Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022 ✝ Steinunn Júlía Friðbjörns- dóttir fæddist í Stefánshúsi í Vopnafirði 23. október árið 1928. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sundabúð í Vopna- firði 1. febrúar 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kristján Friðbjörn Einarsson, f. á Víðihóli á Fjöllum 25. febrúar 1896, d. 16. nóvember 1970 og Gunnhildur Ingiríður Gríms- dóttir, f. á Hellisfjörubökkum í Vopnafirði 7. júní 1900, d. 11. janúar 1968. Steinunn Júlía ólst upp í Sig- túni með foreldrum sínum og var hún næstelst 13 systkina en elstur var Ólafur, f. 1926, lát- inn, Helga, f. 1930, látin, Krist- ján og Grímur, f. 1931, látnir, Margrét Elísabet, f. 1932, látin, Magnea Kristín, f. 1934, látin, Elín, f. 1936, Stefanía, f. 1937, Bjarnheiður Jónsdóttir og eiga þau þrjú börn og fyrir á hann eina stúlku, 4) Friðjón, f. 1958, sambýliskona Aðalheiður Bald- vinsdóttir og á hann tvö börn, 5) Einar, f. 1961, sambýliskona Ágústa Ingimarsdóttir og eiga þau eitt barn og fyrir á hann eina stúlku. Barnabörnin, barnabarnabörnin og barna- barnabarnabörnin eru 54 tals- ins. Árið 1956 byggðu þau Stein- unn Júlía og Friðjón upp nýbýl- ið Deildarfell úr landi Fells og Hofs í Vopnafirði. Þar bjuggu þau myndarbúi til ársins 1982 er þau brugðu búi og fluttu í þorpið á Tanga. Þar vann Stein- unn Júlía á hjúkrunarheimilinu Sundabúð. Haustið 2001 fluttu þau Steinunn Júlía og Friðjón á Seyðisfjörð. Þar naut hún sín vel í meiri nálægð við fjölskyldu og eignaðist þar góða vini. Í mars 2021 fluttist Steinunn Júlía á hjúkrunarheimilið Sundabúð. Útför Steinunnar Júlíu verður gerð frá Vopna- fjarðarkirkju í dag, 18. febrúar, kl. 11. Jarðsett verður á Seyð- isfirði. Streymt verður frá út- förinni á Facebook-síðu Hofs- prestakalls. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Einar, f. 1938, Sig- ríður Bergþóra, f. 1940, Geir, f. 1943 og Sigurður, f. 1948. Hinn 10. ágúst 1957 giftist Stein- unn Júlía Friðjóni Gunnlaugssyni frá Hraunfelli í Vopna- firði. Hann lést 25. október 2010. Byggðu þau Deild- arfell í Vopnafirði og fluttu þangað árið 1956. Þau eign- uðust fimm börn en fyrir átti Steinunn Júlía eina stúlku, Ingi- björgu Valdísi Harðardóttur, f. 1949, eiginmaður Valgeir Gunn- ar Hjartarson og eiga þau þrjú börn. Börn Steinunnar Júlíu og Friðjóns eru: 1) Gunnar Krist- ján, f. 1954, sambýliskona Krist- ín Gissurardóttir og eiga þau tvö börn, 2) Björg, f. 1955, eig- inmaður Stefán Ragnar Ólafs- son og eiga þau fjögur börn, 3) Gunnlaugur, f. 1956, eiginkona Elsku amma. Elsku yndislega Júlla amma féll frá eftir stutt veikindi, hún var alla tíð heilsuhraust og yngd- ist bara sem árin liðu. Hugurinn var aðeins farinn að stríða henni undir það síðasta en þegar ég heimsótti ömmu í nóvember sl. og spurði hana hvort hún þekkti mig með þessa grímu á andlitinu sagði hún auðvitað þekki ég þig Guðrún mín, heldur þú að ég þekkki ekki augun þín? Þetta var dýrmætur tími sem ég átti með henni þennan dag. Hún var algjör dýrgripur hún Júlla amma og eru minningarnar ófáar sem við áttum saman. Margar voru bílferðirnar okkar og var þá spjallað mikið um heima og geyma. Hún sagði mér frá því í einni af ferðunum okkar þegar hún kom á Höfn að sækja mig til að fara með mig á Vopna- fjörð þegar ég var 6 mánaða göm- ul, þá bjuggum við á Valgeirs- stöðum og voru allir orðnir veikir af mislingum nema ég svo hún dreif sig á Höfn til að fjarlæga mig af þessu pestabæli. Gunna amma bjó í húsinu á móti og kom hlaupandi yfir því henni leist ekk- ert á að hún væri að fara með mig í burtu en Júlla amma var harð- ákveðin í að taka mig með. Fljót- lega eftir að við vorum komin í sveitina veikist ég mikið og var mér vart hugað líf, amma sat með mig inni í myrkvuðu herbergi í fanginu í fjóra sólarhringa og hjúkraði mér, sagði hún mér að læknirinn hefði sagt við sig eftir fjórðu heimsóknina til okkar: Þú átt lífið í þessari stúlku Júlla mín. Svo ég á lífið í þér, sagði hún. Hún vann lengst af á hjúkr- unarheimilinu á Vopnafirði og var mikils metin bæði af skjól- stæðingum og starfsfólki þar enda hugsaði hún með eindæm- um vel um þá sem þurftu á henni að halda og gerði miklu meira en af henni var krafist. Amma var alltaf svo fín, líkaði best að vera í pilsi og svo fór hún aldrei út úr húsi nema setja á sig varalit. Hún var alltaf með skjannahvítu borðtuskuna á lofti, heimilistækin á heimilinu voru alltaf eins og ný því hún strauk þau í bak og fyrir eftir hverja notkun, það var alltaf svo hreint og fínt hjá ömmu og það var eins og hún hefði ekkert fyrir heim- ilisstörfunum þótt oft væri margt um manninn hjá ömmu og afa. Hún var líka mjög dugleg að láta aðra í fjölskyldunni vita ef það væri drasl úti um allt hjá þeim og ekki væri búið um rúmin. Held að allir í fjölskyldunni tengi við þessa setningu: „Hey, Júlla amma er að koma í heimsókn, við þurfum að taka til og búa um rúmin okkar og hafa hreint þegar amma kemur.“ Hún var alla tíð mjög hrein- skilin og talaði aldrei í bakið á fólki og hún lét alveg fólk vita hvað henni fannst hvort sem það var gott eða slæmt. Hún var mjög dugleg að ferðast og mæta í allar veislur. Hún kom oft á Höfn og dvaldi hjá okkur um jól og áramót og nutu börnin, barnabörnin og lang- ömmubörnin þess að vera með henni, hún var hlý og góð og skammaðist aldrei. Síðustu jólin mín á Íslandi áður en ég flutti til Danmerkur var hún hjá okkur á Höfn og eru þau okkur öllum í fjölskyldunni mjög kær. Nú tekur við enn eitt ferðalag- ið hjá henni, megi allar yndislegu minningarnar um elsku bestu Júllu ömmu lifa jafnsterkt í hjört- um ykkar og hún gerir í mínu hjarta. Þín Guðrún Ragna. Elsku amma Júlla er nú farin frá okkur. Það er sárt að hugsa til þess að nú sé ekki lengur hægt að kíkja við í spjall á Túngötunni á Seyðisfirði og fá súkkulaðirúsínur eða annað góðgæti sem amma átti alltaf til. Langömmubörnin nutu þess að skottast af Miðtúni yfir til ömmu og var nóg fyrir okkur að horfa á eftir þeim því svo stutt var á milli húsa. Þar fengu þau hlýjar móttökur og yfirleitt komu þau til baka með eitthvert góðgæti í poka. Hugurinn leitar aftur í tímann og ég minnist heimsókna til ömmu Júllu og afa Friðjóns á Kolbeinsgötuna á Vopnafirði. Það var alltaf svo notalegt að koma á Kolbeinsgötuna þar sem alltaf var vel tekið á móti okkur. Amma og afi stóðu ávallt bæði í dyragættinni með opinn faðminn þegar við renndum í hlað. Þau afi voru bæði smekkfólk og var heimilið í anda þess því hver hlut- ur átti sinn stað og ekki rykkorn að sjá. Fyrir börn var heimilið á Kolbeinsgötunni í raun eins og ævintýrahús því herbergin voru mörg og gátum við valið úr her- bergjum að vera í. Eins var spennandi að fá að kíkja í búrið því þar var oft eitthvert góðgæti að finna og ýmislegt var hægt að brasa í kjallaranum sem leyndist undir bílskúrnum. Eins voru klettarnir fyrir ofan hús spenn- andi leikstaður og gátum við börnin leikið okkur tímunum saman þar. Amma Júlla var ætíð vel til höfð og þurfti ekkert tilefni til þess. Hún naut þess að klæða sig í fallegu fötin sín og skótauið var yfirleitt einnig af fínna taginu. Amma var hreinskilin kona og hafði sterkar skoðanir á hlutun- um og var ófeimin við að tjá þær. Það voru einmitt þeir eiginleikar sem gerðu hana svo skemmtilega og stundum pínu skondna. Amma var af þeirri kynslóð sem þurfti að hafa fyrir hlutunum og barðist til betra lífs. Hún var af þeirri kynslóð sem bað ekki um neitt en var alltaf að gefa af sér. Það er gott til þess að hugsa að nú séu þau amma og afi sameinuð á ný og við sem eftir stöndum minnumst hennar með söknuði og hlýju. Guð geymi ömmu Júllu. Þín Hildur Jóna. Júlla frænka og systir móður minnar heitinnar er farin í draumalandið. Hún var einstök kona, brosmild og vinaleg í alla staði. Það var alltaf skemmtilegt að hitta Júllu frænku, bæði þeg- ar ég var á mínum yngri árum og eins hin síðari ár. Dugnaður og vilji hennar til að mæta í ferm- ingar barna minna var einstakur þó að um langan veg væri að fara. Mér þykir vænt um það hversu dugleg hún var að koma til okkar á slíkum stundum og gefa af sér þann einstaka þokka sem hún bjó yfir. Hún vildi alltaf spjalla og fá fréttir af mér og mínum og helst hitta alla. Glað- legt fas hennar gaf af sér skemmtilegar umræður og spurningar um hagi hvers og eins og hvort ekki væri öruggt að öllum liði vel. Það geislaði af henni og það var augljóst að á svona stundum leið henni afar vel, þarna vildi hún vera, með skyldfólki sínu, gefa af sér, skapa umræður og spyrja spurninga, kynnast nýju fólki. Börnin mín tala um það hversu gaman það var að hitta Júllu og finna hlý- leikan sem frá henni stafaði, þau fundu strax að þar færi góð manneskja. Við munum öll minn- ast Júllu frænku með mikilli hlýju og jafnframt söknuði. Guð styrki ykkur öll á þessum erfiðu tímum. Viðar Sigurjónsson. Steinunn Júlía Friðbjörnsdóttir ✝ Magnea Ólöf Jónsdóttir fæddist 8. júní 1941 í Skálholtsvík í Hrútafirði. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi þann 5. febr- úar 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Grímsdóttir, f. 11. júlí 1894, d. 11. febrúar 1956, og Jón Magnússon, f. 20. maí 1891, d. 28. júlí 1956. Systkini Magneu: Valgerður, f. 30. maí 1917, d. 23. nóvember 2011, Matthildur, f. 15. júlí 1919, d. 21. ágúst 2008, Þorgeir, f. 20. október 1920, d. 13. september 1945, Þorbjörg, f. 17. nóvember 1923, d. 6. apríl 2014, Sigfríður, f. 14. ágúst 1926, Hildur, f. 29. ágúst 1929, og Ingibjörg, f. 30. október 1931, d. 5. ágúst 1932. Magnea giftist hinn 12. mars 1966 Sævari Daníelssyni, f. 29. júní 1942. Börn Magneu og Sævars eru: Jökull, f. 25. júní 1970, og Íris, f. 1. október 1972. Maki Írisar er Erik Robert Qvick og sonur Írisar er Patrik Írisarson Santos, f. 16. nóv- ember 2000. Magnea flutti til Reykjavíkur 1956 við andlát foreldra sinna. Hún gekk í Kvennaskólann og bjó síðan í Kaupmannahöfn. Snemma hóf hún störf hjá Fiski- félagi Íslands sem síðar varð Fiskistofa, þar starfaði hún alla starfsævina. Útför Magneu fer fram frá Langholtskirkju í dag, 18. febr- úar 2022, kl. 15. Það var einhver ævintýraljómi yfir því að vera alin upp norður á Ströndum eða það fannst mér þegar ég kynntist Möggu Lóu, vinkonu minni, sem nú hefur kvatt þetta jarðlíf. Bernskuárin hennar voru í Skálholtsvík við Hrútafjörð og oft fann ég hvað henni þótti vænt um sveitina sína, enda hafði hún búið þar við gott mannlíf, náttúrufegurð og kyrrð. Magga var langyngst sex systra en foreldrar þeirra dóu með stuttu millibili þegar hún var á fermingaraldri. Hún flutti þá til Reykjavíkur til einnar systur sinnar og naut skjóls og ástríkis hjá henni. Magga var góður námsmaður en skólagangan sem hún fékk sem barn var gjörólík þeirri sem jafnaldrar hennar í höfuðborginni voru vanir. Hún var í farskóla sem var til skiptis í gangi fyrir eldri og yngri nem- endur og því töluvert styttri skólatími en barna í þéttbýli og svo seinna var hún í heimavist- arskóla á Borðeyri. Í Reykjavík stundaði Magga fjögurra ára nám í Kvennaskólanum við Frí- kirkjuveg og stóð sig þar með prýði. Þar eignaðist hún góðar vinkonur fyrir lífstíð. Magga Lóa vann á skrifstofu Fiskifélags Íslands eftir útskrift, tryggur starfsmaður í um 50 ár. Hún giftist Sævari sínum, list- málara, þau eignuðust tvö börn, Jökul og Írisi, og voru samhent með allt heimilishald. Eftir nokk- uð langa búsetu í Fossvogi fluttu þau í einbýli í Vogunum og fékk þá húsbóndinn meira rými til að mála og Magga garð til að rækta blóm og matjurtir. Og ekki vant- aði snyrtimennskuna úti og inni. Magga Lóa var mörgum góðum kostum búin og henni voru eðl- islægar siðferðilegar dygðir á borð við góðvild, réttlætiskennd, hluttekningu og umhyggju. Hún hafði glaðlegt viðmót og fallegt bros, fylgdist vel með mönnum og málefnum, las mikið, var nægjusöm og laus við allt prjál. Það var aðdáunarvert hve vel hún sinnti öldruðum systrum sínum og eiginmanni í veikindum hans og síðast en ekki síst var tryggð hennar við vini einstök. Upp í hugann kemur hvar og hvernig góð manneskja mótast, var það kannski atlætið og umhverfið á Ströndum í tilfelli Möggu? Svarið er ekki á reiðum höndum en víst er að hún var vel af guði gerð og verður sárt saknað. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Við Jón sendum innilegar samúðarkveðjur til Sævars, Jök- uls, Írisar og annarra aðstand- enda. Margrét Örnólfsdóttir. Það er skrýtið að setjast niður og skrifa minningargrein um Möggu Lóu. Margar ánægjuleg- ar minningar koma upp í hugann þegar ég lít til baka og rifja upp okkar kynni. Fyrsta minning mín af Möggu Lóu (það var hún yfirleitt kölluð innan fjölskyldunnar) var þegar hún flutti úr sveitinni í Karfavog- inn til að búa hjá Völlu systur sinni. Hún var þá sautján ára og á leiðinni í Kvennaskólann. Á þess- um tíma var ég níu ára gömul og bjó með foreldrum mínum í sama húsi og Valla. Samskiptin voru mikil enda samankomnar þrjár systur í sama húsi. Ein jólin eru mér þó sérstaklega eftirminnileg en þá fékk Magga Lóa eingöngu silfurgaffla og -skeiðar í jólagjaf- ir. Þetta fannst mér ekki skemmtilegar gjafir en Magga Lóa var mjög ánægð þar sem hún var að safna sér í búið. Næsta minning mín er um glæsilega unga konu sem kom frá Danmörku eftir eins árs dvöl. Ég man enn mjög vel hvað hún var fín og flott. Hún talaði oft um þessa dvöl. Magga Lóa hóf búskap í Nökkvavogi með Sævari sínum í kjallaraíbúð í húsi sem þau áttu eftir að eignast síðar á ævinni. Í þeirri íbúð áttum við góðar stundir í eldhúsinu til dæmis kenndi Magga Lóa mér reikning sem reyndist henni auðveldara en mér. Ég minnist líka hnetu- kökunnar góðu sem var alltaf á boðstólnum. Ekki var nú síðra að fá að vinna með henni í Fiski- félaginu. Magga Lóa var af- bragðsvinnufélagi og ávallt tilbú- in að hjálpa og aðstoða. Við vorum svo lánsöm að þau fluttu í næsta nágrenni við mig og foreldra mína í Fossvoginum, þau í Gautlandið og við í Geit- landið. Á þessum tíma vorum við báðar að eignast börn og var samgangur fjölskyldna okkar mikill. Nokkrum árum síðar keyptu Magga Lóa og fjölskylda húsið sitt í Nökkvavoginum, sama hús og þar sem reikni- kennslan hafði farið fram í kjall- aranum. Það var notalegt að kíkja í kaffi í Nökkvavoginn og alltaf eitthvað heimabakað og gott með kaffinu. Magga Lóa reyndist mér alltaf vel. Sérstaklega vil ég nefna hjálpina og stuðninginn í gegnum veikindi móður minnar, Matthild- ar. Hún var alltaf boðin og búin að rétta fram hjálparhönd. Minn- isstæð er rifsberjauppskeran og rabarbarinn hennar sem var ein- staklega góður. Mamma sagði að hann væri sá besti, hann var nefnilega vínrabarbari. Og ég veit fyrir víst að margir aðrir nutu góðs af. Við fengum að aðstoða þau hjónin þegar þau fluttu í nýju fal- legu íbúðina sína í Fossvoginum fyrir ekki svo löngu. Íbúðina sem Magga Lóa var svo hreykin af. Henni auðnaðist ekki að búa þar eins lengi og hún hefði viljað því ansans krabbinn gat ekki yfirgef- ið hana. Samband okkar Möggu Lóu var gott allt til enda. Hún var heil og góð manneskja sem vildi öllum vel. Hennar verður sárt saknað og lífið verður tómlegra án hennar. Við sendum fjölskyldu hennar hlýjar samúðarkveðjur. Guðrún Jensdóttir og fjölskylda. Hér hvílir væn og göfug grein af gömlum, sterkum hlyni; hún lokaði augum hugarhrein með hvarm mót sólar skini. Hún dæmdi ei hart, hún vildi vel, í vinskap, ætt og kynning. Hún bar það hlýja, holla þel, sem hverfur ekki úr minning. (Einar Benediktsson) Félögum í yfir 60 ára gömlum saumaklúbbi hefur nú fækkað um einn. Magnea, sem aldrei var kölluð annað en Magga í vina- hópnum, hefur kvatt þennan heim. Jafnaðargeði hennar var við- brugðið. Það var varla nokkuð sem haggaði henni, kurteis fram í fingurgóma. Aldrei nokkurn tím- ann tranaði hún sér fram, var samt sem áður engan veginn skaplaus, en hún stillti skap sitt fullkomlega. Nálægð hennar og viðmót var með þeim hætti að manni leið alltaf vel þegar hún var nærri. Magga var engin flökkukind hvað varðaði vinnu, starfaði á sama vinnustað þar til hún fór á eftirlaun. Hún sinnti fjölskyldu sinni af- ar vel, hvort sem var manni sín- um eða börnum og seinna einnig barnabarni sínu, Patrik, þegar hann var kominn til sögunnar. Átti hann heldur betur hauk í horni þar sem amma hans var. „Mikil húsmóðir“ er stundum sagt – það var réttnefni um Möggu. Heimilið allt fágað og fínt og hún óhrædd við að prófa ým- islegt nýtt í eldamennskunni og bakstrinum. Það var ýmislegt nýtt kruðerí sem maður fékk á saumaklúbbskvöldum. Alltaf notalegt að koma í heimsókn til þeirra Möggu og Sævars hvort sem var í Gautlandið eða í Nökkvavoginn eftir að þau hjón keyptu þá húseign, en þau byrj- uðu sinn búskap í kjallaraíbúð þess húss. Mikil gróska var í garðinum hjá þeim, svo mikil að það voru fleiri í fjölskyldu hennar og í saumklúbbshópnum sem fengu að tína af rifsberjatrjánum til sultu- eða hlaupgerðar og ekki síður stóð rabarbarinn sig hreint fádæma vel, hann lenti í fleiri pottum en hjá heimilisfólkinu í Nökkvavoginum. Sama var uppi á teningnum innanstokks hjá þeim, öll blóm virtust vera í skjóli meistara grænna fingra og má þá ekki gleyma júkkunni í Gautland- inu sem leið svo óskaplega vel að hún vildi helga sér mikinn hluta stofunnar þar. Ekki var það síður skemmtilegt í heimsóknunum að fá að líta á nýjustu listaverk hús- bóndans, sem eru málverk, þrívíð verk og fleiri tegundir listaverka, afar falleg og sérstök. Saumaklúbbskonur og makar fóru saman í nokkur ferðalög um landið og alltaf komu þau hjón með. Öll þessi ferðalög voru ein- staklega vel heppnuð og var sér- staklega gaman að ferðast með Möggu um heimahagana, þaðan sem hún var ættuð og uppalin. Almættið úthlutaði okkur ein- hverju bezta veðri sem kom það sumarið á Ströndum. Fann mað- ur vel hversu sterk væntumþykja var í vitund hennar til æskustöðv- anna. Traustir vinir eru ómetanlegir. Magga var in af þeim. Veri hún kært kvödd. Hvíli hún í friði. Innilegar samúðarkveðjur til Sævars, Jökuls, Írisar, Eriks og Patriks. Guðríður og Helgi, Auður og Valdimar, Hrefna og Árni, Mjöll og Ásmundur, Sigrún og Ingólfur. Magnea Ólöf Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.