Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 28
Blár ópal
Þetta alís-
lenska nammi
er goðsögn og
þótt það hafi
lengi verið ófá-
anlegt getur
nostalgían enn
kallað fram
ólýsanlegt
bragðið þegar
þau sem voru
svo heppin að ánetjast þessu
hugsa til baka. Hin fá líklega því
miður aldrei að vita hverju þau
misstu af þar sem líkurnar á því
að lykilbragðefnið finnist aftur
eru hverfandi. Leitin að því ætti
samt vitaskuld að vera í algerum
forgangi hjá Nóa-Síríus svo leið-
rétta megi sorglegustu skekkju
íslenskrar sælgætissögu.
benediktboas@frettabladid.is
Þau gleðitíðindi bárust í gær að morgunkornið sígilda Cocoa
Puffs muni snúa aftur í hillur verslana eftir árs fjarveru. Ritstjórn
Fréttablaðsins stóð upp og klappaði enda tilheyra þar margir
kókópöffs-kynslóðinni svokölluðu. En betur má ef duga skal og
þegar þvælst er um höll minninganna rifjast margt gamalt og
gott upp sem margir myndu gjarnan vilja endurheimta.
Allt hitt sem við viljum fá aftur í kjölfar
Blackberry-símarnir
Einu sinni voru Blackberry-sím-
arnir sannkallað þarfaþing og
höfðu um 20 prósent markaðs-
hlutdeild árið 2010. Það var afar
þægilegt að komast í tölvu-
póstinn og það var þægilegt
að skrifa skilaboð með gömlu
góðu tökkunum. En iOS og
Android tóku fram úr og tæknin
sem Blackberry keyrði á varð
úrelt. Þann 4. janúar í ár var til-
kynnt að ekki væri lengur hægt
að hringja eða senda SMS.
Subaru Justy
Fjórhjóladrifið tryllitæki sem
komst allt. Af hverju Justy
lifði ekki lengur er hulin
ráðgáta því í minningunni
framleiddi bíllinn nánast
bensín. Þetta var hinn full-
komni unglingabíll úti á landi
því í vetrarfærðinni var ekkert
sem stoppaði hann. Ekkert.
Það var einfaldlega ýtt á fjór-
hjólatakkann sem var ofan á
gírskiptingunni og haldið af
stað í hvaða veðri sem var. Og
það voru oft vond veður úti á
landi í gamla daga.
McDonald’s
Það er auðvitað rannsóknarefni af hverju Mc-
Donald’s skuli ekki vera á Íslandi. Það er reyndar
enn frekari rannsóknarefni af hverju erlendar
skyndibitakeðjur haldast illa á Klakanum því
hér er ekki Starbucks, Burger King, Popeyes eða
The Cheesecake Factory svo eitthvað sé nefnt.
McDonald’s er eins um allan heim og Ólympíu-
farar nota veitingastaðinn til að seðja hungrið á
leikunum. Ef það er nógu gott fyrir Ólympíufara
er það nógu gott fyrir landann og ferðamenn-
ina sem sakna þess að fá sér tvo ostborgara,
franskar og gos. Þetta þarf ekki að vera flókið.
Lars Lagerbäck
Hver vill ekki Lars aftur? Mað-
urinn er enn þá alfa og ómega
í fótboltaheiminum hér á
Íslandinu góða. Þó að verið
sé að reyna að afmá fingraför
hans af landsliðsumhverfinu
lifir hann í hjörtum Íslendinga
sem maðurinn sem breytti
áhugamönnum
í lið sem
vann Eng-
land á EM
2016. Það
mun aldrei
gleymast.
Vegasjoppurnar
Háglans og yfirlýstar vegasjoppur nútímans eru
afskaplega ósjarmerandi. Er ekki hægt að fara
einhvern milliveg? Hafa einhvers konar kósí
án þess að hafa lýsinguna í rauðabotni. Margir
minnast gamla Staðarskála með hlýju í hjarta
en gleyma lyktinni sem mætti fólki í stiganum
þegar það gekk niður á klósettið. Það var alvöru
hlandlykt. Nýi Staðarskálinn er oflýstur og því
frekar stoppað í Víðigerði.
Heiðarlegar tilnefningar
Baugur Group
Hver saknar ekki stuðsins sem var í
kringum Baug? Það var endalaust partí.
Gospillurnar
Kannski saknar þeirra enginn enda var
gerð bein árás á alla tannhirðu með þeim.
Í pillunum voru einhver efni svo sterk að
það sveið undan þeim í tunguna.
Plastskeiðar í skyr og rör í safa
Það getur bara ekki verið að þetta sé leiðin.
Þetta pappadrasl er ekki að gera sig.
Fresca
Já, takk. Þarf ekkert frekari útskýringar.
Það sem má vera gleymt og grafið
n Grímunotkun
n Kassettur
n Textavarpið
n Símaskráin
Bazooka-tyggjó
Þau eru fjölmörg sem
sakna enn þessa sprúðl-
andi fjöruga tyggigúmmís sem
er þó sennilega mun bragðbetra
í minningunni en það var í glæstri
fortíðinni. Tyggjóið var heldur hart
undir tönn en þegar búið var að tyggja það til
tók augnablikssæla við. Ekki spillti heldur fyrir
að tyggjóið var vafið inn í litla myndasögur af
ævintýrum hins vígalega Joe.
Cocoa
Puffs
24 Lífið 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR