
lést fimmtudaginn 6. janúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Bestu þakkir til starfsfólks Heru og
líknardeildar Landspítala, Kópavogi.
Sigrún Hannibalsdóttir
Hannibal Þ. Ólafsson Susanne Freuler
Steinunn H. Ólafsdóttir Stefán Sigurðsson
Ólafur Egill Ólafsson
afabörn og langafabarn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURBJARTUR HAFSTEINN
HELGASON
vélvirki,
lést á líknardeild Landakotsspítala
22. janúar. Útför fer fram frá Grensáskirkju
mánudaginn 7. febrúar klukkan 13.
Helgi Sigurbjartsson Kristín Bjarnadóttir
Jón Ásgeir Sigurbjartsson
Arnar Sigurbjartsson Unnur Malín Sigurðardóttir
barnabörn og langafabörn