Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Við erum að tengja saman arfleifð
Norðurlandanna og setjum í nýstár-
legan búning sem í raun máir út
landamæri,“ segir Kjartan Ólafsson
tónskáld um barnaverkið Forspil að
framtíð sem þeir Ævar Þór Bene-
diktsson standa fyrir. Það verður
frumsýnt í Norræna húsinu í dag
klukkan 15.
Verkið er blanda af sögustund og
leiksýningu þar sem fjögur ævintýri
af Norðurlöndunum eru sett á svið.
Ævintýrin koma frá Íslandi, Dan-
mörku, Grænlandi og Noregi, en
Ævar hefur þó laumað öllum
Norðurlöndunum inn í sýninguna.
„Þetta er tenging við arfleifð þessara
þjóða og við ákváðum að gera það á
mjög súrrealískan hátt. Við treyst-
um börnunum algjörlega til þess að
meðtaka þetta sem við erum að setja
fram. Þau eru algjörlega fordóma-
laus og fyrir þeim verður þetta ekk-
ert súrrealískt. Þau geta vonandi út-
skýrt þetta fyrir foreldrum sínum
eftir á. Það er ein saga sem er svolít-
ið ógnvekjandi en við treystum því
að börnin haldi í hönd foreldra sinna
og gæti þess að foreldrarnir verði
ekki of skelkaðir.“
Ævar Þór Benediktsson, leikari og
rithöfundur, hefur mikla reynslu af
því að vinna að menningarefni fyrir
börn. Bókasería hans, „Þín eigin …“,
hefur slegið í gegn, en hann hefur
einnig unnið að leikverkum, sjón-
varps- og útvarpsþáttum, tónleikum
með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
staðið að lestrarátökum.
Ísbirnir og norðurljósin óma
Hljóðmyndina hefur Kjartan unn-
ið með aðstoð gervigreindarinnar
CALMUS sem hann hefur þróað frá
árinu 1988.
„Við notum þjóðlög frá Norður-
löndunum og ég nota gervigreindina
í tvennt. Annars vegar set ég brot af
þessum þjóðlögum inn í kerfið og það
semur tónlist úr þessu, útsetur og
býr til ferska útgáfu. Hins vegar er
gervigreindin þannig að hún tengir
saman ólík hljóð og raðar þessu öllu
saman eftir mjög greindarlegri að-
ferðafræði. Með þessu getum við bú-
ið til nýja og ferska útgáfu af þessu
gamla efni, þessum tónlistararfi.
Hún tengir þetta allt saman og við
getum síðan notað gervigreindina til
þess að stýra þessu öllu í rauntíma.“
CALMUS gerir gestum sýning-
arinnar kleift að heyra ýmislegt
óvenjulegt en hljóðheimurinn er
unninn upp úr tónum og umhverfi
landanna sem sögurnar koma frá.
„Hefurðu til dæmis einhvern tím-
ann velt því fyrir þér hvernig ís-
bjarnakór myndi hljóma? Hefurðu
heyrt norðurljósin óma? Hvernig
gengur að spila á finnskt kantele á
bólakafi í Lagarfljóti á meðan ormur
reynir að éta mann?“ eins og segir í
kynningartexta um sýninguna.
„Við nýtum þessa tækni á mjög
nýstárlegan hátt til þess að tengja
saman ólíka þætti og búa til nýja
varíanta með þessum þjóðararfi,“
segir Kjartan.
„Hér er frábært listafólk sem
kemur saman. Þetta er það sem allir
eru að tala um, þetta þverfaglega
samstarf á sviði lista og birtingar-
myndin er einna best eða skýrust
þegar listirnar koma saman í svona
leikhúsverki.“
Leikkonan Svandís Dóra Ein-
arsdóttir sér um að flytja verkið.
Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir
og Jökull Jónsson hanna leikmynd
og búninga verksins og Kjartan
Darri Kristjánsson hannar lýsingu.
Leikmyndin er sögð mikilvægur
þáttur frásagnarinnar en hún um-
breytist í sýningunni og þannig
birtist meðal annars risastórt tröll,
ísbjörn og töfradúkur.
Ragnheiður Maísól Sturludóttir
og MurMur Productions framleiða
verkið og er það unnið í samstarfi
við Norræna húsið.
Forspil að framtíð er sýning fyrir
alla fjölskylduna og þá helst þá sem
eru á bilinu 4-8 ára. Sýningin er sem
áður segir sýnd í Norræna húsinu
og einungis verða tvær sýningar-
helgar, 19. & 20. mars og 26. & 27.
mars.
Arfleifð Norðurlanda
í nýstárlegum búningi
- Verkið Forspil að framtíð frumsýnt í Norræna húsinu
Ljósmynd/Owen Fiene
Ísbjörn Svandís Dóra Einarsdóttir flytur barnaverkið Forspil að framtíð
sem er í senn sögustund og leikverk. Þar blandast saman fjórar þjóðsögur.
Hótel Saga: Óstaður í tíma er yfir-
skrift sýningar sem Hákon Pálsson
opnar í Gallerí Porti, Laugavegi 32,
kl. 16 í dag, laugardag. Um er að
ræða ljósmyndaverk sem var fang-
að á einum degi í júlí 2021 þegar
hótelið hafði staðið autt í átta mán-
uði. Í verkinu er byggingin skoðuð
út frá hugmynd um órætt rými en
slíkir staðir eru, eins og segir í til-
kynningu, „á mörkunum, staðir
sem við ferðumst í gegnum, staðir
milli landamæra frá einum tilgangi
til annars. Hótel eru óræð rými,
staður sem þú ferðast í gegnum á
ferðalagi á leiðinni eitthvað annað.
Yfirgefin rými eru óræð.“
Hákon Pálsson er kvikmynda-
tökumaður, ljósmyndari og ljósa-
listamaður. Frá 2010 til 2020 var
hann búsettur í Edinborg, París og
Brussel þar sem hann lærði við Ed-
inburgh College of Art og EICAR.
Árið 2012 hlaut hann BAFTA-
viðurkenningu fyrir kvikmynda-
töku í stuttmynd og síðan hefur
hann tekið yfir 100 verkefni í á
þriðja tug landa.
Saga Hluti eins verkanna á sýningu Hákonar Pálssonar í Gallerí Porti.
Sýnir Hótel Sögu sem „óstað í tíma“
Bjargey Ólafsdóttir opnar í dag,
laugardag, kl. 16 sýningu í Gallerí
Porti, laugavegi 32, sem hún kallar
Draugahund. Á sýningunni eru tólf
ljósmyndir af samoyed-hundum en í
tilkynningu segir að þeir líkist nán-
ast draugum en þeir voru upphaf-
lega ræktaðir til að veiða, draga
sleða, og smala hreindýrum.
„Hver er þessi hundur? Hund-
urinn í okkur?“ spyr Bjargey.
Bjargey lærði ljósmyndun,
málaralist og blandaða tækni í MHÍ
og Listakademíinu í Helsinki, og
handritsgerð og leikstjórn í Binger
Filmlab í Amsterdam. Hún vinnur í
fjölbreyttum miðlum, og verður,
eins og segir í tilkynningunni, út-
koman oft í formi íronískra verka,
stundum ofbeldisfullra eða
óhugnanlegra, og sækir hún inn-
blástur í þráhyggjur og fantasíur
nútímalífs. Hún hefur gert nokkrar
kvikmyndir og hefur sýnt verk sín
víða, til dæmis í Listasafni Reykja-
víkur og Nýlistasafninu.
Bjargey sýnir myndir af draugahundi
Draugur? Eitt verka Bjargeyjar Ólafsdóttur
á sýningunni sem verður opnuð í dag.
Tuttugu árum eftir að borin voru
kennsl á höggmynd úr marmara í
Bretlandi, og sérfræðingar stað-
festu að þar væri komið löngu týnt
meistaraverk eftir Canova, þá er
verkið á leið á uppboð og getur þar
mögulega selst fyrir þúsundfalda
upphæðina sem þá var greitt fyrir
það. Hjón sem keyptu verkið fyrir
um 900 þúsund íslenskra króna, án
þess að vitað væri hver höfund-
urinn var, geta búist við því að selja
það nú fyrir átta milljónir punda,
rúmlega 1,1 milljarð króna.
Höggmyndin Maddalena Gia-
cente var ein sú síðasta sem Ítalinn
Antonio Canova, einn dáðasti
myndhöggvari sinnar samtíðar,
lauk við fyrir andlát sitt fyrir 200
árum en hún sýnir sorgbitna Maríu
Magdalenu. Verkið var pantað af
Lord Liverpool, þáverandi for-
sætisráðherra Breta, sem var mikill
listunnandi og stofnaði National
Gallery í London. Eftir andlát hans
erfðu afkomendur verkið og með
tímanum hefur gleymst hver væri
höfundur höggmyndarinnar, sem
var lengi í garði við ættaróðalið.
Verkið gekk nokrum sinnum kaup-
um og sölum en það var fyrir um
tveimur áratugum sem núverandi
eigendur tók að gruna að það væri
löngu týnt meistaraverk Canova og
fengu það staðfest frá sérfræð-
ingum. Listfræðingar hafa leitað
þess áratugum saman en eftirmynd
úr gifsi er til á Ítalíu.
Löngu týnt meistaraverk eftir Canova
komið í leitirnar og verður boðið upp
Happafundur Starfsmenn Christie’s undirbúa hið nýfundna meistaraverk Canona fyrir
sýningu í uppboðshúsinu. Talið er að allt að milljarður króna muni fást fyrir höggmyndina.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 4. apríl
Páskablað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 8. apríl
Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrum
gómsætumréttumásamtpáskaskreytingum,
páskaeggjum, ferðalögumogfleira.