Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
✝
Ásta Salvör
Þórðardóttir
fæddist í Reykja-
vík 4. janúar 1941.
Hún lést á heimili
sínu 7. mars 2022.
Foreldrar Ástu
voru Sigríður
Jónsdóttir sauma-
kona, f. 25.7 1909 í
Varmadal Mosfell-
sveit, d. 1995, og
Þórður Björnsson
prentari, f. 19.11. 1904 í
Reykjavík, d. 1971.
Systkini Ástu eru Elsa Þórð-
ardóttir, f. 18.9. 1936, búsett í
Noregi, og Einar Grétar Þórð-
Drengur, f. 5. maí 1961, and-
vana. 3) Sigríður Elsa Odds-
dóttir leikskólakennari, f. 4.
ágúst 1962, gift Guðmundi
Snorrasyni, búsett í Reykjavík.
Þeirra börn eru Berglind, bú-
sett í San Francisco, Snorri,
búsettur í Kópavogi, Ásta
Hrund, búsett í Noregi, og
Brynja, búsett í Reykjavík.
Langömmubörnin eru orðin
tíu.
Ásta ólst upp í Reykjavík og
gekk í Miðbæjarbarnaskólann.
Hún sinnti lengst af húsmóð-
urstörfum og síðar starfaði
hún til margra ára hjá Orku-
veitu Reykjavíkur. Þau Oddur
bjuggu lengst af á Meist-
aravöllum 9 í Reykjavík en eft-
ir að Oddur féll frá fluttist
Ásta í Kópavog og bjó síðustu
árin að Þverbrekku 4 þar í bæ.
Útför Ástu fór fram í kyrr-
þey að hennar eigin ósk.
arson, f. 17.12.
1933, d. 30.4. 2017.
Samfeðra þeim er
Björn Þórðarson,
f. 4.9. 1927, d. 15.6.
2021.
Ásta giftist Oddi
Ragnarssyni bif-
vélavirkja 26.
mars 1959, f. 14.9.
1937, d. 10.8. 2001.
Börn Ástu og Odds
eru: 1) Ragnar
rekstrarráðgjafi, f. 3. ágúst
1959, kvæntur Hönnu P. Gunn-
arsdóttur. Þeirra börn eru
Haukur og Signý Bára. Þau
eru öll búsett í Noregi. 2)
Elsku amma Ásta.
Þú hefur verið mikilvæg
manneskja í lífi okkar alveg frá
því við fæddumst. Yndisleg
amma, svo hjartahlý og góð.
Takk fyrir að þú varst alltaf
til staðar fyrir okkur. Þegar við
vorum börn og bjuggum heima
þá komstu oft í heimsókn. Þú
varst alltaf tilbúin að passa okk-
ur og bjóst stundum heima hjá
okkur þegar mamma og pabbi
fóru í ferðalög. Þá dekraðir þú
við okkur og eldaðir dásamlegan
mat enda mikill meistarakokk-
ur. Alltaf mættirðu með páska-
egg til okkar um páskana og
færðir okkur sumargjafir á
sumardaginn fyrsta. Þú passað-
ir gæludýrin okkar þegar við
þurftum á því að halda.
Við þökkum ógleymanlegar
ferðir í sumarbústaðinn ykkar,
Karrakot, lautarferðir, tókum
upp kartöflur á haustin, og spil-
uðum saman. Hápunkturinn var
þegar þið afi gerðuð Karrakots-
tívolí fyrir okkur á pallinum, þar
sem þið nýttuð leiktækin sem
voru til staðar og hugmynda-
flugið fékk að ráða för.
Þið afi elskuðuð að ferðast
um heiminn. Ykkur tókst heldur
betur að koma okkur skemmti-
lega á óvart þegar við fjölskyld-
an vorum í sumarfríi á Krít og
þið birtust allt í einu fyrir utan
hótelið og eydduð restinni af frí-
inu með okkur.
Þú varst einstaklega þakklát
fyrir allt sem við gerðum fyrir
þig, þótt það væri bara að skipta
um ljósaperu eða hjálpa þér með
Netflix. Svo bauðstu í kaffi og
gott spjall á eftir, rifjaðir upp
gamla tíma eða ræddir heims-
málin, enda fylgdistu vel með
öllu sem var að gerast í heim-
inum.
Þú gerðir bestu kjötsúpu í
heimi og það var föst hefð hjá
þér að bjóða fjölskyldunni í
beinlausa fugla á annan í jólum,
sem þú náðir að kenna Snorra
að búa til fyrir síðustu jól. Eftir
að við systurnar urðum græn-
metisætur þá passaðirðu alltaf
að eiga mikið úrval af góðum
grænmetismat þegar við komum
í heimsókn til þín og oft fannstu
upp þínar eigin skemmtilegu
uppskriftir. Þér fannst ekkert
sjálfsagðara en að taka tillit til
allra og dekra við okkur með
þínum eigin hætti.
Þegar við vorum flutt að
heiman og sáum þig sjaldnar en
áður þá varstu dugleg að hringja
í okkur og hafa samband. Við
eigum sérstaklega eftir að sakna
þess að þú hringir í okkur þegar
við eigum afmæli og syngir af-
mælissönginn fyrir okkur.
Nú ertu komin í Sumarlandið
til afa. Við vitum að hann hefur
tekið vel á móti þér, og sjáum
fyrir okkur hvernig þú ert him-
inlifandi yfir að vera komin í
faðm hans á ný, enda var hann
stóra ástin í lífi þínu og þinn
allra besti vinur allt ykkar líf
saman. Kysstu afa frá okkur.
Við höfum lært mikið af þér
elsku amma. Við munum gera
okkar allra besta til að halda
góðu sambandi við okkar nán-
ustu, alveg eins og þú gerðir allt
þitt líf. Við munum dekra við
börn okkar og barnabörn. Baka
súkkulaðiköku með banana-
kremi og gera tívolí á pallinum.
Og við ætlum öll að passa upp á
að muna afmælisdaga okkar
nánustu og syngja afmælissöng-
inn í símann þegar við erum of
langt frá hvert öðru til að hitt-
ast. Þannig munu góðu minning-
arnar sem þú gafst okkur lifa
áfram.
Við eigum eftir að sakna þín
mikið. Takk fyrir allt.
Þín barnabörn,
Berglind, Snorri,
Ásta Hrund og Brynja.
Skyndilegt fráfall Ástu kom á
óvart þrátt fyrir að hún ætti við
alvarlegan sjúkdóm að etja, sem
hún glímdi við af æðruleysi.
Hún hafði nýverið fengið nið-
urstöður rannsóknar sem voru
frekar jákvæðar. Nú er Ásta
komin til síns heittelskaða
Odds. Hún hafði reyndar oft
minnst á að hún hlakkaði til
þess fundar. Fráfall Odds langt
fyrir aldur fram var áfall sem
hún komst aldrei yfir enda voru
þau mjög samrýnd hjón.
Við hjónin bjuggum í nokkur
ár í nágrenni heimilis Ástu og
Odds og var þá talsverður sam-
gangur á milli heimilanna. Ásta
sýndi okkur mikla umhyggju og
vináttu alla tíð. Eftir að Ásta
flutti í Kópavoginn var sam-
gangurinn aðeins minni en varla
leið sú vika að ekki væri haft
samband símleiðis. Svo voru það
frænkuboðin og kjötsúpuboðin
sem haldin voru þegar Elsa
systir Ástu kom í heimsókn frá
Noregi. Þá var oft glatt á hjalla.
Ásta eldaði annálaða kjötsúpu
sem allir kunnu vel að meta.
Við erum afar þakklát fyrir
þá ræktarsemi sem Ásta sýndi
okkur. Hennar verður sárt
saknað en minningin mun ávallt
lifa í hjarta okkar.
Við sendum samúðarkveðjur
til Sigríðar, Ragnars og fjöl-
skyldna þeirra.
Guð blessi minningu Ástu
Þórðardóttur.
Ragnheiður (Raggý) og Örn.
Kveðjustund er komin fyrr en
áætlað var. Við höfðum talað
saman daginn fyrir andlátið og
þá lá svo vel á henni. Ásta hafði
um árabil barist við krabbamein
en nú leit svo vel út með sjúk-
dóminn illvíga. Ekki var þörf á
áframhaldandi meðferð í bráð
og næsta stefnumót við lækni
var ekki fyrr en í maí.
Ásta var mágkona mín og allt
frá því að ég kynntist Einari
bróður hennar fyrir mörgum
áratugum höfum við átt mikil
samskipti, farið í utanlandsferð-
ir og ótal sinnum glaðst saman á
góðri stund.
Ég dvel um stund við end-
urminningar. Eftir að við urðum
báðar ekkjur töluðum við saman
í síma því sem næst á hverjum
degi. Það var svo gott að tala
við Ástu, hún var svo ræðin og
æðrulaus andspænis krabba-
meininu og kvartaði aldrei. Hún
talaði aldrei illa um nokkurn
mann. Ég mun sakna þess sárt
að eiga ekki eftir að heyra í
henni.
Þegar Einar bróðir hennar,
og eiginmaður minn, lá bana-
leguna fannst honum svo gott
að hafa Ástu systur hjá sér.
Hún var alltaf svo róleg og þau
gátu bæði spjallað og þagað
saman.
Ásta saknaði alltaf eigin-
mannsins, Odds, sem lést fyrir
rúmum tveimur áratugum. Og
nú eru þau saman á ný.
Thelma Grímsdóttir.
Ásta Salvör
Þórðardóttir
✝
Guðbjörg Guð-
mundsdóttir
fæddist að Haf-
þórsstöðum í
Norðurárdals-
hreppi í Mýra- og
Borgarfjarð-
arsýslu þann 28.
maí 1927. Hún lést
á dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi
12. janúar 2022.
Foreldrar hennar
voru Jónína Soffía Davíðs-
dóttir og Guðmundur Gísla-
son, bændur á Svartagili og
víðar. Alsystkini hennar voru
Ragnheiður, f. 1924, d. 1977;
Guðlaugur Bjarni, f. 1925, d.
2011. Samfeðra var Kristvin, f.
1927, d. 2016. Sammæðra
Skeggi Ásbjarnarson, f. 1911,
d. 1981.
Árið 1952 giftist Guðbjörg
Sæmundi Helgasyni og eign-
uðust þau saman fimm börn.
Þau eru Jón Bjartmar, f. 1954,
d. 2016, hann á eina dóttur;
Sigríði Sigurborgu, f. 1957,
saman og þar var hún bæði
húsfreyja og bóndi.
Guðbjörg gekk í Húsmæðra-
skólann á sínum yngri árum.
Hún var mjög ánægð með
námið þaðan og nýtti sér
kunnáttu sína í eldhúsinu og
ýmiss konar handavinnu alla
tíð. Hún prjónaði mikið og
þegar sjóninni hrakaði fann
hún nýjar leiðir til þess að
vinna í höndunum. Þá fór hún
meðal annars að mála á dúka
og teikna myndir.
Guðbjörg hóf störf í mötu-
neytinu hjá Ístaki og síðar hjá
Íslenska járnblendifélaginu á
Grundartanga. Þangað átti að
ráða hana í þrjá daga til
reynslu sem endaði með
sautján ára starfsferli.
Guðbjörg og Sæmundur
voru í mikilli trjáræktun við
Galtarlæk og þar var kominn
dágóður skógur allt um kring
þar sem áður var allt autt. Sæ-
mundur var virkur í samtök-
unum SÓL í Hvalfirðinum og
Guðbjörg studdi hann í því
eins og flestu öðru.
Ásamt þessu var hún virk í
kvenfélaginu Björk um margra
ára bil.
Útför Guðbjargar hefur far-
ið fram í kyrrþey að hennar
ósk.
hennar maður er
Valgeir Sigurðs-
son úr Reykjavík,
saman eiga þau
fjögur börn; Hall-
dóru, f. 1959, mað-
ur hennar er
Ragnar Viktor
Karlsson úr
Reykjavík, hún á á
þrjú börn; Guð-
rúnu, f. 1960, hún
á fjögur börn;
Helga, f. 1962, hann á eina
dóttur. Fyrir átti Guðbjörg
einn son, Guðmund Andrésson,
f. 1948, d. 2011, hans kona var
Guðrún Jónsdóttir úr Reykja-
vík.
Guðbjörg bjó með foreldrum
sínum á bænum Svartagili á
árunum 1930-46 og þaðan
fluttu þau á Veiðilæk. Guð-
björg og Sæmundur fluttu árið
1958 ásamt Guðmundi, föður
sínum, og Guðmundi, syni sín-
um, að Galtarlæk í Skil-
mannahreppi (nú Hvalfjarð-
arsveit). Galtarlæk keyptu þau
Elsku mamma mín! Skrýtið
og erfitt að skrifa síðasta bréfið
til þín. En mikið sem ég á af fal-
legum, skemmtilegum og þakk-
látum stundum með þér í minn-
ingabankanum sem er svo
notalegt að rifja upp, brosa og
hlæja að. Allar okkar ferðir í
berjamó, tónleika, leikhús og
kaffihús og svo fórum við í
margar ferðir í gegn um kaffi-
bollalesturinn.
Ég vil þakka þér af öllu mínu
hjarta fyrir allt það sem þú
gafst mér og gerðir fyrir mig og
börnin mín.
Þú varst og ert verndarengill-
inn minn.
Guð geymi þig. Takk fyrir allt
og allt.
Þín dóttir,
Halldóra (Dóra).
Elsku tengdamamma. Margs
er að minnast við kveðjustund.
Ég minnist góðra stunda á
Galtalæk þar sem þú tókst
ávallt á móti mér með kærleika,
hlýju og brosi. Þér þótti gaman
að fá gesti og varst afar gestris-
in. Það voru ánægjulegar stund-
ir sem við áttum saman við eld-
húsborðið á Galtalæk þar sem
við drukkum kaffi og spjölluð-
um.
Þú varst bóndakona af Guðs
náð og undir þér vel í sveitinni
og við bústörfin. Þú varst nátt-
úrubarn og elskaðir íslenska
náttúru og dýrin. Þér var afar
annt um fjölskyldu þína, ætt-
ingja og vini og þess fékk ég að
njóta frá því við kynntumst og
þar til þú fékkst hvíldina frá
þessu jarðneska lífi.
Það var gaman að heimsækja
þig á Höfða, drekka með þér
kaffi og spjalla um liðna tíma.
Þeir voru ófáir bollarnir sem við
settum yfir ofninn og lásum úr.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst þér og fengið að njóta
kærleika þíns og hlýju og fyrir
allar þær samverustundir sem
við áttum.
Þegar leiðir skilur eru það
ljúfu minningarnar í hjartanu
sem lifa.
Takk fyrir allt elsku Bogga.
Ragnar Viktor Karlsson.
Guðbjörg
Guðmundsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR KRISTÍNAR KARLSDÓTTUR,
Sirrýjar,
frá Vestmannaeyjum,
sem lést 1. mars á Hrafnistu Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Báruhrauns,
Hrafnistu Hafnarfirði.
Magnús Björgvinsson
Kristín Björgvinsdóttir
Gísli Björgvinsson Nanna Hreinsdóttir
Ásrún Björgvinsdóttir Karl Pálsson
öll ömmubörnin
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON,
Jaðarsbraut 25, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi sunnudaginn 13. mars,
útför hans fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 21. mars klukkan 13. Sérstakar þakkir til yndislegs
starfsfólks lyflækningadeildar HVE og Heimahjúkrunar HVE á
Akranesi fyrir einstaka umhyggju og alúð.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Helga Ragnheiður Höskuldsdóttir
Rut Guðmundsdóttir Ottó W. Simonsen
Margrét Herdís Guðmundsd. Júlíus Geir Hafsteinsson
Ingigerður Guðmundsdóttir Jón Páll Pálsson
Ágúst Guðmundsson Karólína Natalía Karlsdóttir
Böðvar Guðmundsson
Ása Þóra Guðmundsdóttir Gunnar Þórðarson
afabörnin og langafabörnin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA GUÐRÚN GEIRMUNDSDÓTTIR,
Víðigrund 2,
Sauðárkróki,
áður til heimilis á Kárastíg 9, Hofsósi,
lést á dvalarheimilinu á Sauðárkróki
mánudaginn 14. mars. Útför fer fram í Hofsóskirkju
fimmtudaginn 24. mars klukkan 14.
Sveinn Einarsson Jóhanna Ingimarsdóttir
Hólmgeir Einarsson Þórleif Friðriksdóttir
Einar Örn Einarsson Sigríður Stefánsdóttir
Sigurlaug Einarsdóttir Oddur Gunnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR KÁRADÓTTIR,
Víðiholti,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Húsavík 16. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Helgi Jóhannsson
Sören Jónsson Berglind Sigtryggsdóttir
Tómas Örn Jónsson Svanhildur Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut
miðvikudaginn 9. mars.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju í Reykjavík þriðjudaginn
22. mars klukkan 13.
Brynjólfur Á. Guðbjörnsson Sigríður S. Halldórsdóttir
Gunnar Þórólfsson Jóhanna Friðgeirsdóttir
Elísabet Þórólfsdóttir
Meyvant Þórólfsson Rósa Guðbjartsdóttir
Bjarni Þ. Þórólfsson Hrefna S. Briem
barnabörn og aðrir afkomendur