Fréttablaðið - 22.04.2022, Síða 2

Fréttablaðið - 22.04.2022, Síða 2
Boltinn rúllar af stað TM-mót Stjörnunnar, fyrsta stórmót sumarsins, hófst í Garðabænum í gær en því líkur á sunnudag. Hér má sjá pilta úr 6. flokki Gróttu og Aftureldingar takast á en einnig er keppt í kvennaflokki og í 7. og 8. flokkum. Spilaður er fimm manna bolti og hver leikur er klukkutími. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Honum þótti ofboðs- lega vænt um að koma til Íslands og fann ræturnar hér. KK, tónlistar- maður Tónlistarmaðurinn Bill Bourne er látinn, 68 ára að aldri. Bill átti íslenskar rætur og starfaði mikið með KK og hinni færeysku Eivøru Páls- dóttur. kristinnhaukur@frettabladid.is TÓNLIST Vestur-íslenska söngva- skáldið Bill Bourne lést á laugardag- inn eftir erfiða baráttu við krabba- mein. Hinn kanadíski Bourne, sem bjó í borginni Edmonton, ræktaði ræturnar hér á Íslandi og starfaði meðal annars með KK og Eivøru Pálsdóttur. „Tónlist Bills mun koma til með að lifa áfram,“ segir KK sem lýsir Bill sem góðum vini sínum. „Hann setti hjartað í allt sem hann gerði og lifði fyrir tónlistina.“ Bill, sem hét fullu nafni William Sigurd Bourne, var 68 ára gamall þegar hann lést úr krabbameini í blöðru og nýrum. Hann hafði barist við sjúkdóminn í tvö ár. Hann var fæddur í bænum Red Deer í Alberta- fylki, langafabarn skagfirska skálds- ins Stephans G. Stephanssonar sem hélt til Vesturheims árið 1873. Hann spilaði tónlist í þjóðlaga- stíl og var undir áhrifum tónlistar- fólks eins og Bobs Dylan og Joni Mitchell. En einnig var hann opinn fyrir öðrum áhrifum, til að mynda bandarískum blús, spænskum flam- engo og keltneskri og afríski þjóð- lagatónlist. Í Morgunblaðinu 2001 lýsti Bill Graceland, plötu Pauls Simon, sem tímamótaverki. Þar hafi mörgum menningarstraumum verið att saman og haft mikil áhrif á hann. Bill gaf út sína fyrstu plötu árið 1981 sem hét einfaldlega Bill Bourne. Tíu sólóplötur fylgdu í kjölfarið og annað eins með ýmsum hljómsveit- um og tónlistarfólki. Ein af þeim var platan Eivør & Bill, sem hann gerði með færeysku söngkonunni og kom út árið 2004. Platan vann til nokk- urra verðlauna í Danmörku. KK segir Bill hafa verið einstak- an gítarleikara og varla hafa lagt gítarinn frá sér. Fyrir alla tónleika hafi hann æft sig af kappi og verið „í mómentinu“. Hann minnist þeirra tónleika sem þeir komu fram á, fyrir um tveimur áratugum síðan, til dæmis á Rosenberg, í Salnum í Kópavogi og á landsbyggðinni. „Honum þótti of boðslega vænt um að koma til Íslands og fann ræt- urnar hér,“ segir KK. Bill hafi verið mikill náttúruunnandi og eftir- minnilegasta stundin þegar þeir fóru saman „út á æðruleysinu“. Bill hafi líka verið einstaklega laginn maður með vélar, bílaáhugamaður sem ferðaðist um á gömlum kádilj- ákum og kunni að gera við þá. „Ég fór með hann út á sjó að veiða. Hann elskaði það,“ segir KK. n Hinn vestur-íslenski Bourne fallinn fyrir krabbameininu Bill Bourne á tónleikum á leikvangi íshokkíliðsins Edmonton Oilers árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir segir Ísland komið á góðan stað hvað varðar Covid-faraldurinn. Fjöldi fólks sé þó smitaður af inflúensu sem sé sér- staklega skæð í ár. Ástæðan sé meðal annars sú að ekki hafi komið upp inflúensufar- aldur á síðasta ári vegna þeirra sam- komutakmarkana og sóttvarnaað- gerða sem þá voru í gangi. Nú fái hún að ganga laus. „Inflúensan er seinna á ferðinni í ár en vanalega og eins og við bjugg- umst við er hún skæð,“ segir Þór- ólfur. „Og eins og við bjuggumst líka við er mikið af ungu fólki og börnum að smitast,“ bætir hann við. Þórólfur segir bólusetningu gegn inf lúensunni ekki virðast veita mikla vörn gegn því afbrigði flens- unnar sem nú sé í gangi, það verði að koma í ljós hversu vel bólusetn- ingin verndi gegn öðrum afbrigðum hennar. „Þetta er ekki búið, yfirleitt ganga þrjú afbrigði flensunnar yfir og við erum enn þá á því fyrsta. Hvort þau verði f leiri verður að koma í ljós,“ segir Þórólfur. Spurður að því hvort þeir ein- staklingar sem smitist nú af inflú- ensu séu ólíklegri en aðrir til að smitast af öðru af brigði hennar segir Þórólfur svo ekki vera. „Maður getur smitast aftur, smit gegn einu af brigði verndar ekki gegn öðru,“ segir hann. n Fyrsta afbrigði inflúensunnar skætt Þórólfur Guðnason, sótt- varnalæknir benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR Vegagerðin vinnur nú að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land. Holur myndast þegar vatn liggur í vegum. Þegar vatn frýs eykst rúmmál þess og þegar það þiðnar aftur er malbikið upp- spennt. „Ef þungur bíll ekur þar yfir og brýtur það niður getur hola myndast mjög hratt,“ segir Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður á mannvirkjasviði Vegagerðarinnar. Hann bendir á að holur séu ekki séríslenskt fyrirbæri. „Við hér á Íslandi erum ekki ein um að berjast við holur þegar vorið kemur með sínum leysingum. Ég hef fengið fréttir frá kollegum mínum um allan heim og þetta er alls staðar. Hins vegar erum við illa sett núna eftir mjög þungan vetur,“ segir hann. Ekki er hægt að koma alveg í veg fyrir að holur myndist, að sögn Birkis Hrafns. „En það er hægt að minnka það,“ segir hann. n Margar vegaholur eftir erfiðan vetur Viðgerðir á holum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 Fréttir 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.