Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 14

Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022 Íslenskir við- skiptaaðilar sem reka fyrirtæki þar sem seldur er margs kon- ar varningur gerast af og til alvarlegir lögbrjótar þegar þeir auglýsa niðurfellingu á virðisaukaskatti á vörum sínum eða að varan sé „tax free“. Þessir aðilar gera sér ekki grein fyrir því að þeir hafa ekkert löggjafarvald til að fella nið- ur skattálagningu ríkisvaldsins heldur aðeins vald til að lækka of- urálagningu (okurálagningu) sína og eru því lögbrjótar með auglýs- ingum um niðurfellingu virð- isaukaskatts eða niðurfellingu (skammaryrðisins) „tax free“. Áberandi auglýsing í Frétta- blaðinu 12. febrúar um niðurfell- ingu á virðisaukaskatti á einum hlut upp á mörg hundruð þúsund krónur er ekkert annað en auglýs- ing um lækkun okurálagningar. Verður það að teljast sofanda- háttur ríkisvaldsins að hafa ekki stöðvað þessar ólöglegu auglýs- ingar okraranna. Viðurkennt er að virðisaukaskattur er þyrnir í aug- um flestra Íslendinga, sem eru reiðubúnir að nota sér ímyndaðan gróða í sambandi við niðurfellingu virðisaukaskattsins eða skammar- yrðisins „tax free“. Íslenskir okrarar ættu í framtíðinni að auglýsa lækkun okur- álagningar sinnar í stað þess að blanda að- gerðum ríkisvaldsins inn í falsauglýsingar sínar. Staðreyndin er sú að álagning á Ís- landi er óhófleg og ekkert annað en ok- urálagning. Þeir sem reka fyrirtæki freist- ast til að blekkja al- menning með fölskum fullyrð- ingum um niðurfellingu á skatti þegar þeir lækka okurálagningu sína. Væru heiðarlegri viðskipti að auglýsa: „Álagning mín er XXX% og er álagningin lækkuð niður í XXX%,“ sem gæfi kaupendum sannari upplýsingar um raunvirði vörunnar. Burt með falskar upplýsingar í auglýsingum um niðurfellingu skatta þegar um raunlækkun okur- álagningar er að ræða. Ofurokrarar Eftir Kristján Guðmundsson Kristján Guðmundsson » Óheiðarlegar auglýs- ingar um niðurfell- ingu á virðisaukaskatti vöru eða það sem sölu- aðilar kalla einnig „tax free“. Höfundur er fv. skipstjóri. Þann 26. febrúar næstkomandi fer fram ársþing Knattspyrnu- sambands Íslands (KSÍ). Þar verður kos- inn formaður og stjórn sambandsins. Áherslu- atriði frambjóðenda fyrir þessi þing eru gjarnan kunnugleg stef og fátt um nýjar áherslur, hugmyndir eða útfærslur. Atriðin eru almennt orðuð og ekki útskýrt hvaða leiðir frambjóðendur ætla að fara til að ná settum markmiðum. Hver vill ekki efla aðildarfélögin, bæta aðstöðuna, hlúa að grasrótinni, vinna að meira jafnrétti, styrkja landsliðin eða styðja við barna- og unglingastarfið sem og kvennaknattspyrnuna? Þessi grunnatriði hljóta einfaldlega að falla undir starfslýsinguna. Hvað með að nefna 2-3 atriði varðandi hvernig við- komandi frambjóðandi ætlar að ná fram sínum áherslum og hvernig viðkomandi hyggst gera hlutina öðruvísi en aðrir áður? Núverandi formaður nefnir að minnsta kosti einhverjar leiðir sem hún vill fara, þó sumt sem þar er tilgreint er enn sem komið er frek- ar óáþreifanlegt og ótímasett, og því erfitt síðar að mæla árangur af aðgerðum. Ég held að það hafi komið flestum á óvart að fyrri stjórn KSÍ skyldi ekki óska eftir því við fram- kvæmdastjóra sambandsins að hún myndi þegar hætta eftir að meintu ofbeldismálin komu upp á yfirborðið. Framkvæmdastjórinn sjálfur virðist neita að horfast í augu við raunveru- leikann og hefur sagst ekki ætla að segja af sér vegna málanna. Eftir leyfi var hún allt í einu komin aftur til starfa. Í viðtali við fram- kvæmdastjórann sagðist hún hafa vitað af málum en vísað þeim á aðra eða í ferli. Spurð sagðist hún hvorki hafa séð ástæðu til að vinna sjálf í málunum né spyrja út í þau. Sum mál sem koma upp á vinnu- stöðum eru það alvarleg að bregðast verður við þeim sem fyrst og því verður að vera þar til staðar fram- kvæmdastjóri sem hefur dómgreind til að meta málin fljótt og rétt, og getur og er tilbúinn að skerast strax í þau í stað þess að vísa þeim bara frá sér og axla enga ábyrgð. Ég held að skynsamt fólk sjái nú í gegnum það ætli framkvæmdastjór- inn að bera fyrir sig verklagi eða verkaskiptingu. Eigi að gera hana að kvenkyns fórnarlambi í meintri karlamenningu hjá sambandinu, þá erum við nú stutt komin í jafnrétt- ismálum kynjanna. Það hlýtur að verða fyrsta verk nýrrar stjórnar KSÍ að ráða nýjan framkvæmda- stjóra. Viðbrögð fyrri stjórnar vegna meintu ofbeldismálanna hafa stór- skaðað knattspyrnuhreyfinguna hér heima. Samt ætlar þáverandi og nú- verandi varaformaður að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í stjórn sambandsins. Hvernig í ósköpunum ætlar næsta stjórn KSÍ að bæta ímynd og orðspor sambandsins og endurheimta traust og virðingu með sömu tvær manneskjur innanborðs og voru við stjórnvölinn í lykilstjórn- endastöðum hjá sambandinu þegar upp komst um meintu ofbeldismálin? Á heimasíðu KSÍ kemur fram hvaða fyrirtæki séu helstu styrkt- araðilar sambandsins. Eftir að meintu ofbeldismálin komu upp á yf- irborðið, nefndu sum þessara fyr- irtækja að þau vildu sjá trúverðuga áætlun um umbætur og aðgerðir hjá Knattspyrnusambandinu áður en þau tækju ákvörðun um áframhald- andi samstarf og kölluðu m.a. eftir meiri fagmennsku. Áhugavert væri að vita hvað fyrirtækjunum finnst um að framkvæmdastjórinn segist ætla að sitja sem fastast og að vara- formaðurinn ætli að bjóða sig áfram fram í stjórn eins og ekkert hafi í skorist. Auðvitað eiga bæði fram- kvæmdastjórinn og varaformað- urinn að sjá að sér, stíga strax til hliðar og hleypa að nýju fólki. Tveir lykilstjórnendur hjá KSÍ ættu að stíga til hliðar Eftir Hallstein Arnarson » Auðvitað eiga bæði framkvæmdastjór- inn og varaformaðurinn að sjá að sér, stíga strax til hliðar og hleypa að nýju fólki. Hallsteinn Arnarson Höfundur er með executive MBA gráðu í íþróttastjórnun og er virkur meðlimur í nokkrum leiðandi íþrótta- fagsamtökum á heimsvísu. Flokkur fólksins lætur sig loftlagsmálin varða og hefur beitt sér í þeim málaflokki bæði á þingi og í borg. Ég hef notið þeirra forréttinda að fá að lifa og þrífast á skógrækt- arsvæði í rúmlega tuttugu ár. Þar var eitt sinn ekki stingandi strá og margir sér- fróðir hvöttu til að eyða ekki púðri í ræktun á svæðinu. Það reyndist nú öðru nær og þar vaxa nú þúsundir trjáa og á um sjö hektara svæði. Það er lítið mál að rækta skóga og hér á landi eru þegar til trjátegundir sem munu lifa og dafna í nágrenni borg- arinnar. Reykjavík getur hugað að kolefn- isbindingu með skógrækt og víkkað sitt sjónarhorn í því sambandi. Til að hjálpa til við það lagði ég fram í borgarstjórn 15. febr- úar tillögu Flokks fólksins um að hefja skógrækt frá Reykjavík að Hengli til kolefn- isjöfnunar. Hugsunin er að hefja skógrækt á svæðinu frá Græna treflinum (skógrækt- aráætlun höfuðborg- arsvæðisins) að Hengli. Gæti orðið kolefnisjöfnun Reykjavík er með loftslagsstefnu og þessi tillaga fellur að þeim markmiðum. Tré draga kolefni úr lofti og binda það í trjáviði. Þar að auki binst kol- efni í jarðvegi þegar skógur mynd- ast. Hægt verður að fá það vottað að þessi aðgerð sé kolefnisjafnandi. Mjög líklega yrði með tímanum bundið mun meira kolefni en t.d. á að gera með carbfix-aðferðinni. Svæðið sem hér um ræðir er talið vera rýrt og því er líklegt að auka þurfi framboð á plöntunæring- arefnum. Verkefnið nær ekki aðeins yfir það land sem tilheyrir Reykja- vík heldur einnig yfir land ná- grannasveitarfélaganna svo og Ölf- us. En það ætti ekki að vera vandamál þar sem meirihlutinn í Reykjavík hefur þegar greiðan að- gang að nágrönnum í gegnum sam- ráðsferla í Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og á lands- vísu. Um þetta þarf ekki að stofna byggðasamlag heldur aðeins ná samkomulagi um stefnu og aðgerðir. Hér yrði um ódýra stórframkvæmd að ræða með miklum ávinningi. Til að auka framboð plöntunær- ingarefna mætti dreifa moltu frá SORPU samhliða útplöntun. Sú molta er ekki söluvara en mætti nota við þessar aðstæður. Meirihlutinn hefur einnig greiðan aðgang að stjórn SORPU og gæti talað fyrir málinu þar. Allt þetta svæði er að mestu til- tækt fyrir skógrækt. Um 12 þúsund hektarar af þessu svæði eru að vísu beitarhólf tómstundabænda höf- uðborgarsvæðisins. Það beitarhólf má færa til með nýjum girðingum. og verður að lokum þar sem kindur borgarbúa bíta í „lundum nýrra skóga“. Nokkrar flugur slegnar í einu höggi Með þessu yrðu nokkrar flugur slegnar í einu höggi. Kolefni yrði bundið, stórskógur yrði til og Reykjavík myndi jafna kolefn- isútblástur sinn. Fram hefur komið að svifryk frá Suðurlandi veldur svifryksmengun í Reykjavík. Stórskógur austur af Reykjavík myndi draga úr því. Þetta er ódýr leið til að kolefn- isjafna. Tré gera það sem nú er reynt að gera með tæknilausnum þ.e. að draga kolefni (koltvísýring) úr andrúmsloftinu og binda það í fast efni. Munurinn á að nýta tré til að binda kolefni eða að nota tækni- lausnir tengist bæði kostnaði og náttúrulegum ferlum. Tæknilausnir eru kostnaðarsamar en ef tré er plantað mun það binda kolefni öld- um saman án viðbótarkostnaðar. Mörg slík skógræktarverkefni hafa verið sett af stað víða um heim. Ekki er annað að heyra en að þau séu talin hafa mikið gildi fyrir kol- efnisbindingu. Reykjavík getur með aðgerð þess- ari lagt myndarlega af mörkum til loftslagsaðgerða. Stórfelld skógrækt frá höfuðborginni að Hengli Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur Kolbrún Baldursdóttir »Með þessu yrðu nokkrar flugur slegnar í einu höggi. Kolefni yrði bundið, stórskógur yrði til og Reykjavík myndi jafna kolefnisútblástur sinn. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.