Morgunblaðið - 19.03.2022, Qupperneq 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu ekki aðra hrifsa til sín það
sem í raun er þitt. Fjölskyldan er þín stoð
og stytta, láttu hana vita hversu mikils þú
metur hana.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ert opin/n fyrir fegurðinni í kring-
um þig. Bjartsýni og þakklæti fleyta þér
langt. Þú hefur alltaf synt á móti straumn-
um, engin ástæða til að hætta því.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Viðgerðir og endurbætur á heim-
ilinu, flutningar og gestakomur setja svip
sinn á næstu vikurnar hjá þér. Þú ert meira
hæfileikabúnt en þú heldur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þegar í öngstræti er komið er gott
að hugsa málin alveg upp á nýtt. Enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur það réttilega á tilfinningunni
að draumar þínir séu að rætast. Vertu
viðbúin/n því að eitthvað óvænt komi í ljós
þegar þú flettir í gömlum skjölum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú færð fyrirspurn sem vekur
spurningar hjá þér. Skakkaðu leikinn áður
en hann fer úr böndunum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hikaðu ekki við að fara fram á það
sem þú átt skilið því þú hefur unnið fyrir
því. Sumu má sópa undir teppið, öðru
ekki.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það er engin ástæða til þess
að láta aðra sjá öll spilin sem þú hefur á
hendi. Að skiptast á skoðunum og gera
málamiðlun er það sem þú stefnir á núna.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú hefur komið þér vel fyrir og
mátt þess vegna gefa þér tíma til að njóta
ávaxtanna. Bjóddu hinn vangann ef það
leysir deilur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú fyllist skyndilega mikilli
ferða- og ævintýraþrá. Til vonar og vara
skaltu ekki setja öll eggin í sömu körfuna
þegar kemur að fjárfestingu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þegar kemur að því að láta
enda ná saman skiptir máli að hafa þig við
stjórnvölinn. Fáðu aðstoð við heimilis-
störfin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur lengi ætlað að koma mál-
um þínum á framfæri en ekki haft tækifæri
til þess. Fólki líkar við þig og það vill vera
nálægt þér.
kynntist frábæru fólki og þvældist
út um allt bæði hér heima og er-
lendis í efnisöflun. Löngun í meiri
menntun réð því þó að ég kvaddi
þennan vinnustað í bili og hóf nám
í Háskólanum í Minnesóta í
Þar byrjaði nýr ævintýrakafli en
hún segir að starfið þar hafi verið
ótrúlega áhugavert, krefjandi en
fyrst og fremst gefandi. „Ég fékk
mörg tækifæri í dagskrárgerð
samhliða fréttamennskunni og
S
igrún Stefánsdóttir
fæddist á Akureyri 19.
mars 1947 og er næst-
elst í sex systkina hópi.
Hún stundaði nám í
Menntaskólanum á Akureyri og
lauk stúdentsprófi úr máladeild
árið 1967. Á þessum árum var hún
í alls kyns störfum yfir sumartím-
ann, vann í fiski, á saumastofu, í
eldhúsi á hóteli, afgreiddi ís út um
sjoppulúgu og margt fleira.
„Ég lærði ótrúlega mikið í
gegnum þessi störf. En það mik-
ilvægasta var að læra hvernig ég
vildi ekki eyða ævinni en það var
að flaka fisk, hreinsa orma og
skera blóð úr flökum.“ Það gekk
eftir. Sigrún fékk námsstyrk eftir
stúdentspróf og notaði sumarhýr-
una úr frystihúsinu til þess að
kaupa flugmiða til Arkansas í
Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þar
hóf hún háskólanám í blaða-
mennsku á meðan kynþáttaóeirðir
í ríkinu náðu inn í fréttatíma Rík-
isútvarpsins. Þegar heim var kom-
ið fór hún í Íþróttakennaraskólann
til þess að láta gamlan draum ræt-
ast. Með kennararéttindin upp á
vasann bankaði hún upp á hjá
Morgunblaðinu og bað um vinnu.
Þar með voru örlögin ráðin. Öll
störf eftir það hafa á einn eða
annan hátt tengst blaðamennsku
og gera það enn.
„Ég festi ráð mitt og eignaðist
eldri son minn á meðan ég vann á
Mogganum. En málin þróuðust
þannig að litla fjölskyldan fór til
Noregs og þar fór ég í Norska
blaðamannaskólann og vann sam-
hliða á Verdens Gang. Síðan lá
leiðin aftur heim til Akureyrar þar
sem Björn maðurinn minn var
ráðinn sem félagsmálastjóri og ég
sem ritstjóri Íslendings, auk þess
sem ég gekk með yngri son okkar.
Ég var ritstjórinn, eini blaðamað-
urinn, ljósmyndarinn og umbrots-
maðurinn á blaðinu. Við vorum
þrjár konur sem rákum blaðið, ég
og fjármálastjóri og dreifingar-
stjóri. Þetta kvennaveldi komst í
fréttir.“
Frá Akureyri lá leiðin suður og
Sigrún hóf störf hjá Sjónvarpinu.
Bandaríkjunum. Ég lauk BA-prófi
í fjölmiðlafræði, MA-prófi og dokt-
orsprófi frá sama skóla og útskrif-
aðist vorið 1987, árið sem ég varð
fertug.“
Háskóli Íslands var á sama tíma
að undirbúa kennslu í fjölmiðla-
fræði og var Sigrún ráðin til þess
að koma því af stað. Námsbrautin
var nefnd hagnýt fjölmiðlun og
var eins árs diplómanám. „Þar
uppgötvaði ég að kennsla á mjög
vel við mig. Ég er enn að kenna
sem stundakennari, núna við Há-
skólann á Akureyri og finnst það
alltaf jafn gefandi. En ég er líka
fædd með ævintýraþrá sem sér til
þess að ég morkni ekki á sama
blettinum. Þegar ég var búin að
kenna í 10 ár í HÍ, seldi ég eigur
mínar og lagðist í víking í Dan-
mörku. Ég var fyrst í Árósum sem
yfirmaður Endurmenntunarstofn-
unar norrænna blaðamanna en fór
síðan til Kaupmannahafnar og var
ráðin yfirmaður kynningarmála
norrænu ráðherranefndarinnar og
Norðurlandaráðs. Á þessum árum
kynntist ég Yngvari sem var
menntaður í sama fagi og ég,
blaðamennskunni. Við höfum
hokrað saman nú í rúm tuttugu
ár.“
Kaupmannahafnartíminn leið
hratt og hugurinn fór að leita
heim. Sigrún var ráðin sem dag-
skrárstjóri hjá Ríkisútvarpinu og
var þar í rúmlega sjö ár. Fjár-
málakreppan setti sinn svip á
starfið. Niðurskurður og hagræð-
ingar voru stóru verkefnin en
samt lýsir Sigrún þessum tíma
sem mjög gefandi, enda gott
starfsfólk og góður starfsandi.
„Síðasta alvöruvinnan mín var
sem sviðsforseti hug- og fé-
lagsvísindasviðs Háskólans á
Akureyri en þar hætti ég þegar ég
varð sjötug. Þetta síðasta starfsár
notaði ég til þess að ljúka námi í
leiðsögumannaskólanum og nýt
þess nú að sýna jafnöldrum mín-
um frá Bandaríkjunum Ísland og
Grænland.
Persónulega er ég rík kona. Ég
á yndislega syni, barnabörn og
barnabarnabarn en þau búa öll á
Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur – 75 ára
Stórfjölskyldan Á myndina vantar yngri soninn, Héðin.
Fædd með ævintýraþrá
Í Svarfaðardal Sigrún og Yngvar
stödd við Urðakirkju.
Fréttakonan Sigrún að klífa
Súlnasker til að ná í myndefni.
90 ÁRA Sigurður Björnsson er ní-
ræður í dag. Eiginkona hans, Sieg-
linde Kahmann, varð 90 ára 28. nóv-
ember síðastliðinn.
Sigurður fæddist 19. mars 1932 í
Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann
lauk fyrstur söngnema burtfarar-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1956. Hann hóf síð-
an nám við Tónlistarskólann í
München og var ráðinn óperusöngv-
ari við Ríkisóperuna í Stuttgart
1962. Þar kynntist hann Sieglinde
sem var óperusöngkona þar. Hún
fæddist 28. nóvember 1931 í Dar-
desheim í Saxen-Anhalt í Þýska-
landi. Eftir seinni heimsstyrjöldina
lenti heimabær hennar fyrir austan
járntjaldið, í Austur-Þýskalandi, en
hún flúði þaðan og hóf söngnám í
Stuttgart.
Sigurður og Sieglinde störfuðu
síðan við óperuhúsið í Kassel, við
óperuna Graz í Austurríki og svo við
Gärtnerplatz í München. Sigurður
og Sieglinde fluttu til Íslands árið
1977 þegar Sigurður tók við stöðu
framkvæmdastjóra Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Hann gegndi
þeirri stöðu til 1990. Sieglinde hóf
strax kennslu við Söngskólann og
síðar Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þau tóku þátt í óperusýningum við
Þjóðleikhúsið og Íslensku óperuna
og komu fram á tónleikum við ýmis
tækifæri. Þau fóru til dæmis sem
einsöngvarar með Karlakór Reykja-
víkur til Kína árið 1979 og voru þá
annar vestræni hópurinn sem fékk
að koma inn í Kína næst á eftir Fíl-
harmóníusveitinni í Berlín. Þau
ákváðu bæði að hætta að syngja eft-
ir síðustu sýningu á Kátu ekkjunni
hér heima árið 1997. Sigurður sat í
stjórn Listahátíðar í Reykjavík og
var formaður hennar um tíma.
Sigurður og Sieglinde eiga tvö
börn og þrjú barnabörn.
Árnað heilla
Hækk
aðu
í leð
innig