Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 51
FRAKKLAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hafnfirðingurinn Darri Aronsson
mun söðla um í sumar og ganga til
liðs við franska handknattleiks-
félagið Ivry sem staðsett er í París.
Darri, sem er 22 ára gamall, skrif-
aði undir þriggja ára samning við
Ivry sem er með 11 stiga forskot á
toppi frönsku B-deildarinnar þegar
átta umferðir eru eftir af tímabilinu
og virðist fátt geta komið í veg fyrir
að liðið leiki í efstu deild á næstu
leiktíð enda hefur liðið unnið 21 leik
og einungis tapað einum.
Vinstri skyttan er uppalin hjá
Haukum í Hafnarfirði og hefur verið
í lykilhlutverki hjá liðinu undanfarin
ár en hann lék sína fyrstu A-
landsleiki á árinu gegn Krótatíu og
Svartfjallalandi í lokakeppni Evr-
ópumótsins í janúar sem fram fór í
Ungverjalandi og Slóvakíu.
„Ég er mjög spenntur fyrir þess-
um félagaskiptum til Frakklands og
þau leggjast virkilega vel í mig,“
sagði Darri við Morgunblaðið.
„Mig hefur dreymt um að gerast
atvinnumaður í handbolta síðan ég
man eftir mér og nú er sá draumur
að rætast. Ég er líka mjög spenntur
fyrir því að reyna fyrir mér í Frakk-
landi, og vonandi í efstu deild, enda
bendir flest til þess að liðið verði í
deild þeirra bestu á næstu leiktíð og
það er ákveðinn heiður finnst mér
að fá tækifæri til þess að hefja sinn
atvinnumannaferil í einni sterkustu
deild í Evrópu.
Ég heyrði fyrst af áhuga Ivry í
byrjun janúar og hlutirnir gerðust
ansi hratt eftir það. Það heillaði mig
strax hversu mikinn áhuga þeir
sýndu mér og hversu mikla trú þeir
virtust hafa á mér. Markmiðið var
að reyna fyrir sér í atvinnumennsku
að þessu tímabili loknu en ég ætlaði
mér ekki að stökkva á hvað sem var.
Félagið þurfti að henta mér per-
sónulega og ég vildi fara á stað þar
sem mínir hæfileikar myndu nýtast
sem best og ég sá Ivry strax sem
mjög góðan kost,“ sagði Darri.
Þarf að hafa fyrir hlutunum
Ivry hefur átta sinnum orðið
franskur meistari, síðast árið 2007.
Þá lék Ragnar Óskarsson með lið-
inu. Fimm titlanna komu á árunum
1963 til 1971 og þá lék liðið bæði
gegn Fram og FH í Evrópukeppni.
Frakkarnir slógu Fram út haustið
1970 en töpuðu fyrir FH ári síðar.
„Félagið og þjálfarinn sjá mig
sem varnar- og sóknarmann og mér
er ætlað stórt hlutverk en ég mun
þurfa að hafa mikið fyrir hlutunum
og vinna fyrir mínu sæti. Það eru
hörkuleikmenn þarna, meðal annars
landsliðsmenn í vinstri skyttustöð-
unni, og þetta er því ekki félag sem
þú gengur inn í og færð strax stórt
hlutverk upp í hendurnar.
Ég er líka mjög spenntur fyrir því
að flytja til Parísar enda er Frakk-
land mjög spennandi land. Það kitl-
aði mig líka mikið að fá tækifæri til
þess að búa í París enda gerast
borgirnar ekki mikið stærri. Það er
mikil menning og saga í kringum
París og þetta er fyrst og fremst
frábært tækifæri líka fyrir mig til
þess að víkka sjóndeildarhringinn.“
Darri er af miklum handbolta-
ættum en faðir hans Aron Krist-
jánsson er þjálfari karlaliðs Hauka
og margreyndur landsliðsmaður. Þá
er móðir Darra Hulda Bjarnadóttir,
fyrrverandi atvinnumaður í hand-
bolta og margreynd landsliðskona.
„Ég er kominn á góðan aldur og
tel mig algjörlega tilbúinn til þess að
flytja utan og standa á eigin fótum.
Foreldrar mínir eru mjög spenntir
fyrir mína hönd, þau hvöttu mig vel
áfram í öllu þessu ferli og hafa stutt
mjög þétt við bakið á mér í gegnum
allan minn feril.
Það er bara eitt flug á milli okkar
sem telst nú ekki mikið og það er því
lítið mál fyrir þau að kíkja í heim-
sókn hvenær sem er. Þau hafa alla
tíð verið mjög meðvituð um það að
minn draumur var að gerast at-
vinnumaður í handbolta og þau hafa
bæði verið mér innan handar í öllu
þessu ferli sem á undan er gengið.“
Vill kveðja með bikar
Aron og Darri hafa unnið saman
hjá Hafnarfjarðarliðinu undanfarin
ár. „Pabbi vill Haukunum auðvitað
vel en hann vill líka það sem mér er
fyrir bestu og á sama tíma hafa
Haukarnir líka alltaf staðið mjög
þétt við bakið á sínum leikmönnum
sem hafa hug á því að reyna fyrir
sér í atvinnumennsku. Stjórnin hef-
ur líka stutt mjög vel við bakið á
mér í þessu ferli og ég er gríðarlega
þakklátur þeim fyrir það. Ég er
grjótharður Haukamaður og ég mun
snúa aftur heim í uppeldisfélagið
síðar, það er alveg klárt.“
Haukar urðu síðast Íslandsmeist-
arar árið 2016 en liðið lék til úrslita
um titilinn í fyrra og árið 2019 en
tímabilinu 2020 var hætt vegna
kórónuveirufaraldursins.
„Þegar þú spilar fyrir lið eins og
Hauka þá snýst allt um að vinna bik-
ara. Við erum í efsta sæti deild-
arinnar og í dauðafæri að vinna
hana. Það má alveg segja sem svo að
vonbrigði síðasta árs sitji enn þá í
okkur eftir tapið gegn Val í úr-
slitaeinvíginu um Íslandsmeist-
aratitilinn og allir leikmenn liðsins
eru staðráðnir í að gera betur í vor.
Við erum með hörkulið sem við
teljum að geti farið alla leið og það
er nákvæmlega það sem við ætlum
okkur. Draumurinn er að sjálfsögðu
að enda tímabilið með stæl, verða
Íslandsmeistari með Haukum og
geta þannig kvatt félagið á eins góð-
an máta og mögulegt er,“ bætti
Darri við í samtali við Morgun-
blaðið.
„Ætlað stórt hlutverk“
- Darri hlakkar til að spila með Parísarliðinu Ivry í efstu deild Frakklands
- Gamall draumur um atvinnumennsku rætist eftir þetta tímabil
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Ungverjaland Darri Aronsson kom óvænt inn í íslenska landsliðið eftir að
Evrópumótið hófst í Ungverjalandi í janúar og lék sína fyrstu A-landsleiki.
hafnaði í 93.-97. sæti af 108 kepp-
endum.
_ Logi Tómasson úr Víkingi, Adam
Ingi Benediktsson markvörður frá
Gautaborg og Jóhann Árni Gunn-
arsson úr Stjörnunni eru nýliðar í 21-
árs landsliðshópnum sem þjálfarinn
Davíð Snorri Jónasson tilkynnti í gær
fyrir leiki gegn Portúgal og Kýpur í
undankeppni Evrópumótsins. Hópinn í
heild sinni má sjá á undirvefnum Ís-
lenski boltinn á íþróttavef mbl.is.
_ Knattspyrnukonan Dóra María Lár-
usdóttir hefur lagt skóna á hilluna, 36
ára að aldri, eftir afar farsælan feril.
Dóra María staðfesti fregnirnar í sam-
tali við Fótbolta.net í gær.
Hún lauk ferlinum með því að leiða
Val til Íslands-
meistaratitils á
síðasta
tímabili, sínum
áttunda á ferl-
inum. Þá varð hún
bikarmeistari
fimm sinnum á
ferlinum. Dóra
María lék alls 269
leiki í efstu deild hér á landi og skor-
aði í þeim 94 mörk. Hún lék með Val
allan sinn feril á Íslandi en hélt út í at-
vinnumennsku árið 2011 þar sem hún
lék með Djurgården í sænsku úrvals-
deildinni. Hún fór svo til brasilíska fé-
lagsins Vitoría í byrjun árs 2012 en
gekk aftur til liðs við Val það sumar.
Dóra María lék 114 A-landsleiki fyrir
Íslands hönd og skoraði 18 mörk. Tók
hún þátt í tveimur Evrópumótum, EM
2009 í Finnlandi og EM 2013 í Sví-
þjóð.
_ Enska knattspyrnufélagið Everton
hafði ekki erindi sem erfiði í áfrýjun
sinni vegna rauða spjaldsins sem
Brasilíumaðurinn Allan fékk í leik liðs-
ins gegn Newcastle United í ensku úr-
valsdeildinni á fimmtudagskvöld.
Everton fór fram á að spjaldið yrði
dregið til baka og til vara að þriggja
leikja bannið yrði stytt. Enska knatt-
spyrnusambandið vísaði báðum
beiðnum Everton frá og Allan þarf því
að taka út þriggja leikja bann.
_ Knattspyrnukonan Sara Björk
Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska
landsliðsins, lék sinn fyrsta leik í rúmt
ár þegar hún kom
inn á sem vara-
maður hjá franska
stórliðinu Lyon í
öruggum 3:0-sigri
á Dijon í efstu
deild þar í landi í
gærkvöldi. Um var
að ræða fyrsta
leik Söru eftir
barnsburð.
_ Knattspyrnumaðurinn Sverrir Páll
Hjaltested er genginn í raðir Kór-
drengja. Sverrir Páll, sem er 21 árs
gamall sóknarmaður, kemur á láni frá
Val þar sem hann lék 17 leiki og skor-
aði eitt mark í efstu deild á síðasta
tímabili. Kórdrengir leika í næstefstu
deild.
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikarúrslitaleikur karla:
Smárinn: Stjarnan – Þór Þ ............... L16.45
Bikarúrslitaleikur kvenna:
Smárinn: Haukar – Breiðablik ......... L19.45
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Hlíðarendi: Valur – ÍBV......................... L14
Varmá: Afturelding – Stjarnan ............. L16
KA-heimilið: KA/Þór – Haukar ........ S14.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK U – Víkingur....................... S16
Selfoss: Selfoss – Stjarnan U............ S19.30
Hlíðarendi: Valur U – Fram U ......... S19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ísafjörður: Hörður – Kórdrengir .......... S16
Vináttulandsleikur U20 karla:
Ásvellir: Ísland – Danmörk ................... L16
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, undanúrslit:
Garðabær: Stjarnan – FH ..................... L14
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍBV........ L14
Sauðárkrókur: Tindastóll – Stjarnan ... L14
KR-völlur: KR – Selfoss......................... L14
Boginn: Þór/KA – Fylkir .................. L18.30
UM HELGINA!
Olísdeild kvenna
Fram – HK............................................ 34:22
Staðan:
Fram 16 12 1 3 439:378 25
Valur 16 11 0 5 433:362 22
KA/Þór 15 9 1 5 409:388 19
Haukar 16 8 1 7 440:419 17
ÍBV 13 8 0 5 358:330 16
Stjarnan 15 7 0 8 385:388 14
HK 16 4 1 11 365:422 9
Afturelding 15 0 0 15 337:479 0
Danmörk
Herning-Ikast – Skanderborg ........... 36:17
- Steinunn Hansdóttir skoraði tvö mörk
fyrir Skanderborg.
E(;R&:=/D
Það virtist fátt geta komið í
veg fyrir að ríkjandi Englands-
meistarar Manchester City í
knattspyrnu myndu verja titilinn
fyrir nokkrum vikum.
City var með 13 stiga forskot á
toppi deildarinnar hinn 15. jan-
úar eftir 1:0-sigur gegn Chelsea í
toppslag deildarinnar en það var
jafnframt tólfti sigurleikur City í
röð í deildinni. Síðan þá hefur lið-
ið hikstað og gert tvö jafntefli og
tapað einum leik í síðustu sjö
deildarleikjum sínum.
Liverpool hefur heldur bet-
ur nýtt sér misjafnt gengi City-
manna og er nú einungis stigi á
eftir Englandsmeisturunum með
69 stig í öðru sætinu á meðan
City er í því efsta með 70 stig.
Liverpool hefur verið á miklu
skriði í deildinni og síðan liðið
gerði 2:2-jafntefli gegn Chelsea
á Stamford Bridge 2. janúar hef-
ur liðið nú unnið níu deildarleiki í
röð.
Hvort landsleikjahléið
sem gengur í garð eftir helgina
komi á góðum tíma fyrir Liver-
pool skal látið ósagt en lands-
leikjahléin hafa oft valdið stjór-
um toppliðanna í deildinni
miklum hausverk, sér í lagi þegar
lykilmenn hafa komið til baka
meiddir.
Pep Guardiola, stjóri City,
fagnar því eflaust að fá lands-
leikjahléið á þessum tíma til
þess að stilla saman strengina
fyrir lokasprettinn á meðan Jür-
gen Klopp, stjóri Liverpool, er ef-
laust ekkert allt of sáttur við
tímasetninguna enda hans menn
á miklu skriði.
Það stefnir alla vega í mjög
spennandi lokaumferðir í ensku
úrvalsdeildinni, nokkuð sem fáir
sáu fyrir í janúar, og það er eitt-
hvað sem allir knattspyrnu-
áhugamenn hljóta að fagna.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Baldvin Þór Magnússon sló í gegn á
heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum innanhúss í Belgrad í gær
þegar hann tryggði sér sæti í úr-
slitahlaupinu í 3.000 metra hlaupi
karla.
Baldvin varð sjötti af ellefu kepp-
endum í fyrsta riðli af þremur á
7:49,34 mínútum en Íslandsmet hans
er 7:47,51 mínútur. Fjórir fyrstu í
hverjum riðli fóru áfram ásamt
þremur bestu sem ekki náðu því, en
þar sem langbestu tímarnir náðust í
riðli Baldvins var hann annar af
þremur sem bættust við í úr-
slitahlaupið. Baldvin átti frábæran
endasprett og var innan við sekúndu
frá því að ná fjórða sætinu og kom-
ast beint áfram úr riðlinum.
Baldvin er því á meðal þeirra
fimmtán hlaupara sem berjast um
heimsmeistaratitilinn á morgun,
sunnudag, klukkan 11.10. Þótt hann
hafi verið fjórtándi inn í úrslitin náði
Baldvin sjötta besta tímanum í heild
og Íslandsmetið hefði skilað honum
þriðja sæti í undanrásunum. Það er
þó aldrei fyllilega marktækt því mis-
jafn hraði var á riðlunum og jafnan
hlaupið taktískt frekar en að ein-
blína á hraða og tíma.
Lamecha Girma frá Eþíópíu hljóp
á 7:46,21 mínútum og Jacob Krop
frá Kenía á 7:46,43 og þeir voru einu
keppendurnir sem hlupu á betri
tíma en Íslandsmet Baldvins.
_ Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var
4/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti
sínu í 60 metra hlaupi. Hún varð í
42.-43. sæti af 47 keppendum á 7,47
sekúndum. Met hennar er 7,43 sek-
úndur en Guðbjörg hefði þurft að
hlaupa á 7,30 sekundum til að kom-
ast í hóp þeirra 24 sem fóru í undan-
úrslitin.
Baldvin sjötti í úrslit á HM
Ljósmynd/FRÍ
Úrslit Baldvin Þór Magnússon
ánægður eftir hlaupið í gær.