Morgunblaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 1
BÖRN OG
UPPELDI
Eignaðistdóttur uppá eigin spýturSilja Ívarsdóttir
Er sjö barna móðirEydís Hrönn Tómasdóttir
VAR LENGI AÐ ÁKVEÐA HVORT
HÚN VILDI
F Ö S T U D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 41. tölublað . 110. árgangur .
MILLA ÓSK Á
VON Á SÍNU
FYRSTA BARNI
BÖRN OG UPPELDI 24 SÍÐUR
Undirbúningur sveitarstjórnarkosn-
inganna í vor er nú í fullum gangi og
framboðslistar í smíðum eða jafnvel
frágengnir. Sums staðar eru fram
undan prófkjör eða forval. Margir
sýna framboði áhuga og virðist sem
neikvæð umræða og jafnvel illmælgi
um stjórnmál og stjórnmálamenn,
sem sést t.d. á samfélagsmiðlum,
letji fólk ekki til þátttöku.
„Það vekur vissulega athygli að
víða virðist vera talsverður áhugi á
að taka sæti á framboðslistum,“ seg-
ir Birgir Guðmundsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri. „Mér sýnist að stór hluti
þeirra sem eru að gefa sig að pólitík
núna tilheyri kynslóðum sem þekkja
vel inn á þetta nýja umhverfi, eru
innfæddir netverjar eða mjög ná-
lægt því að vera það. Því hafi þau til-
tölulega mikið sjálfstraust til að
vinna í þessu umhverfi og líklega
ekki eins upp-
næm og örlítið
eldra fólk fyrir
óhróðrinum og ill-
mælginni sem
stundum þrífst á
vettvangi sam-
félagsmiðla,“ seg-
ir Birgir.
„Það er nokkuð
snúið að meta orsök og afleiðingu
þegar kemur að því að meta hvað fær
fólk til að bjóða sig fram til sveit-
arstjórnarstarfa. Það virðist vera
einhver munur tengdur stærð sveit-
arfélaga, þ.e. að fólk sé tilbúnara að
bjóða sig fram í stórum sveitarfélög-
um frekar en litlum, en hvar þessi
mörk liggja nákvæmlega er erfitt að
segja til um,“ segir Eva Marín
Hlynsdóttir, prófessor við Háskóla
Íslands.
gudmundur@mbl.is »12
Margir sýna
framboði áhuga
- Neikvæð umræða virðist ekki letja
Mikið fannfergi hefur verið á höfuðborgar-
svæðinu í vikunni og virðist það ekki á förum.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið
stíft við snjómokstur en þó er augljóst að
margir telja ekki nóg að gert. Á samfélags-
miðlum lýsa margir þeirri skoðun sinni að
hægt gangi að ryðja húsagötur og göngu-
stíga. Þessi kona kannaði aðstæður við Flóka-
svo mikið hafi fallið af snjó að þær ráði stund-
um ekki við verkið. Þá hafi reynst „tafsamt“
að þurfa alltaf að byrja upp á nýtt þegar
meira hefur snjóað á næturnar. »4
götu í gær og virtist óviss um hvort hún ætti
að þora að leggja í hann. Hjalti J. Guðmunds-
son, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg,
segir að notaðir séu tugir véla við mokstur en
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þungfært á götum og göngustígum og mokstur gengur hægt
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Garðar Sverrisson, sem um langt
skeið hefur setið í stjórn Hússjóðs
Öryrkjabandalagsins, Brynju, sakar
stjórn bandalagsins og formann
þess, Þuríði Hörpu Sigurðardóttur,
um bolabrögð sem miði að því að
koma réttu fólki í stjórn. Formaður
ÖBÍ tilkynnti honum í upphafi árs að
ákveðið hefði verið að skipta honum,
ásamt tveimur öðrum stjórnarmönn-
um, þeim Arnþrúði Karlsdóttur og
Ingveldi Jónsdóttur, út fyrir aðra
nýja. Hefur Brynja hússjóður stefnt
ÖBÍ fyrir dóm þar sem þess er kraf-
ist að afturköllun umboðs þremenn-
inganna verði ógilt og skorað á
bandalagið að kjósa með lögmætum
hætti í stjórnina að nýju.
Í bréfi sem Garðar hefur skrifað
til aðildarfélaga ÖBÍ, og Morgun-
blaðið fjallar um í dag, segir hann að
upp sé komið „alvarlegt spillingar-
mál“ þar sem fólk þurfi að rísa upp
til að verja hagsmuni hússjóðsins
gagnvart „þeim sem nú vilja gera sér
Hátúnslóðina að féþúfu og fjár-
magna skúffufyrirtæki huldumanna
sem víða vilja hagnast á nýbygging-
um“. Brynja, Hússjóður Öryrkja-
bandalagsins, er stórt og mikið félag
en eignir sjóðsins eru metnar á u.þ.b.
30 milljarða króna og byggist sú eign
einkum á 860 íbúðum sem flestar eru
á höfuðborgarsvæðinu.
Segir Öryrkjabandalagið
í slagtogi við huldumenn
- Stjórn Brynju hússjóðs skipt út - Lóðir í Hátúni í kastljósi
Morgunblaðið/Eggert
Hússjóður Deilt er um skipan Öryrkjabandalagsins í stjórn Brynju.
MHússjóðurinn í hart … »10