Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 34

Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 34
Ísland er eyja í Atl- antshafinu sem flytur inn stóran hluta neysluvara og hrávara. Einnig flytur Ísland út mikið af neysluvörum til annarra landa. Tilgáta er hér að það sé að taki almennt um sex mánuði frá fram- leiðslu vöru á Íslandi, til útflutnings, þar til varan fæst greidd. Svipaðan tíma tekur einnig að selja vöru á Íslandi, frá því varan er keypt erlendis. Almennt séð virðist mér því mis- munur fyrir fyrirtæki á Íslandi og fyrirtæki almennt erlendis að „tíma- mismunur“ – að fá greitt/greiða vöru – sé um sex mánuðir. Þetta leiðir af sér að áhrif vaxta á rekstur fyrir- tækja á Íslandi geti verið 1:6 eða um 600% meiri hérlendis um fjármögnun þessa sex mánaða biðtíma. Óþarfi er að fara að þræta um erlenda vexti í þessu sambandi, mismun- urinn verður alltaf þessi 1:6. Ástæðan fyrir þessari blaðagrein er að benda á það, að lítið hefur verið rætt um áhrif vaxta á þennan þátt at- vinnurekstrar. Þetta er sérstaða ís- lenskra fyrirtækja – við erum á „skeri“ í Atlantshafinu – og það þarf að sigla með vörur langa leið í tilfelli A og B. Svona séríslensk atriði eru fleiri og þarf að meta þegar gerðar eru sviðsmyndir um áhrif af hækkun vaxta á Íslandi. Íslensk fyrirtæki hafa svo gjarnan (því miður) lægra hlutfall eigin fjár en almennt erlendis. Skuldastaða er þá samsvarandi hærri og áhrif vaxta meiri að því leyti. Almenningur á Íslandi er einnig með lægra hlutfall eigin fjár í íbúðum sínum/einbýlishúsum en víða erlend- is. Allt ber þetta að sama brunni. Hækkun vaxta í íslensku efnahagslífi kann að hafa 600% öflugri áhrif á rekstur fyrirtækja (pressu um verð- hækkanir frá fyrirtækjum) og svo lífskjör almennings en almennt er- lendis. Hvað varðar umræðu um „nei- kvæða raunvexti“ þá eru í dag sér- stakar aðstæður – styrjöld/ hækkandi orkuverð/hækkandi flutn- ingskostnaður/daglegar hækkanir á hrávörum og neysluvörum sem hækka verðlag og skerða afkomu fyrirtækja og lífskjör almennings. Með tilvísun í „meðalhófsreglu“ má segja að fjármagnseigendur verði að sætta sig við að það tapa all- ir í svona stöðu. Hlutverk Seðlabank- ans er þá að reyna að gæta jafnvægis í peningamálum og varla neitt óeðli- legt við að Seðlabanki meti það rök- rétt að „allir tapi svipað“ til að halda jafnvægi í efnahagsmálum. Mér finnst rangt að fjalla um vaxtamál þannig að fjármagnseig- endur séu „jafnari en aðrir“. Fjár- magnseigendur á Íslandi fá hærri vexti en erlendis og þurfa tæplega enn hærri ávöxtun en það. Gengi krónunnar er einnig sterkt svo þarna eru bæði belti og axlabönd hvað varðar fjármagnseigendur. Við verð- um öll að sætta okkur við einhverjar skerðingar í ríkjandi ástandi sem við vonum að lagist sem fyrst. Seðlabanka Íslands tókst af- skaplega vel að leiða okkur gegnum Covid-kreppuna og þar sannaðist ár- angur af því að lækka vexti og hvað áhrifin voru mikil. Þetta er eitt besta dæmi um árangur í kjarkmikilli stjórn peningamála á Íslandi. Á sama hátt vona ég að Seðlabanki Íslands leiði okkur gegnum stjórn peningamála þannig að við komumst í gegnum sérstæðar ríkjandi að- stæður með sem minnstum skaða. Vextir á stríðstímum Eftir Kristin Pétursson » Við verðum öll að sætta okkur við svipaðar skerðingar í því ástandi sem nú ríkir, hvort sem við heitum fjármagnseigendur eða aðrir eigendur. Kristinn Pétursson Höfundur starfar sem ráðgjafi í orkumálum. krp@simnet.is 34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 N ú vomir yfir okkur staða sem enginn óskaði sér – gat jafnvel ekki ímyndað sér. Og kref- ur okkur um afstöðu sem er hafin yfir trúarkenningar, menningarlegan bakgrunn eða sið- ferðis-tilfinningarnar góðu, sem geta verið svo næmar fyrir sveiflum og brigðular í raun, þegar allt kem- ur til alls. Hin persónulega og staðbunda vídd lífs okkar sem einstaklinga skiptir máli og að í hverju efni mæt- um við fólki á flótta á þeirra eigin forsendum. Rætur kristinnar menn- ingar á Íslandi liggja aftur í sögunni til Kænugarðs þaðan sem land- námsmenn og víkingar báru er- lenda strauma heimsmenning- arinnar til landsins. Úkraínska þjóðin er öll sem ein í sárum, óbæt- anlegar menningarminjar um rúm- lega þúsund ára sögu kristindóms í landinu eru í skotlínu átaka, mann- fall er mikið og óbreyttir borgarar falla á hverjum degi. Við Íslend- ingar sem þjóð eigum ótalmargt svo innilega sameiginlegt með bræðrum og systrum í Úkraínu þar sem evr- ópsk og nútímaleg gildi hafa verið ríkjandi á síðustu árum. Því er það áskorun mín til okkar allra að taka þeim fagnandi og undirbúa starf safnaðanna þannig að kirkjan sem einn af hornsteinum íslenskrar menningar sé reiðubúin til að taka vel á móti þeim sem hingað leita. … og þú fæddir mig Aðstoð við flóttafólk er langtímaverkefni og því miður lítur út fyrir, með hverjum deginum sem líður, að vandamálið sem Evrópa mun takast á við í kjölfar þessa stríðs verði stærra en nokkur ímyndaði sér á fyrstu dögum inn- rásar Rússa. Áætlað er að yfir þrjár milljónir séu á flótta bæði innan og utan lands; fólk með djúpar rætur á svæðum þar sem ætlað var að ekki yrði barist, fólki, sem ætlaði sér hvergi því engu skipti hvaða stjórnvald ríkti þar, hefur nú verið skipað af stríðandi fylkingum að yfirgefa borgir og bæi þar sem íbúabyggðir, heimili fólks og almenn- ingsgarðar, séu nú víg- völlur. Hvorki hinum fornu kirkjum fólksins eða hinum nýbyggðu eru grið gefin. Þau sár eru og verða djúp og munu seint gróa. Í kirkjum landsins kann að finn- ast hjartarými og næði til bæna og sálgæslu með fólki á flótta, hvaðan sem það flýr. Við gerum ekki upp á milli þeirra sem til okkar leita og berum öll ábyrgð á því að vera upp- lýst og styðjandi, hvert og eitt sem kristnar manneskjur fyrst og fremst. Megi prestar njóta þeirrar náðar að fræða og byggja safn- aðarfólk sitt upp svo við getum öll tekið með einhverjum hætti á með þeim öllum sem róa að sama marki um þessar mundir. Að tilheyra hinni biðjandi og friðelskandi kirkju Krists hér í heimi kann að vera sum- um huggun harmi gegn, þegar öll virðumst við ráðalaus og máttlítil. Eina andsvarið við illskunni er kærleikur Ágústínusi kirkjuföður eru eign- uð fleyg orð sem kjarna þá hugsun sem við þurfum öll sem eitt að hafa í huga á ófriðartímum. Ubi Caritas Ibi Deus Est – en það má útleggja sem svo að hvar sem kærleik- ann er að finna í verki, þar sé Guð. Sá Guð er yfir kenningarmun kirkna og trúar- bragða hafin. Það er sá kærleikans Guð sem hefur okkur birst í heimi og verið pínd- ur og deyddur í her- teknu landi. Það er sá Guð sem við játum í Jesú Kristi, sem upp reis og sigraði dauð- ann, lögmál heims og heljar. Á komandi vik- um skulum við taka höndum saman, huga að hinum líð- andi og biðja, með vonarljós páskanna fyrir hugskotssjónum. Við biðjum þess að friður og eining þess Guðsríkis sem er bæði hið innra og á meðal okkar, hvar sem kærleikans verk er unnið, megi verða líkn við þraut í heimi þar sem sundrung, ótti og örvænting blasir við. Það eina góða sem hlýst af illum verkum er að sameina marga um hið góða. Að tilheyra er tákn samkenndar Stundum er spurt – hvað er hið illa? Hver eru hin illu verk og hverju áorkar haturshugur? Hvaðeina sem sundrar, það sem særir og meiðir fólk. Það sem rífur tengsl þess á milli; það er græðgin, öfundin og af- brýðissemin sem tortryggir; hug- arfar Kains sem vó bróður sinn. Þjóðardýrlingar Úkraínumanna eru m.a. hinir helgu bræður hl. Boris og hl. Gleb. Þeir mættu illu með góðu, mættu myrkri launráða og skamm- arlegum morðtilræðum með ljós ei- lífs lífs í hjarta. Af friðarhug. Það er hið illa sem sundurdreifir – og því, með kærleikans verk fyrir höndum, þá skulum við sem bræður og systur úkraínsku þjóðarinnar og saklauss almennings í Rússlandi líka, taka höndum saman og vera einhuga í því verkefni að taka í kærleika á móti öllum þeim sem hingað flýja hörmungar stríðs og skorts. Kirkjan til fólksins Bræður Boris og Gleb eru þjóðardýrlingar Úkraínumanna. Þeir mættu illu með góðu og myrkri launráða og morðtilræðum með ljósi eilífs lífs. Því hungraður var ég … Arnaldur Máni Finnsson Höfundur er sóknarprestur á Staðastað. stadarstadur@gmail.com Arnaldur Máni Finnsson Að tilheyra hinni friðelsk- andi kirkju Krists kann að vera sumum huggun harmi gegn, þegar öll virðumst við ráðalaus og máttlítil. Þá er bænin þó vopn. Stríð er það þegar hópar, þjóðir eða ríki berjast. Stríð standa yfir í mjög mislangan tíma, frá fáum dögum til áratuga. Innrásarstríð er stríð háð af ríki sem ræðst með herjum sín- um inn fyrir landa- mæri, þ.m.t. landhelgi og lofthelgi, annars ríkis. Nærtækasta dæmið er innrás Rússlands í Úkraínu. Stríðsglæpir eru skilgreindir sem þær aðgerðir sem eru brot á lögum um vopnuð átök, þ.e.a.s. brot á þeim venjulegu og hefð- bundnu alþjóðareglum sem settar eru til að hafa eftirlit með fram- kvæmd hernaðar og hafa almennt verið við- urkenndar sem stríðs- glæpir. Stríðsglæpamaður telst sá sem sakfelldur hefur verið fyrir stríðs- glæpi af viðurkenndum dómstól. Alþjóðasaka- máladómstóllinn var settur á laggirnar 1998 eftir að 120 ríki samþykktu hina svo- kölluðu Rómarsamþykkt. Helstu al- þjóðlegu réttarheimildir á svið stríðs- glæpa eru Genfarsáttmálinn og Rómarsamþykktin 1998. Sem sagt: það þarf að sanna glæp viðkomandi og dæma til að hann teljist stríðs- glæpamaður. Hafa Rússar þá framið stríðsglæpi á þessum fyrstu tveimur vikum inn- rásar þeirra í Úkraínu? Eru einstakir hermenn þeirra sekir um stríðs- glæpi? Hefur Pútín framið stríðs- glæpi í Úkraínu? Er hann sá ábyrgi ef stríðsglæpir sannast á rússneska herinn? Hver dæmir um þetta? Flokkast það undir stríðsglæp að sprengja sundur barnaspítala, sjúkrahús, skóla og íbúðablokkir? Er beiting efnavopna (ef til kemur) stríðsglæpur eða hryðjuverk? Hver er munurinn á stríðsglæp og hryðju- verki? Hryðjuverk er umdeilt hugtak án nokkurrar almennt viðurkenndrar skilgreiningar. Algengast er að hryðjuverk sé talið hver sú árás sem af ásetningi er beint gegn almennum borgurum til ógnunar sem framin er í þeim tilgangi að ná fram stjórn- málalegum eða öðrum hug- myndafræðilegum markmiðum. Um það er deilt hverjir fremji hryðjuverk (hvort t.d. ríki geti framið hryðju- verk) og að hverjum þau geti beinst (til dæmis hvort árás á hernaðarleg skotmörk geti verið hryðjuverk). Þarna geta komið upp árekstrar við önnur hugtök á borð við stríð og skæruhernað. Í landslögum ríkja sem og í þjóða- rétti hefur verið reynt að skilgreina hryðjuverk. Til dæmis segir í ís- lensku hegningarlögunum í 100. grein m.a.: Fyrir hryðjuverk skal refsa með allt að ævilöngu fangelsi hverjum sem í þeim tilgangi að valda almenn- ingi verulegum ótta eða þvinga með ólögmætum hætti íslensk eða erlend stjórnvöld eða alþjóðastofnun til að gera eitthvað eða láta ógert eða í því skyni að veikja eða skaða stjórn- skipun eða stjórnmálalegar, efna- hagslegar eða þjóðfélagslegar und- irstöður ríkis eða alþjóðastofnunar fremur eitt eða fleiri af eftirtöldum brotum … Þetta er mjög áþekkt skilgrein- ingu SÞ á hugtakinu (heimild: Wiki- pedia). Hver hefur eftirlit með hernaðar- aðgerðum Rússa í Úkraínu, því sem telja má stríðsglæpi eða hryðjuverk og kemur ábendingum þar um til þar til bærra aðila (dómstóla)? Hversu hratt getur málsmeðferð gengið hjá viðeigandi dómstólum? Kemst Pútín upp með athæfi sitt þar til öll Úkra- ína er fallin í hans hendur? Verður hann nokkurn tíma dæmdur? Úkraínustríðið Eftir Jón Hermann Karlsson Jón Hermann Karlsson »Hvað er stríð? Hvað er stríðsglæpur? Höfundur er viðskiptafræðingur á eftirlaunum. jonhk@internet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.