Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 2

Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 SKELLTU ÞÉR Í SÓL Á TENERIFE! ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 23. - 28. MARS - 5 DAGAR HOVIMA JARDIN CALETA 3* VERÐ FRÁ88.500 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 108.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA 21. - 28. MARS - 7 DAGAR SPRING HOTEL BITACORA 4* VERÐ FRÁ135.500 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 183.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA HÁLFT FÆÐI HÁLFT FÆÐI Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er af fullum þunga að undir- búningi nokkurra nýrra landeldis- stöðva hér á landi. Ef öll áform ganga eftir verður framleiðslugeta stöðva sem stunda landeldi á laxi og bleikju vel yfir 100 þúsund tonn á ári, jafnvel meira en talið er að sjóeldið geti annað, og hún kemst í gagnið smám saman á næstu átta árum. Samhliða uppbyggingu er hugað að nýtingu úrgangs. Meðal annars eru áform um stórfellda matjurtaræktun í gróðurhúsum inn- an stöðvanna með affallsvatni. Forsvarsmenn helstu fiskeldis- fyrirtækja landsins sögðu frá starf- seminni á fræðsluráðstefnu Lax-inn í Hörpu í gær. Til þess að framleiða 100 þúsund tonn af laxi í landstöðv- um þarf mörg hundruð starfsmenn, auk afleiddra starfa og starfa við uppbyggingu. Landeldi í framkvæmdum Landeldi (Deep Atlantic) er kom- ið lengst í undirbúningi. Þar eru framkvæmdir hafnar á lóð við Þor- lákshöfn. Seiði verða sett út í ker í stöðinni í næsta mánuði þótt stöðin sé enn í byggingu. Þau færast síðan í stærri ker þegar þau verða tilbú- in. Fyrsta laxinum verður slátrað seinni hluta næsta árs. Stöðin á að byggjast upp í áföngum þangað til þar verður hægt að framleiða 33 þúsund tonn af laxi. Samherji er að undirbúa mikla landeldisstöð í Auðlindagarðinum á Reykjanesi. Unnið er að undirbún- ingi samkvæmt áætlun en áformað er að hefja framkvæmdir á næsta ári og hefja slátrun á árinu 2026. Í fullbyggðri stöð verður hægt að framleiða 40 þúsund tonn af laxi. Samherji er með landeldi á nokkr- um stöðum. Nú standa yfir fram- kvæmdir við stækkun Silfurstjörn- unnar í Kelduhverfi en sú uppbygging er hugsuð til að reyna þær aðferðir sem notaðar verða á Reykjanesi. GeoSalmo er með áform um að framleiða 20-24 þúsund tonn af laxi á lóð sem fyrirtækið hefur fengið við Þorlákshöfn. Byggt verður upp í áföngum. Undirbúningur stendur yfir. Sameldi á laxi og matjurtum Jens Þórðarson framkvæmda- stjóri GeoSalmo sagði á fundinum að áformað væri að koma upp gróð- urhúsum til að nýta næringarríkt affallsvatn úr endurnýtingakerfi seiðastöðvar til matjurtaræktunar. Vatni verður veitt úr kerunum beint inn í gróðurhús og munu plönturnar taka næringu sína úr vatninu. Þetta er kallað samrækt- un. Jens sagði að ekki væri búið að móta stefnuna um það hversu stórt gróðurhúsið yrði eða hvaða jurtir ætti að rækta. Jurtirnar væru hugsaðar fyrir innanlandsmarkað og eftir er að kanna hvað hentar best fyrir markaðinn. Jens nefndi kál, ber og kryddjurtir. Hann sagði að hægt yrði að markaðssetja graf- lax með kryddjurtum úr gróðurhús- inu! Á fundinum ræddu stjórnendur landeldisfyrirtækjanna ýmsar hug- myndir um nýtingu úrgangs frá stöðvunum, meðal annars dauðfisk og slóg, auk laxamykju. Rætt var um áburðarframleiðslu til upp- græðslu, metan- og bíódísilfram- leiðslu og fleira. Auk þeirra stöðva sem nefndar hafa verið hér að framan áformar Matorka að stækka bleikjustöð sína í Grindavík og í Vestmannaeyjum eru áform um sjálfbært landeldi. Matjurtir ræktaðar í affallsvatni - Áform um á annað hundrað þúsund tonna landeldi á laxi - Seiði sett í fyrstu nýju stöðina í apríl Morgunblaðið/Eggert Landeldi Laxinn verður alinn í stærri kerum en hér hafa sést. Menntaskólinn í Reykjavík sigraði í Spurn- ingakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í tuttugasta og annað sinn í gær. MR hafði bet- ur gegn Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í úrslitaviðureigninni í gærkvöldi. Sigurinn var sannfærandi en MR fékk 31 stig á móti 26 stigum FG. Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir, Katla Ólafsdóttir og Oddur Sigurðarson skipuðu sig- urliðið í ár en MR sigraði síðast í keppninni árið 2020. „Ég hef bara aldrei fundið betri til- finningu,“ sagði Ingibjörg við mbl.is eftir að hún veitti verðlaunagripnum viðtöku úr hendi Skarphéðins Guðmundssonar dagskrárstjóra ríkissjónvarpsins. MR-ingar eru illviðráðanlegir komist þeir í úrslit á annað borð. Frá því keppninni var komið á árið 1986 hefur MR farið tuttugu og fjórum sinnum í úrslit og aðeins tvívegis tap- að. Dagmar Íris Hafsteinsdóttir, Kjartan Leifur Sigurðsson og Þráinn Gunnlaugsson skipuðu lið FG sem síðast fór í úrslit í keppninni árið 2018 og vann þá Kvennaskólann. Enn einn sigur MR í Gettu betur Morgunblaðið/Árni Sæberg Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Raunveruleikaþátturinn The Bachelor fékk 75 milljónir í endur- greiðslu frá íslenska ríkinu á dög- unum. Sem kunnugt er var 26. þáttaröðin tekin hér á landi á síð- asta ári og sýnd fyrir skemmstu. Lögum samkvæmt eiga framleið- endur kvikmynda eða sjónvarps- efnis á Íslandi kost á endur- greiðslum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. Það er því ljóst að fram- leiðslan hér á landi hefur kostað minnst 300 milljónir króna. Á vef Kvikmyndamiðstöðvar Ís- lands má sjá lista yfir þau kvik- myndaverkefni sem hafa fengið endurgreiðslu það sem af er ári. Þar er að finna ýmis smærri íslensk verkefni en athygli vekur að Ára- mótaskaup Ríkisútvarpsins fær tæpar 14 milljónir í endurgreiðslu. Það þýðir að gerð Skaupsins hefur kostað minnst um 56 milljónir króna. Framleiðsla Skaupsins var í höndum Republik. Kvikmyndin Leynilögga fékk tæpa 21 milljón króna í endur- greiðslu og sjónvarpsþættirnir Fyrsta blikið fengu tæpar 12 millj- ónir. Þá fengu sjónvarpsþættirnir Trom sem gerast í Færeyjum tæpar 62 milljónir króna í endurgreiðslu. Íslenska framleiðslufyrirtækið TrueNorth er meðal framleiðenda þáttanna eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu. Sjónvarpsþættirnir Heil og sæl fengu rúmar sjö milljónir króna, Draumaheimilið fékk 5,7 milljónir og sjónvarpsþættirnir Morð í norðri 7,8 milljónir. Þá fékk kvikmyndin The Hunter’s son, sem er að hluta til íslensk framleiðsla, rúmar 22 milljónir. The Bachelor fékk 75 milljónir - Áramótaskaupið kostaði 56 milljónir Ljósmynd/Jói B Áramótaskaup Leikstjórinn Reynir Lyngdal og leikarinn Vilhelm Netó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.