Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 26
26 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Stríðið í Úkraínu hefur staðið í 24
daga og ekkert lát virðist ætla að
verða á árásunum. Í gær var gerð
loftárás á byggingu fyrir utan flug-
völl í Lviv, sem er í 70 km fjarlægð
frá pólsku landamærunum. Það er
önnur árásin nálægt borginni, en
Rússar réðust á æfingasvæði fyrir
norðan hana aðfaranótt 13. mars,
þar sem 35 létust og yfir 130 særð-
ust. Borgin hefur hingað til verið
skjól flóttamanna á leið til Póllands.
Í Maríupol blasir við mannlegur
harmleikur ef ekki tekst að koma
vistum og ná í fólk frá borginni.
Hvorki er rafmagn né hiti og skortur
á vatni, mat og lyfjum er orðinn lífs-
hættulegur að sögn talsmanns Sam-
einuðu þjóðanna. Verið er að reyna
að tryggja flóttaleiðir frá borginni,
en það hefur ekki tekist. Þó hefur 30
þúsund borgurum tekist að flýja á
einkabílum, en eftir sprengjuárásina
á leikhús borgarinnar greip um sig
mikil hræðsla. 130 manns hefur verið
bjargað úr rústum leikhússins,
björgunarstarf heldur áfram því tal-
ið er að meira en 1.000 manns hafi
leitað þar vars.
Loftárás á íbúðablokk
Í Karkív héldu loftárásir áfram í
gær og mikill eldur kom upp í fjöl-
mennasta vinnustað borgarinnar,
Barabashova-markaðinum, sem er
stærsti markaður heims og að hluta
til útimarkaður. Milljón íbúa hefur
lagt á flótta og yfirgefið borgina og
aðeins eru 500 þúsund íbúar eftir.
Loftárás var gerð á íbúðablokk í
Kænugarði í gærmorgun og talið að
einn hafi látist. Yfirvöld borgarinnar
sögðu einnig hafa verið skotið á skóla
og barnaleikvöll. Varnarmálaráðu-
neyti Rússlands segist nú hafa náð
að „frelsa meira en 90% lýðveldisins
Luhansk“, en Rússar viðurkenndu
sjálfstæði bæði Luhansk og Dón-
etsk, héraða aðskilnaðarsinna,
þremur dögum fyrir innrásina undir
því yfirskini að héruðin væru á valdi
úkraínskra nasista. Samkvæmt töl-
um frá SÞ er fjöldi flóttamanna í
Úkraínu kominn í 3,2 milljónir og
fara flestir yfir til Póllands og dreif-
ast þaðan um álfuna. Í Úkraínu
sjálfri er talið að 13 milljónir þarfnist
bráðrar aðstoðar varðandi vatn, mat
og lyf og þörfin eykst dag frá degi.
Vladimír Pútín hélt upp á átta ára
afmæli yfirtöku Krímskagans í
Moskvu í gær með tíu þúsund
manns. Andi þjóðernishyggju sveif
yfir, rússneski fáninn alls staðar og
margir merktir Z-merki stuðnings-
manna. doraosk@mbl.is
Stöðugar loftárásir á íbúabyggð
- Loftárás á Lviv - Hungursneyð blasir við í Maríupol - Enn leitað í rústum leikhússins - Rússar
með stjórn 90% í Luhansk - 13 milljónir í neyð og flóttamenn 3,2 milljónir - Pútín fagnar í Moskvu
AFP/FADEL SENNA
Kænugarður Loftárás var gerð á íbúðablokk í norðurhluta Kænugarðs
snemma í gærmorgun samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum borgarinnar
sem sögðu að einnig hefði verið skotið á skóla og barnaleikvöll.
Í gær var 109 barnavögnum raðað upp á torginu fyrir framan
aðsetur borgarstjórnar Lviv sem minnisvarða um þau 109
börn sem hafa dáið af völdum árásar Rússa á landið. Reiði
umheimsins vegna árása á almenna borgara og börn er mikil
og Vladimír Pútín forseti Rússlands hefur verið óformlega
sakaður um stríðsglæpi af Bandaríkjamönnum. Samkvæmt
Genfarsáttmálanum frá 1949 er tekið fram að árásir á heil-
brigðisstofnanir og starfsfólk séu stríðsglæpur og eins árásir
sem beinast sérstaklega að almennum borgurum.
AFP/Yuriy Dyachyshyn
Táknræn framsetning í Lviv á morðum 109 barna í Úkraínu
Stuttu fyrir símtal Joes Bidens
Bandaríkjaforseta og Xi Jinpings
forseta Kína í gær sáust bæði kín-
versk og bandarísk herskip sigla ná-
lægt Taívan, sem er lýsandi fyrir
ástandið, þar sem þrátt fyrir já-
kvæðar yfirlýsingar var samt stutt í
lítt dulbúnar hótanir.
Haft var eftir Xi Jinping forseta
Kína að allir töpuðu á stríðinu í
Úkraínu og að bæði Kína og Banda-
ríkin þyrftu að axla sína ábyrgð á
stöðunni. Biden leitaði eftir trygg-
ingu fyrir að Kína myndi ekki styðja
Pútín og minnka þannig áhrif refsi-
aðgerða Vesturlanda gegn Rússum
og sagði að framtíð Kína lægi með
Vesturlöndum. Engin skýr svör
fengust, en vitað er að Kína metur
samband sitt við Pútín, og sér
ákveðna hliðstæðu þar við eigin
stöðu gegn Taívan, en á sama tíma
eru viðskiptatengsl við Vesturlönd
mikilvæg, svo talið er að Kína sé að
meta stöðuna.
Fram kom í gær að Xi hefði varað
Biden við afskiptum af Taívan í sam-
talinu og Biden sagt að aðstoð Kína
við Pútín hefði afleiðingar. Í lok
samtalsins var ákveðið að halda
samskiptaleiðum opnum svo búast
má við fleiri símtölum á næstunni.
Símtal Bidens og Xi Jinpings
- Talið að Kína sé að vega og meta hagsmuni sína í stöðunni
AFP/MANDEL NGAN
Viðræður Joe Biden og Xi Jinping ræddu málin í tæpa tvo tíma í gær.