Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 60
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur hlotið Palle Rosenkrantz-verðlaunin 2022 fyrir bestu þýddu glæpa- söguna í Danmörku. Þau fær hann fyrir þríleik sinn um lögreglukonuna Huldu, Dimmu, Drunga og Mistur. Palle Rosenkrantz-verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987. Þetta er aðeins í annað skipti sem höfundur hlýtur þau fyrir fleiri en eina bók en Ruth Rendell fékk þau árið 1994 fyrir Crockodile Bird og King Sal- omon‘s Carpet. Ragnar er annar íslenski höfundurinn sem hlýtur verðlaunin. Yrsa Sigurðardóttir var verðlaunuð árið 2017 fyrir DNA. Í umsögn dómnefndar segir: „Í þríleik Ragnars, Dimmu, Drunga og Mistri, eru bæði náttúra og íbúar Íslands lífshættuleg, sérstaklega úti í auðninni þar sem enginn heyrir þegar hrópað er á hjálp. […] Meistaraverk sem einnig hefur hlotið alþjóðlega viðurkenn- ingu.“ Ragnar hlýtur dönsk glæpasagna- verðlaun fyrir Huldu-þríleik sinn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Systkinin Björgvin og Vigdís Finns- börn hafa verið með fjölskyldurekst- ur í Kaupmannahöfn undanfarin 15 ár og hefur gengið á ýmsu. Þegar mest var ráku þau átta Boutique Fisk-verslanir og sjö Retreat- veitinga- og kaffistaði, en um ára- mótin lokuðu þau síðasta Retreat- staðnum og hafa einbeitt sér að tveimur fiskbúðum síðan. „Kórónu- veirufaraldurinn hefur farið illa með reksturinn, þetta hefur verið rússí- bani upp og niður en nú er farið að birta til á ný,“ segir Björgvin. Vigdís flutti út 1999, kynntist og giftist Jesper Lehmann og var sér- kennari þar til þau opnuðu fyrstu Boutique Fisk-verslunina í Freder- iksberg 2007. „Jesper og Björgvin voru eitt sinn í maraþoni hérna og eftir að hafa hlaupið um allt fengu þeir þessa hugmynd,“ segir hún. Björgvin lærði meðal annars í Dan- mörku, lék handbolta og fótbolta með KR og Gróttu og var yfirþjálf- ari knattspyrnudeildar og íþrótta- fulltrúi Gróttu ásamt því að kenna við grunnskólann á Seltjarnarnesi þegar ákvörðun um reksturinn var tekin. Í rekstrinum af lífi og sál „Mig langaði alltaf til þess að flytja hingað aftur og hugmyndin varð að veruleika eftir að hafa þróast í um tvö ár.“ Hann tók Kristján Har- aldsson kokk, sem hann þekkti frá því á árum áður úr fótboltanum, með sér og þau settu allt í fyrirtækið. „Um þremur mánuðum eftir að við opnuðum verslunina bauð Jón Björnsson, þáverandi forstjóri Magasin du Nord, okkur að vera í kjallara magasínsins og við höfum verið þar síðan en á fyrstu þremur árunum opnuðum við sjö búðir til viðbótar.“ Hin verslunin sem eftir er er í mathöllinni Torvehallerne. Upphaflega stóð til að bjóða upp á ferskan íslenskan fisk en fljótlega fóru þau út í ákveðna sérhæfingu og hafa síðan fyrst og fremst boðið upp á danskar fiskibollur með rúgbrauði, remúlaði og kartöflusalati í mathöll- inni, en líka ferskan fisk, tapasrétti og tilbúna fiskrétti til þess að setja í ofninn í Magasin du Nord. „Við er- um eins og Bæjarins beztu pylsur á Íslandi, fólk kemur til okkar til þess að fá fiskibollur,“ segir Björgvin og bendir á að þau hafi fjórum sinnum verið á Hróarskelduhátíðinni og selt þar um 1.500 stykki á dag. Í báðum verslunum er hægt að borða á staðnum eða taka fiskinn með sér. Retreat byrjaði fyrir um sjö árum og var meðal annars á Kastrupflugvelli. Þar var boðið upp á kaffi, samlokur, súpur, skyr og grauta. „Til að byrja með vorum við bara þrjú með reksturinn og einn starfsmann en þegar Retreat var í sem mestum blóma vorum við með tæplega 100 starfsmenn. Nú eru þeir rúmlega 20, flestir danskir og íslenskir nemendur í hlutastarfi, og Arndís Anna, önnur dóttir mín, er verslunarstjóri á stað okkar í Torve- hallerne.“ Erfiðleikarnir í rekstrinum hafa vissulega tekið á og Björgvin segir að þau hafi þurft að fórna miklu til þess að láta dæmið ganga upp. „Við höfum lagt líf og sál í þetta, Bout- ique Fisk er opin alla daga þannig að vinnudagurinn er langur og viðveran mikil.“ Hann bætir við að þótt öllum takmörkunum vegna veirunnar hafi verið hætt hafi tekið tíma að ná fyrri dampi. „Fólk hafði áfram varann á en um leið og fór að hlýna í byrjun mars færðist meira líf í allt og nú er gangurinn ágætur.“ Fiskibollur á sínum stað - Hafa rekið Boutique Fisk í Kaupmannahöfn í 15 ár Í Torvehallerne Feðginin Arndís Anna og Björgvin Finnsson. Á Hróarskelduhátíð Jesper Lehmann, Vigdís Finnsdóttir og Björgvin. LAUGARDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, virðist vera búinn að finna út nokkurn veginn þann hóp sem skipar liðið í næstu verkefnum. Hópurinn sem hann valdi í gær fyrir leikina gegn Finnum og Spánverj- um er sáralítið breyttur frá því í nóvember en þó bætist Hörður Björgvin Magnússon við á ný. »50 Kjarninn fyrir næstu verkefni klár ÍÞRÓTTIR MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.