Morgunblaðið - 19.03.2022, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.03.2022, Qupperneq 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Ólafur bróðir er fallinn. Fyrir aldur fram segja sumir, einn nefndi áfall. Óli var að vísu kominn á efri ár en ekkert gamalmenni, eða svo fannst flestum sem þekktu þennan starfsglaða og haga handverksmann. Það varð honum áfall að greinast með hægfara krabba- mein. Hann orðaði það svo: „Löngum hefi ég göslast áfram án áhyggju af heilsufari.“ Síð- ustu orð hans við mig: „Hvort er betra að veslast upp úr hægfara krabbameini, eða snöggdrepast úr hjartabilun? Spyr sá sem ekki veit.“ Eftir árangurslausar tilraunir til að gera út af við krabbamein- ið var honum boðin áhættusöm aðferð sem sumum höfðu dugað, en ekki öllum. Hann valdi áhætt- una. Hún fór með hann. Feigum verður ekki forðað. Tími hans var kominn. Ég var tæpum sex árum eldri og var ábyggilega oft með ein- hvern stórabróðurhroka við hann, en hann var orðheppinn, frakkur og kjaftfor og ég gekk ekki alltaf feitur frá orðaskipt- um. Ég var kominn á fullorðinsár og allmikla ábyrgð í búrekstri foreldra okkar, en ekki tilbúinn að setjast alveg að. Fór að heim- an og var lengur burtu en upp- haflega var ætlað. Taldi þá yngri bróður og fósturbróður, tvo menn, ekki of góða til að vera máttarstólpa lengur en upphaf- lega var áætlað. En allt þótti Ólafur Aðalsteinn Gíslason ✝ Ólafur Að- alsteinn Gísla- son fæddist 29. júní 1944. Hann lést 17. febrúar 2022. Útför Ólafs fór fram 28. febrúar 2022. ómögulegt ef mig vantaði. „Ég stefndi ekkert að frama í búskap,“ sagði Óli seinna. Hann fór í tré- smíðina, einn af þessum högu Látr- urum og eins og hann sagði: „Það var Ólafur Teitsson í Sviðnum sem flutti hagleikann inn í ættina. Hans er ekki getið fyrr en með honum.“ Trésmíðina nam hann í Stykkishólmi og síðan var hann fljótt hjá verktökum stórra verk- efna löngum verkstjóri. „Besti verkstjóri sem ég þekki, alltaf rólegur,“ heyrði ég starfsbróður hans segja. Óli varð verktaki sjálfur með eigið verkstæði syðra. Nóg verk- efni. Byggði tvisvar yfir mig og fjölskyldu mína í búskapnum. Fyrst í Flatey, síðan í Skáleyj- um. Og hann rak smiðshöggið á viðgerð Flateyjarkirkju meðan ég var þar í forsvari. Bát fjölskyldunnar Kára tók hann suður og gerði upp frá a til ö. Þrír smiðir voru riðnir við uppruna og viðhald Kára í 60 ár. Þegar Óli reif byrðinginn feðraði hann hvern nagla og stórjók þekkingu sína á vinnubrögðum ættarsmiðanna. Honum þótti vænt um sína bernskubyggð. Vann án launa að framantöldum verkefnum þar. Kallaði það sitt framlag til æskustöðvanna. Með smiðsferlinum fór hann að gera út á handfæri. Var mest í því síðustu árin og sagði það skemmtilegasta starfið. Eignað- ist 3 báta hvern eftir annan. Þeir fengu nöfnin Sigurborg, Sigur- borg II og Sigurborg Ólafs. Kæra Henný mín! Guð blessi þig og afkomendur ykkar alla. Gæfan fylgi ykkur. Jóhannes Geir Gíslason. ✝ Guðmundur Eggert Óskars- son fæddist 29. apr- íl 1935. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 8. febr- úar 2022. Foreldrar hans voru Óskar Egg- ertsson, lengst af bústjóri á Kópa- vogsbúinu, f. í Hjörsey í Mýrasýslu 1897, d. 1978, og Guðrún Einarsdóttir, húsfreyja frá Hjarðarnesi á Kjalarnesi, f. 1899, d. 1989. Guðmundur var yngstur fjögurra bræðra. Elst- ur var Magnús, f. 1927, d. 2019, kennari við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri, svo Ein- ar, f. 1930, d. 2016, trésmíða- meistari, og loks tvíburarnir Jóhann Stefán, d. 1946, og Guðmundur Eggert. Guðmundur var fæddur í Kópa- vogi. Faðir hans var bústjóri á Kópavogsbúinu við Hressingar- hælið, sem var í fyrstu rekið af Kvenfélaginu Hringnum en síð- ar ríkinu, og ólst Guðmundur þar upp. Guðmundur var búfræðingur en starfaði alla sína tíð hjá Kópavogs- kaupstað, fyrst sem bílstjóri, síðar sem ármaður hjá Stræt- isvögnum Kópavogs og loks sem húsvörður í Digranesskóla. Guðmundur var einn af stofn- endum Breiðabliks og lengi gjaldkeri félagsins. Útför Guðmundar fór fram 17. febrúar 2022 frá Kópavogs- kirkju. Guðmundi kynntist ég ungur, reyndar man ég varla eftir mér áður en kynni okkar hófust. Hann var stoð og stytta pabba míns á vinnustaðnum og alltaf kallaður „Guðmundur okkar“ í innsta hring, til aðgreiningar frá nöfnum hans. Þá var starfssvið hans býsna stórt, en hvergi skilgreint í neinni hvítbók. Til hægðarauka var hann titlaður ármaður, þar sem ábyrgð hans var jafnan mikil, hollustan og heilindin óvefengjanleg. Þegar ég stofnaði fjölskyldu átti ég því láni að fagna að leigja íbúð í húsi Einars, bróður Guð- mundar, í næsta húsi við Guð- mund og móður þeirra bræðra. Þar sveif ljúfmennska og hógværð jafnan yfir vötnum. Síðustu árin var ég stundum í símasambandi við Guðmund og var þar eins og endranær, æðruleysið og rólyndið leyndi sér ekki þótt aldurinn færð- ist yfir hann. Við kveðjum ljúfan samstarfs- mann og granna með þökk í hjarta. Jóhannes Hraunfjörð Karlsson og Ólöf Pétursdóttir. Guðmundur Eggert Óskarsson ✝ Gestur Óli Guð- mundsson fæddist í Reykjavík 3. júlí 1937. Hann lést á Landspít- alanum Fossvogi 22. febrúar 2022. Foreldrar hans voru Áslaug Sig- urðardóttir, f. 1907, d. 1997, og Guð- mundur Magn- ússon, f. 1904, d. 2003. Þau voru bæði ættuð frá Snæfellsnesi. Börn þeirra eru Eygló Fjóla, f. 1934, Erla Sæunn, f. 1935, Gestur Óli, f. 1937, Anna Maggý, f. 1938, Áslaug Gyða, f. 1940, d. 2022, Guðmundur Heið- ar, f. 1941, d. 2020, Magnús, f. 1945, Hrönn, f. 1946, og Sig- urður, f. 1947. Hinn 27. september 1958 gift- ist Gestur Leu Þórarinsdóttur, f. í Reykjavík 29. ágúst 1939. Foreldrar hennar voru þau Þórarinn Helgi Jónsson f. 1913 á Grétar Logi og Dalía Nótt. c) Björgvin, f. 1991, kona hans er Þórunn Björk Jónsdóttir og börn þeirra eru Matthildur Rósa og Hrafney Myrk. 2) Tómas Jenn- þór, f. 16. október 1960. Kona hans er Rósa Geirsdóttir og börn þeirra eru þrjú: a) Elísabet, f. 1984, maður hennar er Óskar Fannar Guðmundsson og börn þeirra eru Ísabella Rakel, Tómas Guðni, Rósa Jóna og Heiðdís Eva. b) Rakel, f. 1988, maður hennar er Matthías Vilhjálmsson og börn þeirra eru Vilhjálmur Atli og Andrea Rós. c) Geir, f. 1989, kona hans er Heiðrún Hlíð- berg. 3) Agnar, f. 17. febrúar 1962. Kona hans er Jóhanna Bára Ásgeirsdóttir og börn þeirra eru tvö: a) Þórarinn Helgi, f. 1986, sonur hans er Jó- hann Atli. b) Halla Dís, f. 1993, börn hennar eru Berglind Bára, Snædís Rós, Guðrún Elín og Gunnlaugur Gylfi. 4) Baldur, f. 21. október 1968. Börn hans og Helgu Björgvinsdóttur eru þrjú: a) Inga Dögg, f. 1995. b) Fríða Rún, f. 1998. c) Óðinn, f. 2005. Gestur starfaði lengst af hjá Eimskip eða í tæp 40 ár. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ytri-Rauðamel í Eyjahreppi, d. 1986, og Jenny Lea Svan- hild Olsen frá Vest- manna í Færeyjum, f. 1910, d. 2006. Systur Leu eru: Emmy, f. 1941, d. 2009, Elna, f. 1943, og Þórunn, f. 1947, d. 2021. Hálfbróðir Leu sammæðra er Trausti Ólafsson, f. 1935, d 2016, og hálfsystir sam- feðra er Jóna Guðrún Þórarins- dóttir, f. 1936. Börn Gests og Leu eru: 1) Bryndís, f. 13. júní 1958. Eig- inmaður hennar var Steinþór Björgvinsson, sem lést árið 2020, og börn þeirra eru þrjú: a) Gest- ur f. 1983, kona hans er Rósa Stefánsdóttir og börn þeirra eru Óskar, Viktor og Eva. b) Lea, f. 1985, maður hennar er Gunnar Már Steinarsson og börn þeirra eru Ingólfur Þór, Sunna Karen, Elskulegur afi okkar er fallinn frá. Við kveðjum hann með miklu þakklæti og rifjum upp allar góðu stundirnar sem við áttum með honum. Afi var barn- góður, hjálpsamur og einstak- lega ljúfur. Hann var alltaf mættur fyrstur til þess að hjálpa þegar þess þurfti, hvort sem það var að hjálpa okkur að flytja, klippa trjágróðurinn, mála eða bara hvað sem er. Það hefur alltaf verið notalegt að koma í heimsókn til ömmu og afa í Sólheimana. Oftar en ekki tekur pönnukökulyktin á móti okkur og við munum svo sann- arlega sakna þess að hitta afa sem stóð ávallt í dyragættinni með bros á vör og útbreiddan faðminn. Það rifjast upp fyrir okkur all- ar ferðirnar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með ömmu og afa, bæði sem börn og núna í seinni tíð með börn okkar systk- ina. Við tókum allan daginn í að rölta um og spjalla, borða nesti og njóta samvista hvert við ann- að. Hann kippti sér ekkert upp við það þó börnin ætluðu 100 ferðir í allskyns tæki því þol- inmæði hans var með eindæmum mikil. Afi hafði gaman af því að fara á Snæfellsnesið og á Rauðaberg þar sem hann fann sér alltaf eitt- hvað til þess að dunda við. Hann sló fleiri hektara af grasi, málaði girðingar og bústaði og dyttaði að því sem þurfti því hann vildi hafa hlutina í lagi. Það var enn betra ef í þessu brasi kæmi ein- hver flott vél eða bifreið við sögu. Hann hafði einstaklega gaman af bílum og tækjum og var alltaf að segja okkur frá því nýjasta sem hann hafði skoðað. Við erum því alveg viss um það að afi er búinn að finna sér ein- hvern svakalegan kagga sem hann rúntar nú um á og fylgist með okkur. Við munum sakna afa sárt en við munum ylja okkur við góðar minningar. Takk fyrir tímann sem með þér áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við. Gefi þér Guð og góðar vættir góða tíð yfir kveðjuna hér, þinn orðstír mun lifa um ókomna daga, indælar minningar í hjarta okkar ber. (P.Ó.T.) Elísabet, Rakel og Geir. Elsku afi. Það er svo skrítið að hugsa til þess að þú sért far- inn. Eftir öll áföllin, veikindin og slysin sem þú lentir í og stóðst alltaf upp aftur, þá hélt ég að þú myndir jafna þig aftur núna. Enginn sem ég þekki hefur verið jafn mikill klettur, jafn harður af sér og þú. En á sama tíma hef ég aldrei kynnst öðru eins ljúf- menni. Alltaf rólegur, yfirvegað- ur og alltaf til í að spjalla og hlusta. Þú kenndir mér miklu meira í lífinu en okkur báða grunar. Þótt þú hafir verið hlé- drægur þá var alltaf stutt í húm- orinn; þennan fallega, sanna húmor sem gerði létt grín að að- stæðum án þess að særa aðra. Hann lærði ég af þér. Þegar ég var fimm ára varstu búinn að kenna mér allt um bíla og ég gat sagt allar bíltegundirnar sem keyrðu fram hjá okkur þegar við vorum í göngutúrunum okkar saman. Mér fannst það æðislega gaman því ég hef alltaf haft svo mikinn áhuga á bílum og þarna gleymdum við okkur oft saman. Til marks um húmor þá sáum við einu sinni Lödu fyrir utan Sól- heimana og þú sagðir mér að þetta væri uppáhaldsbíllinn hennar ömmu. Svo þegar það kom í ljós að það var fjarri sann- leikanum þá hlógum við öll sam- an að þessu. Þegar ég var yngri vissi ég ekkert betra en að gista hjá ömmu og afa. Við horfðum saman á bíómyndir og borðuðum eitthvað gott. Skemmtilegast fannst mér þegar þú varst að segja mér frá bíómyndunum sem þú fórst á í bíó; Roy Rogers, Dracula og fleiri myndum sem þú lýstir fyrir mér hvernig þú hefðir upplifað á sínum tíma og ég drakk í mig hvert einasta orð. Engan þekki ég sem hefur verið jafn duglegur til vinnu og hjálpsemi. Þrátt fyrir tæpa heilsu síðustu árin varstu alltaf mættur út til að sópa eða moka planið. „Það gengur ekkert að hafa þetta öðruvísi,“ sagðirðu margoft og það var til vitnis um að þú vildir hafa hlutina í lagi í kringum þig. Sem tókst vel til því þú varst alltaf svo flottur. „Farðu vel með peningana þína og þá munu þeir fara vel með þig,“ sagðirðu við mig einu sinni meðan þú sléttaðir úr seðlum og settir aftur í veskið þitt. Það seg- ir manni talsvert meira heldur en bara að hafa seðlana slétta. Við áttum sérstakt samband. Gestur og Gestur Óli. Við vorum saman í liði. Hvíldu þig nú afi minn, ég vona að þér líði vel. Ég elska þig og ég veit að þú heldur áfram að passa upp á mig. Gestur Steinþórsson. Gestur Óli Guðmundsson ✝ Jón Björn Stein- grímsson fæddist í Reykjavík 14. desember 1970. Hann var bráð- kvaddur 15. febr- úar 2022. Móðir hans er Elsa Ein- arsdóttir, f. 1942. Faðir hans var Steingrímur Skagfjörð Björnsson, f. 1941, d. 2015. Eftirlifandi eig- inkona hans er Marta Guðrún Guð- mannsdóttir, f. 1973. Börn hans eru Magnús Freyr Jónsson Morthens, f. 1989, Ívar Guð- mann Jónsson, f. 1992, Baldur Gauti Jónsson, f. 1996, og Rakel Sera Jóns- dóttir, f. 2001. Útför hans fór fram 24. febrúar 2022. Bjössi mágur minn og vinur. Nokkur orð um góðan dreng. Missirinn er mikill fyrir ver- öldina og okkur öll. Við sem vorum svo heppin að fá að kynnast og þekkja Bjössa persónulega vitum að hann var sannur, hann var gull af manni, hann var dýrari týp- an. Fágætur er góður vinur. Sennilega mun okkur aldrei skiljast til fullnustu hvers vegna Bjössi var kallaður frá okkur svo fljótt, minning hans er svo sannarlega ljós í lífi fólksins sem var honum kær- ast, barnanna hans fjögurra og klettsins hans hennar Mörtu. Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa kynnst Bjössa í gegn- um systur mína sem er best í öllum heiminum. Það var svo auðvelt að líka vel við Bjössa, hann féll vel í kramið hjá öllum í tengdafjölskyldunni, pabbi og hann voru miklir mátar og gátu endalaust hlegið og skemmt hvor öðrum. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa og gera allt sem hann gat fyrir okkur fjölskylduna; ef einhver voru vandkvæðin gat Bjössi alltaf fundið út úr því, því meiri gruflara var erfitt að finna. Þegar sorgin knýr að dyrum hugsar maður um að samveru- stundirnar hefðu mátt vera fleiri síðustu ár. Við Bjössi vor- um einstaklega góðir vinir í gegnum tíðina, töluðum oft mikið saman um lífið og til- veruna. Húmorinn var á réttum stað hjá Bjössa og glettnin alltaf til staðar, stríðinn, skemmtilegur, fyndinn og ljúfur. Ég mun hugsa til hans með þakklæti og virðingu fyrir allar góðu stundirnar, fíflaganginn, húmorinn, brandarana og ekki síst gleðina, ástina og samstöð- una sem hann og Marta áttu svo fallega saman. Nokkrar af lífsreglum þeirra voru sam- vera, upplifun, friður og ró, ekki má gleyma reglunni ger- um allt saman. Elsku Marta og Bjössi, þið voruð frábær fyrirmynd. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Elsku Marta systir, Magnús, Ívar, Baldur, Rakel, tengda- börn og barnabörn, Bjössi verður aldrei gleymd- ur, hann mun lifa í hjarta okk- ar um aldur og ævi. Kveðja, Kristín Soffía Guðmannsdóttir (Stína). Með söknuði í hjarta minn- umst við vinar og vinnufélaga okkar, sem var hrifinn burt frá okkur allt of snemma. Jón Björn hóf störf hjá BAUHAUS á upphafsári fyrir- tækisins og átti stutt í tíu ára starfsafmæli þegar hann féll frá. Jón setti sitt mark á starf- semi fyrirtækisins og vinnu- daga okkar allra. Starfsemi fyrirtækisins var honum hug- leikin og varði hann löngum stundum í að huga að hags- munum þess. Í vinnunni var Jón maður fárra orða, hann var einstak- lega hnyttinn, réttsýnn, traust- ur, ósérhlífinn og vinnusamur. Hann var alltaf fyrstur til að rétta fram hjálparhönd og var þá ekki spurt að stað eða stund, Jón var tilbúinn til að hjálpa. Jón var góður mann- þekkjari, sem kom sér vel við ýmsar aðstæður. Með einstakri lund, nærveru og hlýju náði Jón til allra sem hann vann með, óháð aldri eða stöðu. Við leiðarlok og hinstu kveðju er efst í huga sú já- kvæðni sem Jón smitaði frá sér. Þegar á móti blés var við- kvæðið ávallt: Höldum áfram, verkin vinna sig ekki sjálf. Dagarnir gátu verið langir og verkefnin mörg en Jón fór ávallt á undan með góðu for- dæmi og sýndi hug sinn í verki. Við munum sjá til þess að bera minningu Jóns áfram á vinnu- staðnum. Jón var einstakur og skilur hann eftir stór spor sem ekki verða fyllt. Með söknuði kveðjum við Jón og þökkum góð kynni. Minningin um góðan vin lifir með okkur. Við sendum Mörtu, börnun- um og öðru samferðafólki sem eiga um sárt að binda sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd vina og vinnu- félaga í BAUHAUS, Ásgeir Bachmann, Daníel Sigurðsson Glad, Snæfríður Dröfn Björgvinsdóttir. Jón Björn Steingrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.