Fréttablaðið - 22.04.2022, Side 16

Fréttablaðið - 22.04.2022, Side 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652. Rafhlaupahjól eru að verða mjög vinsæll ferðamáti þar sem fleiri og fleiri átta sig á kostum þeirra, sem eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Gottskálk Daði Bernhöft Reynisson 2 kynningarblað 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURÚT AÐ HJÓLA Torrot hjól eru mjög vönduð evrópsk hjól sem eru þægileg og auðveld í notkun. Hjá Þrumunni er hægt að fá allan nauðsynlegan aukabúnað. Super Soco hjólin eru mjög vinsæl og vönduð rafmótorhjól. Gottskálk segir að helsta áherslan hjá Þrumunni sé á rafhlaupahjól og að úrvalið sé eitt það breið- asta á Íslandi, en Þruman er innflytjandi og umboðsaðili fyrir fimm mis- munandi merki. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Þruman er sérverslun með farartæki framtíðarinnar. Helsta áhersla Þrumunnar eru rafhlaupa- hjól og er úrvalið eitt það breiðasta á Íslandi. Þruman er innflytjandi og umboðsaðili fyrir fimm mis- munandi rafhlaupahjólamerki og selur rafhlaupahjól á breiðu verðbili, frá 69.990 krónum og upp í 599.990 krónur, en auk þess selur Þruman rafmótorhjól og rafdrifin mótorkrosshjól fyrir börn 3 til 11 ára. „Þruman var opnuð vorið 2019 og frá fyrsta degi hefur stefna okkar verið að selja vandaðar vörur á góðu verði, veita einstaka þjónustu og að setja þarfir við- skiptavinarins í fyrsta sætið,“ segir Gottskálk Daði Bernhöft Reynis- son, innkaupa- og viðskiptastjóri Þrumunnar. Vilja uppfylla þarfir viðskiptavina „Við kappkostum að öll þjónusta sé eins fullkomin og hægt er. Þetta þýðir að við eyðum góðum tíma með hverjum viðskiptavini til að tryggja að hver og einn gangi út með hjól sem hentar, í staðinn fyrir að reyna að selja öllum dýrasta hjólið,“ segir Gottskálk. „Markmið- ið er að hjá okkur finni allir hjól við sitt hæfi, sem hentar notkunar- mynstri og þörfum þeirra. Við leggum mikla áherslu á að segja satt og rétt frá, þar sem hornsteinn þjónustunnar okkar er að allir viðskiptavinir séu vel upplýstir varðandi hjólið sem á að kaupa og hafi ekki óraunhæfar væntingar til hjólsins,“ segir Gott- skálk. „Við leggjum einnig ríka áherslu á skjóta og góða þjónustu ef eitthvað kemur upp á. Það felur í sér stuttan biðtíma á þjónustu- verkstæðinu, réttar bilanagrein- ingar og síðast en ekki síst að eiga alla varahluti til á lager, svo hægt sé að þjónusta öll mál f ljótt og örugglega. Að auki erum við með dygga viðskiptavini sem við höfum til að mynda farið í hlaupahjóla- túra með og það stendur til að gera meira af því í sumar,“ segir Gottskálk. „Einnig erum við að skipuleggja námskeið í sumar til að kenna fólki grundvallaratriðin varðandi öryggi, notkun og við- hald rafhlaupahjóla.“ Sífellt fleiri sjá kosti þess að nýta rafhlaupahjól „Rafhlaupahjól eru að verða mjög vinsæll ferðamáti þar sem fleiri og f leiri átta sig á kostum þeirra, sem eru jafn ólíkir og þeir eru margir,“ segir Gottskálk. „Að keyra um á rafmagni er að sjálfsögðu stór hluti af vinsældunum, þar sem margir eru að leggja bílnum og skipta yfir í grænni ferðamáta sem minnkar bæði bensínreikninginn og kolefnisfótsporið. Að auki eru flest rafhlaupahjól- in fyrirferðarlítil og henta því vel í innanbæjarakstur sem auka farar- tæki á heimilið, þar sem flestum hjólum er auðvelt að pakka saman og setja í skottið,“ segir Gottskálk. „Við sjáum mikið af fólki sem fær sér rafhlaupahjól í stað annars bíls eða strætókorts, og margir eru að leggja bílnum og skipta alfarið yfir í þennan ferðamáta. Rafhlaupahjólin eru klárlega vinsælust að sumri til, þegar hjólastígar eru auðfærir og veðrið hefur minni áhrif. Það er allt farið á fullt hjá okkur núna eftir að snjórinn fór að hverfa og þetta sumarið höfum við tjaldað öllu til – verslunin er stútfull af hjólum og enn er að bætast í, auk þess sem við eigum skemmtilegt sumar í vændum með fullt af uppákomum og skemmtilegheitum. Svo erum við líka með nóg af vetrarlausnum sem hafa gert mjög stórum hópi fólks kleift að nota rafhlaupahjólin allan veturinn, en við bjóðum til dæmis upp á nagla- dekk og hanska með innbyggðum hitara, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Gottskálk. Frábær rafmótorhjól í boði „Við erum með eitt mesta úrvalið sem finnst á Íslandi og bjóðum líka upp á frábær rafmótorhjóla- merki eins og Torrot og Super Soco,“ segir Guðni Kristjánsson, eigandi og framkvæmdastjóri. „Torrot hjól eru mjög vönduð evrópsk hjól frá fyrrverandi framleiðanda Gas Gas á Spáni. Þetta eru bestu byrjendahjólin fyrir krakka sem vilja byrja í mótorkrossi og það þarf ekkert að standa í því að blanda bensín, skipta um olíu, hreinsa síur, sinna mótorviðgerðum eða bregðast við lekum og lykt,“ útskýrir Guðni. „Það er hægt að stjórna þeim og aðlaga kraftinn í þeim með appi og hægt er að flytja hjólið með hvaða bíl sem er, því það er hægt að leggja það á hliðina án þess að bensín leki úr því. Undanfarin ár hefur komið mjög góð reynsla á þessum hjólum hér heima,“ segir Guðni. „Torrot uppfærði hjólin líka töluvert fyrir ekki svo löngu og núna eru þau komin með útskiptanlega rafhlöðu, svo það er hægt að hafa eina fullhlaðna með og skella henni í með einu handtaki í stað þess að þurfa að hætta að nota hjólið. Svo erum við líka með breitt úrval af vönduðu Super Soco hjólunum, bæði f lottum raf- mótorhjólum og rafvespum,“ segir Guðni. „Við verðum einnig með gott úrval af 25 km gangstéttar- hæfum mótorhjólum, en fyrir þau þarf engar tryggingar og ekkert próf og það er bara 13 ára aldurs- takmark.“ „Úrvalið okkar er mjög breitt svo allir geta fundið sér hjól við hæfi hjá okkur, þó vissulega séu dýrari hjólin vinsælli og þá sérstaklega hjá áhugafólki um rafhlaupahjól og þessa grænu ferðabyltingu sem er að eiga sér stað,“ segir Gott- skálk. „En hjá okkur finnurðu rétta hjólið fyrir þig, óháð kyni, þyngd eða aldri, og stefnan okkar er að keyra frekar alltaf á góðum verðum í staðinn fyrir að veita afslætti og vera með tilboð – hjá okkur eru allir á vinadílnum.“ Þrjú spennandi ný merki að koma inn núna í sumar „Þetta sumarið erum við að bæta við okkur þremur rafhlaupahjóla- merkjum, Vsett, Blade og Nami, sem eiga það sameiginlegt að vera ný merki á markaðnum sem eru öll að koma fáránlega öflug inn,“ segir Gottskálk. „Vsett hlaupahjól- in hafa verið að fá þannig viðtökur úti að við höfum sjaldan fundið jafn mikla spennu fyrir hlaupa- hjólum, en þau komu á lager fyrir um mánuði síðan og hafa rokið út. Öflugasta Vsett hjólið hefur uppgefna drægi allt að 220 km, sem eru ótrúlegar tölur, jafnvel þó uppgefið drægi sé sjaldnast raunin við raunverulegar og sérstaklega íslenskar aðstæður með mikið af brekkum og mótvindi. Nami hlaupahjólin eru svo algjör tryllitæki sem láta ekkert stoppa sig og eru með þeim fremri hvað varðar útbúnað hjóla. Sem dæmi má nefna TFT-skjá sem sýnir töluvert meira magn af upplýsingum varðandi hjólið og aksturinn en áður hefur verið, carbon fiber stýrisstöng, fjögurra stimpla bremsudælur, stýrisdemp- ara, þumalinngjöf og svo mætti lengi telja,“ útskýrir Gottskálk. „Þetta eru frábær hlaupahjól fyrir lengra komna. Svo eru Blade að byrja í forsölu hjá okkur og þau eru að koma ótrúlega sterk inn með frábæra eiginleika og lága verðpunkta,“ segir Gottskálk. „Þessi merki bætast við Kaabo, sem hefur algjörlega slegið í gegn hér á landi og er vel þekkt innan rafhlaupahjólasenunnar sem sterkasta merkið. Þetta sumarið bætist nýtt hjól við Kaabo úrvalið, en Wolf King GT hlaupahjólið sem margir hafa beðið lengi eftir er loksins komið til landsins. King GT er algjört skrímsli með drægi allt að 180 km og svo má nefna þumalinn- gjöf, run-flat dekk og glussa- bremsur, sem gera hjólið eitt það glæsilegasta í sölu hjá okkur.“ n Þruman er með sýningarsal að Há- túni 6B í Reykjavík, sem er opinn alla virka daga frá kl. 13.00 – 17.00. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni, thruman.is, og á Facebook-síðunni facebook.com/ thruman.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.