Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022
Frakkland
B-deild:
Nimes – Valenciennes............................. 2:1
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 66 mín-
úturnar með Nimes.
Belgía
B-deild:
Lommel – Lierse...................................... 0:1
- Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel.
England
B-deild:
Huddersfield – Stoke ............................... 1:1
Staða efstu liða:
Fulham 27 17 6 4 73:25 57
Blackburn 28 15 7 6 45:30 52
Bournemouth 27 14 7 6 43:24 49
QPR 27 14 6 7 40:31 48
WBA 28 12 9 7 34:22 45
Undankeppni HM karla
Suður-Ameríka:
Ekvador – Brasilía ................................... 1:1
Paragvæ – Úrúgvæ .................................. 0:1
Síle – Argentína........................................ 1:2
_ Brasilía 36, Argentína 32, Ekvador 24,
Úrúgvæ 19, Kólumbía 17, Perú 17, Síle 16,
Bólivía 15, Paragvæ 13, Venesúela 7.
_ Fimmtándu umferð af 18 lauk í nótt með
leikjum Kólumbíu gegn Perú og Bólivíu
gegn Venesúela. Fjögur efstu fara á HM í
Katar og fimmta lið í umspil.
Norður- og Mið-Ameríka, úrslitariðill:
Bandaríkin – El Salvador ........................ 1:0
Jamaíka – Mexíkó .................................... 1:2
Hondúras – Kanada ................................. 0:2
Kostaríka – Panama................................. 1:0
_ Kanada 19, Bandaríkin 18, Mexíkó 17,
Panama 14, Kostaríka 12, Jamaíka 7, El
Salvador 6 og Hondúras 3 eftir níu umferð-
ir af 14. Þrjú efstu fara á HM í Katar og
fjórða lið í umspil.
>;(//24)3;(
EM karla 2022
Undanúrslit:
Spánn – Danmörk................................. 29:25
Frakkland – Svíþjóð............................. 33:34
Leikur um 5. sætið:
Ísland – Noregur ......................... (frl.) 33:34
Grill 66 deild karla
Hörður – Valur U ................................. 36:34
Fjölnir – Afturelding U........................ 27:29
Vængir Júpíters – Kórdrengir............ 22:22
Staða efstu liða:
Hörður 12 10 0 2 408:342 20
ÍR 11 10 0 1 395:309 20
Fjölnir 13 9 0 4 394:365 18
Þór 10 7 0 3 292:275 14
Selfoss U 10 6 0 4 309:298 12
Grill 66 deild kvenna
ÍR – Fjölnir/Fylkir............................... 35:24
Staða efstu liða:
ÍR 12 10 1 1 327:254 21
Selfoss 12 10 1 1 354:290 21
FH 12 8 2 2 308:253 18
Grótta 11 6 1 4 283:253 13
Víkingur 13 6 0 7 313:338 12
Svíþjóð
Skuru – Kristianstad........................... 31:20
- Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk fyrir
Kristianstad.
E(;R&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – Afturelding ................. L13.30
Framhús: Fram – ÍBV............................ L14
Ásvellir: Haukar – Stjarnan................... L16
KA-heimilið: KA/Þór – Valur............ L16.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Origo-höll: Valur U – Haukar U ....... L19.30
Sethöllin: Selfoss U – ÍR ................... L19.30
Höllin Ak.: Þór Ak. – Berserkir ............. S14
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Framhús: Fram U – FH ......................... S16
Sethöllin. Selfoss – Grótta ................. S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin:
Origo-höll: Valur – Breiðablik ........... S17.15
Ásvellir: Haukar – Keflavík.................... S18
1. deild karla:
MVA-höllin: Höttur – Haukar .......... L19.15
Akranes: ÍA – Fjölnir ......................... S19.15
1. deild kvenna:
IG-höllin: Hamar/Þór – Ármann ........... L16
TM-hellirinn: ÍR – Vestri ....................... L17
MG-höllin: Stjarnan – Þór Ak................ L17
Dalhús: Fjölnir b – Aþena/UMFK ........ L18
REYKJAVÍKURLEIKAR
Keila í Egilshöll í dag og á morgun kl. 9-12.
Sund í Laugardalslaug í dag kl. 16.30-18 og
á morgun kl. 16-17.30.
Júdó í Laugardalshöll í dag kl. 9-15.
Borðtennis í TBR-húsi í dag kl. 15-18.
Ólympískar lyftingar í Laugardalshöll kl. 8-
13 á morgun.
Karate í Laugardalshöll kl. 10-16 á morgun.
Kraftlyftingar í Laugardalshöll kl. 14-18 á
morgun.
UM HELGINA!
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslandsmeistarar Þórs frá Þorláks-
höfn eru aðeins tveimur stigum frá
toppliði Keflavíkur í Subway-deild
karla í körfubolta eftir sterkan 88:75-
heimasigur á Stjörnunni í gærkvöldi.
Sigurinn var sá fyrsti á árinu hjá
Þórsurum í aðeins öðrum leiknum.
Stjarnan hefur tapað tveimur af síð-
ustu þremur eftir þrjá sigra í röð þar
á undan.
Þórsarar byrjuðu betur og voru
með 25:19-forskot eftir fyrsta leik-
hlutann en Stjarnan svaraði í öðrum
leikhluta og var staðan í hálfleik
50:50. Þórsarar unnu þriðja leikhlut-
ann með tíu stigum og voru Stjörnu-
menn ekki líklegir til að jafna í loka-
leikhlutanum.
Spánverjinn Luciano Masarelli
kann vel við sig á móti Stjörnunni því
hann skoraði 30 stig. Masarelli skor-
aði 29 stig síðast þegar liðin mættust
en hann er með 17,5 stig að meðaltali
í leik. Því miður fyrir hann mætir
hann ekki Garðabæjarliðinu í hverj-
um leik, en vonast væntanlega til að
þau mætist í úrslitakeppninni. Ronal-
das Rutkauskas, Litháinn stóri og
stæðilegi, skoraði 15 stig og tók 11
fráköst. Þá skoraði Daniel Mortensen
14 stig og tók 12 fráköst. Þórsarar
eru með fína breidd og menn eins og
Ragnar Örn Bragason og Emil Karel
Einarsson komu inn af bekknum.
Eins og oft áður var Hilmar Smári
Henningsson sterkur hjá Stjörnunni
en hann gerði 18 stig og var stiga-
hæstur. Stjarnan þurfti hinsvegar
meira framlag frá fleiri leikmönnum.
Shawn Hopkins náði sér ekki á strik
og Robert Turner var töluvert undir
eigin meðaltali í allri tölfræði. Þá hef-
ur hægst nokkuð á stigaskorinu hjá
fyrrverandi landsliðsfyrirliðanum
Hlyni Bæringssyni, en hann tók þó
níu fráköst.
Sigurinn var kærkominn fyrir
Þórsara eftir tvö töp í röð í deildinni
og fór liðið upp að hlið Njarðvíkur í
öðru sæti. Stjarnan missti af fínu
tækifæri til að slíta sig úr fjögurra
liða pakka í miðri deild, en Valur,
Grindavík og Tindastóll eru öll með
14 stig, eins og Stjarnan. Er líklegt að
þau fari öll í úrslitakeppnina að lok-
um.
KR ekki lengur í fallbaráttu
Grindavík missti sömuleiðis af
tækifæri til að slíta sig frá miðju-
pakkanum er liðið tapaði á útivelli
gegn KR, 83:81. Adama Darbo skor-
aði sigurkörfuna á síðustu sekúnd-
unni. Sigurinn var afar kærkominn
fyrir KR-inga eftir niðurlægjandi 48
stiga tap fyrir Breiðablik í síðustu
umferð. KR-ingar eru nú með 12 stig,
sex stigum fyrir ofan Vestra í fall-
sæti, en körfuboltastórveldið úr Vest-
urbæ var komið hættulega nálægt
fallsætunum.
KR-ingar eru að jafna sig eftir að
hafa misst Þóri Guðmund Þorbjarn-
arson út í atvinnumennsku, en í hans
fjarveru skoraði áðurnefndur Darbo
20 stig og Brynjar Þór Björnsson
kom sterkur af bekknum með 17 stig
og Króatinn Dani Koljanin var sterk-
ur á lokakaflanum.
Meistararnir
nálgast toppinn
- Sigurkarfa KR á síðustu sekúndunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hetjan Adama Darbo reyndist hetja KR í naumum sigri á Grindavík. Hann
skoraði sigurkörfuna tæpri sekúndu fyrir leikslok og var stigahæstur.
Sævar Pétursson, framkvæmda-
stjóri KA á Akureyri, veltir fyrir sér
að bjóða sig fram í kjöri formanns
Knattspyrnusambands Íslands á árs-
þingi KSÍ í lok febrúar og staðfesti
við Morgunblaðið að hann myndi
reyna að komast að niðurstöðu um
helgina hvort af því verði.
„Mér finnst spennandi að starfa í
íþróttahreyfingunni, hef verið vak-
inn og sofinn innan hennar, og þeg-
ar stærsta starfið innan hennar
kemur til umræðu þá skoðar maður
það,“ sagði Sævar við Morgun-
blaðið.
Sævar í for-
mannsslaginn?
Morgunblaðið/ Skapti Hallgrímsson
Akureyri Sævar Pétursson gæti far-
ið í formannsslag hjá KSÍ.
Knattspyrnumaðurinn Árni Vil-
hjálmsson hefur skrifað undir
tveggja og hálfs árs samning við
franska félagið Rodez en liðið leik-
ur í frönsku B-deildinni og er þar í
tíunda sæti af tuttugu liðum. Árni
hefur komið víða við á ferlinum og
leikið með Lillestrøm í Noregi, Jön-
köping í Svíþjóð, Nieciecza í Pól-
landi og Chornomorets Odessa og
Kolos Kovalivka í Úkraínu. Hann
varð næstmarkahæstur í úrvals-
deildinni á síðasta ári með 11 mörk
fyrir Breiðablik og gerði þrjú mörk
í Evrópuleikjum liðsins.
Árni til Suður-
Frakklands
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traust
Frakkland Framherjinn Árni Vil-
hjálmsson hefur samið við Rodez.
EM 2022
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Svíþjóð og Spánn mætast í úrslita-
leik Evrópumóts karla í handbolta
á sunnudag eftir sigra í undan-
úrslitum í Búdapest í gær. Sömu lið
mættust í úrslitum á Evrópumótinu
í Króatíu árið 2018 og vann Spánn
þá öruggan 29:23-sigur.
Spánverjar freista þess að vinna
þrjú Evrópumót í röð, en Svíum
tókst það einmitt frá 1998 til 2002.
Spænska liðið hafði betur gegn
heimsmeisturum Danmerkur í
fyrri leik undanúrslitanna í gær,
29:25. Danir byrjuðu mun betur og
komust í 9:5 snemma leiks en að-
eins einu marki munaði í hálfleik,
14:13. Spánverjar voru svo sterk-
ari í seinni hálfleik og unnu að lok-
um verðskuldaðan sigur.
Aleix Gómez fór á kostum fyrir
Spánverja og skoraði ellefu mörk
og Joan Canellas skoraði sjö. Gon-
zalo Pérez de Vargas átti svo afar
mikilvægar vörslur fyrir Spán-
verja á lokakaflanum.
Spánverjar hafa átt einstaklega
góðu gengi að fagna á Evrópu-
mótum og er þetta sjötta mótið í
röð sem spænskt lið fer í undan-
úrslit og fimmta mótið í röð sem
Spánverjar vinna til verðlauna.
Svíar sluppu með skrekkinn
Eftir sjö Evrópumót í röð án
verðlauna eftir þriðja Evrópu-
gullið í röð árið 2002 eru Svíar að
ná fyrri styrk á meðal bestu lands-
liða Evrópu. Sænska liðið var þó
nálægt því að kasta frá sér glæsi-
legri stöðu í blálokin gegn Frökk-
um en slapp með skrekkinn. Loka-
tölur urðu 34:33.
Frakkar komust í 7:3 snemma
leiks en Svíar, sem unnu endur-
komusigur á Norðmönnum til að
tryggja sætið í undanúrslitum,
gafst ekki upp frekar en fyrri dag-
inn. Sænska liðið minnkaði muninn
í 7:6 og var svo yfir í hálfleik,
17:14.
Frakkar komust næst því að
jafna í blálokin, en Andreas Pa-
licka, markvörður Svía, var hetjan
að lokum. Þegar staðan var 34:32
og tæp mínúta eftir töpuðu Svíar
boltanum og Aymeric Minne
minnkaði muninn í eitt mark. Svíar
voru snöggir að tapa boltanum í
næstu sókn og Ludovic Fabregas
fékk dauðafæri til að jafna fyrir
Frakka á síðustu sekúndunum en
Palicka sá við honum og tryggði
nauman sænskan sigur.
Jim Gottfridsson fór á kostum
fyrir Svía og skoraði níu mörk og
lagði upp fjölmörg mörk til við-
bótar fyrir liðsfélaga sína. Þá varði
Palicka vel í markinu og skoraði
auk þess þrjú mörk.
AFP
Glíma Jim Gottfridsson átti magnaðan leik gegn Frökkum í undanúrslitum
á EM í handbolta í Búdapest í gær. Svíar mæta Spánverjum í úrslitum.
Ná Svíar fram
hefndum?
- Svíþjóð og Spánn mætast aftur í úrslitum