Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
Rað- og smáauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brautarholt 13, Snæfellsbær, fnr. 210-3461 , þingl. eig. Guðrún
Kolbrún Jóhannesdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi ves, fimmtudaginn 24. febrúar nk. kl. 11:15.
Tjarnarás 4, Stykkishólmur, fnr. 228-2408 , þingl. eig. Elínbjörg K
Þorvarðardóttir og Elín Hinriksdóttir og Gróa Hinriksdóttir og
Þorvarður Hinriksson, gerðarbeiðendurTM hf. og Arion banki hf.,
fimmtudaginn 24. febrúar nk. kl. 10:00.
Höfðabraut 10, Akranes, fnr. 225-7996 , þingl. eig. Guðrún Laufey
Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan ehf., fimmtudaginn 24.
febrúar nk. kl. 15:15.
Varmaland 1, Borgarbyggð 25 %, fnr. 210-7980 , þingl. eig. Unnur
Sturlaugsdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves,
fimmtudaginn 24. febrúar nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
17.febrúar 2022
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Ath. Grímuskylda er á uppboðum
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hraunborg, Hafnarfjörður, fnr. 208-0966 , þingl. eig. Leifur
Sörensen, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves,
þriðjudaginn 22. febrúar nk. kl. 10:00.
Hringbraut 25, 50% ehl. Hafnarfjörður, fnr. 207-6063 , þingl. eig.
Gísli Rafn Kristjánsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi ves, þriðjudaginn 22. febrúar nk. kl. 11:00.
Þingasel 7, Reykjavík, fnr. 205-4059 , þingl. eig. Steindór Ingi
Þórarinsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Vátryggingafélag
Íslands hf. og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. febrúar nk. kl.
13:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
17. febrúar 2022
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold
60+ kl. 10.30. Kraftur í KR kl.10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl.10.10,
Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. Hressandi hreyfing
í frábærum félgasskap. Bingói aflýst vegan jarðarfarar. Opin vinnu-
stofa kl. 13.30-15.30. Kaffi kl.14:30. Nánari upplýsingar í síma 411
2702. Allir velkomnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Leikfimi og yoga með Milan. kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S: 411 2600.
Boðinn Pílukast kl. 9. Línudans fyrir byrjendur kl. 14.15 og fyrir
lengra komna kl. 15. Sundlaugin er opin kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl.
9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Poolhópur, Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl.
10. Dansleikfimi, Sjálandi kl. 9.30. Smiðjan kl. 13-16 allir velkomnir.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30. Heitt á
könnunni, blaðalestur og spjall. Leikfimihópur kl. 10. Prjónakaffi kl. 10-
12. Kóræfing kl. 13-15.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.30 postulíns-
málun. Kl. 9-11 Bocciaæfing. Kl. 13-15.30 tréskurður. Kl. 14-15 sögur
og fræði. Kl. 20 félagsvist.
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Qigong heilsueflandi
æfingar kl.10. Ljósmyndaklúbbur kl.13. Bingó kl.13.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9-
11. Útskurður kl. 9-12. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 8.30 í Borgum.
Pílukast Korpúlfa kl. 9.30 í Borgum. Morgunleikfimi 9.45 í Borgum.
Gönguhópur kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, tveir styrk-
leikahópar. Bridge Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hannyrðahópur
Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í
dag. Allir hjartanlega velkomnir og hjartans ósk um góða helgi.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni og spjall í setustofu frá
9.30, föstudagshópur í handverkstofu kl. 10.30-11.30, hádegisverður
kl. 11.30-12.30, dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 12.50-13.30. Frábær
dans fyrir alla (ókeypis). Opin handavinnustofa kl. 13-16, Vöfflukaffi kl.
14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg Lindargötu 59, þið finnið okkur
á facebook á https://www.facebook.com/vitatorg
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla virka morgna kl. 9-11.30. Þar sem
vetrarfrí er í Valhúsaskóla á morgun þá fellur námskeiðið í tálgun og
útskurði niður. Syngjum saman í salnum á Skólabraut við undirleik
Bjarna Hreinssonar kl. 13 alla föstudaga. Kaffiveitingar. Kr. 500.- Allir
velkomnir.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á potta
Eigum til lok á flest
alla potta á lager.
Td. stærðir 200x200,
210x210, 220x220, 235x235,
kringlótt lok og átthyrnt lok.
HEITIRPOTTAR.IS
Sími 777 2000
Ýmislegt
Mercedes Benz 519 CDi Kipper
4x4. Sk. 08.2021 til sölu. Ekinn 900
km. Sjálfskiptur. Sturtar á þrjá vegu.
Dráttarbeisli 3.5 ton. Vel útbúinn.
Uppl. 8201071
kaldasel@islandia.is
Bílar
Nýr 2021 Nissan Leaf Tekna
40 kWh battery. Drægni um 270 km.
Evrópubíll í fullri ábyrgð. Eigum hvíta
og svarta til afhendingar strax.
Rúmri milljón undir listaverði á
aðeins 4.150.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Ásgerður Ás-
geirsdóttir
fæddist á Bræðra-
borgarstíg í
Reykjavík 11. mars
1942. Hún lést á
Grund við Hring-
braut 9. febrúar
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Ásgeir
Árnason vélstjóri
og Theódóra Ein-
hildur Tómasdóttir húsfreyja.
Eldri systkini Ásgerður voru
Erna, Tómas, Kolbrún og Svan-
hildur Árný sem öll eru látin.
Fjölskyldan bjó við Spítalaveg 9
á Akureyri þaðan sem Ása átti
ljúfar æskuminningar.
17. júní 1959 gekk Ásgerður
að eiga Sæmund Pálsson húsa-
smíðameistara og lögregluvarð-
stjóra (Sæma Rokk) f. í Reykja-
vík 31. júlí 1936.
Sæmi og Ása eignuðust fjög-
ur börn: Arna Sigríður Sæ-
mundsdóttir, f. 10. september
1959. Eiginmaður hennar var
Egill Daníelsson, d. 2016. Börn
þeirra eru Davíð Egilsson f.
1980, d. 2018. Börn hans og
Rakelar Guðbjargar Magnús-
Auðunsdóttir. Dætur þeirra eru
Sonja Ásgeirsdóttir, f. 1992,
sambýlismaður hennar er Andri
Rafn Yeoman, og Ásgerður Ás-
geirsdóttir, f. 1997.
Theódóra Svanhildur Sæ-
mundsdóttir, f. 25. september
1969. Eiginmaður hennar er Jó-
hann Örn Ólafsson. Börn Theó-
dóru og Anthonys Karls Greg-
ory eru Ólöf Sara Greogry, f.
1990, sambýlismaður hennar er
Jónas Arnþór Guðmundsson og
eiga þau einn ónefndan son, og
Sæmundur Karl Gregory, f.
1995. Sonur Jóhanns er Davíð
Guðrúnarson, f. 1990, sambýlis-
kona hans er Signý Gísladóttir
og dóttir þeirra er Aþena Guð-
rún, f. 2020. Börn Theódóru og
Jóhanns Arnar eru Jóhann
Egill, f. 2002, og Arna Sif, f.
2008. Barnabörnin urðu 11 og
langömmubörn Ásu verða orðin
18 nú í vor.
Sæmi og Ása hófu búskap
sinn í Skeiðarvogi, bjuggu í Sól-
heimum, við Álfhólfsveg og frá
1970 í Sörlaskjóli 46 í Reykjavík.
Ásgerður sinnti heimili og börn-
um en vann auk þess ummönn-
unarstörf. Mörg ár sinnti hún
eldri borgurum á Hrafnistu og
svo starfaði hún við umönnun
barna á leikskólanum Tjarnar-
borg.
Útför Ásgerðar fer fram frá
Neskirkju 18. febrúar 2022 kl.
13. Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
dóttur eru Dag-
björt Stjarna, Anna
Sól og Markús Máni
Leó. Ásgerður Eg-
ilsdóttir f. 1986,
sambýlismaður
hennar er Emil
Fenger, þeirra
börn eru Jakob
Eldur og Thea
Björk.
Hildur Vera Sæ-
mundsdóttir, f. 7.
júní 1961. Eiginmaður hennar
er Bjarni Þór Þórarinsson. Börn
Hildar og Höskuldar Haralds-
sonar eru Tómas Höskuldsson f.
1979. Börn hans og Evu Nínu
Einarsdótttur eru Tristan Máni,
Birta og Guðrún Elísa.
Guðrún Lønborg Höskulds-
dóttir, f. 1981. Eiginmaður
hennar er Thomas Lønborg.
Þeirra börn eru Emilía Sól Løn-
borg Guðmundsdóttir, Theo-
dora og Valdemar. Yngst barna
Hildar Veru og Bjarna Braga
Kjartanssonar er Júlía Hrefna
Rokk Bjarnadóttir, f. 1993.
Ásgeir Magnús Sæmundsson
f. 29. nóvember 1964, d. 15. des-
ember 2019. Eftirlifandi eig-
inkona Ásgeirs er Anna Sigrún
Í dag langar okkur að minn-
ast og heiðra elsku Ásu okkar,
móður æskuvinkonu okkar,
hennar Örnu Siggu.
Það var fallegur sumardagur.
Við vorum að róla okkur á
Skjólaróló við Sunnubúðina.
Glaðar og afslappaðar eins og
10 ára börn eru í sumarfríi,
öruggar á okkar róló.
Við vissum ekki að þessi dag-
ur myndi marka mikilvægt spor
í framtíð okkar. Ný fjölskylda
var flutt í Sörlaskjól 46 og
þarna komu þær systur gang-
andi til okkar og vildu vera
„memm“.
Hildur og Sigga Sæm., eins
klæddar, dökkar á brá og brún
og svo sætar að við vinkonurnar
vorum orðlausar.
En þessi fyrstu kynni urðu að
vinskap sem hefur haldið tímans
tönn.
Við og Arna Sigga erum enn
bestu vinkonur og höldum alltaf
tryggð hver við aðra.
Að kynnast Örnu Siggu var
ævintýri líkast því á bak við
hana stóð stórbrotin fjölskylda.
Ása og Sæmi voru ungir for-
eldrar og allt var svo öðruvísi
þar en á okkar heimilum með
eldri foreldra.
Það var því mikið leitað í S46.
Þar var nútíminn. Músíkin,
dansinn og yndislega Ása sem
tók okkur höndum tveim.
Brátt urðum við mjög hænd-
ar að Ásu og hún kallaði okkur
„yfirsetukonurnar“. Enda vörð-
um við mörgum stundum á
heimilinu. Fórum heim í mat og
svo mættar aftur í spil og góðan
félagsskap.
Það var okkur mikil upplifun
að kynnast frjálsræði heimilis-
ins. Ása var ung, fallegust af öll-
um, töff og nýtískuleg. Hún fór í
leikfimi, sem okkur þótti flott,
og á meðan við pössuðum yngri
systkinin gátum við vinkonurn-
ar hlustað á plötur úr safni
þeirra hjóna og hefur það vafa-
laust haft áhrif á tónlistasmekk
okkar.
Ása var tíguleg, falleg og bar
sig glæsilega. Hún var mikill
listunnandi og naut þess að fara
á tónleika og listsýningar og bar
heimilið þess vitni.
Ása var mikil fyrirmynd og
hún átti okkur alveg. Kærleiks-
rík og við elskuðum hana, dáð-
um og treystum.
Ása var mjög sérstök týpa og
fór aldrei framhjá fólki óséð.
Samt var hún frekar hlédræg
og hafði sig lítið í frammi. Hún
lék sitt hlutverk þegar Sæmi
varð lífvörður Fischers á HM í
skák í Reykjavík með miklum
sóma. Hvað við vorum stoltar af
þeim.
Ása bjó fjölskyldunni heimili
sem var mjög nútímalegt og
listrænt á þessum tíma og hún
var ótrúlega þolinmóð gagnvart
okkur vinkonunum og vinum
Örnu Siggu og mikill trúnaður
og væntumþykja sem myndaðist
á milli okkar. Við vorum alltaf
velkomin þrátt fyrir að hópur-
inn væri stundum galsafenginn.
Það var sárt að horfa á hana
hverfa smám saman á brott í
alzheimer, en alltaf var hún ljúf
og elskuleg og við áttum alla
hennar elsku alla tíð.
Elsku Ása hefur kvatt og eft-
ir situr fjölskyldan hljóð en við
vitum að á móti henni taka með
gleði Ásgeir, Egill og Davíð.
Blessuð sé minning þeirra.
Við þökkum að hafa kynnst
fjölskyldunni í S46. Það var
okkur lán og við samhryggj-
umst elsku Sæma, Örnu Siggu,
Hildi, Önnu Sigrúnu, Theu og
fjölskyldum þeirra.
Ása var stólpi og frábær
kona.
Og við elskuðum hana.
Edda og Ruth.
Hvað er það sem veldur því
að fólk gerist vinir, nær djúpum
og nærandi vináttutengslum og
langar að hittast sem oftast? Á
lífsleiðinni umgöngumst við
óhjákvæmilega fjölda fólks.
Sumir eru þannig að það er eins
og maður hafi alltaf þekkt þá en
hjá öðrum er ókleifur veggur á
milli.
Hún Ásgerður Ásgeirsdóttir
var úr fyrrnefnda hópnum,
sannur vinur vina sinna og hafði
áhuga á fólki í ólgusjó lífsins.
Við náðum strax vel saman og
gátum spjallað um allt milli
himins og jarðar.
Ása var glæsileg kona,
leggjalöng, hávaxin og gullfal-
leg. Hefði hæglega getað orðið
fyrirsæta eða kvikmynda-
stjarna.
Ása hafði margt til brunns að
bera. Hún var elsk að bóklestri
og fallegri tónlist. Kunni að
meta myndlist, unni góðum
kvikmyndum og þekkti vel til
kvikmyndaleikara sem sköruðu
fram úr. Gaman var að ræða við
hana um bókmenntir.
Hún var sagnameistarinn
þegar hún settist í hóp
barnanna og sagði þeim sögur.
Ófáar sögur sagði hún af honum
Röski, hundinum sínum.
Skemmtilegar og lærdómsríkir
sögur af sambandi manns og
hunds og hversu hundurinn var
að hennar mati mikilsverð vera
sem bar að umgangast af nær-
gætni, væntumþykju og virð-
ingu. Börnin störðu opinmynnt
og stóreyg af spenningi og biðu
þess hvernig sögunni yndi fram.
Einn drengjanna kom með
þessa yfirlýsingu: „Þegar ég
verð stór, ætla ég að skrifa sög-
ur um hann Rösk.“
Við vorum nokkrar konur,
sem gengum reglulega saman
og hittumst heima hver hjá ann-
arri eða á kaffihúsum. Við fór-
um líka í lengri ferðir saman
svo sem til Fljótavíkur á Horn-
ströndum, hjólatúr um Borg-
undarhólm, í heimsókn til Ingu
Rósu er hún bjó í Færeyjum
auk allmargra ferða hér á
höfuðborgarsvæðinu og í nær-
sveitum. Ása bauð okkur að
koma með sér í hús þeirra
Sæma í Lá Marina á Spáni síð-
sumars árið 2008. Þar áttum við
saman yndislega og eftirminni-
lega daga þar sem Ása var gest-
gjafinn og fararstjórinn.
Í mildum regnúða hjá Trölla-
fossi settumst við eitt sinn niður
vinkonurnar og gæddum okkur
á ostaköku með kaffinu. Þá
kviknaði hugmyndin að nafni á
gönguhópinn sem skyldi nefnd-
ur Ostakökuklúbburinn. Síðar
styttist nafnið í Ostarnir.
Ása kynntist ung manninum í
sínu lífi, stóru ástinni sinni, hon-
um Sæmundi Pálssyni, Sæma
rokk, og átti með honum fjögur
mannvænleg börn. Mikil um-
hyggja og ástríki var með þeim
hjónum alla tíð. Það var dásam-
legt að sjá hversu Sæmi bar
hana Ásu sína á höndum sér
alla tíð og vildi henni allt það
besta.
Eftir að Ása varð fyrir því að
fá alzheimer kom umhyggja
Sæma enn betur í ljós. Hann
var sá klettur í hennar lífi sem
hann hafði verið frá upphafi
þeirra sambands. Vék ekki fet
frá henni og stytti henni stundir
eftir megni.
Ása blessunin hélt sinni góðu
skapgerð og húmor þótt annað
væri henni horfið. Sagði okkur
alltaf hversu lánsöm hún væri
að eiga okkur að og allt sitt fólk.
Við Inga Rósa og Þurý þökk-
um kæru Ásu okkar samfylgd-
ina og vottum eiginmanni henn-
ar og ástvinum samhygð nú er
Ása hefur kvatt þetta jarðlíf og
haldið á vit annarra vídda. Guð
gæti hennar og ykkar allra.
Bjarnveig Bjarnadóttir
(Badda).
Ásgerður
Ásgeirsdóttir