Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 60
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur hlotið Palle
Rosenkrantz-verðlaunin 2022 fyrir bestu þýddu glæpa-
söguna í Danmörku. Þau fær hann fyrir þríleik sinn um
lögreglukonuna Huldu, Dimmu, Drunga og Mistur.
Palle Rosenkrantz-verðlaunin hafa verið veitt frá
árinu 1987. Þetta er aðeins í annað skipti sem höfundur
hlýtur þau fyrir fleiri en eina bók en Ruth Rendell fékk
þau árið 1994 fyrir Crockodile Bird og King Sal-
omon‘s Carpet.
Ragnar er annar íslenski höfundurinn
sem hlýtur verðlaunin. Yrsa Sigurðardóttir
var verðlaunuð árið 2017 fyrir DNA.
Í umsögn dómnefndar segir: „Í þríleik
Ragnars, Dimmu, Drunga og Mistri,
eru bæði náttúra og íbúar Íslands
lífshættuleg, sérstaklega úti í
auðninni þar sem enginn heyrir
þegar hrópað er á hjálp. […]
Meistaraverk sem einnig hefur
hlotið alþjóðlega viðurkenn-
ingu.“
Ragnar hlýtur dönsk glæpasagna-
verðlaun fyrir Huldu-þríleik sinn
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Systkinin Björgvin og Vigdís Finns-
börn hafa verið með fjölskyldurekst-
ur í Kaupmannahöfn undanfarin 15
ár og hefur gengið á ýmsu. Þegar
mest var ráku þau átta Boutique
Fisk-verslanir og sjö Retreat-
veitinga- og kaffistaði, en um ára-
mótin lokuðu þau síðasta Retreat-
staðnum og hafa einbeitt sér að
tveimur fiskbúðum síðan. „Kórónu-
veirufaraldurinn hefur farið illa með
reksturinn, þetta hefur verið rússí-
bani upp og niður en nú er farið að
birta til á ný,“ segir Björgvin.
Vigdís flutti út 1999, kynntist og
giftist Jesper Lehmann og var sér-
kennari þar til þau opnuðu fyrstu
Boutique Fisk-verslunina í Freder-
iksberg 2007. „Jesper og Björgvin
voru eitt sinn í maraþoni hérna og
eftir að hafa hlaupið um allt fengu
þeir þessa hugmynd,“ segir hún.
Björgvin lærði meðal annars í Dan-
mörku, lék handbolta og fótbolta
með KR og Gróttu og var yfirþjálf-
ari knattspyrnudeildar og íþrótta-
fulltrúi Gróttu ásamt því að kenna
við grunnskólann á Seltjarnarnesi
þegar ákvörðun um reksturinn var
tekin.
Í rekstrinum af lífi og sál
„Mig langaði alltaf til þess að
flytja hingað aftur og hugmyndin
varð að veruleika eftir að hafa þróast
í um tvö ár.“ Hann tók Kristján Har-
aldsson kokk, sem hann þekkti frá
því á árum áður úr fótboltanum, með
sér og þau settu allt í fyrirtækið.
„Um þremur mánuðum eftir að við
opnuðum verslunina bauð Jón
Björnsson, þáverandi forstjóri
Magasin du Nord, okkur að vera í
kjallara magasínsins og við höfum
verið þar síðan en á fyrstu þremur
árunum opnuðum við sjö búðir til
viðbótar.“ Hin verslunin sem eftir er
er í mathöllinni Torvehallerne.
Upphaflega stóð til að bjóða upp á
ferskan íslenskan fisk en fljótlega
fóru þau út í ákveðna sérhæfingu og
hafa síðan fyrst og fremst boðið upp
á danskar fiskibollur með rúgbrauði,
remúlaði og kartöflusalati í mathöll-
inni, en líka ferskan fisk, tapasrétti
og tilbúna fiskrétti til þess að setja í
ofninn í Magasin du Nord. „Við er-
um eins og Bæjarins beztu pylsur á
Íslandi, fólk kemur til okkar til þess
að fá fiskibollur,“ segir Björgvin og
bendir á að þau hafi fjórum sinnum
verið á Hróarskelduhátíðinni og selt
þar um 1.500 stykki á dag.
Í báðum verslunum er hægt að
borða á staðnum eða taka fiskinn
með sér. Retreat byrjaði fyrir um
sjö árum og var meðal annars á
Kastrupflugvelli. Þar var boðið upp
á kaffi, samlokur, súpur, skyr og
grauta. „Til að byrja með vorum við
bara þrjú með reksturinn og einn
starfsmann en þegar Retreat var í
sem mestum blóma vorum við með
tæplega 100 starfsmenn. Nú eru
þeir rúmlega 20, flestir danskir og
íslenskir nemendur í hlutastarfi, og
Arndís Anna, önnur dóttir mín, er
verslunarstjóri á stað okkar í Torve-
hallerne.“
Erfiðleikarnir í rekstrinum hafa
vissulega tekið á og Björgvin segir
að þau hafi þurft að fórna miklu til
þess að láta dæmið ganga upp. „Við
höfum lagt líf og sál í þetta, Bout-
ique Fisk er opin alla daga þannig að
vinnudagurinn er langur og viðveran
mikil.“ Hann bætir við að þótt öllum
takmörkunum vegna veirunnar hafi
verið hætt hafi tekið tíma að ná fyrri
dampi. „Fólk hafði áfram varann á
en um leið og fór að hlýna í byrjun
mars færðist meira líf í allt og nú er
gangurinn ágætur.“
Fiskibollur á sínum stað
- Hafa rekið Boutique Fisk í Kaupmannahöfn í 15 ár
Í Torvehallerne Feðginin Arndís Anna og Björgvin Finnsson.
Á Hróarskelduhátíð Jesper Lehmann, Vigdís Finnsdóttir og Björgvin.
LAUGARDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta,
virðist vera búinn að finna út nokkurn veginn þann hóp
sem skipar liðið í næstu verkefnum. Hópurinn sem
hann valdi í gær fyrir leikina gegn Finnum og Spánverj-
um er sáralítið breyttur frá því í nóvember en þó bætist
Hörður Björgvin Magnússon við á ný. »50
Kjarninn fyrir næstu verkefni klár
ÍÞRÓTTIR MENNING