Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
.
Marta
Guðjónsdóttir
• Aðhald í rekstri og virðing fyrir framlagi skattborgara
• Heildstæð samgöngustefna fyrir alla ferðamáta
• Nægt framboð lóða fyrir fjölbreytta íbúðabyggð
• Skipulagsstefna í sátt við borgarbúa
• Menntastefna sem mætir þörfum nútímans
• Persónulegri og skilvirkari þjónusta við eldri borgara
• Standa vörð um grænu svæðin í borginni
2.
SÆTI
Ég hef einlægan áhuga á því að fá að vinna áfram að stefnumálum Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn og taka þátt í því að snúa af vegferð núverandi meirihluta.
Ég gef kost á mér í annað sætið
í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, vegna borgarstjórnarkosninganna í vor.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík 18.-19. mars.
Helstu markmið:
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
E
yjunafnið á vel við okkar
persónuleika, því við er-
um allar sjálfstæðar og
okkur er frekar sama um
hvað öðrum finnst. Við erum allar
listrænar en samt ólíkar manneskjur
og því má segja að við séum hver og
ein einstök eyja,“ segja Eyjurnar
þrjár, þær Eyja Ástráðsdóttir, Ragn-
heiður Eyja Ólafsdóttir og Sinéad
Eyja Mara, en þær eru allar fæddar á
sama árinu og eru allar í tíunda bekk
í Austurbæjarskóla. Eyja Ástráðs er
sú eina sem er einvörðungu kölluð
Eyja í skólanum, hinar tvær eru kall-
aðar báðum nöfnum, til aðgreiningar.
Heima er Ragnheiður Eyja yfirleitt
einvörðungu kölluð Eyja og sama á
við um Sinéad Eyju, hún er alltaf
kölluð Eyja heima hjá sér.
„Ég er kölluð Eyja Á. þegar ég
er í kringum hinar Eyjurnar tvær,“
segir Eyja Ástráðs en hún segist vera
nefnd í höfuðið á föðurafa sínum,
Eysteini Þorvaldssyni, þegar þær
eru spurðar hvernig Eyjunöfnin
þeirra komu til.
„Mömmu og pabba þótti Eyja
afar fallegt nafn vegna fornrar merk-
ingar, en Eyja þýðir gæfukona, rétt
eins og Eysteinn merkir gæfu-
steinn.“
Ragnheiður Eyja segir foreldra
sína hafa ákveðið að gefa henni Eyju-
nafnið þegar þau litu hana fyrst aug-
um, nýfædda.
„Til gamans má geta þess að ég
varð til í Eyjafirði og að bókstafurinn
E er upphafsstafur í nöfnum okkar
allra í fjölskyldunni minni. Mamma
heitir Esther, pabbi Ólafur Egill og
litli bróðir minn heitir Egill.“
Sinéad Eyja segir nöfnin sem
hún ber standa fyrir þjóðerni hennar.
„Ég er hálfírsk og hálfíslensk, og
mamma fékk að ráða Eyjunafninu en
þau pabbi völdu saman írska nafnið
mitt. Mamma var í menntaskóla í
bekk með stelpu sem hét Valdís Eyja
og henni fannst það svo flott að hún
ákvað strax þá að ef hún eignaðist
dóttur í framtíðinni þá fengi hún
nafnið Eyja.“
Eyja og Eyjafjallajökulsgosið
Tvær þessara Eyja hafa fylgst
að frá því þær voru tveggja ára, því
Ragnheiður Eyja og Eyja Ástráðs
voru saman í leikskóla á Laufásborg
og muna vel eftir sér þar. Þær voru
líka saman í Hjallastefnugrunnskól-
anum í fyrsta til fjórða bekk og fóru
svo saman yfir í Austurbæjarskóla.
Þar fyrir utan vill svo til að Eyja Ást-
ráðs og Sinéad Eyja voru saman í
ungbarnaskóla, áður en Sinéad Eyja
flutti til Bandaríkjanna með fjöl-
skyldu sinni þegar hún var tveggja
ára.
Þegar Sinéad Eyja var ellefu ára
flutti hún aftur til Íslands og þá bætt-
ist þriðja Eyjan í hópinn í sjötta bekk
í Austurbæjarskóla.
„Við vissum að það væri að koma
ný stelpa í bekkinn en urðum mjög
hissa þegar við heyrðum að hún héti
Eyja eins og við,“ segja þær Ragn-
heiður Eyja og Eyja Ástráðs og Sin-
éad Eyja bætir við að hún hafi vitað
af Eyju Ástráðs þegar hún byrjaði í
skólanum, því mamma hennar sagði
henni frá henni. „En ég vissi ekki af
hinni Eyjunni.“
Sinéad Eyja segir að fólk úti í
Bandaríkjunum hafi átt svolítið erfitt
með að bera Eyjunafnið hennar fram.
„Stundum hljómaði það eins og
asía á ensku, og flestir skrifuðu það
alltaf vitlaust.“
Eyja Ástráðs var nemandi í
grunnskóla í Kanada fyrir nokkrum
árum og þá vakti nafnið mikla athygli
í bekknum vegna tengingar við Eyja-
fjallajökul, sem hafði þá nýlega skek-
ið heimsbyggðina.
Eyjurnar þrjár segjast engar
aðrar Eyjur þekkja, en Eyja Ástráðs
veit þó um tvær með þessu nafni,
jafnöldru mömmu hennar sem er
heimspekingur og líka dóttur fjöl-
skylduvinkonu sem er kennari í
Kvennaskólanum.
Þrjár Eyjur og allar í sama bekk
Kvenmannsnafnið Eyja merkir gæfukona. Elsta
þekkta dæmið um Eyjunafnið er frá 10. öld, í Íslend-
ingabók, þar sem finna má Eyju, afabarn Helga
magra. Þrjár jafnöldrur bera þetta fagra nafn.
Morgunblaðið/Eggert
Þrjár Eyjur „Við erum ólíkar manneskjur og því má segja að við séum hver og ein einstök eyja,“ segja þær (f.v.)
Ragnheiður Eyja, Sinéad Eyja og Eyja Ástráðsdóttir. Tvær þeirra hafa fylgst að frá því þær voru tveggja ára.