Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022 Vefverslun:www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf S. 555 3100 · donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Verð kr. 39.420 Hreinna loft - betri heilsa jafnfallinn snjó í efri byggðum nú en þá.“ Hjalti hafnar því að minni áhersla sé lögð á að moka göngu- stíga en göturnar. „Stígarnir eru alls ekki í minni forgangi. Stofn- stígar eiga að vera teknir fyrir klukkan átta á morgnana og svo förum við inn á tengistígakerfið og svo framvegis. Það hefur bara reynst mjög tafsamt að þurfa alltaf að byrja upp á nýtt þegar við fáum snjó ofan í þann sem var fyrir.“ lengri tíma en við héldum. Þetta er eins og að moka sig í gegnum fjall,“ segir Hjalti. Hann segir að sjaldgæft sé að svo mikill snjór falli í borginni. Margir hafa rifjað upp mikla snjó- komu í byrjun árs 2017 en Hjalti bendir á að þá hafi verkefnið verið mun viðráðanlegra. Bæði hafi snjórinn fallið á sunnudegi og svo hafi ekki snjóað endurtekið ofan í upprunalegu skaflana eins og nú er raunin. „Við erum með meiri Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við biðlum áfram til fólks að sýna okkur þolinmæði enda erum við að reyna að gera okkar besta. Þetta er flókið verkefni,“ segir Hjalti J. Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlands- ins hjá Reykjavíkurborg. Hið mikla fannfergi sem blasir við íbúum á höfuðborgarsvæðinu virðist ekki vera á förum á næst- unni. Starfsmenn borgarinnar hafa unnið stíft við snjómokstur í vik- unni en þó er augljóst að margir telja ekki nóg að gert. Á sam- félagsmiðlum lýsa margir þeirri skoðun sinni að hægt gangi að ryðja húsagötur og göngustíga. Raunar hafa margir kvartað undan því að snjór af götum sé ruddur inn á göngustíga og þeir séu því ófærir með öllu í sumum tilvikum. Hjalti segir að snjódýpt sé allt að metri í sumum hverfum og ástandið sé verst í austurhluta borgarinnar, til að mynda í efra Breiðholti. „Við erum með tugi véla úti til að moka en þegar snjór- inn er svona mikill eru margar af þessum vélum í vandræðum, sér- staklega þær minni. Við erum bara að ströggla og þetta tekur okkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Þungfært Gangandi vegfarendur hafa átt erfitt með að komast leiðar sinnar í höfuðborginni í vikunni. „Eins og að moka okkur í gegnum fjall“ - Óánægja með snjóruðning á göngustígum í borginni Morgunblaðið/Árni Sæberg Ganga Þegar gangstígar hafa ekki verið mokaðir er eina leiðin til að kom- ast áfram að labba á götunni eins og þetta fólk gerði við Flókagötu í gær. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sérfræðingar bókunarvefjarins Culture Trip mæla með Giljaböðun- um í Húsafelli fyrir ferðafólk sem leitar sér upplifunar á ferðalögum á þessu ári. Eru Giljaböðin einn af fjórtán stöðum sem bókunarvefurinn mælir með til afþreyingar fyrir ferðafólk. „Þetta er mikilvæg viðurkenning eins og raunar allar viðurkenningar og ein af flottari viðurkenningum sem hægt er að fá í afþreyingar- ferðamennsku,“ segir Unnar Berg- þórsson, framkvæmdastjóri Hótels Húsafells, en Giljaböðin eru hluti af ferðaþjónustunni í Húsafelli. „Þetta vekur athygli ferðafólks sem er að koma til landsins eða er að skipu- leggja ferðir hingað og ekki vissi af Giljaböðunum. Þetta er nýlegt hjá okkur, við opnuðum rétt áður en kór- ónuveirufaraldurinn brast á, og höf- um hingað til ekki lagt mikið púður í að kynna böðin. Það vill oft verða svo að þegar maður fær eina kynningu þá hefur það keðjuverkandi áhrif því fleiri taka eftir og vilja líta á málið,“ segir Unnar. Giljaböðin voru opnuð haustið 2019. Þar eru jarðhitalaugar, hlaðn- ar úr náttúrusteini úr gilinu, í stór- brotnu umhverfi. Ganga þarf að laugunum, um 1,5 kílómetra spotta, og leiða leiðsögumenn gönguna. Sjálfbærni var höfð að leiðarljósi við uppbygginguna og er það eitt af því sem sérfræðingar Culture Trip sáu við Giljaböðin. Nýjungar mikilvægar „Alltaf er mikilvægt í ferðaþjón- ustu að vera með nýjungar, koma með eitthvað nýtt og spennandi fyrir fólk að sjá og gera,“ segir Unnar. Hann segir að reksturinn hafi gengið vonum framar þau rúmlega tvö ár sem liðin eru frá því byrjað var að selja ferðir í Giljaböðin, þrátt fyrir að lítið hafi verið lagt í kynningu. Fólki finnist það mikið ævintýri að koma þangað. Nefnir Unnar að þau hafi verið heppin að fá til starfa tvo leiðsögumenn sem búsettir eru í uppsveitum Borgarfjarðar. Þeir hafi staðið sig vel og eigi stóran þátt í við- urkenningunni. Ferðaþjónar mæla með Giljaböðum - Böðin eru einn af fjórtán stöðum sem mælt er með til afþreyingar í ár Sjálfbærni Giljaböðin eru hlaðin úr náttúrusteini og fyllt með jarðhitavatni. Metfjöldi kórónuveirusmita greind- ist í fyrradag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki sé hægt að tala um hjarðónæmi í sam- félaginu fyrr en daglegum smitum fækkar. Toppnum virðist enn ekki náð og er ekki víst að farið verði í algjörar afléttingar á aðgerðum í næstu viku. Mun ekki hrynja hratt niður Tæplega 100.000 kórónuveirusmit hafa greinst hér á landi síðan farald- urinn hófst fyrir tveimur árum. 2.881 smit greindist í fyrradag. „Við vitum ekki hvenær við náum þessum toppi. Auðvitað er maður alltaf að vonast til þess að toppnum sé náð en þetta eru mettölur og það er greinilega mjög mikil útbreiðsla í gangi,“ segir Þórólfur. Spurður um mögulegt hjarð- ónæmi segir Þórólfur: „Við þurfum fyrst að sjá lægri smittölur áður en við förum að tala um hjarðónæmi. Hvenær það næst veit maður ekki nákvæmlega. Það gerist hægt, þetta mun ekki hrynja niður einn tveir og þrír, þetta mun fara niður hægt og bítandi.“ Fjöldi smita og innlagna á LSH með Covid-19 frá 1. júlí 2021 júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. 1.553 Heimild: LSH og covid.is 44 2.881 58 einstaklingar hafa látist 2.881 ný innanlandssmit greindust sl. sólarhring Fjöldi staðfestra smita innanlands Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð Covid-19-smit 44 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu, enginn þeirra í öndunarvél Alls hafa síðan 28. febrúar 2020 yfir 100.000 smit verið stað- fest og um 1,6 milljón sýni verið tekin innan- lands og á landamærum 2.750 2.500 2.250 2.000 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 Þurfum lægri smittölur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.