Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Ráðstefna
CLT sem byggingarefni og frágangur
Strúktúr í samstarfi við Binderholz verður með ráðstefnu
24. mars frá kl. 14.00-15.30 í tengslum við Verk og Vit
Frummælendur verða.
Alessandro Muhllechner Sölustjóri Binderholz
Framleiðsla, CLT, límtré og fl
Gunnar Kristjánsson Bygginga- og brunaverkfræðingur Brunahönnun ehf
Brunahönnun CLT og límtré
Jón Þór Jónsson Byggingafræðingur Project Manager Selhóll ehf
Af hverju að byggja úr CLT
Ingólfur Á Sigþórsson Framkvæmdastjóri Strúktúr ehf
Hvernig Strúktúr ráðleggur að byggja úr CLT
Sjá nánar og skráningu á struktur.is
Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir
borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík lýkur í dag klukkan 18.
Kosið er á fimm stöðum og eru 26 í
framboði. Tvær konur sækjast eftir
efsta sæti listans, Hildur Björns-
dóttir borgarfulltrúi og Ragnhild-
ur Alda Vilhjálmsdóttir vara-
borgarfulltrúi. Talning atkvæða
fer fram í höfuðstöðvum flokksins í
Valhöll.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Árborg fer fram í dag. Alls gefa 18
frambjóðendur kost á sér í próf-
kjörinu, þar af allir fjórir núver-
andi bæjarfulltrúar flokksins. Þrjú
sækjast eftir efsta sætinu, Bragi
Bjarnason deildarstjóri, Fjóla St.
Kristinsdóttir, sjálfstætt starfandi
kennari og ráðgjafi, og Kjartan
Björnsson, rakari og bæjarfulltrúi
sem býður sig fram í 1.-2. sæti.
Hörð barátta um oddvitasæti í dag
Morgunblaðið/Eggert
Prófkjör Margir lögðu leið sína í Valhöll í gær til að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar í vor.
- Kosið í Reykja-
vík og Árborg
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segist standa með samþykktri
öryggisstefnu fyrir Ísland, þar sem
aðild Íslands að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) er einn af þeim
þáttum sem hún hvílir á. Þetta segir
hún í viðtali við Pál Magnússon í
fyrsta Dagmálaþætti hans en þætt-
irnir verða sýndir alla laugardaga á
mbl.is.
Páll benti á að umtalsverðra við-
horfsbreytinga gæti hjá ýmsum
þjóðum gagnvart Atlantshafs-
bandalaginu í kjölfar innrásar Rússa
í Úkraínu, t.a.m. hafi stuðningur við
mögulega aðild Finnlands að NATO
rokið upp þar sem meirihluti Finna
vill ganga í bandalagið. Samkvæmt
nýlegri könnun Prósents styðja nú
fleiri kjósendur Vinstri grænna aðild
Íslands að NATO en eru andvígir
henni. Spurð hvort þetta breyti
stefnu flokksins þar sem lögð er
áhersla á að Ísland segi sig úr
NATO, segir Katrín: „Við höfum
alltaf lagt gríðarlega áherslu á af-
vopnun, friðsamlegar lausnir um-
fram allt og talað gegn vígvæðingu.
Hvað varðar svo þennan þátt þess-
arar stefnu varðandi aðild Íslands að
NATO, sem segir að Ísland eigi að
standa utan NATO þá hef ég ekki
orðið vör við umræðu innan hreyf-
ingarinnar um að breyta því.“
Skýrt að úrsagnar yrði ekki
krafist við stjórnarmyndunina
Katrín segir að mikið hafi verið
rætt um þetta málefni á sínum tíma
þegar Vg fóru í ríkisstjórn. „Þar
sögðum við alveg skýrt, vegna þess
að við höfum verið ein með þessa af-
stöðu af íslenskum stjórnmálaflokk-
um, að við myndum ekki gera kröfu
um þetta í fyrsta lagi og í öðru lagi
myndi ég sem forsætisráðherra, og
við innan ríkisstjórnar, starfa sam-
kvæmt samþykktri öryggisstefnu
fyrir Ísland, þar sem aðildin að Atl-
antshafsbandalaginu er auðvitað
einn af þeim þáttum sem hún hvílir
á,“ segir hún.
Katrín kveðst ekki hafa orðið vör
við annað en að mikill stuðningur sé
við þá ákvörðun að hafa valið þessa
leið innan hreyfingarinnar.
Þegar Katrín er spurð hvort hún
sé hlynnt eða andvíg veru Íslands í
NATO segist hún ekki hafa breytt
skoðun sinni á því „og stend með
minni hreyfingu í því að telja að okk-
ur sé betur borgið utan þeirra
bandalaga. En um leið er ég í þeirri
stöðu að ég hef einsett mér að vera
algjörlega heil í að standa með þjóð-
aröryggisstefnunni, og hef gert
það.“
Grasrótin ræður för
Hún var einnig spurð hvort hún
telji líklegt að tillaga um breytingu á
afstöðu flokksins gagnvart NATO
komi fram á næsta flokksþingi. „Ég
er í stjórnmálahreyfingu þar sem
einmitt grasrótin ræður för þannig
að það er bara svoleiðis að hreyf-
ingin sjálf mótar stefnuna.“
„Hreyfingin sjálf mótar stefnuna“
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ekki orðið vör við þá umræðu innan Vinstri grænna að
breyta stefnunni um að Ísland standi utan NATO - Stendur með samþykktri öryggisstefnu landsins
Viðtal Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er fyrsti gestur Dagmála Páls Magnússonar sem sýndir eru á mbl.is.
Strand grænlenska línuskipsins
Masilik við Gerðistanga á Vatns-
leysuströnd kvöldið 16. desember í
fyrra er enn til rannsóknar hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum. Þetta
kemur fram í svari lögreglunnar
við fyrirspurn blaðamanns.
Alls voru 19 skipverjar um borð
þegar slysið átti sér stað.
Um tíma var talið að sjópróf
þyrftu að fara fram en svo varð
ekki. Lögreglan kveðst nú bíða eft-
ir niðurstöðu rannsóknanefndar
samgönguslysa. gso@mbl.is
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Línuskipið Masilik strandaði að kvöldi.
Rannsókn á strandi
Masilik ekki lokið
Mikið stendur til hjá Gunnari Nel-
son í kvöld en þá mætir hann Jap-
ananum Takashi Sato í UFC eða
blönduðum bardagalistum. Viður-
eignin fer fram í hinni glæsilegu O2-
höll í London. Keppa þeir í veltivigt
en á dagskrá kvöldsins verða alls sex
bardagar.
„Þetta er risaviðburður og eftir-
væntingin er mikil. Mér var tjáð að
það hefði selst upp á sjö mínútum
þegar opnað var fyrir almenna miða-
sölu og tekur höllin þó 20.000 manns.
Það segir sitt en tvívegis hefur þurft
að fresta UFC-kvöldum í London.
Spennan er því mikil og dagskráin
er ein sú flottasta sem menn hafa
séð í Evrópu í háa herrans tíð,“ sagði
Haraldur Dean Nelson, faðir Gunn-
ars og umboðsmaður, þegar Morg-
unblaðið sló á þráðinn í gær. „Gunn-
ar er í svakalega góðu formi og langt
síðan ég hef séð hann jafn vel á sig
kominn. Hann hefur farið meiddur í
síðustu bardaga en nú eru engin al-
varleg meiðsli sem trufla. Það er
mikill léttir,“ sagði Haraldur en bar-
dagi Gunnars verður sá fyrsti hjá
honum frá því í september 2019.
Rúmt ár er síðan Takashi Sato
keppti síðast. kris@mbl.is
„Risaviðburður og
mikil eftirvænting“
- Gunnar Nelson keppir í London
Ljósmynd/Snorri Björns
London Gunnar Nelson snýr aftur í
UFC í kvöld eftir langa fjarveru.