Fréttablaðið - 22.04.2022, Page 1
Það þarf að stoppa
svona menn.
Jóhannes Þór Jóhannesson,
ellilífeyrisþegi
7 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 2 . A P R Í L 2 0 2 2
Fagnar
frumrauninni
Lagafróða
ljóskan á svið
Tímamót ➤ 12 Lífið ➤ 20
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Er bíllinn klár
í ferðalagið?
Ferðabox, kajakfestingar, hjólafestingar og margt fleira Menabo farangursbox
320 ltr, Mania, svart
Verð 44.990 kr.
Skíðafesting á topp
4 skíði eða 2 snjóbretti
Verð 24.890 kr
Þriggja hjóla festing á krók
Burðargeta 60 kg, hallanleg
Verð 89.900 kr.
Reiðhjólafesting á topp
Burðargeta 15 kg
Verð 18.900 kr.
lyaver.is
Heimsending
um land allt
Forkólfar bílasölunnar
Bensinlaus.is eru sakaðir um
stórfelld svik af fyrrverandi
starfsmönnum og ellilífeyris-
þegi sem keypti af þeim bíl
fyrir þremur mánuðum fær
engin svör um hvar hann er.
ser@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Fyrrverandi starfsmenn
bílasölunnar Bensinlaus.is saka for-
kólfa hennar um stórfelld og alvar-
leg svik á hendur viðskiptavinum
sem fái ekki í hendur þá rafbíla sem
þeir hafi greitt fyrir – og í sumum
tilvikum staðgreitt.
Þetta þekkir Jóhannes Þór Jóhann-
esson, ellilífeyrisþegi sem hefur ekki
enn séð nýjan Ford Mustang sem
hann keypti af Bensinlaus.is fyrir
rúmum þremur mánuðum, þann
11. janúar síðastliðinn. Hann greiddi
bílasölunni 1,5 milljónir við undir-
skrift samningsins og afganginn, 6,4
milljónir, fjórum dögum seinna.
„Bílasalarnir svara ekki í síma og
munu núna vera komnir til Mar-
bella á Spáni,“ segir Jóhannes Þór
sem hefur reynt að rifta sölunni án
árangurs. Lögmaður hans vinnur
að málinu sem hefur verið tilkynnt
til lögreglu og er aðgerða af hennar
hálfu að vænta, að sögn Jóhannesar
Þórs.
Fjórir lykilstarfsmenn bílasöl-
unnar gengu nýverið á dyr vegna
þessara viðskiptahátta, en þar eru
á ferðinni aðstoðarframkvæmda-
stjóri, sölustjóri, innkaupastjóri og
mannauðsstjóri.
„Við vitum að stjórnendur Bens-
inlaus.is eru að sýna viðskipta-
vinum verksmiðjupantanir á bílum
úti á meginlandi Evrópu sem enginn
fótur er fyrir, en með eftirgrennslan
vegna nokkurra svona tilvika komst
ég að því að engin pöntun lá fyrir,“
segir Jóhanna Pálsdóttir, fyrrver-
andi innkaupastjóri hjá bílasölunni.
Gísli Þór Gíslason, fyrrverandi
sölustjóri hjá Bensinlaus.is, stað-
festir þessa sögu og segir að hluti
svikanna sé að seinka ítrekað
afhendingu bílanna hér á landi. „Ég
hef staðfestar heimildir fyrir því að
bílar eins og Jóhannesar Þórs sem
áttu að vera á hafnarkantinum í
Bandaríkjunum og biðu lestunar
um borð í skip Eimskips, að sögn,
voru ekki á staðnum.“ Hann bætir
því við að forvígismenn Eimskips
hafi sent starfsmann til að athuga
hvort hér hafi verið um mistök að
ræða, en reyndin hafi verið sú að
engir bílar á vegum Bensinlaus.is
hafi verið skráðir á hafnarsvæðið.
„Það þarf að stoppa svona menn,“
segir Jóhannes Þór sem enn veit
ekkert hvort hann fær bíl sinn frá
Ameríku eða getur rift kaupunum.
„Það á að loka reikningum þeirra.“
Ívar Máni Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Bensinlaus.is, svar-
aði ekki símtölum blaðsins fyrir
prentun þess í gærkvöld. ■
Saka bílasölu um að selja bíla sem eru ekki til
Börnin börðu bumbur á einum af mörgum viðburðum Big Bang hátíðarinnar í Hörpu í gær. Markmið hátíðarinnar, sem komið var á fót árið 2010, er að auka aðgengi barna að tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI