Morgunblaðið - 19.03.2022, Qupperneq 50
_ Noregsmeist-
arar Bodö/Glimt,
lið Alfonsar
Sampsted, dróst
gegn Roma, undir
stjórn Josés Mo-
urinhos, í átta liða
úrslitum Sam-
bandsdeildar karla
í fótbolta. Bodö/
Glimt lék Roma grátt í riðlakeppninni í
vetur, vann 6:1 á heimavelli og náði
2:2-jafntefli í Róm. Sigurliðið mætir
annaðhvort Leicester eða PSV
Eindhoven í undanúrslitum.
PAOK frá Grikklandi, lið Sverris Inga
Ingasonar, dróst gegn Marseille frá
Frakklandi og sigurliðið þar mætir
Feyenoord eða Slavia Prag í undan-
úrslitunum.
_ Í Evrópudeildinni dróst Eintracht
Frankfurt gegn Barcelona og sig-
urliðið mætir West Ham eða Lyon í
undanúrslitum. Þá dróst Braga gegn
Rangers og RB Leipzig gegn Atalanta
en sigurlið þeirra einvígja mætast í
undanúrslitum.
_ Gema Simon, landsliðskona Ástr-
alíu í knattspyrnu, hefur skrifað undir
samning um að leika með Þrótti í
Bestu deildinni á komandi tímabili.
Simon er 31 árs gömul, vinstri bak-
vörður eða kantmaður, og hefur leik-
ið mestallan ferilinn með Newcastle
Jets í áströlsku A-deildinni og kemur
þaðan til Þróttar. Hún hefur einnig
leikið með Avaldsnes í Noregi, Su-
won í Suður-Kóreu og Ottawa Fury í
Kanada. Simon á 11 A-landsleiki að
baki og var í ástr-
alska hópnum á
heimsmeistara-
mótinu í Frakk-
landi árið 2019.
Hún á enn fremur
að baki leiki með
U20 ára landslið-
inu.
_ Guðrún Brá Björgvinsdóttir lauk í
gær keppni á Saudi Ladies-
golfmótinu í Sádi-Arabíu, sem er lið-
ur í Evrópumótaröðinni. Hún lék
annan hringinn í gær á 76 höggum,
fjórum yfir pari vallarins, og var
tveimur höggum frá því að komast í
gegnum niðurskurðinn. Slæmur
fyrsti hringur kom í veg fyrir það en
Guðrún lék hann á 81 höggi. Hún
Eitt
ogannað
_ Bayern München og Liverpool
mætast í undanúrslitum Meistara-
deildar karla í fótbolta, takist báðum
liðum að komast í gegn um átta liða
úrslitin. Dregið var í gær og Liverpool
dróst gegn Benfica frá Portúgal en
Bayern gegn Villarreal frá Spáni.
Evrópumeistarar Chelsea mæta Real
Madrid og Manchester City mætir
Atlético Madrid í hinum tveimur leikj-
um átta liða úrslitanna en sigurliðin
eigast svo við í undanúrslitum.
50 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Lengjubikar kvenna
A-deild, 2. riðill:
Keflavík – Valur........................................ 0:1
Staðan:
Valur 5 5 0 0 23:0 15
Afturelding 4 2 1 1 8:6 7
Þór/KA 4 2 0 2 6:10 6
Keflavík 5 1 1 3 5:8 4
Þróttur R. 4 1 0 3 4:10 3
Fylkir 4 1 0 3 2:14 3
England
Wolves – Leeds......................................... 2:3
Staða efstu liða:
Manch. City 29 22 4 3 68:18 70
Liverpool 29 21 6 2 75:20 69
Chelsea 28 17 8 3 57:19 59
Arsenal 27 16 3 8 43:31 51
Manch. Utd 29 14 8 7 48:40 50
West Ham 29 14 6 9 48:36 48
Tottenham 28 15 3 10 44:35 48
Wolves 30 14 4 12 31:26 46
Aston Villa 28 11 3 14 41:39 36
Southampton 29 8 11 10 36:45 35
Ítalía
Genoa – Torino ........................................ 1:0
- Albert Guðmundsson var ónotaður vara-
maður hjá Genoa.
_ Neðstu lið: Sampdoria 26, Cagliari 25,
Venezia 22, Genoa 22, Salernitana 16.
Þýskaland
Bayern München – Eintracht Fr. .......... 4:2
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Bayern. Karólína Lea Vilhjálms-
dóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir voru
ónotaðir varamenn.
- Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem
varamaður á 90. mínútu hjá Eintracht.
Staða efstu liða:
Bayern München 17 14 1 2 62:12 43
Wolfsburg 16 13 2 1 47:12 41
Eintracht Fr. 17 11 1 5 36:21 34
Turbine Potsdam 16 10 3 3 46:21 33
Hoffenheim 16 9 4 3 42:24 31
Frakkland
Dijon – Lyon ............................................. 0:3
- Sara Björk Gunnarsdóttir lék síðari hálf-
leikinn fyrir Lyon.
Staða efstu liða:
Lyon 17 16 1 0 68:7 49
Paris SG 17 15 1 1 57:8 46
Paris FC 16 12 1 3 38:16 37
Fleury 16 9 1 6 20:22 28
Bordeaux 16 8 2 6 30:18 26
Spánn
Athletic Bilbao – Getafe........................... 1:1
Staða efstu liða:
Real Madrid 28 20 6 2 59:21 66
Sevilla 28 15 11 2 40:19 56
Barcelona 27 14 9 4 52:29 51
Atlético Madrid 28 15 6 7 52:36 51
Real Betis 28 15 4 9 50:35 49
Real Sociedad 28 13 8 7 29:29 47
Villarreal 28 12 9 7 48:26 45
Athletic Bilbao 29 10 11 8 33:28 41
Holland
B-deild:
Jong Ajax – Eindhoven........................... 2:2
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 61
mínútuna fyrir Jong Ajax.
Danmörk
B-deild:
Esbjerg – Lyngby .................................... 0:3
- Ísak Óli Ólafsson var í byrjunarliði Esb-
jerg og fékk rautt spjald á 37. mínútu.
- Sævar Atli Magnússon lék fyrstu 82
mínúturnar fyrir Lyngby og skoraði en
Frederik Schram var ekki í leikmanna-
hópnum. Freyr Alexandersson þjálfar liðið.
Nyköbing – Horsens................................ 1:4
- Aron Sigurðarson lék allan leikinn fyrir
Horsens.
50$99(/:+0$
1. deild karla
Hamar – Höttur.................................... 63:98
Sindri – Hrunamenn ............................ 85:83
Staðan:
Haukar 25 23 2 2575:1962 46
Höttur 25 21 4 2543:2083 42
Sindri 25 16 9 2378:2189 32
Álftanes 25 15 10 2363:2147 30
Fjölnir 25 14 11 2355:2395 28
Selfoss 25 11 14 2189:2261 22
Skallagrímur 25 10 15 2125:2261 20
Hrunamenn 25 10 15 2208:2422 20
Hamar 25 4 21 1940:2385 8
ÍA 25 1 24 1896:2467 2
Belgía/Holland
Landstede Hammers – Mechelen ...... 56:70
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði tvö stig, tók tvö fráköst og gaf tvær
stoðsendingar á 29 mínútum fyrir Land-
stede.
Danmörk
Falcon – Herlev ................................... 82:68
- Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði fjögur
stig fyrir Falcon á 18 mínútum og Ástrós
Lena Ægisdóttir skoraði tvö stig, tók tvö
fráköst og gaf eina stoðsendingu á 21 mín-
útu.
NBA-deildin
Orlando – Detroit ............................. 120:134
4"5'*2)0-#
LANDSLIÐIÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálf-
ari karla í knattspyrnu, byggir að
langmestu leyti á þeim hópi sem lék
síðustu landsleiki ársins 2021, gegn
Rúmeníu og Norður-Makedóníu,
þegar Ísland mætir Finnlandi og
Spáni í vináttulandsleikjum á Spáni
dagana 26. og 29. mars.
Af þeim sem tóku þátt í þeim
tveimur leikjum vantar aðeins Ara
Frey Skúlason og Birki Má Sæv-
arsson sem ákváðu báðir að þeim
loknum að leggja landsliðsskóna á
hilluna, og Mikael Egil Ellertsson,
sóknarmann SPAL á Ítalíu, sem hef-
ur verið frá keppni undanfarnar vik-
ur vegna meiðsla.
Hörður Björgvin Magnússon snýr
aftur í landsliðið eftir eins árs fjar-
veru. Hann lék síðast gegn Þýska-
landi og Liechtenstein í mars 2021
en varð síðan fyrir alvarlegum
meiðslum og er nýkominn aftur inn í
hóp rússneska liðsins CSKA.
Það er því nokkuð ljóst að Arnar
telur sig vera búinn að finna þann
kjarna leikmanna sem hann hyggst
byggja á liðið fyrir Þjóðadeildina í
sumar, og í framhaldi af því und-
ankeppni Evrópumótsins 2024 á
næsta ári.
Atli fyrir Ara Frey
Af þeim 22 leikmönnum sem fóru í
janúarverkefnið og mættu Úganda
og Suður-Kóreu í Tyrklandi eru að-
eins fjórir í þessum hópi. Það eru
tveir af þeim reyndustu, Jón Daði
Böðvarsson og Arnór Ingvi Trausta-
son, og þeir Alfons Sampsted, sem
hefur átt góðu gengi að fagna með
Bodö/Glimt í Sambandsdeildinni í
vetur, og Atli Barkarson, sem er ný-
kominn til SönderjyskE í Danmörku
frá Víkingi og lék sína fyrstu lands-
leiki í janúar. Hann hefur verið
færður upp úr 21 árs landsliðs-
hópnum til að fylla skarð Ara Freys.
Jón Daði, sem spilaði ekkert með
landsliðinu í haust, var kallaður inn í
leikina í janúar þótt hann hefði þá
verið úti í kuldanum hjá þáverandi
liði sínu, Millwall, síðan í júlí. Það
skilaði sér, Jón Daði skoraði gegn
Úganda, gekk í kjölfarið til liðs við
Bolton og hefur náð ferlinum aftur í
gang með góðri frammistöðu þar.
Persónulegar ástæður
Þrír gáfu ekki kost á sér í þetta
verkefni af persónulegum ástæðum,
þeir Guðlaugur Victor Pálsson,
Sverrir Ingi Ingason og Mikael And-
erson, og þeir Jóhann Berg Guð-
mundsson, Jón Guðni Fjóluson,
Mikael Egill Ellertsson og Rúnar
Már Sigurjónsson hafa allir verið frá
keppni með sínum félagsliðum
vegna meiðsla undanfarnar vikur og
mánuði. Einhverjir þeirra munu
væntanlega koma inn í hópinn á ný
fyrir leikina í Þjóðadeildinni í júní-
mánuði.
Af leikmönnum sem ekki eru vald-
ir má helst nefna Viðar Örn Kjart-
ansson og Willum Þór Willumsson
sem báðir glímdu við meiðsli á síð-
asta ári.
Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór
Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson
eru allir út úr myndinni vegna mála
sem komust í hámæli á síðasta ári og
óvíst er á þessari stundu hvort ein-
hver þeirra eigi afturkvæmt í lands-
liðið. Aron spilar alla leiki með sínu
félagsliði í Katar en Gylfi hefur ekki
leikið knattspyrnu síðan í júlí og er
enn í farbanni á Englandi þar sem
engin ákæra hefur verið birt á hend-
ur honum enn sem komið er. Kol-
beinn lék síðast í ágúst en hann er án
félags eftir að hann fór frá Gauta-
borg fyrir áramótin.
Bætir leikjametið rækilega
Birkir Bjarnason er langreyndasti
leikmaður íslenska liðsins í dag og
verður væntanlega áfram fyrirliði
eins og í fjórum síðustu leikjum árs-
ins 2021. Hann var sá eini sem lék
alla þrettán landsleiki ársins 2021 en
Birkir lék sinn 105. landsleik gegn
Norður-Makedóníu í nóvember og
sló þá met Rúnars Kristinssonar.
Birkir hefur leikið af miklum krafti
með Adana Demirspor í Tyrklandi í
vetur og mun að óbreyttu bæta
leikjametið rækilega á þessu ári.
Birkir, Jón Daði og Arnór Ingvi
eru nú einir eftir af þeim sem tóku
þátt í EM-ævintýri Íslands í Frakk-
landi árið 2016. Þeir Hörður Björg-
vin og Hjörtur Hermannsson voru
einnig í þeim hópi án þess að spila.
Leikur Íslands og Finnlands fer
fram í Murcia á Spáni laugardaginn
26. mars klukkan 16 að íslenskum
tíma. Leikurinn við Spánverja fer
fram í Coruna þriðjudagskvöldið 29.
mars klukkan 18.45.
Kjarninn fyrir
næstu verk-
efni fundinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reynsla Jón Daði Böðvarsson og Hörður Björgvin Magnússon verða tveir
af reyndustu leikmönnum landsliðsins í komandi verkefnum þess.
- Arnar gerir litlar breytingar á lands-
liðshópnum fyrir leikina á Spáni
MARKVERÐIR
Rúnar Alex Rúnarsson, Leuven ....... 12
Elías Rafn Ólafsson, Midtjylland ....... 4
Patrik S. Gunnarsson, Viking S .......... 0
VARNARMENN:
Hörður B. Magnússon, CSKA .......... 36
Hjörtur Hermannsson, Pisa.............. 25
Guðmundur Þórarinsson, AaB.......... 12
Brynjar I. Bjarnason, Vålerenga...... 10
Alfons Sampsted, Bodö/Glimt............. 8
Daníel Leó Grétarsson, Slask ............. 5
Atli Barkarson, SönderjyskE ............. 2
MIÐJUMENN:
Birkir Bjarnason, Adana Dem. ....... 105
Arnór Sigurðsson, Venezia................ 16
Ísak B. Jóhannesson, Köbenhavn..... 10
Andri F. Baldursson, Köbenhavn....... 8
Aron Elís Þrándarson, OB .................. 8
Stefán T. Þórðarson, Silkeborg .......... 7
Þórir J. Helgason, Lecce ..................... 7
SÓKNARMENN:
Jón Daði Böðvarsson, Bolton ............ 62
Arnór I. Traustason, New England . 43
Albert Guðmundsson, Genoa ............ 29
Jón Dagur Þorsteinsson, AGF.......... 16
Sveinn A. Guðjohnsen, Elfsborg....... 10
Andri L. Guðjohnsen, Real Madrid .... 6
Landsliðshópur
Íslands
Topplið Fram vann gífurlega
öruggan 34:22-sigur á HK þegar
liðin mættust í úrvalsdeild kvenna í
handknattleik, Olísdeildinni, í
Framhúsinu í gærkvöldi.
Framarar voru með tögl og
hagldir allan leikinn og leiddu með
sex mörkum í hálfleik, 14:8. Eftir
góða byrjun HK í síðari hálfleik þar
sem liðið minnkaði muninn niður í
þrjú mörk, 14:11, svaraði Fram með
því að skora sjö mörk í röð og ná
þannig tíu marka forystu, 21:11.
Eftir það varð ekki aftur snúið og
Fram sigldi að lokum öruggum 12
marka sigri í höfn.
Með sigrinum styrkti Fram stöðu
sína á toppi deildarinnar þar sem
liðið er nú með 25 stig, þremur
meira en Valur í öðru sæti.
Reynsluboltinn Karen Knúts-
dóttir var markahæst Framara með
sjö mörk. Hafdís Renötudóttir varði
þá 11 skot í marki Fram. Jóhanna
Margrét Sigurðardóttir var marka-
hæst í liði HK með fjögur mörk.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Reynsla Karen Knútsdóttir var markahæst í liði Fram með sjö mörk.
Topplið Fram sann-
færandi gegn HK