Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Side 37

Morgunblaðið - 29.01.2022, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 S ænski rithöfundurinn Mons Kallentoft skrifar spenn- andi sögur og bækurnar um Malin Fors lögreglufor- ingja hafa skapað sér fastan sess í tilverunni. Vítisfnykur, sú tíunda í röðinni, svíkur ekki og undirtónninn er slíkur að bókin ætti jafnframt að gagnast öllum, sem eiga við áfeng- isvandamál að stríða, því ekki fer á milli mála að áfengi getur verið böl. Mikið böl. Malin Fors er engin venjuleg kona og spilar á allan skalann. Þegar hún er upp á sitt besta minn- ir hún á Jack Reacher, sem Lee Child hefur gert ódauðlegan. Jack á ekkert, ferðast létt og skiptir um föt með því að kaupa sér ný og fleygja hinum nokkurra daga gömlum, sem þó aldrei hafa verið þvegin. Ekki beint til fyrirmyndar en Malin fer sínu fram, hvað sem tautar og raular, og þegar hún vaknar úr rotinu skiptir hún litum og kaupir sér undirföt og kjól. Ný kona, sem virðist hafa náð tökum á vandanum. Titill bókarinnar vísar annars veg- ar í veröldina í Bangkok í Taílandi, þar sem sagan gerist, og hins vegar til ástands helstu söguhetjunnar. Umhverfinu er lýst sem skuggalegu og hættulegu, þar sem verstu glæpir þrífast í skjóli spillingar. Malin Fors virðist ekki eiga sér viðreisnar von, er illa lyktandi á barmi hyldýpis og ekkert lítur út fyrir að vera eftir nema endanlegt fall án undankomu. Hún hrasar ekki heldur dettur hvað eftir annað og í raun er umburð- arlyndi yfirmanna hennar með ólík- indum. Augun beinast að lög- reglukonunni og hve illa sé komið fyrir henni, en um leið er snyrtilega bent á að „fína“ fólkið hafi örugglega oft farið yfir strikið. Áfengið gerir ekki mannamun. Þótt Malin Fors sé vægast sagt fráhrindandi í sögunni er hún fyrst og fremst rannsóknarlögreglumaður og þegar hún vill svo við hafa eru það glæpirnir, sem halda henni gangandi, að leysa málin. Þótt hún þurfi að vaða eld og brennistein stoppar hana ekkert í því að komast að sannleikanum, hvað sem það kostar. Jafnvel flaskan togar ekki í, þegar svo er ástatt. Vítisfnykur lætur í raun engan ósnortinn, spennandi krimmi, ógeðs- legir glæpir í skuggalegu umhverfi og boðskapur sem allir hafa gott af að heyra og vera reglulega minntir á. Fær Sænska rithöfundinum Mons Kall- entoft bregst ekki bogalistin og Vítis- fnykur er tíunda bókin um Malin Fors. Á eldrauðu spjaldi í Bangkok Reyfari Vítisfnykur bbbbn Eftir Mons Kallentoft. Jón Þ. Þór íslenskaði. Kilja. 422 bls. Ugla 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Sinfóníuhljómsveit Íslands þurfti að fresta eða aflýsa fyrirhuguðum tónleikum sínum í janúar og febrúar vegna stöðu heimsfaraldursins, en mun þó koma saman á ný og halda tvenna hádegistónleika á næstu vikum, fimmtudagana 3. og 10. febrúar, að því er fram kemur í tilkynningu. Á fyrri tónleikunum, 3. febrúar kl. 12.10, verður boð- ið upp á dagskrá þar sem Siegfried Idyll eftir Wagner og Sinfónía nr. 29 eftir Mozart verða flutt undir stjórn Kornilios Michailidis, staðarhljómsveitarstjóra Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Á seinni hádegistónleikunum, 10. febrúar kl. 12.10, stjórnar Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, forleiknum að óperunni Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart og Sinfóníu nr. 6 eftir Beethoven sem oft er nefnd Sveita- sinfónían. SÍ heldur tvenna hádegistónleika Eva Ollikainen DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Bresku Brit-tónlistarverðlaunin verða afhent 8. febrúar og hefur nú verið greint frá því hver hlýtur verðlaun fyrir upptökustjórn árs- ins. Er Inflo, réttu nafni Dean Jos- iah Cover, og er hann fyrstur þel- dökkra til að hljóta verðlaunin í sögu Brit. Hann hefur m.a. unnið með Adele og R&B-hópnum Sault. Inflo segir í yfirlýsingu að það sé honum heiður að vera fyrstur þel- dökkra upptökustjóra til að hljóta þessi verðlaun og að vera hluti af slíkri breytingu. Í frétt Variety segir að framlag Inflo til tónlistar í fyrra hafi verið afar mikið og mikilvægt, hann hafi stýrt að hluta eða öllu leyti þremur plötum sem komust á lista Variety yfir þær bestu ár árinu, þ.e. 30 með Adele, Sometimes I Might Be Intro- vert með Little Simz og Nine með Sault. Plötur Adele og Little Simz eru báðar tilnefndar sem plötur ársins á Brit-verðlaununum sem voru afhent í fyrsta sinn árið 1977. Inflo Upptökustjóri ársins hjá Brit. Fyrsti þeldökki upptökustjóri Brit Hvaða þræðir lágu milli súrrealist- ans Salvador Dalí og sálgreinisins Sigmund Freud? Þeirri spurningu er varpað fram á nýrri sýningu, Dalí – Freud: An Obsession, eða Dalí – Freud: Þráhyggja, sem opn- uð var í gær í Unteres Belvedere í Vínarborg. Er þar ljósi varpað á myndmál Dalí og tengsl þess við sálgreiningu Freud. Forstöðumaður safnsins, Stella Rollig, segir sýningarstjórn ganga út að á segja sögur og að þessu sinni sé sögð saga tveggja manna sem hafi mótað hugmyndasögu tutt- ugustu aldarinnar. Andinn og listin mætist þarna, þekkingin og ástríð- an. Dalí hafi verið heltekinn af Sig- mund Freud og innblásinn af kenn- ingum hans í listsköpun sinni. Sýn- ingin sé sú fyrsta sem sýni tenging- una þarna á milli. Á sýningunni er m.a. fjallað um hvernig Dalí kynntist skrifum Freud og persónulegum kynnum þeirra. Spurt er að hversu miklu leyti sálgreining Freud hafði áhrif á list Dalí. Á sýningunni má sjá mál- verk, teikningar, hluti ýmiss konar, ljósmyndir, kvikmyndir, bækur, tímarit, bréf og önnur skjöl. Eru þessir gripir sagðir sýna hversu hrifinn Dalí var af Freud og kenn- ingum hans. AFP Paranoia Verk eftir Dalí kennt við ofsóknaræði. Einn af fjölmiðlamönnum sem mættu á foropnun skoðar verkið. AFP Myndataka Gestur á sýningunni tekur mynd af málverki Dalí, „Svanir speglast sem fílar“, á foropnun sýningarinnar fyrir fjölmiðlafólk. Dalí, Freud og þráhyggjan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.