Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
✝
Valdimar Víðir
Gunnarsson
fæddist í Reykjavík
21. nóvember 1940.
Hann lést á heimili
sínu 1. mars 2022.
Foreldrar hans
voru Gunnar Svav-
ar Guðmundsson, f.
25. apríl 1922, d. 8.
janúar 2014, og Sig-
ríður Valdemars-
dóttir, f. 13. sept-
ember 1921, d. 14. september
1979. Fósturmóðir Valdimars
var Þorgerður Erna Friðriks-
dóttir, f. 1929, d. 11. nóv. 2017.
Valdimar var elstur í hópi 10
systkina.
Eftirlifandi eiginkona Valdi-
mars er Dagrún Björnsdóttir, f.
5. október 1946. Börn þeirra eru
fjögur. 1. Erna Valdimarsdóttir,
f. 13. ágúst 1963. Maki hennar er
Friðmar M. Friðmarsson, f. 11.
arsson, f. 23. maí 1993, börn
þeirra eru: Einar Andri Gunn-
arsson, f. 22. júní 2017, og Hug-
rún Tinna Gunnarsdóttir, f. 24.
september 2019. b) Fannar Þór
Benediktsson, f. 2. maí 2000. c)
Dagrún Ásta Kristinsdóttir, f. 29.
júlí 2001. d) Ágústa Embla og
Amelía Erna Kristinsdætur, f. 25.
janúar 2010. 4. Bryndís Valdi-
marsdóttir, f. 20. febrúar 1974.
Maki hennar er Axel Axelsson, f.
18. október 1974. Börn þeirra
eru: a) Aníta Björk Axelsdóttir, f.
8. febrúar 1996. Sonur hennar er
Úlfar Þór Anítuson, f. 20. mars
2020. b) Axel Örn Axelsson, f. 15.
september 1998, og c) Hanna
María Axelsdóttir, f. 18. júní
2008.
Valdimar fæddist í Reykjavík
en ólst upp á Fáskrúðsfirði þar
sem hann bjó hjá móðurfjöl-
skyldu sinni til unglingsára.
Flutti til Reykjavíkur og kynntist
þar eiginkonu sinni. Þau bjuggu í
Reykjavík til ársins 1998 en þá
fluttu þau búferlum til Danmerk-
ur og bjuggu þar til ársins 2011.
Um ævina vann Valdimar hin
ýmsu verkamannastörf.
Útförin fór 15. mars 2022.
nóvember 1953.
Börn þeirra eru: a)
Linda Friðmars-
dóttir, f. 22. maí
1990. Sambýlis-
maður hennar er
Sebastian And-
ersen, f. 3. júní
1995. b) Atli Örn
Friðmarsson, f. 30.
maí 1992. Unnusta
hans er Nína Björg
Ottósdóttir, f. 3.
desember 1992. Börn þeirra eru
Kara Rut Atladóttir, f. 24. maí
2019. Snorri Björn Atlason, f. 17.
janúar 2022. 2. Gunnar Freyr
Valdimarsson, f. 21. nóvember
1965. 3. Kristinn Bjarni Valdi-
marsson, f. 17. október 1971.
Maki hans er Sylvía Rut Jón-
asdóttir, f. 27. október 1980.
Börn þeirra eru: a) Karen Helga
Kristinsdóttir, f. 10. mars 1995,
maki hennar er Gunnar Páll Ein-
Þú ert farinn frá okkur elsku
pabbi. Sárt er og erfitt að lýsa til-
finningunum sem fylgja því að
hugsa til allra góðu stundanna
okkar saman. Alltaf brosandi,
stutt í glensið. Þú settir alltaf upp
spes augnráð og blikk með þegar
þú sást að við skildum sneiðina.
Sérstaklega var gaman þegar
mamma var nálægt og hún mátti
ekki heyra neitt; því þá sagði hún
alltaf: „Víðir hættu þessu nú.“
Það fannst okkur svo fyndið og
þú hlóst inni í þér því hún mátti
ekki heyra það. Svo mikill húm-
oristi alltaf.
Fjöldi fólks hefur haft sam-
band við okkur systkinin, sím-
leiðis og í gegnum samfélags-
miðla til að votta samúð yfir
fráfalli þínu. Margar fallegar
kveðjur og orð um góðar minn-
ingar sem svo margir eiga með
þér. Allir sem við höfum talað við
eru sammála um að ljúfari mann
var vart að finna. Þú varst heill í
gegn, alltaf svo góður og hjarta-
hlýr við alla sem voru nálægt þér.
Þú varst svo bóngóður og allt-
af til staðar þegar þurfti hlýjan
faðm eða þegar við þurftum spjall
um eitthvað sem okkur lá á
hjarta. Öll höfum við upplifað að
sitja í hlýjum faðminum á þér
grátandi, þú alltaf tilbúinn að
knúsa og segja að allt færi vel,
tíminn lækni öll sár. Aldrei vor-
um við skömmuð þrátt fyrir að
eiga það stundum skilið. Frekar
ræddirðu við okkur á þinn rólega
máta. Alltaf skilningsríkur og svo
hlýr. Þannig varstu bara.
Við munum sakna þess að
heyra þig spila á nikkuna. Við
minnumst góðra stunda þegar þú
sast við orgelið og spilaðir lög
sem þér voru kær. Þú varst líka
ansi góður að spila á gítar og
munnhörpu. Það var mikil músík
í þér og höfum við öll notið góðs
af því, tónlist skiptir okkur öll
miklu máli. Þetta áhugamál var
þér mikilvægt og við erum sann-
færð um að margir eiga einnig
eftir að sakna þess að heyra þig
spila alveg eins og við gerum. Á
síðustu árum spilaðirðu fyrir
eldri borgara í Gerðubergi og
einnig í húsinu sem þú bjóst í með
mömmu. Þau koma öll til með að
sakna þín eins og mörg þeirra
hafa sagt. Þú þekktir alla og þér
fannst gaman að kynnast nýju
fólki. Þú varst svo opinn og
mannblendinn, hafðir svo gaman
af því að spjalla við aðra. Það eru
bara góðar minningar í huga okk-
ar allra sem tengjumst þér og lífi
okkar með þér.
Mikið verður erfitt að sjá þig
ekki aftur og knúsa þig og kyssa.
Skrítið að hugsa til þess að eftir
60 ár með mömmu sértu ekki
lengur hér. Þú varst alltaf svo
góður við mömmu og þú hafðir
alltaf áhyggjur af öllu sem kom
henni við. Þú vildir alltaf vera til
staðar fyrir hana og það varstu
svo sannarlega. Þið voruð sem
eitt og styrktuð hvort annað í
gegnum allt ykkar líf, sem bæði
hefur litast af gleði og sorg.
Mamma átti þig alltaf að og þú
sagðir alltaf við okkur að þú elsk-
aðir hana svo mikið. Hennar
missir er mikill og hún saknar þín
svo sárt. Við lofum því að við
munum alltaf passa hana fyrir
þig og sjá til þess að henni líði vel
og hafi það sem best.
Elsku pabbi okkar, við sjáumst
næst á staðnum sem við förum öll
á að lokum. Ef einhver fær inn-
göngu í himnaríki þá ert það þú.
Þín elskandi börn,
Bryndís, Erna og
Kristinn Bjarni.
Valdimar Víðir
Gunnarsson
✝
Aðalheiður El-
ísabet Helga-
dóttir fæddist á
Króksbakka í
Njarðvík í Borg-
arfjarðarhreppi
eystra 10. nóv-
ember 1924. Hún
lést á Dvalarheimili
Hrafnistu í Reykja-
vík 11. febrúar
2022.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Helgi Björnsson,
f. 4.2. 1877 í Njarðvík í Desja-
mýrarsókn, d. 8.5. 1936, og
Hólmfríður Björnsdóttir, f. 20.3.
1887 í Staffelli í Fellum, d. 7.10.
1964. Systkini Aðalheiðar voru
Elín Anna, f. 28.6. 1907, d. 20.3.
1960, Björn, f. 26.4. 1909, d. 14.7.
1909, Kristín Þuríður, f. 6.8.
1910, d. 11.5. 1935, Guðlaug
Hulda, f. 5.2. 1912, d. 8.4. 1995,
Björn, f. 12.12. 1913, d. 3.4. 1949,
Vigfús Guðmundur, f. 3.5. 1915,
d. 19.2. 1999, Þórunn, f. 8.10.
1916, d. 4.3. 1920, stúlka, f. og d.
27.3. 1919, Regína Magdalena, f.
8.5. 1921, d. 17.1. 1996, stúlka, f.
og d. 14.7. 1926, Jón, f. 5.7. 1930,
d. 1.11. 1992, og drengur f. 24.8.
1933, d. 30.12. 1933. Aðalheiður
ólst upp á Króksbakka til 12 ára
2005. 2) Sigrún Linda Birg-
isdóttir, f. 17.1. 1956. Giftist
Helga Jónssyni, f. 29.11. 1954,
þau skildu. Börn Sigrúnar Lindu
og Helga eru: a) Árni Friðberg, f.
1982, kvæntur Agnesi Ósk Valdi-
marsdóttur, f. 1985. Börn þeirra
eru Clara Dagmar, f. 2016, og
Aron Dagur, f. 2018. b) Andri
Fannar, f. 1984. Dætur Andra og
Eyrúnar Hauksdóttur, f. 1984,
þau slitu samvistir, eru Ísabella
Sól, f. 2008, og Dagbjört Lind, f.
2010. Dóttir Andra og Lilju
Kristjánsdóttur, f. 1988, þau slitu
samvistir, er Lísa María, f. 2017.
c) Guðný Björg, f. 1991, í sambúð
með Hafsteini Sæmundssyni, f.
1983. Sonur Guðnýjar og Haf-
steins er Frosti, f. 2021. d) Sóley
María, f. 1993, í sambúð með Vík-
ingi Haukssyni, f. 1990. Dóttir
Sóleyjar og Víkings er Vilma, f.
2020. Árið 1964 hóf Aðalheiður
sambúð með Sigmari H. Sigurðs-
syni, leigubifreiðarstjóra í
Reykjavík, f. 9.8. 1934 á Ísafirði,
d. 16.8. 2016. Foreldrar hans
voru Sigurður Kr. Ólafsson, f.
11.11. 1881, d. 15.5. 1958, og Jón-
ína Sesselja Guðlaugsdóttir, f.
6.10. 1896, d. 17.12. 1964. Sonur
Aðalheiðar og Sigmars er 3)
Grétar Sigmarsson, f. 18.9. 1965.
Dóttir Grétars og Kristu Glan, f.
10.10. 1968, þau slitu samvistir,
er Fanney Aliisa Glan, f. 1994, í
sambúð með Marinó Ingvarssyni,
f. 1992. Sonur Fanneyjar og Mar-
inós er Anton Leevi, f. 2020.
Útförin fór fram í kyrrþey.
aldurs þar til faðir
hennar lést. Hún
flutti þá til frænku
sinnar Sigurlaugar
Helgadóttur og eig-
inmanns hennar
Jóns Jóhannessonar
búfræðings á Hjall-
hól í Borgarfirði
eystra og dvaldi þar
ásamt sonum þeirra
hjóna Helga og
Þórði og Birni bróð-
ur sínum til 17 ára aldurs. Árið
1941 flutti hún til Reykjavíkur,
1944 kynntist hún Birgi Sigurðs-
syni prentara, f. 11.1. 1927 að
Sæbóli í Grindavík, d. 22.4. 2014.
Þau giftu sig 1949 og skildu
1957. Foreldrar Birgis voru Sig-
urður Sigurðsson, kaupmaður í
Þorsteinsbúð, f. 17.6. 1891 í
Pálsbæ á Seltjarnarnesi, d. 12.6.
1951, og Magnea Ósk Tóm-
asdóttir, f. 22.6. 1907 á Eyr-
arbakka, d. 9.9. 1995. Börn Að-
alheiðar og Birgis eru: 1) Baldur
Birgisson, f. 1.4. 1954, kvæntur
Lovísu Jónsdóttur, f. 4.4. 1946.
Sonur Lovísu og stjúpsonur
Baldurs er Gylfi Gylfason, f.
1977, kvæntur Hlín Druzin Hall-
dórsdóttur, f. 1978. Sonur Gylfa
og Hlínar er Garpur Druzin, f.
Fyrstu minningar mínar úr
þessu lífi eru þær að við mamma og
Linda systir mín bjuggum hjá
Önnu systur mömmu með börnum
hennar Helgu og Nonna í Stigahlíð
í Reykjavík 1958. Mamma var ein
með okkur og naut hjálpar systra
sinna Önnu og Huldu. Við fluttum
síðar í nýja íbúð sem pabbi hafði
fest kaup á og látið innrétta milli
1959 og 60. Við tóku erfið ár hjá
mömmu þar sem hún sá ein fyrir
fjölskyldunni. Mamma var hörku-
dugleg og Hulda systir hennar, yf-
irþerna á Gullfossi, stóð líka við
bakið á okkur á þessum tímum.
Mamma vann fyrst eftir komuna til
Reykjavíkur í Kexverksmiðjunni
Esju og síðar lengi vel við alls kon-
ar saumaskap fyrir ýmis fyrir-
tæki. Ég man hvað ég var stoltur
þegar ég eignaðist Bítlajakka sem
hún saumaði fyrir eitt af fyrir-
tækjunum þegar bylgja sem kall-
aðist „Beatlemania“ gekk yfir
heiminn. Handavinna hennar sem
var glæsileg birtist í útsaumuðum
myndverkum og útskurði síðar
meir. Auknar skyldur á mínar
herðar var eitt af því sem fylgdi
þessum tímum. Ég man að þegar
ég var sex ára og orðinn of gamall
til að vera á Tjarnarborg, fékk ég
það hlutverk að taka strætó úr
Laugarnesinu niður á Lækjatorg
og ganga þaðan yfir ísilagða
tjörnina að vetrarlagi og sækja
Lindu, fjögurra ára litlu systur
mína, á barnaheimilið og koma
okkur sömu leið til baka heim. Ég
dvaldi á sumrin á Borgarfirði
eystra hjá Vigfúsi Helgasyni móð-
urbróður mínum og Kristínu
Hallgrímsdóttur konu hans frá 6
til 12 ára aldurs. Allt þetta hjálp-
aði mömmu og sumurin á Borg-
arfirði voru líka yndislegur tími.
Þegar ég var tíu ára og Linda
átta, kynntist mamma Sigmari og
flutti hann til okkar. Ári síðar
fæddist Grétar bróðir okkar.
Dásamlega fallegur. Við Linda
fluttum ung að árum að heiman.
Mamma, Sigmar og Grétar
bjuggu saman, fyrst á Laugarnes-
veginum og síðast á Kleppsvegi
46. Þar bjuggu mamma og Sig-
mar alla tíð þar til heilsa mömmu
fór að láta undan síga 2014. Sig-
mar annaðist hana lengi eins vel
og hann var fær um. Mamma
flutti svo á Hrafnistu 2016. Sig-
mar bjó einn í stuttan tíma þang-
að til hann var fluttur veikur á
sjúkrahús þar sem hann lést
þremur mánuðum síðar. Þau áttu
gott líf í 52 ár. Mamma elskaði
blóm og smáfuglarnir gátu alltaf
treyst á hana. Þegar ég var ósjálf-
bjarga og óviti hugsaði mamma
um mig og gætti mín og var í raun
annar kletturinn í lífi mínu. Þegar
heilsa hennar gaf sig fannst mér
hún eiga það hjá mér að styðja
hana í sínu mótlæti. Það fólst m.a.
í eins mörgum samverustundum
og mögulegt var ásamt hjálp í að
muna það sem hún gat virkilega
glaðst yfir. Við hlustuðum t.d. á
Ragga Bjarna, Ellý Vilhjálms o.fl.
meistara á Youtube. Að missa
minnið að hluta til, heimilið,
manninn sinn og sjónina er ekki
lítill missir. Að upplifa það að vera
elskaður er kannski eitthvað sem
hægt er að lifa fyrir, þegar sum-
um finnst ekkert vera eftir. Að
lokum er mér þakklæti í huga til
systkina mömmu sem hjálpuðu
henni á erfiðum tímum. Blessuð
sé minning allra ástvina mömmu
og velunnara. Guð blessi þig og
geymi, elsku mamma mín. Takk
fyrir allt.
Þinn sonur,
Baldur.
Aðalheiður Elsa
Helgadóttir
HINSTA KVEÐJA
Nú lýkur degi. Sól er sest.
Nú svefnfrið þráir jörðin mest.
Nú blóm og fuglar blunda rótt
og blærinn hvíslar: Góða nótt.
Guðs friður sigri foldarrann.
Guðs friður blessi sérhvern mann.
Kom, engill svefnsins, undurhljótt
og öllum bjóð þú góða nótt.
Hvíl, hjarta, rótt. Hvíl höndin
þreytt.
Þér himins styrk fær svefninn veitt.
Hann gefur lúnum þrek og þrótt.
Ó, þreytti maður, sof nú rótt.
(Valdemar V. Snævarr)
Þín tengdadóttir,
Lovísa.
VIÐ ERUM FLUTT
Eyrartröð 16, 220 Hafnarfirði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarfirði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
THEODÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Skaftafelli,
lést á Landspítala föstudaginn 11. mars.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 25. mars klukkan 13.
Gísli Ragnarsson Kolbrún Karlsdóttir
Sigríður Ragnarsdóttir Nökkvi Bragason
Sveinn Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu Nesvöllum
föstudaginn 4. mars.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 24. mars klukkan 13.
Sveinn Helgason Árdís Lára Gísladóttir
Magnús Helgason Björg Gunnsteinsdóttir
Rúnar Helgason Þuríður Árnadóttir
Smári Helgason Hjördís Björk Garðarsdóttir
Kristín Helgadóttir Þorbjörn Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
VILLA MARÍA EINARSDÓTTIR,
Hólavallagötu 11, Reykjavík,
lést sunnudaginn 6. mars á
Boðaþingi, Kópavogi.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 21. mars klukkan 13.
Þökkum starfsfólki Boðaþings fyrir hlýhug og góða umönnun.
Kjartan Ólafsson Anna Guðmundsdóttir
Einar Ólafsson Þ. Ester Sigurðardóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SÆRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR,
lést laugardaginn 12. mars.
Útför verður haldin í Garðakirkju í Garðabæ
25. mars klukkan 15.
Stefnir Skúlason
Lilja Kjalarsdóttir
Íris Kjalarsdóttir
makar og barnabörn
Við sendum hjartans þakkir fyrir hlýhug og
auðsýnda samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
GUÐMUNDAR INGA GUÐJÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Grund fyrir mikla hlýju og alúð í umönnun
og við fráfall Guðmundar Inga.
Ásthildur Bjarnadóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Björn Bjarnason
Sverrir Guðmundsson Margrét Erla Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn