Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
✝
Valgeir Sig-
urjónsson
fæddist á Patreks-
firði 15. maí 1968.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands í Vest-
mannaeyjum 13.
mars 2022 eftir erf-
iða baráttu við MS-
sjúkdóm.
Foreldrar Val-
geirs voru Svanhvít
Bjarnadóttir, f. 8.12. 1929, d.
10.1. 2018, og Sigurjón Árnason,
f. 24.4. 1923, d. 15.4. 2010.
Systkini Valgeirs
eru: Bjarni Heiðar,
Einar Árni og Sig-
fríður Guðbjörg.
Eftirlifandi eig-
inkona Valgeirs er
Björg Ólöf Braga-
dóttir, f. 4.2. 1973.
Börn þeirra eru
Sigþór Örn, f. 6.12.
1999, og Sandra
Dögg, f. 13.2. 2003.
Útförin fer fram
frá Landakirkju í dag, 19. mars
2022, kl. 11. Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Tárin falla
sorgin snertir hjartað
mitt
og hugurinn reikar stjórnlaust
en hvert, veit ég ekki.
Lítið tré fellir laufin
eitt og eitt
uns þau hverfa
og koma ekki aftur.
Ég sé þig í huga
mínum
geymi allar minningar
um þig
í hjarta mínu
og dagurinn hverfur
út í buskann
og eilífðin sjálf
stoppar.
Eins og hörpustrengur
er hjarta mitt
þegar ég hugsa um
brosið þitt
eins og fallegur dagur
sem kemur og fer
lýsir stjarnan þín upp
hjá mér.
Með söknuð í hjarta og
tár á kinn
kveð ég þig
hjartans bróðir minn.
(SM)
Ávallt í huga mér og hjarta.
Þín systir,
Sigfríður.
Kynni okkar Valgeirs hófust
þegar við Sigfríður systir hans
vorum að draga okkur saman.
Ég fann fljótt að Valgeir var
sannur vinur og staðfastur, burt-
séð frá mægðum okkar. Hans
vinátta lá ekki endilega í
tengslum og skyldleika, hann var
vinur vináttunnar vegna. Við átt-
um alltaf gott með að leita hvor
til annars þegar einhvers þurfti
með. Börnum okkar Sigfríðar
þótti óskaplega vænt um frænda
sinn, fundu að í honum áttu þau
skjól og væntumþykju. Það var
líka svo gaman að vera í kringum
hann. Hann hafði snjalla kímni-
gáfu og var orðheppinn með af-
brigðum, lét alveg vita ef hann
var ekki sammála síðasta ræðu-
manni, en á sinn hispurslausa
hátt, sem ekki meiddi neinn.
Valgeir var einn af þeim sem
framkvæmdi hugmyndir sínar
og alltaf hundrað prósent. Sum-
ar eitt, þegar hann bjó í Reykja-
vík, hjólaði hann vestur ásamt
vini sínum, Eggerti Eggertssyni.
Þeir vinirnir hjóluðu gjarnan
saman þvers og kruss um landið.
Svona var Valgeir, ekkert hálf-
kák við neitt. Gott dæmi um það
er hvernig hann hugsaði um bíl-
ana sína. Ég og fleiri mættum
taka það til fyrirmyndar. Það var
ekkert verið að reka ryksugustút
í sætin og pússa hraðamælinn.
Nei, hann tók sætin gjarnan úr
og djúphreinsaði gólfið undir,
svo bíllinn leit út eins og hann
væri að koma úr verksmiðjunni.
Nostrað við allt og hvergi slegið
af kröfunum til sjálfs sín.
Valgeir var mikill fjölskyldu-
maður, ástríkur faðir og hugsaði
vel um börn sín og bú.
Eftir að sjúkdómur hans fór
að herja á hann af meiri þunga
tók hann meðal annars til við að
renna fagra gripi úr tré. Hann
var afar handlaginn og ég og
fleiri búum að því.
Elsku Björg, Sigþór Örn og
Sandra Dögg, guð gefi ykkur
styrk í minningunni um yndis-
legan föður, eiginmann og vin.
Egill Össurarson.
Við Valli héngum stundum
sem unglingar í sama genginu á
Patró, misfullir og vitlausir, en
við vorum aldrei beint nánir vinir
til að byrja með og skildi leiðir í
mörg ár. Eitt sumarið nítján
hundruð níutíu og eitthvað var
ég að hjóla einu sinni sem oftar í
Reykjavík. Ég hafði verið með
fjallahjóladellu í kannski tvö ár
en verið að mestu einn að ferðast
innanlands. Þá rakst ég á Valla í
miðbæ Reykjavíkur, ég á hjólinu
en hann góðglaður, nýkominn úr
ríkinu á virkum degi. Var ekkert
á sérstökum stað. Við tókum tal
saman og ég fann hvað hann
þráði breytingar á sínu lífi. Við
ákváðum að hittast fljótlega og
gera eitthvað í málunum.
Mér til undrunar hafði Valli
mjög fljótlega samband við mig.
Við fórum í búð og keyptum
fjallahjól ásamt helstu græjum
sem fylgja ferðalögum á hjóli.
Mér fannst þetta heldur bratt
hjá honum, í engu formi, að ætla
sér svona snögga lífsstílsbreyt-
ingu. En einu sinni sem oftar og
æ síðan kom hann mér á óvart
með seiglu sinni og þrjósku. Á
nokkrum mánuðum var hann
kominn með betra þol en ég. Ég
bara skildi þetta engan veginn!
Næstu árin fórum við í marg-
ar dagsferðir í nágrenni Reykja-
víkur. Við fórum norður og hjól-
uðum frá Akureyri, að Mývatni,
meðfram Jökulsárgljúfri að Ás-
byrgi, út Tjörnes, að Húsavík og
aftur á Akureyri. Hlynur Leifs
var stundum með okkur enda
góður vinur okkar beggja.
Lengsta og eftirminnilegasta
ferðin var þegar við hjóluðum frá
Reykjavík til Patró. Við tókum
reyndar Akraborgina á Skagann
enda ekki fýsilegt að hjóla Hval-
fjörðinn á þessum tíma. Allt í allt
vorum við sex daga á leiðinni.
Gistum m.a. á Laugum í Sæ-
lingsdal, Djúpadal og Birkimel.
Köldust var vistin í einhverjum
firðinum daginn áður en við
komum á Birkimel þar sem við
tjölduðum okkar ódýra tjaldi í
roki og rigningu. Tjaldið lak og
bara vesen. En okkur til mikillar
ánægju komu foreldrar Valla til
móts við okkur daginn eftir og
færðu okkur dýrindis kaldar kó-
tilettur og ég veit ekki hvað. Ég
á eingöngu ljúfar minningar um
Valla.
„The rest is history,“ eins og
sagt er. Við héldum báðir á vit
fjölskyldulífs, barneigna og
svona. Sambandið varð slitrótt
eins og gengur en taugin var allt-
af sterk á milli okkar enda höfðu
sterk bönd myndast á milli okkar
í hjólaferðunum. MS-sjúkdóm-
urinn tók Valla í lokin. Hvað get-
ur maður sagt? Jú, vertu bless-
aður gamli vin og takk fyrir
ómetanlegar stundir. Reyndu
svo að víkka aðeins tónlistar-
smekkinn hinum megin. Þú veist
hvað ég á við.
Eggert Eggertsson (Eddi).
Valgeir
Sigurjónsson
✝
Bjarni Ásgeirs-
son fæddist í
Reykjavík 15. maí
1950. Hann lést á
gjörgæslu Landspít-
alans 7. mars 2022.
Foreldrar hans
voru Ásgeir Bjarna-
son frá
Suður-Reykjum í
Mosfellsbæ, f. 17.
febrúar 1919, d. 2.
júní 1982, og kona
hans Titia Bjarnason, f. 14. febr-
úar 1923, d. 27. apríl 2013.
Systkini Bjarna eru: María, f.
1952, hennar maður er Einar
Jónsson Bjarndal.
hennar eru Skúli Þorsteinn, Axel
Finnur og Rakel Dögg. Barna-
börnin eru sex.
Bjarni ólst upp á Suður-Reykj-
um í Mosfellsbæ. Hann lauk námi
frá Landbúnaðarskólanum á
Hvanneyri og mestan hluta
starfsævi sinnar vann hann við
grænmetisræktun á Suður--
Reykjum í samvinnu við föður
sinn og bræður og nú síðustu ár-
in með Helga bróður sínum.
Einnig vann hann um tíma hjá
Húsasmiðjunni, Glertækni í Mos-
fellsbæ og hjá Gunnari Bjarna-
syni húsasmíðameistara.
Árið 2020 greindist Bjarni
með ólæknandi taugasjúkdóm
sem lagði hann að velli að lokum.
Bjarni var kvaddur í kyrrþey
að eigin ósk frá Lágafellskirkju
14. mars.
Dóttir Maríu er
Ragnheiður Titia.
Dætur Einars eru
Hanna Björk og Eva
Lillý; Diðrik, f.
1954, kona hans er
Rannveig Björns-
dóttir. Börn þeirra
eru Lilja Dögg og
Ásgeir Elí. Dóttir
Rannveigar er Guð-
laug Birna Krist-
mundsdóttir; Helgi
f. 1957.
Bjarni kvæntist Eddu And-
ersdóttur 1980, þau skildu.
Árið 2006 kvæntist Bjarni Sig-
ríði Skúladóttur, f. 1954. Börn
Kveðja frá eiginkonu
Það er dýrmætt í lífinu að eiga
ást og vináttu, sem verður svo
augljóst þegar ástvinurinn fellur
frá.
Þá er að ylja sér við góðu minn-
ingarnar og góðu stundirnar sem
við Bjarni minn áttum nóg af. Líf
okkar byrjaði saman sumarið 2000
þegar við hittumst í gönguferð á
Ítalíu og gengum fljótlega saman
hlið við hlið og hönd í hönd. Nýr
kafli var hafinn í lífi okkar beggja.
Árin á eftir einkenndust af ferða-
lögum bæði innanlands og utan og
hversdagslífinu eins og vera ber.
Bjarni var einstakt ljúfmenni
og mátti ekkert aumt sjá, ákaflega
greiðvikinn og margir sem nutu
hjálpsemi hans. Hann greindist
með erfiðan taugasjúkdóm í jan-
úar 2020 sem lagði hann að velli að
lokum. Bjarni sýndi ótrúlegt
æðruleysi í veikindum sínum en
var orðinn þreyttur í lokin og far-
inn að þrá hvíldina.
Ég kveð þig ástin mín með þökk
fyrir samfylgdina, elsku þína og
vináttu. Ég veit að þú hefur fengið
góða heimkomu í Sumarlandið.
Blómin falla, fölskva slær
á flestan ljóma.
Aldrei hverfur
angan sumra blóma.
Þannig varstu vinur, mér
sem vorið bjarta,
Það sem gafstu
geymist mér í hjarta.
Ilma sprotar, anga lauf,
sem aldrei falla.
Drottinn launi
elsku þína alla.
(Sigurbjörn Einarsson)
Þín
Sigríður.
Nú hefur elskulegur bróðir
okkar kvatt þetta líf, allt of
snemma. Hann hafði glímt við erf-
iðan sjúkdóm undanfarin ár sem
dró úr honum allan mátt og leið
honum eins og fanga í eigin lík-
ama og átti þá ósk að þetta tæki
ekki langan tíma.
Eitt af því fyrsta sem kemur
upp í hugann þegar við hugsum
um Bjarna er hversu góð mann-
eskja hann var. Bjarni var mikill
mannvinur og dýravinur og mátti
hann ekkert aumt sjá.
Bjarni var mjög handlaginn og
hugmyndaríkur. Hans bestu
stundir átti hann heima í skemm-
unni á Reykjum við smíðar, hvort
heldur sem var á tré eða járn þar
sem hann gerði við hluti, dyttaði
að eða betrumbætti hluti. Það var
honum því mikið áfall þegar hann
gat ekki lengur komist í skemm-
una og stundað sína iðju síðustu
mánuðina.
Hæfileikar hans komu snemma
í ljós og sem ungur drengur smíð-
aði hann bíla af mikilli nákvæmni,
eftirlíkingar af vinsælum jeppum
og vörubílum þar sem hugað var
að hverju smáatriði, svo sem
fjaðrabúnaði og fleiru. Einnig
smíðaði hann kassabíla sem við
krakkarnir lékum okkur með.
Nú hefur Bjarni fengið hvíldina
sína en það er stórt skarð höggvið
í systkinahópinn og kveðjum við
ástkæran bróður með vísunni sem
afi okkar og nafni hans, Bjarni Ás-
geirsson, samdi:
Söngur sáðmannsins
Ef ég mætti yrkja,
yrkja vildi ég jörð.
Sveit er sáðmanns kirkja,
sáning bænargjörð.
Vorsins söngvaseiður
sálmalögin hans.
Blómgar akurbreiður
blessun skaparans.
Musterisins múra
marka reginfjöll.
Glitveg gróðurskúra
geislar skreyta höll.
Gólf hins græna vallar
grænu flosi prýtt.
Hvelfing glæstrar hallar
heiðið blátt og vítt.
Víg þig hér að verki
vorri gróðrarmold.
Hef þú hennar merki
hátt á móðurfold.
Hér er helgur staður
hér sem lífið grær.
Íslands æskumaður.
Íslands frjálsa mær.
María Titia, Diðrik
Ásgeir og Helgi.
Það er sárt að kveðja frænda
okkar Bjarna sem okkur þótti svo
vænt um.
Bjarni var hæglátur og ljúfur
maður, hann var góður og traust-
ur og hafði einstaklega góða nær-
veru. Hann hafði sterkar skoðanir
á ýmsum málum en hann hafði
líka mikinn húmor, ekki síst fyrir
sjálfum sér, og það var alltaf stutt
í brosið.
Hann var hugulsamur og við
fundum gagnkvæma föðurlega
væntumþykju hans í garð okkar
systkinabarnanna. Hann fylgdist
með öllu sem við tókum okkur fyr-
ir hendur með stolti og óskaði okk-
ur velfarnaðar í lífinu.
Bjarni frændi mun alltaf eiga
stóran hlut í hjarta okkar og minn-
ing hans mun lifa með okkur að ei-
lífu.
Hvíl í friði elsku frændi.
Ragnheiður Titia,
Lilja Dögg og Ásgeir Elí.
Bjarni Ásgeirsson
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi okkar,
STEINGRÍMUR TH. ÞORLEIFSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 3. mars.
Útförin fer fram í Guðríðarkirkju í Grafarholti
fimmtudaginn 24. mars klukkan 15.
Kærar þakkir til starfsfólks á Grund fyrir góða og kærleiksríka
umönnun.
Ethel M. Thorleifsson
Sigurður Þór Steingrímsson Birgir Örn Steingrímsson
Eva M. Steingrímsdóttir Einar Már Steingrímsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
ÞORSTEINN JÓN ÓSKARSSON,
fyrrverandi forstöðumaður
hjá Pósti og síma,
Krummahólum 4, Reykjavík,
lést á Hrafnistu Laugarási sunnudaginn
27. febrúar. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. mars klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Ljósið.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat
Svanhildur Halldórsdóttir
Edda Þorsteinsdóttir Halldór Guðmundsson
Einar Baldvin Þorsteinsson Sally Thorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
GUÐRÚN MARÍA ÞORLEIFSDÓTTIR,
Kjarrmóa 24, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 13. mars. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 25. mars
klukkan 12.
Ingvar Hallgrímsson
Inga María Ingvarsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Ómar Ingvarsson Guðmunda Kristinsdóttir
Ingunn Ósk Ingvarsdóttir Björn Herbert Guðbjörnsson
Vilhjálmur N. Ingvarsson Erla Arnoddsdóttir
Kjartan Ingvarsson Sveinbjörg S. Ólafsdóttir
Vilhjálmur N. Þorleifsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA ELÍSABET SCHIÖTH,
Skuggagili 10, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn
11. mars. Útförin verður gerð frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 24. mars klukkan 13 og verður
einnig streymt. Hlekkinn má finna á Facebook-síðunni:
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Alfreð Schiöth
Þórir Schiöth Helga Sæunn Sveinbjörnsd.
Helgi Birgir Schiöth Olga Titova
Kristbjörg Góa Sigurðard. Hörður Axel Harðarson
Marteinn S. Sigurðsson Sigríður Gyða Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNS HANNESSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Droplaugarstaða og Maríuhúss fyrir hlýja og
góða umönnun.
Arnbjörg Jóhannsdóttir
Jóhanna Jóhannsdóttir Birgir Þórisson
Jóhann Þórir Birgisson
Hulda Björg Birgisdóttir
Margrét Hanna Birgisdóttir Hlynur Sigurðsson
Arnbjörg Elín Hlynsdóttir Eysteinn Pétur Hlynsson