Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 11

Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 20% afsláttur B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is TILBOÐ DÚNKÁPUR DÚNÚLPUR Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 15-30% afsláttur í dag AÐAL FUNDUR Félagið veitir ferða- styrk til þeirra félags- manna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað. Félags iðn- og tæknigreina 2022 verður haldinn laugardaginn 26. mars kl. 11 að Stórhöfða 31, jarðhæð. Gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá: 1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu. 3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins. 4. Kjöri stjórnar lýst. 5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga, og uppstillinganefndar. 6. Kosning endurskoðenda. 7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að. 8. Önnur mál. Hádegismatur í boði félagsins. Stjórnin Athugið að gildandi reglum um sóttvarnir verður fylgt á fundinum. „Allt hefur sinn tíma. Verzlun Har- aldar Júlíussonar á Sauðárkróki, sem nú hefur starfað í rúma öld, lýk- ur nú brátt göngu sinni. Verzl- uninni verður lokað frá og með 31. mars nk. Fram að þeim tíma verða nær allar vörur í versluninni seldar með 50 prósent afslætti svo unnt er að gera þar góð kaup.“ Þetta tilkynna börn Bjarna Har- aldssonar kaupmanns; Guðrún Ingibjörg, Helga og Lárus Ingi, á facebooksíðu verslunarinnar, auk starfsmanns hennar í dag, hinnar þýsku Kirsten, eða Kiki. Bjarni Haraldsson lést 17. janúar síðastliðinn, á 92. aldursári, en hann hafði starfað í versluninni frá unga aldri og nánast fram á síðasta dag. Faðir hans, Haraldur Júl- íusson, hóf verslunarrekstur árið 1919 í timburhúsi á sama stað við Aðalgötu og núverandi hús er, sem reist var um 1930. Þar var einnig bensínsala og umboð fyrir BP, síðar Olís, auk þess sem Bjarni stofnaði og rak eigið vöruflutningafyrirtæki um árabil. Um tíma var Byggðasafn Skagfirðinga í samstarfi við versl- unina, enda er hún merkilegur minnisvarði um horfna verslunar- hætti. „Eins og kunnugt er á versl- unin sér fáa líka og þar fæst nánast allt milli himins og jarðar í anda Bjarna Har. Við vonumst til að sjá ykkur öll,“ segir enn fremur á síðu verslunarinnar. Kiki stendur vaktina út þennan mánuð, frá kl. 12.30 til 17.30 mánu- daga og miðvikudaga og kl. 13-18 þriðjudaga, fimmtudaga og föstu- daga. bjb@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kaupmaður Bjarni Haraldsson stóð vaktina í búðinni fram á síðasta dag. Búðinni hans Bjarna verður lokað 1. apríl - 102 ára verslunarrekstri að ljúka „Valið stendur um að halda áfram með núverandi kerfi óbreytt eða ein- faldlega fella einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis niður og gefa hana frjálsa,“ segir í umsögn forstjóra ÁTVR, Ívars J. Arndal, um frum- varp um breytingar á áfengislögum sem heimila munu vefverslun með áfengi. Forstjórinn segir í umsögn sinni að umrætt frumvarp feli að mati ÁTVR í sér algjöra stefnubreytingu í áfengismálum á Íslandi og forsendu- brest fyrir einkaleyfi ÁTVR. „Með fyrirliggjandi frumvarpi er smásala áfengis innanlands í raun gefin frjáls. Ekki er hægt að gera upp á milli eða skilja í sundur „hefð- bundna“ smásölu annars vegar og vefverslun hins vegar. Vefverslun er hluti af almennum verslunarrekstri í dag,“ segir í umsögninni. Ívar Arndal segir að ef einkaað- ilum á Íslandi verði leyft að selja áfengi í vefsölu verði sú sala í beinni samkeppni við ríkiseinkasöluna. „Með því er búið að opna fyrir mark- aðslögmálin og viðskiptahagsmuni einkaaðila með tilheyrandi sam- keppni, verðstríði og söluhvötum en öll þessi atriði eru í beinni andstöðu við meginstef gildandi áfengisstefnu hér á landi. Þá verður smásala áfeng- is ekki lengur grundvölluð á lýð- heilsu og almannaheill sem er grund- völlur einkaleyfis ÁTVR. Með því að heimila einkaaðilum slíka verslunar- starfsemi liggur í hlutarins eðli að einkaréttur ÁTVR er um leið liðinn undir lok því ÁTVR uppfyllir ekki lengur skilyrði Evrópuréttar fyrir einkaleyfinu. Yfirlýsingar í frum- varpinu um að því sé ekki ætlað að „hrófla við hlutverki“ ÁTVR stand- ast því ekki skoðun.“ hdm@mbl.is Forsenda einkaleyfis ÁTVR myndi bresta - Forstjóri ÁTVR vill ekki gefa vefverslun með áfengi frjálsa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vínbúðin Forstjóri ÁTVR segir frumvarpið fela í sér stefnubreytingu. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá máli ÁTVR gegn Arnari Sigurðssyni og tveimur fyrirtækjum í hans eigu, Sante ehf. og Santewines SAS, en ÁTVR krafðist þess að þessum aðilum yrði gert að hætta smásölu áfengis í vefverslun. Einnig krafðist ÁTVR bóta vegna tjóns, sem stofnunin hefði beðið vegna þessarar sölu. Arnar og fyrirtækin kröfðust frávísunar málsins. Hólmfríður Grímsdóttir héraðsdómari segir í úrskurði að ÁTVR hafi ekki sýnt fram á að stofnunin hefði lög- varða hagsmuni af úrlausn málsins en ÁTVR sagðist byggja kröfu sína á lögvörðum einkarétti sínum til smásölu áfengis. Þá var það niðurstaða dómarans, að þeir annmarkar og vankantar væru á málatilbúnaði ÁTVR, að þeir leiddu til þess að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu í heild sinni frá dómi. Var ÁTVR dæmt til að greiða Arnari og fyrir- tækjunum 1.650.000 krónur í málskostnað. Máli ÁTVR gegn Sante vísað frá HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Arnar Sigurðsson Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.