Fréttablaðið - 22.04.2022, Page 14

Fréttablaðið - 22.04.2022, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Vatnsdropinn er alþjóðlegt sam- starfsverkefni sem Kópavogsbær stofnaði til í samstarfi við H.C. Andersen-safnið í Danmörku, Múmínsafnið í Finnlandi og Undraheim Ilon Wikland í Eist- landi en Ilon Wikland skóp mynd- heiminn í mörgum af bókum Astrid Lindgren. Verkefnið er til þriggja ára og snýst um að valdefla börn, gera þau að virkum þátttak- endum í starfi menningarstofnana sem ungum sýningarstjórum og vinna að menningarverkefnum fyrir börn. Vatnsdropinn hverfist um norrænar barnabókmenntir í tengslum við Heimsmarkmið Sam- einuðu þjóðanna og umhverfis- mál. Listahátíðin á morgun er afrakstur vinnu ungra sýningar- stjóra en þar hafa börnin notið leiðsagnar Jóhönnu Ásgeirsdóttur listakonu. Ljóðabók náttúrunnar Héðinn Halldórsson og Agla Björk Egilsdóttir settu saman Ljóðabók náttúrunnar með myndum eftir Héðin og ljóðum eftir Öglu. Bókina verður hægt að sjá á Bókasafni Kópavogs á listahátíðinni. Þau segj- ast bæði hafa viljað gera verkefni sem tengdist fuglum og náttúru. „Héðinn var ákveðinn í að teikna fugla og ég vildi skrifa um þá svo við ákváðum að gera ljóða- bók saman,“ útskýrir Agla. „Við fórum í göngutúr einn daginn allur hópurinn og skoðuðum náttúruna sem sögupersónu, eins og við værum að uppgötva hana í fyrsta sinn og það var mjög skemmtilegt.“ Héðinn bætir við að honum finnist fuglar mjög áhugaverðir. Þau hafi byrjað á að lesa og kynnast náttúrunni og fuglategundum á Íslandi en síðan viljað skapa sitt eigið verkefni. „Við þurfum að þekkja náttúruna á Íslandi til að geta verndað hana og það er til fleiri en ein leið til þess. Náttúran er áhugaverð ef þú gefur þér tíma til að skoða hana.“ Þau hvetja alla krakka til að gefa náttúrunni gaum og skoða hana sem sögupersónu, hvað hún hafi að segja og hvernig henni líði. „Svo ætla ég að vera með skúlp- túrvinnusmiðju fyrir alla á morgun þar sem hægt verður að skapa skúlptúra úr afgangsefni. Þar ætla ég að breyta gömlum stól í dýr,“ segir Héðinn. Óboðinn gestur; ljósmynda­ sýning og listræn plokkáskorun Þær Inga Bríet Valberg og Þóra Sif Óskarsdóttir sýna ljósmyndir sem hverfast um ruslið í náttúrunni en verkin verður hægt að sjá á neðri hæð Gerðarsafns. „Sýningin heitir Óboðinn gestur því að ruslið er ekki velkomið inn á heimili náttúrunnar,“ segja þær um ljósmyndir sínar sem þær tóku af rusli á víðavangi, ímynduðu sér að þær væru náttúran og að nátt- úran fengi rödd. „Við viljum að þú horfir á mynd- irnar og ímyndir þér sögu ruslsins,“ segir Þóra Sif og Inga Bríet bætir við að þær vilji líka spyrja spurninga eins og hvernig og hvenær ruslið hafi endað þarna, hvernig fólki líði við að horfa á ljósmyndirnar og hvort það sjái munstur í ljósmynd- unum. Þær segja að allir geti farið út og tekið myndir af því sem þeir sjá daglega í hversdeginum og hvetja alla til að nýta tækifærið nú þegar plokkdagurinn er fram undan og taka myndir af óboðnum gestum í náttúrunni, merkja þær #vatns- dropinn og búa þannig til listsýn- ingu á samfélagsmiðlum. „Markmiðið með sýningunni okkar er að gera ógeðið fallegt,“ segja þær báðar einum rómi að lokum. Matargat Matargat er niðurstaða skapandi ferlis sem ungu sýningarstjórarnir Brynja S. Jóhannsdóttir og Sigurlín Viðarsdóttir fóru í gegnum með ýmsum sérfræðingum og lista- mönnum. Ferlið hófst þegar þær tengdu sögur H.C. Andersen sem fjalla um náttúruna sem söguper- sónur við Heimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna og umhverfismál. „Við vildum vita meira um mat, hvaðan hann kemur, hvaða áhrif matarframleiðsla hefur á umhverfið og hvernig hægt er að minnka mengun af völdum matar- framleiðslu,“ útskýrir Sigurlín. Á þessari vegferð kynntust þær lífrænni ræktun. Hvort sem valið er að kaupa lífrænt eða rækta heima hjá sér áttuðu þær sig á að þetta er miklu einfaldara en maður heldur. Þannig settu þær saman bækling- inn Matargat til að fleiri gætu lesið sér til um það sem þær lærðu hjá sérfræðingunum. „Matargat er bæklingur fyrir krakka til að læra um lífræna ræktun, fræ og hve langan tíma það getur tekið að rækta,“ segir Brynja og bætir við: „Og svo verðum við með vinnusmiðju þar sem við gefum fræ og ráð fyrir alla krakka sem vilja læra um ræktun.“ Matargat er hvatning þeirra Sigurlínar og Brynju til barna og fullorðinna um að hugsa betur út í það hvaðan maturinn okkar kemur og gera kröfu um að hann mengi sem minnst. Hlaðvarpið Dropinn Þegar ungu sýningarstjórarnir veltu náttúrunni fyrir sér fóru nokkrir þeirra að skoða dýravernd og spyrja spurninga um dýr á Íslandi sem eru í útrýmingarhættu. Krakkarnir skoðuðu bækur á Bókasafni Kópa- vogs, hittu sérfræðinga um mál- efnið og ræddu uppáhaldsdýrin sín. Hópurinn stækkaði og að lokum var ákveðið að vinna að hlaðvarpi þar sem hægt væri að spyrja sér- fræðinga og leyfa öðrum að læra um dýr og vistkerfið í leiðinni. Það eru þær Ágústa Lillý Valdi- marsdóttir, Birta Mjöll Birgisdóttir, Elena Ást Einarsdóttir, Karen Sól Heiðarsdóttir, Lóa Arias, Matt- hildur Daníelsdóttir og Sóllilja Þórðardóttir sem stýra hlaðvarpinu Dropanum. „Okkur er annt um dýr og vildum læra meira um þau,“ segir Sóllilja. Birta segir að hún hafi alltaf verið hrifin af dýrum. „Þegar við fórum að tala um dýr og náttúruna þá vildi ég vera með í þeim hópi.“ „Við skrifuðum spurningar og ræddum svo við Jóhannes líffræð- ing og tókum svo hlaðvarpið upp sjálfar,“ útskýrir Matthildur. Þær segjast allar hafa lært mikið um dýr í útrýmingarhættu á Íslandi því það sé svo sjaldan talað um þau – bara þessi í útlöndum. Upptökur úr hlaðvarpinu verður hægt að finna víðs vegar um Nátt- úrufræðistofu Kópavogs og Bóka- safn Kópavogs. Listahátíðin verður opnuð á morgun, laugardag, klukkan 12 og stendur til klukkan 15. Sýningar hinna ungu sýningarstjóra standa uppi næstu vikuna og hvetjum við alla til að kíkja við. Það er svo gaman að segja frá því að Lína Langsokkur ætlar að koma klukkan 14 á listahátíðina og vera með leiðsögn um hátíðarsvæðið, eins og henni einni er lagið. ■ Frá vinstri: Elena Ást, Karen Sól, Ágústa Lillý, Lóa og Sóllilja bjóða upp á hlað- varpið Dropann, um dýr í útrým- ingarhættu. Á myndina vantar Birtu Mjöll. Þóra Sif og Inga Bríet með ljós- myndirnar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Héðinn og Agla Björk skrifuðu Ljóða- bók náttúrunnar og myndskreyttu. Brynja og Sigurlín unnu með lífræna ræktun og matarsóun. Gæðum venjulega hluti töfrum og uppgötvum töfrana í umhverfinu okkar. Á Vatnsdropahátíðinni sést hvernig menning og umhverfismál tvinnast saman, hvernig ástsæl ævintýri hafa boðskap að bera um hvernig við eigum að koma fram við hvert annað og náttúruna. Hvað gerist þegar við hugsum um náttúruna sem sögupersónu, söguhetju, í staðinn fyrir sögusvið? Lína Langsokkur verður með leiðsögn um hátíðina kl. 14:00 23. a príl Kl. 1 2– 15 # va tn sd ro p in n SMIÐJUR SKÚLPTÚRSMIÐJA - ÚTISVÆÐI Umbreytum ónýtum húsgögnum, afsöguðum greinum og afgangstimbri í ævintýrapersónur og furðuskepnur. MATARGAT - ÚTISVÆÐI Hvaðan kemur maturinn okkar? Hvað getum við ræktað heima, í garðinum eða stofuglugganum? Forvitnileg smiðja um hringrás lífrænnar ræktunar þar sem við sáum fræjum og smökkum. FUGLASMIÐJA - BÓKASAFN Nýtum fundin efni til að föndra fugla og fræðumst um íslenskt lífríki í leiðinni. LAUFSKRÚÐ TRJÁNNA - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Rannsökum blaðför og fræðumst um tré í skemmtilegri uppgötvunarsmiðju. FANN ÉG Á FJALLI - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Skreytum og málum okkar eigin töfrasteina. HÉR Á ÉG HEIMA - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Hver býr hvar? Finnum búsvæði dýra og plantna í íslenskri náttúru. SÝNINGAR ÓBOÐINN GESTUR - GERÐARSAFN Ljósmyndasýning og listræn plokkáskorun. LJÓÐABÓK NÁTTÚRUNNAR - BÓKASAFN Lifandi bókverk. DROPINN - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Hlaðvarp um lífríki Íslands og dýr í útrýmingarhættu. MATARGAT - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Viltu rækta mat heima? Byrjaðu hér! TÓNLEIKAR JAZZBADASS - SALURINN KL. 13:00 Jazzsögustund fyrir fjölskyldur, fróðleiksmolar, landa- fræði og spurningakeppni þar sem sigurvegarinn er krýndur jazzbadass! 2 kynningarblað A L LT 22. apríl 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.