Fréttablaðið - 22.04.2022, Side 24
Þá eru hjólin
smíðuð fyrir hvern
og einn, bæði venjuleg
reiðhjól og rafmagns-
hjól.
Jón Óli Ólafsson
Ávinningur af því að
nota rafmagnshjól
er næstum jafn góður og
fæst á venjulegu hjóli.
Hjólreiðar til og frá vinnu
eru að mörgu leyti afar hag-
kvæmar, ekki einungis auka
þær heilbrigði heldur getur
samfélagið sparað háar fjár-
hæðir ef fleiri hjóla til vinnu.
elin@frettabladid.is
Það er alveg sama hvort fólk
hjólar á venjulegu reiðhjóli eða
rafmagnshjóli, samkvæmt því sem
ný norsk rannsókn sýnir. Útiveran
og hreyfingin gerir heilsunni
gott. Jafnvel þótt ekki sé hjólað
daglega til vinnu þá eru allar
hjólreiðar líkamlega til bóta. Þær
geta til dæmis dregið úr hjarta- og
æðasjúkdómum. Til að fólk verði
duglegra að hjóla til vinnu þarf að
fjölga reiðhjólastígum. Sú fjárfest-
ing mun skila sér margfalt til baka
fyrir þjóðfélagið.
Norskur vísindamaður, Solveig
Nordengen sem starfar við Norsku
íþróttaakademíuna og Háskólann
í Vestur Noregi, hefur fundið út að
hjólreiðar, jafnvel bara einu sinni
í viku draga úr áhættu á hjarta-
sjúkdómum um 22 prósent. Það
er verulegur árangur í lýðheilsu
og því ætti að vera mun meiri
hvatning til fólks að nota hjólið
sem farartæki. Flestir sem hjóluðu
til vinnu voru með vinnustað í
innan við fimm kílómetra frá
heimili sínu og flestir voru búsettir
á sæmilega sléttum svæðum.
Hjólreiðar snúast um heilsuna
og eru hagnýt lausn til að bæta
hana. Allir vita að líkamleg
áreynsla dregur úr hættu á hjarta-
og æðasjúkdómum. Ekki þarf að
hjóla mikið eða daglega til að ná
bættri heilsu, að því er Solveig
segir. Ávinningur af því að nota
rafmagnshjól er næstum jafn
góður og fæst á venjulegu hjóli.
Rafhjólið gerir fólki kleift að
komast hraðar og léttar til vinnu
um leið og það nýtir útiveruna og
fær aukna hreyfingu. Hvert skref í
hreyfingu skiptir máli fyrir heils-
una. Fleiri karlar en konur hjóla til
vinnu og það er rík ástæða til að
hvetja konur til að hjóla meira.
Samkvæmt rannsakendum eru
góð heilsuáhrif þess að hjóla marg-
falt meiri en hættan á meiðslum.
Í Danmörku er áætlað að komið
hafi verið í veg fyrir um 5.700 til-
felli af hjarta- eða æðasjúkdómum
árlega vegna mikillar notkunar á
reiðhjólum. Danir hafa lengi verið
mikil reiðhjólaþjóð og hafa með
því bætt heilsu þjóðarinnar auk
þess að vernda umhverfið.
Solveig telur að samfélagið geti
hagnast mikið á því að hafa góða
stíga fyrir hjólreiðafólk og það
gæti orðið til þess að fleiri kjósi að
nýta þennan möguleika til og frá
vinnu. Vinnuveitendur þurfa líka
að hvetja starfsmenn til að hjóla í
vinnuna með því að hafa stað þar
sem hægt er að geyma hjólin og
jafnvel hafa sturtu á staðnum.
Samræmt hjólastíganet sem
skapar öryggi fyrir hjólreiðamenn
er ein af mikilvægustu aðgerðum
sem stjórnvöld geta gert til að auka
hjólreiðar og bæta lýðheilsu. Sol-
veig hefur hannað teljara sem telur
hversu margir fara um á reiðhjóli á
hjólastígum daglega. Síðasta haust
höfðu 209 slíkir mælar verið settir
upp í Noregi. Með þeim er hægt að
fylgjast með hversu margir hjóla á
stígunum og þar með mælt gagn-
semi þeirra. Komið hefur í ljós að
hjólreiðar jukust mikið á Covid-
tímum í Noregi og má því segja
að faraldurinn hafi haft jákvæð
áhrif á hreyfingu fólks og þar með
bætt lífsgæði. Vonast er til að enn
fleiri sjái kosti þess að fara á reið-
hjóli í vinnuna og minnki þannig
bílaumferð og mengun. ■
Bætt heilsa þegar hjólað er í vinnuna
Þegar hjólað er til vinnu eykur það lífsgæði fólks auk þess sem bílaumferð og mengun minnkar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Reiðhjólaverzlunin Berlín er
þekktust fyrir klassísk hjól í
gamaldags stíl. En í verslun-
inni fæst fjölbreytt úrval
hjóla af öllum stærðum og
gerðum.
Reiðhjólaverzlunin Berlín er stað-
sett á Háaleitisbraut í Reykjavík.
Þar er hægt að skoða hjólin og
prófa mismunandi stærðir og
tegundir til að finna hvaða hjól
hentar best.
„Við eigum allan skalann af
reiðhjólum. Við erum þekktust
fyrir þessi klassísku vintage hjól
þar sem þú situr upprétt þegar
þú hjólar. En núna erum við líka
komin með rafmagnshjól í þeim
stíl. Vinsælustu reiðhjólin okkar
eru Ladies Classic og Berlin Classic.
Vinsælustu rafmagnshjólin eru
Ladies Classic eBike og Ladies
Encore. Svo eru væntanleg raf-
magnshjól með fótbremsu, sem
eru svipuð eins og Berlínarhjólin
okkar,“ segir Jón Óli Ólafsson
eigandi verslunarinnar.
„Við erum líka með allt þarna
á milli. Fjallahjól, rafmagnshjól,
fulldempuð hjól og borgarhjól.
Við erum líka með ferðahjól sem
fólk getur sett búnað á, eins og til
dæmis tjald. Svo erum við núna
að fá rafmagnsþríhjól. Það kom
til okkar einstaklingur sem er að
nálgast 78 ára aldur. Hann hafði
pínu áhyggjur af jafnvæginu. Á
þríhjólinu getur hann bara hjólað
afslappaður og fengið smá hjálp frá
mótornum,“ segir Jón Óli.
„Það er aðili í Hollandi sem
smíðar þríhjólið fyrir okkur. Þeir
smíða alls konar hjól. Það er hægt
að fá hjól þar sem tveir sitja hlið
við hlið eða einn fyrir framan og
einn fyrir aftan. Við erum líka
með aðila í Þýskalandi sem smíða
fyrir okkur burðarhjól, með og
án mótors. Það eru hjól sem hægt
er að flytja vörur á. Þeir eru með
alls kyns útfærslur, ef þú ert til
dæmis með einhvern viðburð eða
markaðsherferð þá getum við látið
smíða hjól í þeim litum fyrir þig.
Við getum líka látið smíða hjól
með mismundandi merkingum til
dæmis ef þú vilt búa til hjólaleigu.
Það er margt í boði og um að gera
að spyrja.“
Smíða hjól eftir pöntun
Reiðhjólaverslunin býður einnig
upp á að láta smíða venjuleg reið-
hjól eftir pöntun.
„Við erum með tvo aðila sem
gera það. Annar þeirra er Achielle,
en þar geturðu valið lit á hjólum
og dekkjum, hnakk, handföng og
pedala. Þá eru hjólin smíðuð fyrir
hvern og einn, bæði venjuleg reið-
hjól og rafmagnshjól. Venjulega
er afgreiðslutíminn átta vikur frá
því hjólið er pantað og þar til það
er afhent. Hinn aðilinn er Pashley.
En þau gera hjól sem er svona fínni
útgáfa af venjulegum reiðhjólum.
Þetta eru mjög skemmtileg reiðhjól
í gömlum stíl. Við erum með lita-
pallettur sem við getum sýnt fólki
og flest hjólin eru til hér í búðinni
svo fólk getur komið og prófað
hjólin,“ útskýrir hann.
„Auk þessara merkja eru helstu
hjólamerkin okkar Reid, Marin,
Cinelli og Schindelhauer, sem eru
reiðhjól og rafmagnshjól sem hafa
alltaf verið með belti en ekki keðju.
Kosturinn við belti umfram keðju
er að þú heyrir ekkert í beltinu,
hjólið er því mjög hljóðlátt. Eins
fylgir því minna viðhald, en það
þarf ekki að smyrja beltið og það
er sagt að það dugi fjórum sinnum
lengur en keðja. Þannig að ef
keðjan dugar í 2.000 kílómetra þá
dugar beltið í 8.000 áður en þarf að
skipta um það.“
Verkstæði og aukahlutir
Reiðhjólaverzlunin Berlín er einn-
ig með verkstæði þar sem gert er
við reiðhjólin. Þar er boðið upp
á yfirferð eins og að stilla gíra og
bremsur, smyrja keðjur, setja á
sumardekk og vetrardekk og svo
framvegis auk almennra viðgerða.
„Við bjóðum líka upp á þá
þjónustu að ef þú býrð til dæmis
á Akureyri, Ísafirði, Raufarhöfn,
eða bara hvar sem er á landinu, og
kaupir hjól hjá okkur þá kem ég
persónulega með hjólið til þín. Ég
mæti fyrir framan hurðina heima
hjá þér og við stillum stýri og
hnakk. Við erum við með fast verð
fyrir þessa þjónustu, 15.000 krónur
óháð því hvar þú ert á landinu. Þú
þarft bara að geta tekið á móti mér
og gefið mér 10 mínútur og þá ertu
tilbúin til að hjóla. Okkur finnst
mjög skemmtilegt að geta hitt
kúnnana á sínum stað og afhenda
hjólið tilbúið,“ segir Jón Óli.
Hjá versluninni fæst einnig úrval
aukahluta og búnaðar fyrir reið-
hjól. Til dæmis bögglaberar, bretti,
hjálmar, lásar, töskur, barnastólar
og körfur í alls kyns útfærslum.
„Fólki finnst oft ágætt að gefa sér
smástund til að prófa hjólið og þá
áttar það sig betur á hvaða auka-
hluti það þarf, en svo eru sumir
sem kaupa þá með hjólinu. Úrvalið
er mjög fjölbreytt hjá okkur,“ segir
Jón Óli. ■
Nánari upplýsingar má finna á:
reidhjolaverzlunin.is
Mæta með hjólið
heim að dyrum
Reiðhjólaverzlunin Berlín selur mjög fjölbreytt úrval reiðhjóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
10 kynningarblað 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURÚT AÐ HJÓLA