Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 36
36 MESSUR
á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð
Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl.
11. Umsjón: Sonja Kro og Hólmfríður
Hermannsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir
stjórn Hrafnkels Karlssonar organista.
Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma í safnaðarheimilinu í umsjá And-
reu Önnu Arnarsdóttur og Thelmu Rós-
ar Arnarsdóttur. Kaffi og spjall eftir
stundina.
ÁSKIRKJA | Lesmessa og barnastarf
kl. 13. Jóhanna María Eyjólfsdóttir
djákni annast samverustund sunnu-
dagaskólans. Sr. Davíð Þór Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffisopi í
Ási að guðsþjónustu lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 17.
Davíð Sigurgeirsson annast undirleik
og leiðir söng ásamt sönghópi. Prestur
er Kjartan Jónsson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Innsetning
djákna í Bessastaðakirkju. Vilborg Ólöf
Sigurðardóttir verður sett inn í embætti
djákna við Bessastaðasókn í messu kl.
11. Vilborg mun prédika í messunni.
Álftaneskórinn syngur undir stjórn Ást-
valdar organista, sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prófastur setur Vilborgu inn í
embættið, Margrét Gunnarsdóttir
djákni og sóknarnefndarfólk þjóna við
athöfnina. Eftir messuna er öllum
kirkjugestum boðið í kirkjukaffi í safn-
aðarheimilinu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1. kl. 11. Umsjón
með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur
og Þórarinn.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta, sunnudag kl. 11. Séra Anna Ei-
ríksdóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn
leiðir sálmasöng undir stjórn Steinunn-
ar Árnadóttur, orgarnista.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur er Magnús Björn Björns-
son. Kór Breiðholtskirkju syngur undir
stjórn Arnar Magnússonar. Kaffiveiting-
ar eftir guðsþjónustuna. Sunnudaga-
skólinn í Fella- og Hólakirkju kl. 11. Al-
þjóðlegi söfnuðurinn. Guðsþjónusta kl.
14. Prestar eru Toshiki Toma og Ása
Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er
Örn Magnússon. Barnagæsla. Kaffi og
te eftir stundina.
BÚSTAÐAKIRKJA | Friðarmessa og
styrktartónleikar fyrir Úkraínu kl. 13.
Alexandra Chernyshova, Ragnheiður
Gröndal, Guðmundur Pétursson, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Gréta Hergils, Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson, Matthías
Stefánsson og Kammerkór Bústaða-
kirkju flytja tónlist ásamt Jónasi Þóri.
Sveinn Rúnar Sigurðsson læknir talar.
Samkirkjulegur hópur flytur bænir og
lestra, umsjón sr. María G. Ágústsdótt-
ir. Frjáls framlög til Hjálparstarfs kirkj-
unnar til aðstoðar fólki á flótta undan
innrás rússneska hersins í Úkraínu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Karen Lind þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir,
söngur Kammerkór Digraneskirkju.
Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu.
Veitingar að lokinni messu. Fermingar-
fræðsla kl. 12.30. Hjallakirkja messa
kl. 17. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar
fyrir altari. Tónlist Sálmarar.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11.
Séra Elínborg Sturludóttir, Dómkórinn
og Kári Þormar. Æðruleysismessa
klukkan 20.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðs-
dóttir organista. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á sama tíma, kókósbollu-
gerð. Kaffi og djús eftir stundina.
FRIÐRIKSKAPELLA | Játningarbund-
in evangelísk-lútersk kristni (JELK) held-
ur guðsþjónustu 20. mars kl. 11. Sak-
arías Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir
altari.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson
leiðir stundina. Hljómsveitinni Mantra
og sönghópurinn við Tjörnina leiða
sönginn undir stjórn Gunnars Gunnars-
sonar organista. Fjölskyldur fermingar-
barna eru hvattar til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir
söng. Organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri
hæð kirkjunnar. Umsjón hafa sr. Magn-
ús Erlingsson, Ásta Jóhanna Harðar-
dóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undir-
leikari er Stefán Birkisson. Selmessa
er í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Séra Þorvaldur Víðisson þjónar
ásamt messuhópi, Ástu Haraldsdóttur
organista og Kirkjukór Grensáskirkju.
Þriðjudagur kl. 15-18, samverustund
flóttafólks frá Úkraínu í safnaðarheimili
Grensáskirkju. Þriðjudagur kl. 12, kyrrð-
arstund, einnig á netinu. Fimmtudagur
kl. 18.15, núvitundarstund, einnig á
netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem
þjónar og prédikar fyrir altari.
Tónlistarflutingur í umsjá Hrannar
Helgadóttur organista og kór Guðríðar-
kirkju syngur. Barnastarf í umsjá sr. Pét-
urs Ragnhildarsonar og félaga. Kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffi og djús í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Jónína Ólafsdóttir
þjónar. Guðmundur Sigurðsson organ-
isti og félagar úr Barbörukórnum sjá um
tónlistina.
Aðalfundur Hafnarfjarðarsóknar að
guðsþjónustu lokinni.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili kl.
11.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Prestur er Eiríkur Jó-
hannsson. Messuhópur aðstoðar. Kór
Hallgrímskirkju syngur undir stjórn
Steinars Loga Helgasonar. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón
með barnastarfi hafa Ragnheiður
Bjarnadóttir og Rósa Hrönn Árnadóttir.
Sunnudagur kl. 17.30. Tónleikar og
kórvesper á Boðunardegi Maríu. Stein-
ar Logi Helgason, stjórnandi. Björn
Steinar Sólbergsson spilar á orgel. Að-
gangur ókeypis.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkomur á sunnudögum
Almenn samkoma kl. 11
Samkoma fyrir enskumælandi (English
speaking service) kl. 14
Samkoma fyrir spænskumælandi (reu-
nión en español) kl. 16
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma með lofgjörð og fyrirbænum
kl. 13. Guðjón Vilhjálmsson prédikar.
Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Friðarmessa
kl. 11. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju
syngja undir stjórn Arnórs Vilbergsson-
ar, organista. Linda Gunnarsdóttir er
messuþjónn. Sr. Erla Guðmundsdóttir
þjónar. Sunnudagaskóli á sama tíma í
höndum Marínar Hrundar, Helgu og Al-
exanders Grybos.
KIRKJUSELIÐ í Spöng | Selmessan
hefst kl. 13. Sr. Magnús Erlingsson
þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleik-
ari er Hákon Leifsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, hér-
aðsprestur, prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Félagar úr kór Kópavogskirkju
syngja undir stjórn Lenku Mátéová,
kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
Kyrrðar- og íhugunarstund í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 17.30.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli í Langholtskirkju 20.
mars kl. 11. Sigurður Már Hannesson
prestur þjónar, Magnús Ragnarsson er
organisti og kórinn Góðir grannar syngja
undir stjórn Egils Gunnarssonar. Lára
og Jakob taka á móti börnunum í sunnu-
dagaskólann og boðið verður upp á létt-
an hádegisverð að lokinni messu.
LINDAKIRKJA |
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð
undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal |
Föstumessa kl. 14. Söngkór Miðdals-
kirkju syngur. Organisti er Jón Bjarna-
son. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar fyrir
altari og prédikar.
MOSFELLSKIRKJA í Grímnesi |
Kvöldmessa alla miðvikudaga á föstu
kl. 20 fyrir allar sóknir. Þann 23. mars
þjónar sr. Bolli Pétur Bollason. Organisti
er Jón Bjarnason.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í
kirkjunni. Félagar úr kór Neskirkju
syngja og leiða söng undir stjórn Láru
Bryndísar Eggertsdóttur organista.
Prestur er Steinunn A. Björnsdóttir. Í
sunnudagaskólanum er söngur og
söngur undir stjórn Hrafnheildar Guð-
mundsdóttur og Ara Agnarssonar sem
leikur undir söng. Hressing á torginu á
eftir.
Sandgerðiskirkja | Vox Felix, ung-
mennakór sóknanna á Suðurnesjum
undir stjórn Rafns Hlíðkvists, syngur við
messu kl. 20.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11, söngur, Biblíusaga og brúðuleik-
hús, ávaxtahressing í lokin. Guðsþjón-
usta kl. 13, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Selja-
kirkju syngur undir stjórn Tómasar
Guðna Eggertssonar, messukaffi í lok-
in.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslu-
morgunn kl. 10. Minningar frá Alþingi og
úr ráðherratíð. Halldór Blöndal, fyrrver-
andi ráðherra, talar.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vign-
ir Stefánsson er organisti.
Félagar úr Kammerkórnum syngja.
Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðar-
heimilinu. Kyrrðarstund á miðvikudag
kl. 12.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Föstu-
messa kl. 11. Börn ljóssins. Organisti
er Jón Bjarnason. Sr. Bolli Pétur Bolla-
son þjónar fyrir altari og prédikar.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sunnudagaskóli kl. 10. Aðalsafnaðar-
fundur kl. 15. Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar. Sóknarfólk hvatt til að
mæta. Tónlistarstund kl. 17.
Morgunblaðið/AlfonsÓlafsvíkurkirkja
Minningar
Fallinn er frá
mikill höfðingi. KK,
eins og við félagarn-
ir kölluðum hann,
lést á dögunum eft-
ir vonlausa baráttu við MND.
Við kynntumst fyrir 16 árum
þegar við störfuðum saman hjá
Capacent. Eins og fleiri í kring-
um okkur höfðum við báðir mik-
inn áhuga á golfi og fljótlega
varð til hópur kylfinga sem síðan
hefur farið í margar golfferðir
víða um heim og leikið mörg
golfaþon á Íslandi, en það er 72
holu golfkeppni, leikin á um 20
klukkustundum.
KK var tuttugu árum eldri en
ég sem þó er með þeim elstu í
hópnum. Hann gat því hæglega
verið faðir flestra, en það breytti
ekki því að hann var einn af
strákunum. Enginn varð var við
aldursmun, enda var KK ávallt í
toppformi, líkamlega og andlega.
Lífsgleði hans og jákvæðni gerðu
að verkum að hann var sérlega
vel liðinn félagi. Reyndar svo vel
liðinn að einn úr hópnum vildi fá
að ættleiða hann sem tengdaföð-
ur.
KK var glæsilegur á velli, há-
vaxinn maður með stórt hjarta,
hlýja nærveru og geislandi bros.
Það var gaman að etja kappi við
hann, hann gaf ávallt sitt besta
og kunni hvort tveggja, að vinna
og tapa. Klikkaði sjaldan á pútti
þegar það skipti máli. Hann var
fyrirmynd okkar ungu guttanna í
Kristján
Kristjánsson
✝
Kristján Krist-
jánsson var
fæddist 18. apríl
1944. Hann lést 22.
febrúar sl. Útförin
fór fram 8. mars
2022.
hópnum, höfum oft
rætt í okkar ferðum
að við óskuðum þess
að verða eins og KK
þegar við loks yrð-
um fullorðnir.
En nú hefur þessi
mikli heiðursmaður
farið í sína síðustu
golfferð. Við kveðj-
um hann og munum
halda minningu
hans á lofti. Það
verður skálað fyrir KK í golfferð-
um framtíðarinnar, þannig verð-
ur hann með okkur. Votta Dittu
og fjölskyldunni mína samúð. KK
verður sárt saknað, en minning
hans mun lifa.
Hrannar Hólm.
Líttu sérhvert sólarlag
sem þitt hinsta væri það
því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Enginn sem ég hef um ævina
kynnst kunni þá list betur en
Kristján Kristjánsson að lifa eins
og hver dagur væri lífið sjálft.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að KK, eins og hann var allt-
af kallaður í okkar hópi, réð mig í
vinnu strax að loknu háskólanámi
og varð mér dýrmætur lærifaðir
á nýju starfssviði. Hann hafði
einkar gott lag á því að stýra
fólki til góðra verka og fá það til
fylgis við skynsamlegar hug-
myndir. Hann bjó yfir ótrúlegri
orku, jákvæðni og framkvæmda-
gleði og það var jafnan ákaflega
gaman að vera með honum í
starfi og leik. Ég sé hann ljóslif-
andi fyrir mér með ógleymanlega
brosið sitt sem fékk mann til að
hlýna um hjartaræturnar.
KK var ráðgjafi af guðs náð
eins og starfs- og félagsmálafer-
ill hans ber glöggt merki um.
Það var á við nokkra áfanga í há-
skóla að takast á við ráðgjafar-
verkefni undir handleiðslu Krist-
jáns. Fyrir kom að lærlingurinn
þóttist sjá betri leiðir til lausnar,
setti sig jafnvel á háan hest og
andmælti læriföðurnum, en það
brást ekki að undraskjótt tókst
KK að leiðrétta kúrsinn! Hann
hvatti mig ávallt af miklum sann-
færingakrafti til að takast óhikað
á við ný og krefjandi verkefni.
Þegar ég var síðan sjálfur kom-
inn í þá stöðu að þurfa ráðgjöf í
ákveðnum verkefnum þá var
ósjaldan leitað í smiðju KK.
KK var ötull talsmaður og að-
alhvatamaður þess að opnuð var
ráðgjafarskrifstofa á Akureyri
árið 1998. Það voru ekki allir
sannfærðir um að það væri skyn-
samlegt en KK hafði fulla trú á
þessu verkefni sem hann fól mér
að vera í forsvari fyrir. Ég bý
ávallt að þeirri hvatningu og ráð-
gjöf sem KK veitti mér.
Fagleg handleiðsla Kristjáns
var mér afar mikils virði en ég er
ekki síður þakklátur fyrir per-
sónulegan vinskap okkar. Alla
tíð sýndi hann mikinn áhuga á
högum fjölskyldu minnar,
barnanna og okkar Þórunnar.
Nú síðustu daga hafa ótal marg-
ar góðar minningar yljað okkur
og rifjast upp margar ógleyman-
legar samverustundir okkar í
fjallgöngum og á golfvöllum víða
um land.
Ég hef oft sagt í gegnum tíð-
ina að KK væri einstaklingur
sem ég tæki mér til fyrirmyndar
og því mun ég halda áfram. Af
ómældri virðingu þakka ég allt
það sem þessi kæri vinur og
lærifaðir gerði fyrir mig alla tíð.
Elsku Kristín, börn og barna-
börn, missir ykkar er mikill,
minning um frábæran einstak-
ling lifir. Guð blessi minningu
Kristjáns Kristjánssonar, KK.
Jón Birgir Guðmundsson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
Ég var sex ára
gömul þegar ég var
svo heppin að fara í sveit til Júllu
og Friðjóns frænda míns á Deild-
arfelli í Hofsárdal í Vopnafirði.
Viggi bróðir hafði verið í tvö sum-
ur og nú átti ég loks líka að fá að
fara. Mikið sem ég var glöð og
spennt. Ein fyrsta minningin er
þegar ég fór með Júllu í Kaup-
félagið á Tanga og sveitungarnir
tóku allir eftir mér. Þeir horfðu á
okkur Júllu og spurðu: „Nú, er
Vignir enn þá hjá þér?“ Ég var
steinhissa þar sem ég var tveim-
ur árum yngri en Viggi, en stutt-
klippta hárið gerði mig stráka-
lega og lík vorum við jú systkinin.
En jafnhissa var ég að sjá Júllu
svara hátt og snjallt: „Þetta er
ekki Vignir heldur hún Jónína
systir hans. Hún var að koma og
ætlar að vera í mánuð hjá mér.“
Þetta sýndi mér strax að það var
öðruvísi að búa á litlum stað eins
Steinunn Júlía
Friðbjörnsdóttir
✝
Steinunn Júlía
Friðbjörns-
dóttir fæddist 23.
október 1928. Hún
lést 1. febrúar
2022.
Útför Stein-
unnar Júlíu var
gerð 18. febrúar
2022.
og á Vopnafirði og
athyglin á því smáa
var meiri.
Dvölin þessi þrjú
sumur á Deildarfelli
var ljúf og full af
óvæntum atburðum,
góðum minningum,
rómantík, Brimkló,
útreiðartúrum,
Stjörnu, Gránu,
Stellu, sveitastemn-
ingu, bílaviðgerð-
um, gestagangi, kaupstaðarferð-
um á Moskvít eða á dráttarvél í
búðina til hans Runa á Ásbrands-
stöðum.
Tíminn leið eins og lækurinn
því þótt væri líf var ekki hama-
ganginum fyrir að fara á þeim
bænum.
Júlla var b-manneskja og naut
kvöldstundanna, en leyfði sér að
fara seinna á fætur heldur en
karlpeningurinn, enda búin að
undirbúa nesti fyrir þá sem
þurftu kvöldinu áður. Stundum
beið ég spennt eftir henni við eld-
húsborðið og sá þaðan hvernig
hún sveif ofan af svefnloftinu nið-
ur stigann eins og kvikmynda-
stjarna í bleika þunna siffon-nátt-
sloppnum með pífunni. Hún var
oft enn í tröppunum þegar hún
byrjaði að tala og segja frá
draumum næturinnar.
Júlla var næm og oft ber-
dreymin. Einn draumanna er
mér sérstaklega minnistæður.
„Jæja, Nína mín,“ segir Júlla.
„Nú verð ég að drífa mig í að
baka vegna þess að við erum
sennilega að fá gesti í dag. Ekki
veit ég hverjir eru að koma, en
þessi kona hló svo mikið að það
var einstakt.“ Svo fékk hún sér
kaffi í glasið sitt og byrjaði að
baka. Enginn kom gesturinn
þann daginn og var Júlla hissa.
Seinnipart næsta dags er ég uppi
að leika mér þegar ég heyri gesti
bera að garði. Ekki leið á löngu
uns dynjandi kvenmannshlátur-
inn dundi um allan bæinn og var
hláturinn svo mikill og sérstakur
að ég hafði aldrei heyrt annað
eins. Þetta voru töfrar.
Júlla var mjög athugul og vak-
andi. Hún hafði gaman af fólki,
var mannþekkjari mikill og ég
heyrði margar frábærar mann-
lýsingar frá henni. Stundum brá
hún á leik og „lék“ fólk, það
fannst mér gaman. Þá skóf hún
ekki af sínum skoðunum og lét
fólk alveg heyra ef henni mislík-
aði eitthvað. Henni þótti vænt um
börn og átti auðvelt með að um-
gangast þau og allt virtist svo
einfalt. Og það var svo gott.
Henni Júllu minni er ég æv-
inlega þakklát fyrir að hafa leyft
mér að vera hjá sér í sveitinni. Ég
mun ætíð minnast þessa tíma
með gleði og þakklæti.
Börnum Júllu, tengdafólki, af-
komendum og ættingjum votta
ég mína dýpstu samúð.
Jónína Mjöll Þormóðsdóttir.