Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550
5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón
Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Birgir hefur að eigin sögn verið
áhugamaður um viskí í tuttugu ár.
„Ég hef verið að drekka viskí frá
því áður en ég mátti drekka viskí.
Ætli þetta hafi ekki byrjað þannig.
Ég fór nú samt ekki að framleiða
áfengi fyrr en 2018 og fyrsta varan
okkar, Marberg gin, kom á markað
í janúar árið eftir,“ segir Birgir.
Hefur heimsótt hátt í fjörutíu
eimingarhús yfir ævina
Birgir hefur ekki tölu á því hversu
mörg eimingarhús hann hefur
heimsótt um ævina. „Ætli þau séu
ekki fjörutíu? Aðallega í Skotlandi
og Bandaríkjunum og eitthvað í
Skandinavíu. Mörg þeirra fram-
leiða milljónir lítra á ári af vískíi,
en sjálfum finnst mér skemmti-
legast að heimsækja litlu framleið-
endurna sem er oft persónulegri og
einstakari upplifun.“
Ásamt því að heimsækja
eimingarhús hefur Birgir líka setið
ýmsa fyrirlestra og námskeið, farið
á vörusýningar og svo mætti lengi
telja. „Meðal annars sat ég nám-
skeið hjá Glenlivet Whisky School,
vann hjá Highland Park Distillery
á Orkneyjum og er þar að auki
svokallaður Certified Whis key
Specialist og Certified Scotch
Professional frá The Council of
Whisky Masters.“
Hví ekki íslenskt viskí?
„Árið 2010 fór ég í pílagrímsferð
til Skotlands til að heimsækja
nokkrar framleiðslur og fræðast
meira um ferlið. Þar tók ég eftir
því hversu lík löndin tvö, Ísland og
Skotland, eru. Þá vaknaði hjá mér
þessi spurning: Af hverju erum við
ekki að búa til viskí á Íslandi? Þessi
spurning var áfram í kollinum
á mér á árunum sem fylgdu, þar
til ég athugaði hvort það væri í
raun gerlegt að hefja framleiðslu
á íslensku viskíi. Því meira sem ég
las og lærði, því raunhæfari varð
þessi hugmynd og með smá aðstoð
frá Matís og Landbúnaðarháskóla
Íslands lét ég verða af því að stofna
Þoran Distillery ehf.“
Birgir segir þó margt vera ólíkt
hjá löndunum tveimur. „Það er
varla hægt að bera saman íslenska
og skoska viskíframleiðslu. Þeir
hafa gert þetta í meira en 200
ár á meðan við erum bara rétt
nýbyrjuð að fóta okkur í þessum
bransa. Það sem við höfum
umfram Skotana er kannski það
að við getum leyft okkur meira til-
raunastarf og leik. Á meðan þurfa
Skotarnir að tryggja að viskíið sem
þeir framleiða í dag bragðist eins
og það hefur alltaf gert og mun
alltaf gera.“
Vill bera út boðskapinn
„Ég tilheyri nokkrum góðum
smakkhópum hér á landi og reyni
að bera út viskíboðskapinn eins
Birgir segir
það hafa verið
skemmtilegt
gæluverkefni
að framleiða
íslenskt Limon-
cello og að
áhugi fyrir því
hafi farið fram
úr hans björt-
ustu vonum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Það er
aldrei að
vita nema
maður
skelli sér í
skotapilsið
og rúnti
með
nokkrum
Íslending-
um yfir
skosku
hálöndin í
framtíð-
inni.
Birgir Már
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
og ég get og kenna fólki að njóta
og drekka viskí. En maður þarf nú
ekki að vera einhver sérfræðingur
til þess að hafa gaman af því að
smakka gott viskí. Það er mjög
einstaklingsbundin lífsreynsla.“
Þess má geta að Birgir heldur úti
stórskemmtilegum Instagram-
reikningi, @Icelandicwhiskyguy,
þar sem hann fræðir áhugasama
um hin ýmsu viskí.
„Ég hef svo verið spurður að því
hvort ég hafi áhuga á að leiða hóp
af íslensku viskíáhugafólki um
Skotland, svo það er aldrei að vita
nema maður skelli sér í skotapilsið
og rúnti með nokkrum Íslend-
ingum yfir skosku hálöndin í fram-
tíðinni. Í haust er þó stefnan tekin
á Írland, því framleiðsluhættir þar
eru ögn frábrugðnir þeim í Skot-
landi og ég hef mikinn áhuga á að
læra meira um þá.“
Sofandi lögur í tunnum
Hjá Þoran distillery gerir Birgir
ýmsar spennandi tilraunir og
framleiðir Marberg gin og Limon-
cello. „Þoran viskí liggur núna í
tunnum og þarf að hvíla þar að lág-
marki í þrjú ár til að mega löglega
kallast viskí. Við erum tiltölulega
nýbyrjuð á viskíinu.
Viskíið okkar er búið til úr
íslensku byggi, íslensku vatni og
norsku geri. Bygg, vatn og ger er í
raun það eina sem þarf og það eina
sem má nota þegar kemur að viskí-
framleiðslu. Eitthvað af viskíinu
okkar er einnig reykt, eða „peated“,
en þá hefur hluti kornsins verið
reyktur, annað hvort með mó eða
taði. Tunnurnar sem við notum
eru mestmegnis notaðar amerískar
bourbon-tunnur frá Kentucky sem
áður geymdu bourbon-tegundina
Buffalo Trace. Þessar tunnur fá svo
að liggja óhreyfðar úti á lands-
byggðinni þar sem þær draga í sig
alla þá utanaðkomandi þætti sem
finnast í íslenskri náttúru.
Í augnablikinu erum við með
um 4.000 lítra í þroskun og erum
hægt og bítandi að bæta við fleiri
tunnum. Við munum opna tunn-
urnar eftir tvö ár og sjá hvernig
þroskunin hefur gengið og munum
þá taka ákvörðun um það hvort
viskíið sé tilbúið fyrir átöppun. Við
viljum ekki láta neitt frá okkur fyrr
en við erum 100% sátt við það.“
Viðtökurnar góðar á gininu
Vegna þess hve þroskunartími á
viskíi er langur byrjaði Birgir að
framleiða Marberg gin. En ginið
tekur mun styttri tíma að fram-
leiða. „Hugmyndin var upphaflega
að búa til gott gin sem fer vel með
tónik. Ekkert flóknara en það. Við
erum einmitt nýbúin að betrum-
bæta uppskriftina og notum nú
betri hráefni og aðferðir en við
gerðum þegar við byrjuðum. Þetta
er alltaf spurning um að gera betur.
Núna er Marberg í raun enn betra;
mjög milt og bragðgott gin sem
auðvelt er að drekka eitt og sér út á
smá klaka. Við notum ýmis krydd
og jurtir hvaðanæva úr heiminum
en einnig íslenskar jurtir á borð við
birki og söl.
Tækjabúnaður okkar er líka
þannig að það er auðvelt að fram-
leiða aðrar áfengistegundir en
viskí. Því fannst okkur kjörið að
bæta einhverju íslensku við þá
flóru af gini sem til er í dag, til að
auka við úrvalið sem veitinga-
staðir og barir hérlendis hefðu
af íslenskum vörum. Það er líka
skemmtilegt að sjá viðtökurnar hjá
veitingafólki, því svo virðist sem
því þyki mjög gaman að geta boðið
gestum sínum upp á íslenskar
vörur.“
Ísland og Ítalía í gulum dansi
Limoncello-framleiðslan byrjaði
að sögn Birgis sem gæluverkefni.
„Það var þannig að hann Kristján
Nói, frændi minn og veitinga-
maður, kom til mín og sagðist
vilja bjóða sínum gestum upp á
íslenskt Limoncello. Við pönt-
uðum inn um 30 kíló af lífrænum
sítrónum frá Sorrento á Ítalíu og
hófumst handa við smá þróunar-
vinnu. Lokaniðurstaðan var
Limoncello Atlantico, meðalsætur
„digestivo“ sem er frábær eftir mat
eða í kokteil á borð við Limon-
cello spritz. Það leið ekki á löngu
áður en landinn frétti af þessu og
spurði hvort þetta væri einungis
til á veitingastaðnum hjá Krist-
jáni eða hvort hægt væri að kaupa
f lösku hjá okkur. Í dag erum við
að panta inn rúmlega 300 kíló
af sítrónum fyrir hverja lotu og
verður næsti skammtur 100%
lífrænn í þokkabót. Áhugasamir
geta nálgast frekari upplýsingar á
heimasíðu okkar, limoncello.is,“
segir Birgir.
Samtök íslenskra eimingarhúsa
Áfengisbransinn á Íslandi er þó
að sögn Birgis nokkuð flókið
batterí og mikið um reglugerðir
og skatta. Hins vegar sé skortur á
reglugerðum um hvað megi kalla
íslenskt áfengi og hvað ekki, og það
vill Birgir að verði leiðrétt. „Í stuttu
máli sagt, þá fer enginn í áfengis-
bransann á Íslandi til þess að verða
ríkur. Lagaumhverfið er erfitt og
skattarnir háir. En ég hef gaman af
þessari vinnu, sérstaklega viskí-
framleiðslunni, þannig að fyrir
mig er þetta erfiðisins virði.
Við erum nokkur hér á landi
sem framleiðum íslenskt sterkvín
og höfum tekið höndum saman
og stofnað Samtök íslenskra
eimingarhúsa. Okkar markmið
er að styðja við innlenda fram-
leiðslu á sterkvíni, auka vitund
íslenskra og erlendra neytenda
um þau sterkvín sem Ísland hefur
upp á að bjóða ásamt því að stuðla
að heilbrigðri neyslu á áfengi. Í
samtökunum eru fyrirtæki sem öll
eiga það sameiginlegt að framleiða
(eima) sína vöru hér á landi og nota
til þess íslensk hráefni, hvort sem
um er að ræða kryddjurtir, korn
eða vatn.
Því miður hefur orðið töluverð
aukning á framboði hinna ýmsu
vara sem sagt er að séu íslenskar,
en þegar grannt er skoðað kemur
í ljós að megnið af þeim „íslensku“
sterkvínum sem eru í boði er í raun
og veru framleitt erlendis, f lutt inn
í stórum tönkum og sett á flösku
hér. Svo er mjög íslenskum miða
skellt á flöskuna og varan kölluð
víkingavodka eða lundalíkjör eða
eitthvað álíka. Hér er verið að villa
um fyrir neytendum og er þetta
eitthvað sem samtökin vilja leið-
rétta.“
Birgir er á því að ýmsu öðru
megi breyta í lagaumhverfinu
á Íslandi. „Það helsta sem gerir
íslenskum áfengisframleiðendum
erfitt fyrir eru háir skattar og að
geta ekki selt vöru sína beint til
neytenda. Það er mjög hallærislegt
að fá til sín gesti frá útlöndum sem
hafa mikinn áhuga, en þurfa svo
að senda þá í Vínbúðina eða Duty
Free ef þeir vilja kaupa flösku.
Okkar framlag til áfengisframboðs
hér á Íslandi er ekki það mikið að
það hefði mikil áhrif á sölu Vín-
búðarinnar, þó svo við seldum
beint til neytenda. Þar að auki
verður þetta sífellt stærri hluti af
ferðaþjónustunni á Íslandi og ég
gæti trúað að það væri meiri hagur
í því til lengri tíma litið að leyfa
smáframleiðendum á íslensku
áfengi að taka á móti gestum og
selja þeim sínar vörur.“
Nýjungar hjá Þoran
Það eru þó nokkrar nýjungar
á leiðinni frá Þoran Distillery.
„Meðan á faraldrinum stóð fórum
við í mikla þróunarvinnu. Við
erum nýbúin að betrumbæta Mar-
berg Dry Gin uppskriftina okkar
og setja í nýjar og flottari umbúðir.
Einnig munum við gefa út tunnu-
þroskað gin í sumar í takmörkuðu
upplagi, ásamt svokölluðu „navy
strength“ gini, sem er stíll af gini
sem er þó nokkuð sterkari og
bragðmeiri. Í ofanálag munum
við svo setja ákavíti í sölu, en það
verður þó líklega ekki fyrr en í
haust,“ segir Birgir að lokum. n
2 kynningarblað A L LT 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR