Morgunblaðið - 29.01.2022, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.01.2022, Qupperneq 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 besta aldri sem kalla sig Blakendur. Þess utan er ég enn að semja músík. Orðinn latari við það en áður en er dálítið í því að semja instrumental músík með Vilhjálmi Guðjónssyni og fleirum og stundum eitt og eitt sung- ið lag. Þannig háttar til á þessum síðustu (og verstu) tímum að það er ekki nauðsynlegt að plötur þurfi að inni- halda 10-15 lög. Um leið og lag er tilbúið get ég sent það til forleggjara míns ytra sem framleigir (licensing) það ef verkast vill til annarra. Lagið getur því verið komið í einhvers kon- ar umferð eftir örfá daga. Gjarnan lenda þessi leiknu lög á spilunar- listum eða rafrænum plötum sem nýttar eru á veitingastöðum og hót- elum, verslanakeðjum og guð veit hvað. Má kannski segja að maður hafi endað í lyftumúsíkinni. Það eru til verri örlög.“ Fjölskylda Eiginkona Ingva er Dagrún Ársæls- dóttir, f. 16.2. 1952, leikskólastjóri. Þau eru búsett í Grafarholti í Reykjavík. Foreldrar Dagrúnar voru hjónin Ár- sæll Lárusson, f. 3.12. 1919, d. 27.4. 1995, sjómaður, og Kristín S. Frið- björnsdóttir, f. 19.10. 1921, d. 4.2. 2015, verkakona. Þau voru búsett í Nes- kaupstað. Sonur Ingvars og Dagrúnar er Ársæll Þór Ingvason, f. 14.11. 1981, hljómlistarmaður. Sambýliskona hans er Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir ferðaráðgjafi. Dóttir þeirra er Flóra Ársælsdóttir, f. 4.10. 2021. Foreldrar Ingva voru hjónin Kormákur Kjartansson, f. 8.12. 1925, d. 26.6. 2015, loftskeytamaður og sím- virki, og Hólmfríður Fríðsteinsdóttir, f. 28.8. 1929, d. 11.1. 2017, verslunar- maður. Ingvi Þór Kormáksson Hólmfríður Helgadóttir húsfreyja á Teigi Björn Finnbogason kennari í Möðruvallaskóla, síðar bóndi á Teigi í Vopnafirði Þórdís Sigríður Björnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Fríðsteinn Ástvaldur Fríðsteinsson sjómaður í Reykjavík Hólmfríður Fríðsteinsdóttir verslunarmaður í Reykjavík Ástríður Hannesdóttir húsfreyja í Reykjavík Fríðsteinn Guðmundur Jónsson skipstjóri í Reykjavík Jóna Ingibjörg Örnólfsdóttir húsmóðir á Þingeyri Jónas Thorsteinsson Hall verslunarmaður á Þingeyri Ingibjörg Jóna Hall húsfreyja í Reykjavík Kjartan Jónsson skrifstofustjóri í Reykjavík Jóhanna Kristín Jóhannsdóttir húsfreyja á Munaðarhóli Jón Jónsson útgerðarmaður og bóndi á Munaðarhóli á Hellissandi Ætt Ingva Þórs Kormákssonar Kormákur Kjartansson símritari í Reykjavík WWW.LJOSABUNADUR.ORG Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að geta ekki knúsast nógu oft. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann MEGRUNARRÁÐ DAGSINS… HITAEININGAR Í MAT ANNARRA GILDA EKKI ENGAR ÁHYGGJUR! ÉG SKAL LÁNA ÞÉR… OG AÐEINS MEÐ ÞRJÚ HUNDRUÐ PRÓSENT VÖXTUM! VIÐ ERUM AÐ RÆNA OKURLÁNARA SEM HRÓLFUR SKIPTI EINU SINNI VIÐ! FARÐU TIL FJANDANS, HRÓLFUR! NÚ GET ÉG EKKI BORGAÐ KASTALANN! LYFTA HRAÐFERÐ Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Unir best í eldi og reyk. Óvelkominn fer á kreik. Illvætti ég úti sá. Enginn vill á hendi fá. Guðrún B. á þessa lausn: Í reyk og eldi ræður skrattinn. Fram rýkur skratti úr sauðalegg. Ég mála, í skyndi, skratta á vegg. Og skratta í spili dregur pattinn. Harpa á Hjarðarfelli segir, að hún hafi orðið andvaka og farið að grufla betur í gátunni og þetta sé það sem henni kom helst í hug: Er þar skratti í eldi og reyk Einhver skratti fór á kreik. Illan skratta úti sá. Enginn skratta í spil vill fá. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Skratti sér unir í eldi og reyk. Óvelkominn fer skratti á kreik. Illvættið skratta ég úti sá. Enginn vill skratta í spili fá. Þá er limra: Ván er nú allra veðra, vandræðin aukast héðra, engu eira eldur og veira, og Skrattanum skemmt í neðra. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Nú er úti regn og rok rosalegt í vikulok, gefur ekki grand á sjó, gátuna ég samdi þó: Mikill vexti maður er. Magnað vopn í hendi ber. Kona, sem er trygg og trú. Talin galdrakind er sú. Helgi R. Einarsson skrifar mér, að þeim í fjölskyldunni hafi tekist að krækja í nokkur smit og þá hafi þessi orðið til: „Í aðdraganda jóla Veiran í bæinn sér bauð bersýnilega’ ekki dauð og skemmti því sér meðal skyldmenna hér er skárum við laufabrauð. Við hristum síðan óværuna af okkur og ekki kvarta ég. Lukkan hún er hliðholl mér, henni á margt að þakka. Hún mig ber á höndum sér um hæstu fjöll og slakka. Vonandi bankar lukkan upp á hjá sem flestum á nýju ári.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þar hitti skrattinn ömmu sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.