Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
„EKKI BEINT ÞAÐ SEM ÉG ÁTTI VIÐ
ÞEGAR ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ HÆTTA AÐ
HAFA ÁHYGGJUR OG SLAKA Á.“
„ÉG FÆ EKKI HESTA FYRR EN Á
ÞRIÐJUDAGINN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skemmta sér við
að ganga veginn saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN,
HVERS VEGNA GELTA HUNDAR
KLUKKAN ÞRJÚ UM NÓTT?“
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
ÞAÐ ER ÞÁ SEM
HVERFISKEPPNIN BYRJAR
HRÓLFUR! ÞAÐ KOMU RIBBALDAR
OG RÆNDU RÁNSFENGNUM OKKAR Á
MEÐAN ÞÚ VARST Í BURTU!
OG ÞEIR ÁTU ALLAN
MATINN SEM ÉG VAR
AÐ ELDA!
ÞAÐ ER FÍNT!
ÞEIR KOMAST
EKKI LANGT!
Systkini Jóns eru Óskar Sigurðs-
son, f. 11.10. 1935 í Reykjavík, d.
18.11. 2014 í Reykjavík. Flugkennari
og flugstjóri í Reykjavík; Hörður Sig-
urðsson, f. 22.3. 1937 í Reykjavík, d.
19.5. 2019 í Reykjavík. Vélstjóri, rak
vélaverkstæði og starfaði sem leik-
sviðsstjóri í Þjóðleikhúsinu, starfaði
síðar sem svæðanuddari; Gunnar Sig-
urðsson, f. 3.5. 1946 í Reykjavík, d.
21.6. 2020 í Danmörku. Héraðs-
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Austurlands, síðar skoðunarmaður
hjá Plantedirektoratet í Danmörku;
Marta Guðrún Sigurðardóttir, f. 18.4.
1948 í Reykjavík. Fyrrverandi hús-
freyja á Blikastöðum og Neistastöð-
um, býr í Mosfellsbæ.
Foreldrar Jóns voru hjónin Sig-
urður M. Þorsteinsson, f. 25.2. 1913,
d. 3.1. 1996, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík og formaður og
einn af stofnendum Flugbjörg-
unarsveitarinnar í Reykjavík, og Ásta
Jónsdóttir, f. 11.7. 1916, d. 20.12.
2009, virk í kvenfélagi Laugarnes-
sóknar og kvennadeild Flugbjörg-
unarsveitarinnar.
Jón
Sigurðsson
Guðrún Þórðardóttir
húsfreyja í Selskarði á Álftanesi,
f. á Laug í Biskupstungum
Stefán Magnússon
þurrabúðarmaður í Gesthúsum
á Álftanesi, síðar húsmaður á
Kambhóli í Víðidal, V-Hún.,
f. í Gesthúsum
Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Meyvantsson
verkamaður í Reykjavík
Ásta Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Staðarhóli,
f. í Skarðdalskoti í Siglufirði
Meyvant Gottskálksson
bóndi á Staðarhóli í Siglufirði,
f. á Ysta-Mói í Flókadal, Skag.
Agnes Kjartansdóttir
vinnukona í Rofabæ og víðar
í Meðallandi, síðar ekkja og
vinnukona í Viðey, f. í Miðgarði
Kristján Eyjólfur Ásmundsson
vinnumaður í Rofabæ og víðar, f.
í Háu-Kotey í Meðallandi
Björnína Kristjánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þorsteinn Sæmundsson
sjómaður í Reykjavík,
síðar verkamaður í Hafnarfirði
Guðrún Ólafía Kjartansdóttir
bústýra í Tjarnarkoti og Háholti í
Hvalsnessókn, f. á Brunnastöðum
á Vatnsleysuströnd
Sæmundur Einarsson
þurrabúðarmaður í Tjarnarkoti
í Hvalsnessókn, f. á Uppsölum í
Landbroti
Ætt Jóns Sigurðssonar
Sigurður M. Þorsteinsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn
í Reykjavík og formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar
Hér kemur niðurlagið á hinu
bráðskemmtilega ljóðabréfi
Guðna Ágústssonar:
„Ásgeir Þórarinsson vörubíl-
stjóri á Selfossi var alinn upp á
Brúnastöðum. Hann flutti mjólkina
að Litlu-Reykjum en oft heyrði
hann hljóma hina miklu rödd Páls
Árnasonar þegar hann nálgaðist
brúsapallinn.
Heyrist glymja hátt við ský
hugur fylgir máli.
Það er fár og ósköp í
orðunum hjá Páli.
Stefanía Siggeirsdóttir prestsfrú
í Hraungerði og frænka Páls Ólafs-
sonar skálds, kona Sæmundar Jóns-
sonar prests, orti oft barnagælur
um drengina sína. En þeir urðu all-
ir merkir menn; Ólafur prestur í
Hraungerði, Páll skrifstofustjóri
danska fjármálaráðuneytisins í
Kaupmannahöfn og Geir yngstur
þeirra, prófastur og vígslubiskup á
Akureyri:
Óli Palli og Geiri,
ekki á ég drengina fleiri
er það yfrið nóg.
Allir eru þeir góðir
ungir, hýrir og rjóðir.
Bestur er yngsti bróðirinn þó.
Ennfremur þessa um Ólaf son
sinn:
Tunglið má ei taka hann Óla
til sín upp í himnarann,
Þá fer hún mamma að gráta og góla
gerir hann pabba sturlaðan.
Ég held því best um hátíð jóla
að halda sér í rúmstólpann.“
Þetta var gott bréf og væri mér
þökk í að fá fleiri slík.
Ingólfur Ómar sendi mér þessa
vísu á mánudag:
Nú er færðin fremur þung
fátt sem vekur kæti.
Óð ég snjóinn upp að pung
eftir miðju stræti.
Eggert Guðmundsson segir að
við áningar í fjallgöngum séu þrjár
grunnþarfir:
Er á hólum hunguról,
herðir gjólan svarta
þarf ég skjól og þurran stól,
og þýða sólu bjarta.
Davíð Hjálmar Haraldsson, þar
sem Akureyrarbær og ríki neita að
borga kostnað við bráðnauðsyn-
legar eldvarnir í Dvalarheimilinu
Hlíð:
Daufir, blindir, krankir, haltir, heftir;
þeir hafa stundum fundið reykjareim
en það er stutt sem flestir eiga eftir
og einfaldast að slökkva bara í þeim.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn var ort
á Brúnastöðum
Eiginkona
Unnusta
Kærasta
Amma
Systir
Frænka
Vinkona
FYRIR KONURNAR Í ÞÍNU LÍFI
H A I G I