Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 16

Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 ORKUSJÓÐUR Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2022 ORKUSJÓÐUR Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 900 m.kr. Styrkupphæð til hvers verkefnis ræðst af getu sjóðsins og fjölda umsókna. Styrkir geta numið 33% af áætluðum stofnkostnaði. Verkefnastyrkir Umsóknafrestur er til 7. maí 2022 Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is orkusjodur.is 2. Minnkun olíunotkunar í iðnaði: Búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu. 1. Bætt orkunýting: Búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar hitunar í rafkyntum varmaveitum og/eða minnkar olíunotkun. 3. Raf- og lífeldsneyti og metan: Bættir innviðir (t.d. dreifing, varaafl) og/eða framleiðsla raf- eða lífeldsneytis úr orku sem tryggð hefur verið til þess verkefnis. Nýting líf- og rafeldsneytis og metans skal einnig vera tryggð (t.d. í tæki), hvort heldur sem orkugjafi eða til frekari framleiðslu. 4. Hleðslustöðvar fyrir samgöngur: Uppsetning hleðslu- eða áfyllingarstöðva til þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfið sem og gististaði, frístundasvæði (t.d. íþróttahús, sundlaugar), verslanir og fjölsótta ferðamannastaði. Ef um hraðhleðslustöðvar er að ræða (150 kW og stærri) getur kostnaður við sérlausnir verið innifalinn (t.d. rafhlöður, sólarsellur, vindrellur). 5. Orkuskipti í haftengdri starfsemi: Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í haftengdri starfsemi og siglingu til og frá höfn. Fyrirhugað er að endurnýja laxa- teljarastífluna í Elliðaánum á sama stað og eldri stífla og tilheyrandi mannvirki hafa staðið í námunda við Rafstöðina í Elliðaárdal en sá búnaður sem notaður hefur verið allt frá níunda áratug síðustu aldar er talinn úr sér genginn. Fram kemur í ósk Orkuveitu Reykjavíkur um heimild til þess- arar endurnýjunar til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar að teljarastíflan er notuð frá og með maí og út september en hún hýsir fiskiteljara sem telur og myndar allan lax sem gengur í Elliðaárnar. Einnig er seiðagildra tengd við telj- arastífluna. „Við byggingu nýrrar stíflu er talin þörf á að koma fyrir tveimur steinsteyptum stöplum í ánni, ásamt steinsteyptum kassa eða hólfi sem hýsa myndi nýjan fiski- teljara. Botn hólfsins yrði steinsteyptur, en loka má því að ofanverðu með opnanlegum hlera til að hlífa teljarabúnaðinum,“ seg- ir í lýsingu á framkvæmdum við endurnýjun stíflunnar. Gert er ráð fyrir að hluti hennar verði úr forsteyptum einingum en hluti steyptur á staðnum, sem mun krefjast þess að helmingur árinnar verði stíflaður með pokum og vatni veitt yfir á hinn helminginn meðan á þeirri vinnu stendur. Öryggi verður betur tryggt „Stefnt er að því að verkið verði unnið að vetri þegar rennsli er í lágmarki. Ljóst er að umtalsvert auðveldara yrði að umgangast telj- arabúnaðinn eftir þessar fram- kvæmdir en nú er. Jafnframt ber að taka fram að öryggi þeirra starfsmanna sem þjónusta bún- aðinn hefur verið ábótavant hingað til, en með tilkomu end- urnýjaðrar teljarastíflu á þeim grundvelli sem hér er lagður verður það mun betur tryggt,“ segir þar ennfremur. Fram kemur að fyrirhuguð telj- arastífla muni væntanlega endast í áratugi án teljandi viðhalds. Verkfræðistofan Verkís hannaði mannvirkið sem til stendur að setja upp í Elliðaánum. Vilja endurnýja telj- arastíflu í Elliðaánum Tölvugerð mynd/OR og Verkfræðistofan Verkís Laxateljari Tölvugerð mynd af stíflunni sem á að byggja í Elliðaánum. Uppskera og afurðir grænmetis og korns Kínakál Blómkál Paprika Rauðkál Hvítkál Spergilkál Salat Rófur Sveppir Gulrætur Tómatar Gúrkur 54 105 161 172 207 299 538 559 581 754 933 2.067 Innlend framleiðsla 2018 til 2021 (tonn) og hlutfall innflutnings árið 2021 (%) 120 95 70 45 20 '18 '19 '20 '21 1.000 825 650 475 300 '18 '19 '20 '21 2.500 2.125 1.750 1.375 1.000 '18 '19 '20 '21 300 250 200 150 100 '18 '19 '20 '21 9.000 7.125 5.250 3.375 1.500 10.000 8.500 7.000 5.500 4.000 '18 '19 '20 '21 1.500 1.175 850 525 200 '18 '19 '20 '21 400 300 200 100 0 '18 '19 '20 '21 1.500 1.250 1.000 750 500 '18 '19 '20 '21 Innlend framleiðsla 2021 (tonn) Blómkál Innflutningur: 85% Kartöflur Innflutningur: 25% Gulrætur Innflutningur: 47% Rófur Innflutningur: 0% Gúrkur Innflutningur: 2% Spergilkál Innflutningur: 60% Hvítkál Innflutningur: 77% Tómatar Innflutningur: 56% Ko Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Innflutningur á gúrkum nánast hvarf á síðasta ári, miðað við árið á undan. Aðeins voru flutt inn rúm 30 tonn en innlenda framleiðslan jókst sem því nemur og vel það. Annars er innflutn- ingur og innlend framleiðsla grænmetis í nokkru jafnvægi. Neysla á tómötum minnkaði á milli ára því bæði minnkaði innlend framleiðsla og innflutn- ingur, ef mark má taka á tölum Hagstofu Ís- lands í því efni. Samdrátturinn er nærri 300 tonn á milli áranna 2021 og 2020. Tölur um minni framleiðslu tómata koma Guðna Hólm- ari Kristinssyni, framkvæmdastjóra afurða- sviðs Sölufélags garðyrkjumanna, mjög á óvart. Hann telur þær ekki geta staðist, miðað við þann hluta sölunnar sem fór um hendur starfsmanna Sölufélagsins. Þar var aukning enda jókst framleiðslan með stækkun Frið- heima í Laugarási. Uppskera á kartöflum minnkaði umtalsvert en það kom ekki fram í auknum innflutningi. Framleiðsla hér innanlands á spergilkáli nærri tvöfaldaðist á árinu 2021, samkvæmt tölum Hagstofnunnar, og framleiðsla á salati jókst verulega. Þessi mikla framleiðsla spergilkáls kemur Guðna einnig á óvart. Hann segir hins vegar að góð uppskera hafi verið í blómkáli og árið 2021 hafi verið stærsta árið í því káli. Stór hluti framleiðslu grænmetis fer í gegn hjá Sölufélagi garðyrkjumanna en þó ekki all- ur. Guðni nefnir að fyrirtækið hafi lengi selt um sex þúsund tonn á ári en sé nú að nálgast sjö þúsund tonnin. Ekki er að hans sögn útlit fyrir miklar breytingar á framleiðslu í ár nema þá að jarðarberjaframleiðsla muni minnka mikið vegna þess að stórt gróðurhús eyðilagð- ist í óveðri í vetur. Gúrkubændur anna innlendri eftirspurn Morgunblaðið/Ásdís Grænmeti Tómatar og gúrkur eru vinsælustu tegundirnir á markaðnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.