Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.01.2022, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Sterk kímnigáfa, leikur með liti og vangaveltur um hinn íslenska þjóð- ararf í alþjóðlegu samhengi er meðal þess sem einkennir verk myndlist- armannsins Birgis Andréssonar (1955-2007). Umfangsmikil yfirlits- sýning á verkum hans verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvals- stöðum í dag, laugardaginn 29. jan- úar. Sýningin ber titilinn Eins langt og augað eygir og tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði. Þar er opið alla daga vikunnar frá kl. 10-17. Í tilkynningu frá safninu segir að Birgir hafi verið leiðandi afl í ís- lenskri myndlist í meira en 30 ár en hann féll frá langt fyrir aldur fram. Hinn bandaríski listfræðingur Robert Hobbs sér um sýning- arstjórn. Hann er prófessor í list- fræði og hefur í sínum rannsóknum einbeitt sér að tuttugustu öldinni. Hann hefur bæði starfað við há- skólana Yale og Cornell í Bandaríkj- unum auk þess sem hann hefur stöðu prófessors við hina virtu listadeild við Virginia Commonwealth University. Hann hefur einnig mikla reynslu af sýningarstjórn en þetta er í fyrsta sinn sem hann stýrir sýningu úr fjar- lægð en hann er staddur í Bandaríkj- unum vegna faraldursins. Hann nýt- ur trausts stuðnings Ásmundar Hrafns Sturlusonar, sem er hönn- uður sýningarinnar, og starfsfólks Listasafns Reykjavíkur. Heillandi og mikilvæg Hobbs kynntist verkum Birgis í Sean Kelly Gallery í New York fyrir um áratug og segist strax hafa heillast af þeim. Fyrir tilstilli Barkar Arnarsonar sem rekur galleríið i8 spurði eigandi gallerísins Hobbs hvort hann hefði áhuga á að vinna með verk Birgis. Sýningarskrá sem Listasafns Íslands hafði gert um sýn- ingu Birgis vakti athygli hans og hann sló til. „Ég hugsaði strax með mér að ég myndi njóta þess að vinna með verk Birgis. Sú vinna er heillandi, viðamikil og mikilvæg,“ segir Hobbs. „Eitt af því sem hefur vakið athygli mína er sú alþjóðlega hugmynda- fræðilega sýn sem Birgir hefur. Hann kynntist þeirri sýn bæði þegar hann var í listnámi hjá Magnúsi Páls- syni, Dieter Rith og Robert Filliou í Reykjavík og í Jan van Eyck aka- demíunni í Hollandi. Birgir horfði á íslenskar hefðir frá alþjóðlegu sjón- arhorni. Svo það er visst samtal eða spenna sem þróast milli þessara tveggja póla. Þetta stöðuga samtal breytir skilningnum á íslenskar hefð- ir en á móti hafa íslenku hefðirnar áhrif á hið alþjóðlega sjónarhorn.“ Af virðingu en þó gagnrýninn Í list sinni leitaði Birgir í brunn ís- lenskrar menningar, sagna, hefða og handverks þjóðarinnar. Hann velti fyrir sér sambandi þess staðbundna og þess hnattræna og hvernig það hefur áhrif hvort á annað. Hobbs seg- ir að það að hann sé sjálfur Banda- ríkjamaður hafi hjálpað honum að kunna að meta hvernig íslensk hefð hefur orðið til í gegnum aldirnar og sjá utan frá hvernig þjóðerniskennd Íslendinga var hálfpartinn persónu- gerð og nýttist í sjálfstæðisbarátt- unni. Hobbs bendir á að Ísland hafi breyst mikið og hafi orðið fyrir mikl- um áhrifum að utan á tuttugustu öld- inni og því hafi Birgir tekið eftir. „Birgir skoðar íslenska menningu á gagnrýninn hátt en þó af væntum- þykju. Hann ber virðingu fyrir henni og nýtur hennar en sér líka hvernig þessi umbreyting hefur orðið. Hann meðhöndlar þetta með skemmtilegu háði,“ segir Hobbs. „Þetta er eitt af þeim verkefnum það reynist sífellt stærra og mikil- vægara fyrir listasöguna því meira sem ég kafa ofan í það. Ég held að Birgir sé mjög mikilvægur fyrir ís- lenska listasögu en sé ekki síður þýð- ingarmikill á alþjóðavísu. Hann var vinur Lawrence Weiner, þekkts bandarísks konseptlistamanns. Þeg- ar ég tók viðtal við Weiner áður en hann dó lagði hann áherslu á að í hvert sinn sem hann heimsótti Ísland þá hefði hann hlakkað til að eyða tíma með Birgi því hann hefði verið svo klár og spurt svo gáfulegra spurn- inga. Birgir var líka kunningi lista- mannsins Donalds Judd. Birgir var afar virtur meðal kollega sinna, bæði á Íslandi og erlendis. Þegar kemur að konseptlist þá er hann einn af örfáum sem hafa fengist við liti. Það er svo erfitt að henda reiður á liti sem fyr- irbæri og ég held að hann hafi haft sérstaklega gaman af því.“ Húmorinn skín í gegn þegar Birgir vann hinar frægu veggmyndir sínar í litum sem hann kallaði „íslenska“. Hobbs bendir á að hann sé í raun og veru að nota sænskt litakerfi, al- þjóðlegt kerfi, sem hann heldur fast í að kalla „íslenska liti“. „Hann leikur sér í raun með hvað er íslenskt og heldur því opnu. Hvað er þjóðarlitur? Litur er ekki eitthvað sem þú getur neglt niður og skilið. Hvernig Birgir notar liti er gott dæmi um þá kímni- gáfu sem hann bjó yfir.“ Sem dæmi um annars konar verk sem tekur á hinu þjóðlega og hinu al- þjóðlega eru þau sem Birgir kallaði „Nýbúa“. Hann plantaði fræjum hinna ýmsu ávaxta í dósum undan niðursuðuvörum frá Ora og varpaði þannig ljósi á þann fjölda innflytj- enda sem streymdi til landsins. Ljós- myndir Birgis af Oradósunum sem hafa orðið fyrir erlendum áhrifum eru meðal þeirra yfir eitt hundrað verka sem verða til sýnis á Kjarvals- stöðum. Verk að láni frá The Met Listaverkin koma meðal annars úr safneign Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og Nýlistasafnsins en einnig frá innlendum og erlendum einkasöfnurum. Eitt verkið er síðan fengið að láni frá The Metropolitan Museum of Art í New York. Það er stór veggmynd í fallegum ljósbláum tón sem er einn af þessum „íslensku litum“. Sýningarstjórar þar vildu halda verkinu á íslensku í stað þess að þýða það yfir á ensku og því stend- ur skýrum stöfum „Eins lagt og aug- að eygir“, sem titill sýningarinnar vísar í. Þá verða einnig til sýnis prjónuðu fánarnir sem Birgir sýndi á Feneyjartvíæringnum árið 1995. Listamaðurinn var alinn upp hjá blindum foreldrum og bjó með þeim á heimili fyrir blinda. „Ég held það hafi haft gríðarleg áhrif á hann og hans list. Sumir hafa ýjað að því að það hafi verið synd að foreldrar hans hafi verið blindir og jafnvel að hann hafi fundið fyrir sektarkennd yfir að hafa gerst sjónlistamaður. En í raun var því öfugt farið. Hann átti í góðu sam- bandi við föður sinn og það að hann hafði verið alinn upp meðal blindra valdefldi hann sem barn. Eftir að hann gerðist listamaður leiddi hann foreldra sína um og lýsti listaverkum sínum fyrir þeim. Það gæti verið ein af skýringunum af hverju hugmynda- fræðin á bak við listina varð honum mikilvæg. Það var honum augljóslega mikilvægt að geta útskýrt lista fyrir þeim.“ Samhliða sýningunni kemur út stærðarinnar bókverk með verkum listamannsins sem ber titilinn In Ice- landic Colours. Ragnar Kjartansson, sem var nemandi Birgis, skrifar for- mála, Robert Hobbs skrifar um Birgi frá sjónarhóli listfræðinnar og loks er í verkinu að finna viðtöl Þrastar Helgasonar við listamanninn sjálfan. Þröstur skráði árum saman hnyttni Birgis og heimspeki, endurminningar og frásagnir og gaf út á bók árið 2010. Íslensk menning og alþjóðleg sýn - Umfangsmikil yfirlitssýning á verkum Birgis Andréssonar opnuð á Kjarvalsstöðum - Sýningar- stjórinn Robert Hobbs segir Birgi vera mikilvægan fyrir íslenska listasögu sem og á alþjóðavísu Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppsetning Í vikunni unnu starfsmenn Listasafnsins hörðum höndum að því að setja upp verk Birgis. Hér má sjá „Afríku“-röð listamannsins, textaverk sem eru í hinu „íslenska“ litakerfi sem hann notaði mikið í verkum sínum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verk „Nálægð, þekking, lestur“ komið upp á vegg á Kjarvalsstöðum. Ljósmynd/Jean Crutchfield Sýningarstjóri Listfræðingurinn Robert Hobbs stýrir sýningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.