Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Ríkisfyrirtækið Íslandspóstur
er ár eftir ár rekið með
miklu tapi. Síðastliðin tvö ár hef-
ur ríkið lát-
ið skatt-
greiðendur
hlaupa und-
ir bagga
með fyrir-
tækinu og
nemur
reikningurinn hvort ár yfir hálf-
um milljarði króna. Sé litið nokk-
ur ár aftur í tímann er um þús-
undir milljóna að ræða.
- - -
Þrátt fyrir þetta birti fyrir-
tækið í gær upplýsingar um
afkomu sína í löngu máli og þar er
varla hægt að finna upplýsingar
um þetta ítrekaða og mikla tap.
Þess í stað stendur á forsíðu fyrir-
tækisins á vefnum að niðurstöður
ársskýrslunnar 2021 séu „mikið
fagnaðarefni enda sýna þær fram
á góðan árangur á sviði rekstrar,
þjónustu og umhverfismála“.
- - -
Þegar smellt er til að lesa
áfram er að finna yfir fimm
hundruð orð frá forstjóranum þar
sem ekki er minnst einu orði á
styrk upp á 563 milljónir króna en
látið eins og afkoman hafi verið
jákvæð og batnað stórlega á milli
ára.
- - -
Þeir sem hætta sér enn lengra
og lesa ársskýrslu félagsins
og sjálfbærniuppgjör finna yfir
áttatíu fallega upp settar blaðsíð-
ur sem sýna glöggt það svigrúm
sem er til sparnaðar hjá ríkisfyr-
irtækinu, en þar er framlag skatt-
greiðenda ekki nefnt einu orði.
- - -
Sé ársreikningurinn sjálfur les-
inn vandlega má þó með góð-
um vilja og útsjónarsemi finna
ríkisstyrkinn. Hann er nefndur í
skýringu fimm, en heitir þar
Tekjur vegna alþjónustuskyldu!
Spuni á kostnað
skattgreiðenda
STAKSTEINAR
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
Reykjavík 18.-19. mars
Með skynsemina að leiðarljósi og
ferska sýn á málin fyrir
framúrskarandi borg
Herdís Anna
Þorvaldsdóttir
4.
sæti
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Félagar í Félagi grunnskólakennara
samþykktu nýgerðan kjarasamning
við Samband íslenskra sveitarfélaga
í atkvæðagreiðslu sem lauk klukkan
tíu í gærmorgun. Á kjörskrá voru
5.170 og greiddu 3.610 atkvæði um
samninginn eða 69,83%. Já sögðu
2.254 eða 62,44%. Nei sögðu 1.161
eða 32,16%. Auðir seðlar voru 195.
Grunnskólakennarar felldu fyrr í
vetur samning sem samninganefnd-
irnar undirrituðu en skrifað var und-
ir nýja samninginn sem nú hefur
verið samþykktur 10. mars sl.
Kjarasamningurinn er afturvirkur
og gildir frá 1. janúar síðastliðnum til
31. mars á næsta ári. Samkvæmt
honum hækka launatöflur um 25
þúsund kr. á mánuði frá og með 1.
janúar sl. í samræmi við hækkanir
lífskjarasamninganna, skv. kynn-
ingu á vefsíðu Kennarasambandsins.
Samið var um hækkun annarupp-
bóta sem greiddar eru 1. júní og 1.
desember á þessu ári sem verða 96
þúsund krónur. Kveðið er á um að
hagvaxtarauki verði virkur 1. maí
næstkomandi, sem feli í sér 10.500
kr. launaauka. Ýmis ákvæði samn-
ingsins kveða á um aukinn sveigj-
anleika, s.s. við fjarvinnu sem og
tíma til undirbúnings og úrvinnslu
kennslu. Sérstökum innleiðingar-
hópi er falið að aðstoða við útfærslu
þessa. Þá er í samið um að ef kenn-
ara er falið að sitja fundi sem fara
umfram fjórar klukkustundir á viku
skuli greiða yfirvinnu fyrir viðbótar-
tímann. Í bókun er starfshópi falið að
skoða núgildandi launatöflu þar sem
bil á milli launaflokka hefur minnkað
í kjölfar krónutöluhækkana. Á hann
að skila tillögum fyrir 1. mars á
næsta ári.
Kennarar samþykktu samninginn
- Gildir til 31. mars árið 2023 - 62% sögðu já - Launatöflur hækka um 25 þúsund
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er ástæða til að gleðjast yfir
þessum séríslenska sigri óskabarns-
ins á erlendri grundu því það er fátt
sem kjarnar þjóðarsálina betur en
Brennivín,“ segir Úlfar Árdal, fram-
leiðslustjóri Brennivíns hjá Ölgerð-
inni.
Íslenskt brennivín hlaut sérstök
verðlaun á International Wine &
Spirit Competition á dögunum.
Keppnin sú þykir ein sú virtasta í
vínheimum og spannar saga hennar
yfir fimmtíu ár. Það var sérstök út-
gáfa íslenska brennivínsins, Brenni-
vín Special Cask, sem var verð-
launað, fékk gullverðlaun í sínum
flokki og 95 punkta af 100 mögu-
legum. Alls kepptu 33 vörur í sama
flokki ákavítis og endaði Brennivín
efst. Í umsögn dómnefndar sagði að
greina mætti bæði möndlur og kók-
oshnetur í bragði brennivínsins auk
þess að það tónaði af peru, rúsínum
og lofnarblómi.
„IWSC er ein virtasta vínkeppni
heims og það er ánægjulegt að hljóta
viðurkenningu sem þessa fyrir þá
þróun sem hefur verið í gangi hjá
okkur með Brennivín undanfarin
ár,“ segir Úlfar.
„Eins og kunnugt er hefur
Brennivín fylgt þjóðinni frá árinu
1935 þegar íslenska ríkið hóf fram-
leiðslu þess og áfengisbanninu var
aflétt að hluta. Brennivín hefur
löngum verið meðal þekktustu vöru-
merkja þjóðarinnar og hefur verið
sérstaklega ánægjulegt að upplifa
uppgang vörumerkisins erlendis síð-
ustu misseri þar sem gæðin hafa
bæði verið að færa okkur viðurkenn-
ingar sem þessa ásamt vaxandi
fjölda viðskiptavina og neytenda.“
Íslenska brennivínið
þótti skara fram úr
- Hlaut gullverð-
laun á alþjóðlegri
verðlaunahátíð
Ljósmynd/Hari
Sáttur Úlfar Árdal er ánægður með
verðlaunin sem Brennivín hlaut.