Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 33

Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Ávarp Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra Ísland er á tímamótum. Eftirspurn eftir grænni orku eykst stöðugt. – Hvernig hefur arðsemi af orkuvinnslunni aukist? – Hvaða virkjanaverkefni eru í undirbúningi? – Hvernig hefur Landsvirkjun undirbúið framtíðina? Velkomin á ársfund Landsvirkjunar í Hörpu, fimmtudaginn 24.mars kl. 14 Skráning á fundinn á landsvirkjun.is Tökumvel á móti framtíðinni Ávarp Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Framtíðin er núna – Tækifæri okkar og ábyrgð Hörður Arnarson forstjóri Aukinn arður í þáguþjóðar – Straumhvörf í fjármálum Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni Fyrir okkur og komandi kynslóðir – Landsvirkjun og loftslagið Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri samfélags og umhverfis Byr í seglin – Samvinna og stuðningur við viðskiptavini Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu Aðmörgu er að hyggja ef vel á aðbyggja – Næstu skref í orkuöflun Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda Höldumótrauð áfram! – Lokaorð fundarstjóra Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Þegar kviknar á perunni – Nýsköpun og græn framtíð Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar Fjárhagsleg sjálf- bærni sveitarfélaga skiptir miklu máli bæði til lengri og skemmtri tíma. Það er forsenda þess að þau geti sinnt lögbundnum skyldum og haldið úti því þjónustustigi sem þau hafa markað sér fyrir íbúa og fyrirtæki. Reykjavíkurborg sinn- ir þjónustu sem skiptir alla hópa samfélagsins máli, hvort sem það eru aldraðir, fatlaðir eða aðrir sem þurfa á aðstoð að halda. Einnig þarf að tryggja þjónustu við fyrirtæki og sjá um að samgöngur séu í góðu standi og geti skapað forsendur fyr- ir framþróun Reykjavíkurborgar vegna fjölgunar íbúa og áætlaðrar breytingar á aldurssamsetningu borgarbúa. Í 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 kemur fram að: „Sveit- arstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum.“ Í sömu lagagrein kemur fram að „heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en nemur 150% af reglu- legum tekjum“. Það er því við hæfi, eftir að hafa tekið ákvörðun um að gefa kost á mér sem oddviti Miðflokksins í Reykjavík, að rýna hvernig fjárhag- sleg staða Reykjavíkurborgar er og hvort borgin sé ekki örugglega fjár- hagslega sjálfbær til styttri sem lengri tíma. Fátt skiptir Reykvík- inga meiru. Viðvörunarmerki Samkvæmt ársreikningi Reykja- víkurborgar fyrir árið 2020 eru tekjur samstæðunnar 191 millj- arður kr. en heildarskuldir 385 milljarðar. Heildarskuldir eru því langt yfir lögbundnum mörkum, eða 203% af reglulegum tekjum. Sú staðreynd er viðvörunarmerki um að eitthvað hafi misfarist í rekstri borgarinnar. Einnig er rétt að geta þess fyrir- vara sem Vigdís Hauksdóttir borg- arfulltrúi gerði við ársreikninginn fyrir árið 2020 að um ofmat væri að ræða á eign í Félagsbústöðum sem leiddi til þess að ársreikningurinn gæfi ekki rétta mynd af fjárhags- stöðu borgarinnar. Hún væri í raun verri en ársreikningur sýnir. Breytingin milli áranna 2020 og 2021 sýnir að heildarskuldir A og B Reykjavíkurborgar hækka til við- bótar um 27 milljarða króna og áætlun gerir ráð fyrir frekari skuldaaukningu um 11 milljarða í lok ársins 2022. Heildarskuldir eru þannig áætlaðar í lok ársins 2022 hvorki meira né minna en 423 millj- arðar kr. Samkvæmt lántökuáætlun á að taka að láni 25 milljarða á árinu 2022. Samkvæmt ofansögðu er ljóst að Reykjavíkurborg er ekki fjárhags- lega sjálfbær og ber kjörnum borg- arfulltrúum skylda til að bregðast við því með ábyrgð og af festu, einir og sér, eða í samvinnu við eftir- litsnefnd með fjármálum sveitarfé- laga. Borgin safnaði skuldum í góðærinu Þjóðarbúið var vel í stakk búið til að takast á við þau efnahagslegu áhrif sem urðu vegna heimsfarald- ursins því á árinu 2013 hóf ríkið að greiða niður skuldir. Á sama tíma hóf Reykjavíkur- borg að safna skuldum. Því hafði borgin ekkert svigrúm til þess að mæta vandanum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnti á fjármálaráðstefnu sveitar- félaga á síðasta ári skýrslu sem unnin var af Hagstofu Íslands um áskoranir í opinberum fjármálum þar sem spáð er um áætlaða íbúa- fjölgun og þróun á aldurssamsetningu þjóðarinnar. Þar er gert ráð fyrir fjölgun íbúa á landinu um 60.000 til ársins 2050 og að fjölgun þeirra sem fara af vinnu- markaði vegna aldurs sé um 40.000. Jafn- framt var bent á að út- svarstekjur sveitarfé- laga myndu lækka með tímanum og kostnaður vegna þjónustu við aldraða myndi hækka töluvert, m.a. vegna fjölgunar hjúkrunarheimila. Eftir kosningar í maí nk. þarf að verða nýtt upphaf sem felst í því að viðurkenna stöðuna eins og hún er, finna leiðir til að lækka rekstrar- kostnað, auka tekjur eða selja eign- ir. Það þarf að gera án þess að skerða lögbundna þjónustu við íbúa og fyrirtæki borgarinnar. Það er morgunljóst að ekki er hægt að breyta því sem liðið er, en okkur ber skylda til að taka á fjár- hagslegri stöðu borgarinnar á næsta kjörtímabili og tryggja fjár- hagslega sjálfbærni hennar. Það er krefjandi verkefni að fara inn í rekstur Reykjavíkurborgar á þessari stundu en jafnframt spenn- andi. Um leið og ég tók ákvörðun um framboð hófst tveggja mánaða at- vinnuviðtal við borgarbúa og þann 14. maí nk. mun koma í ljós hvort eftirspurn sé eftir mínum starfs- kröfum við að taka á fjármálum borgarinnar og öðrum mikilvægum þjónustuþáttum borgarinnar sem hafa setið á hakanum. Eitt brýnasta verkefnið er jafnframt að slá skjald- borg utan um það þjónustustig sem Reykjavíkurborg vill standa fyrir með hag borgarbúa og fyrirtækja að leiðarljósi. Ég hlakka til að taka það at- vinnuviðtal við borgarbúa á kom- andi vikum. Er Reykjavíkurborg fjárhagslega sjálfbær? Eftir Ómar Má Jónsson »Reykjavíkurborg ber skylda til þess að haga rekstri sínum þannig að hún geti til framtíðar sinnt skyldu- bundnum verkefnum sínum. Ómar Már Jónsson Höfundur er frambjóðandi í 1. sæti Miðflokksins í Reykjavík. omarjons@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.