Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 50 ÁRA Erlendur ólst upp á Skíð- bakka í Landeyjum og býr þar. Hann er búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum og er járningamaður og hrossa- ræktandi. Hann er formaður Hrossa- ræktarfélags Landeyja, situr í stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum og er í fagráði í íslenskri hrossarækt. Áhuga- málin eru hestar, sauðfé, fótbolti, hand- bolti og söngur, en Erlendur er í Karla- kór Rangæinga og sönghópnum Öðlingarnir. FJÖLSKYLDAN Eiginkona Erlends er Sara Pesenacker, f. 1981, frá Hagen hjá Dortmund, reiðkennari. Sonur þeirra er Heimir Árni, f. 2006. For- eldrar Erlends eru Árni Erlendsson, f. 1936, frá Skíðbakka, en Erlendur er sjötta kynslóð fjölskyldunnar sem hefur búið á Skíðbakka. Árni var bóndi þar og hreppstjóri, búsettur á Selfossi, og Guð- munda Laufey Hauksdóttir, f. 1943, frá Hjarðarhorni í Gufudalssveit, fv. hús- freyja á Skíðbakka, búsett á Selfossi. Erlendur Árnason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Allt sem viðkemur fjölskyldu, heim- ili og heimilislífi er mjög jákvætt þessa dag- ana. Þú færð góðar fréttir af ættingja. 20. apríl - 20. maí + Naut Hvort ástamálin þín blómstra stend- ur og fellur með því hvort þú getir lært af gamalli reynslu. Einhver heima fyrir þarf á athygli þinni að halda, gefðu þér tíma til þess að hlusta. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það skiptir öllu máli að hafa þannig áhrif á fólk að það taki þig trúan- lega/n. Margar hendur vinna létt verk. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þetta er góður tími til að koma skipulagi á líf þitt. Ekki kaupa neitt án þess að hugsa þig tvisvar um. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það er ekki laust við að þú náir að draga að þér athyglina í dag. Nú væri upp- lagt að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er nauðsynlegt að lesa smáa letrið í öllum skjölum. Þú gætir fengið bak- þanka vegna ummæla þinna um vissa per- sónu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú finnur þörf til að kaupa þér eitt- hvað í dag og ættir að láta það eftir þér. Reyndu að komast til botns í máli sem snertir fjölskyldu þína. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú hefur gert of miklar kröfur til þín í gegnum árin. Nú er kominn tími á breytingu. Ríkidæmi þitt kemur til þín í réttu hlutfalli við það sem þér finnst þú eiga skilið. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú heldur rétt á spöðunum ætti þér að takast að koma í framkvæmd öllum þeim hlutum, sem þig dreymir um. Reynið að taka hlutunum létt. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert eitthvað viðkvæm/ur og þarft umfram allt að halda öllu gangandi núna. Hafðu trú á getu þinni og sýndu með því öðrum gott fordæmi. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ættir að nota daginn til að velta því fyrir þér hvað skiptir þig raunveru- legu máli í lífinu. Mundu að sú/sá sem þú elskar er mennsk/ur eins og við hin. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þetta er ekki verri dagur en hver annar til að reyna eitthvað nýtt í eldhúsinu. Þú ert tilbúin/n í næsta áfanga í lífinu. lög á safnplötum hér heima og er- lendis, upp á síðkastið meira í út- löndum heldur en hérna. Ingvi skrifaði tónlistargagnrýni í DV 1990-2000 og um bækur á vef Bókmenntaborgarinnar um tíu ára skeið, kringum 2005-2015. Hann þýddi bókina Viskíbörnin (1999) og sendi frá sér smásagnasafnið Raddir úr fjarlægð (2010), en þar er m.a. að finna söguna Hliðarspor sem hlaut enskum söngvara, laga- og texta- smið, John Soul, sem hér bjó um árabil. Þeir fóru að semja saman músík og sendi JJ Soul Band frá sér fjórar breiðskífur á árunum 1994- 2008. „Þá ákváðum við að nóg væri komið. Við fengum talsvert af verð- launum og viðurkenningum fyrir tónlist okkar, allt kom það erlendis frá.“ Ingvi hefur samið músík fyrir 15 stórar plötur og svo hafa komið út I ngvi Þór Kormáksson er fæddur 30. janúar 1952 í Reykjavík og verður því sjö- tugur á morgun. Hann ólst upp á Ásvallagötu og í Álf- heimum. Þegar Ingvi var 11 ára flutti hann ásamt foreldrum sínum á Gufu- skála á Snæfellsnesi þegar faðir hans fékk starf á lóransstöðinni á Gufu- skálum. Þar bjó fjölskyldan þar til Ingvi varð 18 ára. „Það var alveg dásamlegt að vera á Gufuskálum þeg- ar ég hafði vanist því. Það orkaði sterkt á mann að vera þarna undir jökli og hefur alltaf verið ríkt í hug- anum.“ Ingvi gekk í Langholtsskóla, Grunnskólann á Hellissandi, Reyk- holtsskóla, varð stúdent frá MR 1974 og lauk BA-gráðu í bókasafnsfræði með bókmenntir sem aukafag frá HÍ 1981. Hann nam við djassdeild Tón- listarskóla FÍH veturinn 1981-82. Ingvi vann alla tíð á Borgar- bókasafninu og var upplýsinga- bókavörður og teymisstjóri bókvals. „Það var alveg klárt í mínum huga að ég vildi hvergi annars staðar vera í dagvinnu en á almenningsbókasafni en ég byrjaði að vinna þar fyrstu vik- una mína í háskólanum. Ég vann þar meðfram námi og spilaði svo á böllum flestallar helgar. Ég var því alla tíð á tvennum vígstöðvum.“ Ingvi hætti á Borgarbókasafninu árið 2019, eftir 45 ár í starfi. Músíkferill Ingva hófst þegar hann var fjórtán ára í hljómsveit héraðsskólans í Reykholti. Þar lék hann á trommur en sneri sér svo að hljómborðinu. Hann spilaði á ung- lingsárum með hljómsveitum frá Ólafsvík og Hellisandi. Þær hétu Falkon, Lúkas og Júnísvítan. Síð- asta árið í MR 1974 hóf Ingvi að leika með hljómsveit Jakobs Jóns- sonar og í framhaldi af því lék hann með ýmsum hljómsveitum næstu 20 ár; Gaddavír, Experiment, Amon Ra og Goðgá, en einnig Hljómsveit Önnu Vilhjálms og Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar. „Svo stokkaði ég líf mitt upp á nýtt til að koma í veg fyrir ótíma- bæran dauðdaga vegna fremur glæfralegs lífernis.“ Ingvi hætti þá dansleikjaspilamennsku 1988 en stofnaði blús-djass hljómsveit með Gaddakylfuna árið 2009 fyrir bestu glæpasmásöguna. Ingvi hefur einnig sent frá sér skáldsögurnar Níunda sporið (2016) og Stigið á strik (2020). „Þessi bókaskrif komu svolítið aftan að mér. Hafði aldrei haft metnað í þá átt en fylgdi því sem andinn bauð. Veturinn sem ég hætti að vinna tók ég svo upp á því að spila blak mér til skemmtunar eftir áratuga hlé. Það er með ágætum hópi karla á Ingvi Þór Kormáksson, bókasafns- og upplýsingafræðingur og hljómlistarmaður – 70 ára Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Enn að semja Ingvi er með forleggjara ytra sem hann sendir lögin til. Alla tíð verið á tvennum vígstöðvum JJ Soul Band Frá vinstri: Steingrímur Óli Sigurðarson, Ingvar Þór Kormáksson, John Soul, Eðvarð Lárusson og Stefán Ingólfsson. Nýr borgari Hólmfríður Sunna og Ársæll Þór með Flóru. Hjónin Ingvi og Dagrún kynntust á Röðli þar sem Ingvi var að spila. . Til hamingju með daginn Grenivík Hugi Þór Stefánsson fædd- ist 29. janúar 2021 kl. 23.31 á Akureyri og á því eins árs afmæli í dag.Hann vó 3.525 g og var 48,5 cm langur. Foreldrar hans eru Heiða Elín Aðalsteinsdóttir og Stefán Hermannsson. Nýr borgari 9 Ræktum og verndum geðheilsu okkar Nýir skammtar daglega á gvitamin.is Hlúðu að því sem þér þykir vænt um

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.