Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þegar við lögðum af stað í þessa
vinnu fyrir ári, þá fórum við að
hittast á tveggja vikna fresti og
spjalla saman um tilfinningar, sam-
félagið og karlmenn almennt. Við
settum á okkur kynjagleraugun og
fórum í vettvangsferðir. Við stofn-
uðum í raun saumaklúbb þar sem
við gátum talað um okkur sjálfa og
hvað væri að gerast í samfélaginu,
en ótrúlega margt hefur einmitt
verið að gerast á þessum tíma sem
tengist karlmennsku og karl-
mönnum, metoo-byltingin á fullu
og fleira,“ segja þeir félagarnir
fjórir sem skipa sviðslistahópinn
Toxic Kings. Þetta eru þeir Ari Ís-
feld Óskarsson, Helgi Grímur Her-
mannsson, Andrés P. Þorvaldsson
og Tómas Helgi Baldursson, en
þeir frumsýna í kvöld á tilrauna-
verkstæðinu Umbúðalaust í Borg-
arleikhúsinu verk sitt How to
make love to a man. Þar velta þeir
upp ýmsum spurningum um til-
finningalíf karla, karlmennsku-
hlutverk nútímans og hvernig
hægt sé að elska sjálfan sig þrátt
fyrir eitrið.
„Leikverkið okkar fjallar ekki
um kynlíf, ólíkt því sem margir
gætu haldið út frá heiti verksins,
en nafnið kemur frá samnefndri
sjálfshjálparbók frá 1981. Bókin
varð einhvers konar stökkpallur
fyrir okkur yfir í það að skoða fé-
lagsleg samskipti karlmanna í nær-
umhverfi okkar, hvernig við karlar
tölum hver við annan. Við eigum
allir vini sem við ólumst upp með
og við eigum líka nýja seinni tíma
vini. Vinir okkar koma úr ólíkustu
kreðsum, listrænir vinir, körfubolta
vinir og úr fleiri hópum, en það er
rosa áhugavert að skoða hvernig
maður hegðar sér sem karl í þess-
um mismunandi aðstæðum. Við
skoðum líka samband okkar við
feður okkar og veltum fyrir okkur
hvaða félagsmótun þeir fengu, og
hvaða gjafir við fengum frá þeim.
Tveir okkar eru nýbakaðir feður
og við það vakna alls konar spurn-
ingar um föðurhlutverkið.“
Eru ekki að leita að vorkunn
Þeir segja samstarfið hafa verið
mjög gjöfult, en þeir hafi þurft að
vera vakandi fyrir því að leyfa öll-
um að hafa rödd, í ljósi þess að
þeir eru fjórir karlmenn.
„Það virðist vera innbyggt í okk-
ur karlmenn að þurfa að sigra
heiminn, að vera hetjan. Fyrir vik-
ið er ögrandi verkefni fyrir egó
okkar að þurfa að sleppa taki á
eigin stjórnunarþörf,“ segja þeir
og bæta við að þótt sýningin sé
meinfyndin séu þeir ekki að gera
grín að eitraðri karlmennsku eða
kynbræðrum sínum.
„Okkur langaði fyrst að gera
kaldhæðna grínsýningu um það
hversu glataðir karlmenn eru, af
því það er einfaldast, en þegar við
fórum að spjalla meira og fundum
alla núningsfletina þá komumst við
að því hversu margar hliðar eru á
karlmennsku og þá skein einlægn-
in í gegn. Þetta er vandmeðfarið,
en grín er sterkara þegar það
kemur frá hjartanu.“
Þegar þeir eru spurðir hvort það
sé ekki flókið og erfitt að vera
karlmaður í dag segja þeir að með
sýningunni séu þeir alls ekki að
leita að vorkunn fyrir hönd karl-
manna.
„Vissulega er sorglegt hversu
karlmenn eiga margir erfitt með
tjáskipti sín á milli þegar þeir eru
orðnir fullorðnir, jafnvel við vini
sína. Strákar þurfa alltaf að hafa
eitthvað fyrir stafni til að hittast,
þeir hittast ekki bara til að spjalla
og fara á trúnó. Tilfinningagáfa er
vöðvi sem þarf að æfa, og þeir sem
ekki æfa hann þeir þorna upp og
enda sem sveskjur, sem er auðvit-
að sorglegt. Þegar við byrjuðum
þetta ferli, að hittast reglulega til
að tala saman, þá lögðum við
áherslu á að segja alltaf upphátt ef
það væri eitthvað innra með okkur
sem þurfti að komast út, því karl-
menn eru svo gjarnir á að sleppa
því að segja hvernig þeim líður,
hvort sem þeir eru stressaðir yfir
einhverju eða þegar eitthvað er að.
Þeir óttast að sýna veikleika og
óttast að vera gagnrýndir.“
Niðurlægingaleikur stráka
Þeir segjast treysta undir-
meðvitund fólks til að nema skila-
boðin í sýningunni.
„Við teljum sýninguna mjög
sterka og hún kemur meðal annars
inn á það að á einhverjum tíma-
punkti þá virðist vera að samskipti
milli karla dvíni, þeir verða einir á
báti, klettar sem molna og þeir
þora ekki að segja upphátt hvernig
þeim líður. Við berskjöldum okkur
hver fyrir öðrum í þessari vinnu og
þessari sýningu og við treystum
því að það muni skila sér til áhorf-
enda. Við erum líka að varpa fram
spurningunni af hverju karlmenn
gera hræðilega hluti. Við erum
ekki með svarið, en veltum upp
hvernig karlmenn eiga að geta
elskað sig ef þeir eru færir um að
framkvæma hræðilega hluti.
Kannski þarf að vinna í tilfinninga-
lífi karla, það er kominn tími á að
opna kistuna og athuga hvað er í
gangi, að karlmenn læri að tala
saman. Að þeir treysti hver öðrum
og geti tjáð sig án þess að eiga á
hættu að vera niðurlægðir. Strákar
eru því miður rosa fljótir að fara í
einhvern niðurlægingaleik hver við
annan innan vinahópa. Ef einhver
er til dæmis lítill í sér þá er aðeins
potað í hann, það er rosalega fljótt
að gerast og erfitt að stoppa það.
Þessu þarf að breyta. Við setjum
okkur ekki á háan hest, heldur
nálgumst viðfangsefnið auðmjúkir.
Fyrir okkur er leikhús samtal.“
Ljósmyndir/Vigdís Perla Maack
Vinaspjall Helgi í hlutverki sínu þar sem hann leyfir tveimur vinum sínum (Ara og Andrési) að hvíla í kjöltu sér.
Tilfinningagáfu þarf að þjálfa
- Karlmenn óttast að sýna veikleika og óttast að vera gagnrýndir - Er hægt að elska sjálfan sig
þrátt fyrir eitur, veikleika, bresti og brothætta hegðun? - How to make love to a man frumsýnt
Feðgar Andrés og Ari í hlutverkum
sínum, þeir bregða sér í ýmis gervi.
Ólga er heiti sýningar sem mynd-
listarkonan Anní Mara opnar í dag,
laugardag, kl. 16 í Gallerí Kverk að
Garðastræti 37. Á sýningunni eru tíu
naumhyggjulegar ljósmyndir sem,
eins og segir í tilkynningu, fjalla um
rými „sem maður skynjar og þekkir
fullkomlega“.
Anní Mara er listamaður sem
starfar á Íslandi og í Bretlandi og
beitir ljósmyndun og skrifum í sköp-
un sinni. Myndir hennar eru sagðar
eiga „rætur í sambandi hins persónu-
lega og hins félagslega, sterklega
innblásnar af hugmyndum um mann-
fræði, arfleifð og sálfræði mannsins“.
Vegna ástandsins í Úkraínu hefur
Anní Mara ákveðið að helmingur
ágóða af seldum verkum renni til
Menningarstofnunar Úkraínu.
Sýningin er sögð innblásin af því
mikilvægi sem staðir geta haft fyrir
fólk. „Í verkunum verður til samtal
milli staðar, rýmis og minninga. Með
vinnu sinni rannsakar Anní hug-
myndina um það efnislega rými sem
einkennir ákveðinn stað en er þó
meira en eitthvað áþreifanlegt. Rými
er líka hlutgerving drauma manns;
drauma sem urðu til áður en komið
var á staðinn eða urðu til eftir að
hann var yfirgefinn. Eftir því sem
tengingin við staðinn verður dýpri
því meira fer maður að samsama sig
honum,“ segir í tilkynningunni. Og
haft er eftir Anní: „Við getum gengið
fram hjá húsi árum saman án þess að
taka eftir því, það er ekki fyrr en við
tengjum það við persónulega reynslu
sem það öðlast merkingu.
Ljósmyndir „Í verkunum verður til
samtal milli staðar, rýmis og minn-
inga,“ segir um verk Anníar Mara.
Verk um kunnug-
legt skynjað rými
- Anní Mara sýnir í Gallerí Kverk
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
Umhverfisvæna ruslapokann má
nálgast í öllum helstu verslunum
Hugsum áður en við hendum!
Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju
sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess
að valda skaða í náttúrunni.
Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum
og passar vel í ruslatunnur á heimilum.