Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 22

Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir framhaldsnámi lokið, sem er sjö- unda hæsta hlut- fall í Evrópu. Niðurstaða rannsóknar þess- arar var rædd á málþingi sem Vel- ferðarvakin stóð fyrir í síðustu viku. Þar benti Kolbeinn á að ýmsir fleiri þættir en fyrr eru nefnd- ir geti breytt stöðu. Innflytjendur t.d. verið í erfiðri stöðu. Einnig börn langveikra og fólks með örorku. Bág kjör hafa áhrif Ein möguleg skýring á miklu brottfalli er hugsanlega að fram- haldsskólakerfið hér sé of sveigj- anlegt. Á Íslandi eiga nemendur allt- af afturkvæmt í nám. Geta skipt á milli námsleiða. Fyrir vikið er ekki alltaf mikið í húfi að ljúka námi í einni atrennu, segir Kolbeinn. „Á Ís- landi skilar allur þorri nemenda sér í framhaldsskóla beint eftir grunn- skólanám. Þá leiddi rannsóknin í ljós, að fyrir vikið væri námsval að loknum grunnskóla ekki lykilatriði á Íslandi; heldur að nemendur sem búa við bág kjör séu líklegri en betur settir nemendur til að hætta.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Staða foreldra og viðhorf þeirra til menntunar ráða miklu um gengi barna þeirra í framhalsskólum, það er hvort þau ljúki þar námi eða hverfi frá því. Efnaleg staða fjöl- skyldu nemanda hefur einnig tals- verð áhrif um námsgengið, en fé- lagslega staðan vegur þyngra. Þetta segir Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent við félagsráðgjafadeild Há- skóla Íslands. Þriðjungur einungis lokið grunnskólanámi Nýlega kynntu Kolbeinn Hólmar og Helgi Eiríkur Eyjólfsson rann- sókn og skýrslu um ástæðu þess hvers vegna ungt fólk hverfur frá námi, sem almennt er litið svo á að sé vandamál samfélagsins alls. Rannsóknin byggir á gögnum við- víkjandi fólk fætt 1995 og 1996, alls um 9.000 manns. Niðurstaða er sú að aðeins þriðjungur fólks 20-24 ára á Íslandi hafði einungis lokið grunn- skólanámi árið 2019, sem var annað hæsta hlutfallið í Evrópu. Aðeins Tyrkland stóð þarna hærra. Sama ár höfðu 23% fólks horfið frá námi fjór- um árum frá upphafi þess. Á aldr- inum 25-34 ára hafa 20,6% engu Kolbeinn segir að áhrif menntunar foreldra á nám barna þeirra komi ekki á óvart. Þarna geti skortur á fyrirmyndum og takmörkuð geta foreldra til að styðja við nám barna sinna líka verið áhrifaþáttur . Menntun hafi sömuleiðis áhrif á vinnu fólks. Foreldrar með litla menntun séu líklegri til að vera í andlega og líkamlega slítandi störf- um. „Þau þurfa að vinna meira til að láta enda ná saman, sem kemur nið- ur á tíma og orku sem þau hafa til að styðja börn sín í námi. Þá má ætla að sumir foreldrar með litla menntun eigi bitra reynslu af menntakerfinu sem valdi því að þau leggja minni áherslu á skólagöngu barna sinna. En svo eru ýmsir námserfiðleikar sem hafa ekkert með félagslega stöðu að gera, til dæmis raskanir sem nemendur geta verið með.“ Byrja þarf strax í grunnskóla að skima fyrir nemendum í brottfalls- hættu og fylgja þeim vel eftir með stuðningi, segir Kolbeinn. Þar þurfi mennta- og velferðarkerfi að vinna saman. Ekki sé endilega lausn að fjölda námskosta, nema hvað gefa þurfi verknáminu sérstakan gaum og koma þar betur til móts við nem- endur eftir getu þeirra og stöðu. Samkvæmt nýlegum tölum Euro- stat, hagstofu Evrópusambandins, höfðu tæp 32% 20 til 24 ára fólks að- eins lokið grunnskólanámi á Íslandi sem var annað hæsta hlutfallið í Evr- ópu. Á aldursbilinu 25-34 ára var hlutfallið 20,6%, hið sjöunda hæsta í Evrópu. Kostnaður af brotthvarfi frá námi er mikill, borinn af bæði sam- félaginu og þeim sem hætta í skóla. Slíkt fólk fær gjarnan verri störf en aðrir, lægri laun, minna atvinnu- öryggi og býr gjarnan við verri heilsu en aðrir, eins og Kolbeinn bendir á. Menntun lengi lífið Tölur Hagstofu Íslands benda líka til þess að vænt ævilengd þeirra sem hafa aðeins lokið grunnskólanámi við 30 ára aldurinn sé 1,7 árum styttri en þeirra sem hafa lokið framhaldsskól- anum. Sé svo hálfu fjórða ári skemmri en þeirra sem tóku háskóla. Menntun lengir lífið, er sem sagt niðurstaðan. „Fyrir um áratug var kostnaður af dæmigerðu brotthvarfi árgangs um 16 milljarðar króna framreiknað til núvirðis. Því er ljóst að mikill hagur felst í því að draga úr brotthvarfinu. Allir peningar sem í slíkt færu munu skila sér fljótt aftur til samfélags- ins,“ segir Kolbeinn Hólmar. Foreldrar ráða miklu um brottfall Morgunblaðið/Sigurður Bogi Menntun Eftir grunnskóla fer þorri íslenskra ungmenna í framhaldsnám, en allur gangur er á því hvert úthald þeirra þar er. Sumir hverfa frá námi sem þykir slæmt. Myndin er af Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ. - 20% landsmanna 25-34 ára hafa engu framhaldsnámi lokið - Hlutfallið hið 7. hæsta í Evrópu - Mikill hagur fyrir samfélagið að draga úr brottfalli - Stuðningur og skimun strax í grunnskóla Kolbeinn Hólmar Stefánsson ÚR BÆJARLÍFINU Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Skóla-spa er fastur liður í skóla- starfi á miðstigi í Grunnskólanum á Þórshöfn. Eins og nafnið gefur til kynna þá er um að ræða vísi að lítilli heilsulind, þar sem nemendur skiptast á að gefa og þiggja dekur og dúllerí. Útbúinn var lítill hjólavagn með ýmsu snyrti- og dekurdóti og fékk hann nafnið vellíðunarvagninn en það tengist einkunnarorðum skól- ans, sem eru virðing, virkni, vinsemd og vellíðan. Einn föstudag í mánuði er vagn- inum rúllað inn í bekkjarstofuna og nemendurnir eru orðnir leiknir í að setja sjálfir upp þessa litlu heilsulind. Nokkrar stöðvar eru settar upp og fara nemendur á milli stöðva og skiptast á að gefa og þiggja dekur, nudd og notalegheit. Í boði er and- litshreinsun og nudd, handa- og naglastöð, fótabað með nuddi og fleira. Tvær kennslustundir fara í dekrið og yfirmarkmiðið er að efla vináttu, tengsl og traust nemenda en veita jafnframt slökun, ró og vellíð- an. Kertaljós, slökunartónlist og snarkandi „arineldur“ í sjónvarpinu koma í stað björtu flúorljósanna og dýnur eru á gólfinu. Nemendur fóru hægt af stað í fyrstu og einhverjir héldu sér aðeins til hlés í byrjun en núna eru allir virkir þátttakendur og óska ákveðið eftir sínum spa-tíma einn föstudag í mánuði. Markmiðinu er þá náð, skóla-spa orðið fast í sessi og nemendur vinna saman að vellíð- an allra. - - - Lítill hugur er í smábátasjó- mönnum á Þórshöfn varðandi grá- sleppuvertíð, enn sem komið er, en veiðar má hefja á sunnudaginn (20. mars). Einn viðmælandi sagði útlitið svartara en í fyrra en þá var mikið veitt og almennt áhugaleysi er nú hjá kaupendum sem virðast eiga nægar birgðir frá síðustu vertíð. „Verð er líka almennt lágt, eftir því sem við heyrum og mikið óselt frá síðustu vertíð, svo flestir bíða rólegir og sjá hvernig málin þróast. Ég hef ekki heyrt um neinn ákveðinn hér á okkar svæði sem ætlar að hefja veiðar fljót- lega. Það eru hins vegar allir að verða til og með nýfelld net, svo ef eitthvað glæðist þá erum við klárir,“ sagði Halldór R. Stefánsson á Þórs- höfn. - - - Viðræður um sameiningu sveit- arfélaganna Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps eru nú á loka- sprettinum en gengið verður til kosninga um málið næsta laugardag, 26. mars. Haldnir hafa verið margir kynn- ingarfundir þar sem íbúum gafst færi á að ræða niðurstöður sam- starfsnefndar um sameiningarmálin en síðasti kynningarfundurinn var haldinn nú í vikunni. Þar komu fram ýmis sjónarmið íbúa og var hægt að taka þátt í fundinum bæði rafrænt sem og í félagsheimilinu. Á fundinum var kynning á framtíðarsýn sam- starfsnefndarinnar og forsendum fyrir sameiningartillögu hennar og síðan opnað á umræður og fyrir- spurnir fundargesta. Sem fyrr komu m.a. fram vangaveltur um jarðeignir sveitarfélaganna og fyrirkomulag á rekstri þeirra en stofnaður verður jarðasjóður um eignirnar. Tekjur jarðasjóðs munu ganga alfarið inn í sveitarsjóð og um sjóðinn gilda afar strangar reglur og nokkuð flóknar, í þeim tilgangi að torvelda jarðasölu því almennt er skoðunin sú að það sé hagur byggðarlagsins að jarðirnar tilheyri því en verði ekki seldar. Ýmsar spurningar komu fram sem svarað var af bestu getu en stóra spurningin sem eftir stóð á fundinum var þessi: „Hvort leysum við verk- efnin okkar betur í einu sameinuðu sveitarfélagi eða tveimur?“ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Dekur Nemendur í Grunnskóla Þórshafnar láta sér líða vel í skóla-spainu þar sem þeir gefa og þiggja dekur. Vinsæll vellíðunarvagn 36. flokksþing Framsóknarflokks- ins verður haldið um helgina á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík undir yfirskriftinni „Ný framsókn fyrir landið allt“. Fram kemur á heimasíðu Fram- sóknar að flokk- urinn haldi reglulegt flokks- þing sem haust- fundur mið- stjórnar boðar til, eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Það ákveði meginstefnu flokksins í landsmálum, setji flokknum lög og hafi æðsta vald í málefnum hans. Óvenjulangt er hins vegar á milli flokksþinga nú en síðasta flokks- þing Framsóknarflokksins var haldið árið 2018. Vegna kórónu- veirufaraldursins var ákveðið að fresta þinginu sem átti að halda árið 2020 og aftur var ákveðið að fresta þinginu á síðasta ári af sömu ástæðu. Gefa kost á sér áfram Á flokksþinginu nú fer fram kjör í helstu embætti. Sigurður Ingi Jó- hannsson er formaður flokksins, Lilja Alfreðsdóttir er varaformaður og gefa þau bæði kost á sér til að gegna embættunum áfram. Jón Björn Hákonarson er ritari en hann sækist ekki eftir endur- kjöri og Ásmundur Einar Daðason hefur lýst yfir framboði í embættið. Flokksþingið verður sett í dag og þá heldur Sigurður Ingi yfirlits- ræðu. Kosningar til embætta flokksins fara fram á morgun og flokksþinginu lýkur síðdegis á morgun með afgreiðslu mála. Flokksþing Fram- sóknar um helgina - Kosið í embætti flokksins á þinginu Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.