Morgunblaðið - 19.03.2022, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Örn sækist eftir 4.
eða 5. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Örn Þórðarson
Borgarfulltrúi og fyrrverandi sveitarstjóri
Agi og festa í rekstri og stjórnun
Örn þekkir vel til allra viðfangsefna
borgarstjórnar og hefur reynslu og
kjark til að breyta því sem breyta þarf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það búa níu flóttamenn frá Úkra-
ínu heima hjá okkur hjónum og í
tveimur sumarbústöðum sem við
eigum stutt frá borginni,“ segir Orri
Wilberg, eigandi byggingafyrirtæk-
isins Wilbergs í borginni Kaunas í
Litháen. Hann hefur búið þar og
starfað í um 20 ár
og rekur þrjár
verksmiðjur í
timburiðnaði
undir merkjum
Wilbergs.
Starfsmenn
eru um 250 tals-
ins og verk-
smiðjuhúsnæðið
samtals um
20.000 fermetrar.
Fyrirtækið fram-
leiðir gæðaparket, baðherbergis-
einingar og fjölbreytt einingarhús.
Fjölmörg hús frá Wilbergs, af öllum
stærðum og gerðum, hafa verið reist
á Íslandi og í Skandinavíu. Fyrir-
tækið er til dæmis með tíu starfs-
menn í Noregi. Verslunin Parki sel-
ur vörur frá Wilbergs hér á landi.
Flóttamenn streyma til Litháen
Orri segir að töluverður straumur
úkraínskra kvenna og barna sé til
Litháens, þótt úkraínskir flótta-
menn séu langflestir í Póllandi.
Flóttamennirnir koma með rútum til
Litháens en þeir eru líka sóttir á
einkabílum.
„Audra, konan mín, bauð fram að-
stoð á netinu og fólk hefur haft beint
samband við okkur. Við höfum farið
í tvær ferðir til Varsjár í Póllandi til
að ná í flóttafólk. Um daginn náðum
við í úkraínska konu og barnið henn-
ar. Hún hringdi oft og spurði hvort
við næðum ekki örugglega í þau,“
segir Orri. Hann hefur átt í við-
skiptum við Úkraínu og keypt mikið
af timbri þaðan. Enginn vöruskortur
er í Litháen en verðlag hefur hækk-
að, að sögn Orra.
„Nú er búið að loka á öll viðskipti
við Rússland en við keyptum mikið
af timbri þaðan. Timburverð hefur
hækkað mikið í kjölfarið,“ segir
Orri.
Mikil óvissa vegna stríðsins
„Hér er undirliggjandi hræðsla
við að vera svona nálægt Rússunum,
þótt það sé ekki nein paník. Litháar
voru undir Rússum í 50 ár. Maður
hefur heyrt af Litháum sem voru
t.d. á Spáni þegar stríðið byrjaði.
Karlinn kom heim en konan og
börnin urðu eftir þar til staðan skýr-
ist betur. Fólk sem ætlaði að kaupa
af mér parket ákvað að bíða aðeins
með það. Óvissan er svo mikil,“ segir
Orri. Litháen er eitt Eystrasalts-
ríkjanna og á landamæri að Lett-
landi í norðri, Hvíta-Rússlandi í
austri og Póllandi og Kalíníngrad
(Rússlandi) í suðri. Eystrasalt er í
vestri.
Hann segir að Íslendingar átti sig
ekki á því hvernig það er að búa jafn
nálægt Rússlandi og Litháar gera.
Íslendingar segi „við erum í NATO
og alveg öruggir“. Litháar séu líka í
NATO en óttist samt að Rússar geti
ráðist inn í land þeirra. Um 5-6%
íbúa Litháen eru af rússnesku bergi
brotin. Orri veit ekki til þess að þeir
hafi orðið fyrir ónæði vegna ættern-
isins. Hann er með rússneska Litháa
í vinnu og því fylgja ekki nein vanda-
mál. Margir Litháar tala rússnesku,
einkum þeir eldri. Úkraínumenn-
irnir tala líka flestir rússnesku og
geta því gert sig skiljanlega í Lithá-
en. Fáir þeirra tala ensku, nema þá
helst krakkarnir. Úkraínska flótta-
fólkið fær landvistar- og atvinnuleyfi
í Litháen í þrjú ár. Orri er nýbúinn
að ráða til starfa tvær úkraínskar
konur sem báðu um vinnu.
Allir vilja hjálpa til
„Litháar sýna Úkraínumönnum
gríðarmikla samstöðu og eru al-
mennt mjög hjálpsamir. Hjálpar-
samtök hér eru að safna mat, fötum
og peningum til að hjálpa Úkraínu.
Allir vilja hjálpa til. Litháen er vina-
þjóð Úkraínu. Víða er flaggað úkra-
ínskum fánum og það eru úkraínskir
fánar á ljósaskiltum meðfram hrað-
brautunum,“ segir Orri.
Eitt barnið sem dvelur hjá Orra
og Audru konu hans er þegar byrjað
í bekk með dóttur þeirra. Orri á von
á því að hluti Úkraínumannanna
muni dvelja áfram í Litháen, jafnvel
þótt stríðinu ljúki.
Litháar standa þétt með Úkraínu
- Orri Wilberg og kona hans hýsa níu flóttamenn - Sóttu flóttafólk til Varsjár í Póllandi - Undir-
liggjandi ótti við Rússland - Wilbergs, fyrirtæki Orra, er umsvifamikið í atvinnurekstri í Litháen
AFP/Petras Malukas
Litháen Mikil mótmæli voru gegn innrás Rússa í Úkraínu á þjóðhátíðardegi Litháa 11. mars. Litháar styðja Úkraínu og taka vel á móti flóttafólki þaðan.
Ljósmynd/Leifur Wilberg
Parketsýningarsalur Wilbergs í Litháen framleiðir m.a. hágæðaparket,
einingahús af öllum stærðum og gerðum og baðherbergiseiningar.
Ljósmynd/Wilbergs
Wilbergs Fyrirtækið er með stóra verksmiðju um 30 km frá Kaunas. Það á
þrjár verksmiðjur með um 20.000 m2 gólfpláss og um 250 starfsmenn.
Orri
Wilberg
Stríð í evrópu