Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 18
Suðurlandsbraut 32 108 Reykjavík tri.is VISTVÆNAR SAMGÖNGUR ÚR OG Í VINNU Þér eru allir vegir færir á CUBE rafhjóli Elín Auður Ólafsdóttir er einn stofnenda hópsins KvEnduro en í honum eru konur sem elska að hjóla utan malbiks. Hún segir fátt skemmtilegra en að fara út að hjóla í góðra vina hópi, uppgötva nýjar leiðir og ögra sjálfum sér. starri@frettabladid.is Hjólreiðar taka yfir sumarið hjá Elínu Auði Ólafsdóttur sem nýtir frekar veturinn fyrir gönguskíði, snjóbretti og almenna líkams­ rækt innandyra. „Ég hef alltaf haft áhuga á hjólreiðum og hjólaði mikið sem barn. Helsta mark­ miðið þá var að ná að hjóla sem lengst án þess að halda í stýrið. Þar sem ég átti heima í sveit þá fór ég mikið um á hjólinu og við vinirnir stofnuðum meira að segja hjóla­ gengi sem við kölluðum vegamóta­ gengið. Þá hittumst við á gatna­ mótum og lékum okkur að skransa og fá misgáfulegar hugmyndir eins og að setja Bleikt og blátt blað í póstkassann hjá prestinum og fyrrverandi skólastjóranum.“ Í dag býr Elín á Akureyri ásamt eiginmanni og þremur börnum og starfar sem umsjónarkennari í 7. bekk í Brekkuskóla. Þarf hjól við hvert tækifæri Elín er yngst í systkinahópnum og segir foreldra sína fljótlega hafa hætt að tíma að kaupa ný hjól og hvað þá handa örverpinu. „Því fékk ég alltaf hjólin frá eldri bræðrum mínum þegar þeir fengu ný og það var ekki fyrr en ég varð tvítug sem ég fékk fyrsta nýja hjólið. Maðurinn minn hefur einnig mikinn áhuga á hjólreiðum og það var í raun þegar hann fékk fyrsta fulldempaða hjólið sitt árið 2013 sem áhugi minn á fjallahjól­ reiðum kviknaði fyrir alvöru og þá var ekki aftur snúið. Í bílskúrnum okkar má finna 18 hjól enda þarf hjól við hvert tækifæri.“ Frábær félagsskapur Elín er einn stofnenda hópsins KvEnduro en í honum eru konur sem elska að hjóla utan malbiks í góðra vina hópi. „Við stofnuðum KvEnduro sumarið 2016 en þá höfðum við hjólað með strák­ unum en langaði að hjóla meira með öðrum stelpum. Þriðjudags­ kvöldin urðu fyrir valinu og við hófum að bera út fagnaðarerindið og hjóla reglulega. Frá stofnun hefur hópurinn stækkað hratt og örugglega.“ Eitt helsta markmið í upphafi var að fá fleiri stelpur til að hjóla utan malbiks, efla sjálfstraust til að fást við hinar ýmsu hindr­ anir og láta reyna á mörkin. „Þetta verkefni blómstraði svo sannar­ lega og alltaf fjölgar í hópnum hjá okkur. Það hafa verið kvöld þar sem við höfum verið 35 að hjóla saman. Það hefur verið frábært að fá að fylgjast með fjölgun kvenna í sportinu og fá að hjálpa öðrum konum að gera hluti sem þeim hefði aldrei dottið í hug að þær gætu gert. Þetta er fyrst og fremst frábær félagsskapur af ólíkum konum á mismunandi aldri sem allar hafa þennan brennandi áhuga á að hjóla saman og hafa gaman.“ Fjölbreytt líkamsrækt Fram undan er skemmtilegt hjóla­ sumar að hennar sögn. „KvEnduro heldur áfram að hittast á sínum þriðjudagskvöldum þar sem plan­ aðar eru hjólaferðir hér í kringum Akureyri, ferðir til nágranna­ sveitarfélaga og svo er á planinu að fara í eina lengri ferð á nýjar slóðir innanlands. Við stefnum svo á að taka þátt í enduro­ og fjallabrunkeppnum sem verða haldnar í sumar og vonandi ná að fá með okkur fleiri stelpur sem ekki hafa prófað að taka þátt í svoleiðis. Það er fátt skemmtilegra en að skora aðeins á sjálfa sig og fara út fyrir þæginda­ rammann.“ Hún hvetur sem flesta, konur og karla, til að prófa þessa skemmti­ legu líkamsrækt. „Hjólreiðar eru góð líkamsrækt en líka svo fjöl­ breytt og góð leið til að fá útrás og hreinsa hugann af amstri hvers­ dagsins. Svo er bara svo dásamlega skemmtilegt að fara út að hjóla í góðra vina hópi, uppgötva nýjar leiðir og ögra sjálfum sér.“ ■ Hægt er að fylgjast með KvEnduro á Facebook og Instagram (@kvenduro) Fátt skemmtilegra en að skora á sjálfa sig Hjólreiðar eru góð líkamsrækt en líka fjölbreytt leið til að fá útrás og hreinsa hugann af amstri hversdagsins, að sögn Elínar. MYND/KAREN SVEINSDÓTTIR Hjólahópurinn KvEnduro var stofnaður árið 2016 og í honum eru bara kon- ur. Hópurinn hjólar saman á hverjum þriðju- degi. MYND/KAREN SVEINSDÓTTIR Það er endalaust hægt að ögra sér í hjólreiðum. MYND/ÁRMANN HINRIK Elín Auður Ólafsdóttir nýtir sumarið mjög mikið í hjólreiðar, bæði með vin- konum sínum í KvEnduro og fjölskyldunni. MYND/HILMAR FRIÐJÓNSSON 4 kynningarblað 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURÚT AÐ HJÓLA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.