Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 2
Danmark í Reykjavík
Skólaskipið Danmark liggur nú við bryggju í gömlu höfninni í Reykjavík. Hingað kom seglskipið frá Assen í heimlandinu þaðan sem lagt var upp 12. maí
síðastliðinn. Þetta glæsilega skip var smíðað í skipasmíðastöðinni í Nakskov á árið 1933. Um borð í Danmark eru hverju sinni áttatíu sjóliðaefni sem stíga
þar sín fyrstu og spennandi skref á siglingu um höfin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Listamaðurinn spænski Juan
hefur unnið að því undanfar-
ið að blása lífi í hluti í miðbæ
Selfoss sem vakið hafa athygli.
Hefur hann breytt brunahana
í trúðaís, rafmagnskassa í
mjólkurbíl og brunnloki í 10
og 50 króna peninga.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Nokkrar myndir birtust
af spænska listamanninum Juan á
Facebook-síðu Miðbæjar Selfoss og
fengu yfir þúsund læk og hundruð
ummæla. Juan fékk listrænt frelsi
við sköpunina til að breyta hvers-
dagslegum hlutum og glæða þá lífi.
Einna mesta eftirtekt vekur gamalt
Prins póló-bréf sem málað er yfir
þrjú samliggjandi brún brunnlok.
„Ég vissi að Prins póló væri goð-
sagnakennt súkkulaðistykki hér á
Íslandi. Það er verið að gera þetta
svæði þannig að hið gamla er sett
í nýjan búning. Gömul hús upp-
gerð og ég hugsaði með mér að setja
gömlu umbúðirnar þarna ofan á,“
segir Juan.
Hann segir að um leið og hann sá
brunnlokið hafi hann séð einhvers
konar súkkulaði. „Þeir buðu mér í
heimsókn til að taka myndir og fá
hugmyndir. Ég gerði það og fór að
hugsa hvað ég gæti gert við hluti
sem er fyrir allra augum en enginn
veltir fyrir sér.“
Br unahaninn vek ur einnig
eftirtekt en hann er málaður sem
trúðaís enda er ísbúð þar skammt
frá. „Það er mikið selt af ís á Sel-
fossi. Við vildum gera eitthvað við
þennan brunahana og það blasti
við að hann ætti að vera trúðaís.
Augun, nefið og brauðið koma vel
út,“ segir hann.
Juan kom hingað til lands árið
2016 en þá aðeins í heimsókn. Hann
er frá Valencia og segist hafa verið
búinn að vera hér í nokkra daga
þegar hann fékk spurningu um
verkefni. Juan gerði eftirminnilegan
Super Mario Bros vegg í Vesturbæn-
um í Reykjavík.
„Ég var búinn að vera í nokkra
daga þegar ég fékk beiðni um verk.
Ég hugsaði með mér að þetta væri
einstakt. Hér er fólk mjög opið fyrir
litum og listum og þetta hefur eigin-
lega ekki hætt síðan.“
Næstu verk hans verða í Hafnar-
firði og Vestmannaeyjum en einka-
aðili hefur pantað þjónustu hans.
Gerði það í gegnum Instagram-
reikning hans. „Það er svo ótrúlegt
með birtuna hérna á Íslandi að ég
gæti byrjað klukkan fjögur að nóttu
og málað fram eftir nóttu. Sumarið
er komið og það er nóg að gera,“
segir listamaðurinn. n
Málaði gamalt Prins póló
bréf á brunnlok á Selfossi
Juan með
trúðaísinn og
fyrir framan
brunahanann
sem lítur eins út.
Óður til fortíðar þar sem Juan
málaði gamla góða Prins pólóið á
brunnlok. MYND/AÐSEND
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
benediktarnar@frettabladid.is
ingunnlara@frettabladid.is
HÆLISLEITENDUR „Ég sagði þetta til
að fá fólk til þess að hlusta,“ segir séra
Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í
Laugarneskirkju sem á Facebook í
gær sagði Vinstra græna eiga vísan
stað í helvíti vegna þátttöku þeirra
í ríkisstjórninni.
„Það er sér stak ur stað ur í hel-
víti fyr ir fólk sem sel ur sál sína fyr-
ir völd,“ skrifaði Davíð Þór sem var
að fjalla um yfirvofandi brottvísun
stórs hóps hælisleitenda.
Aðspurður kvaðst Davíð Þór í gær
standa hvert við einasta orð og ekki
eiga von á því að ein hver frá þjóð-
kirkjunni hefði samband við hann.
Séra Agnes M. Sigurðardóttir biskup
sagði hins vegar í gær að Davíð Þór
hefði brotið siðareglur þjóðkirkj-
unnar og að von væri á yfirlýsingu
frá kirkjunni en vildi að öðru leyti
ekki svara spurningum um málið.
„Það er alveg stað reynd að það er
ekki góð guð fræði að segja þetta,
enda er ég að tjá mig hér svo lítið,“
viðurkenndi Davíð Þór. „Ég held að
biskup hafi látið fram skoðanir sem
fara ein dregið saman við mínar þó
að hún kannski orði þær ekki eins
af dráttar laust,“ bætti hann við. „Það
er líka alveg á hreinu að prestur hefur
alveg rétt til að tjá per sónu legar
skoðanir sínar án þess að það eigi
að líta á þær sem opin bera af stöðu
kirkjunnar.“
Orri Páll Jóhannsson, þingmaður
og þingf lokksformaður Vinstri
grænna, fordæmdi í gær orð Davíðs
Þórs. „Með þessum ummælum er
verið að ala á hatursorðræðu í sam-
félaginu sem er eitt stærsta mein
okkar samtíma. Það er grafalvarlegt
að þjóðkirkjan taki þátt í slíku,“ sagði
hann í svari til Fréttablaðsins. n
Nánar á frettabladid.is
Boðar yfirlýsingu
vegna séra Davíðs
Séra Agnes
Sigurðardóttir,
biskup Íslands
Séra Davíð
Þór Jónsson,
sóknarprestur í
Laugarneskirkju
sbt@frettabladid.is
ÖRYGGISMÁL Sendi nefndir frá Finn-
landi og Sví þjóð funda með tyrk-
neskum yfirvöldum í Ankara í dag
í von um að Tyrkir láti af andstöðu
sinni við aðild þeirra að NATO.
Löndin tvö vonuðust til þess að
eiga greiða leið að aðild að NATO en
öll aðildar ríki bandalagsins þurfa
að sam þykkja aðildarum sókn.
Finn ar og Svíar vilja með aðild að
NATO tryggja öryggi sitt eftir innrás
Rússa í Úkraínu.
Tyrkir krefjast þess meðal ann-
ars að Svíar af létti refsi að gerðum
gegn Tyrk landi, þar á meðal banni
á vopna út flutningi. Einnig að Svíar
hætti „pólitískum stuðningi við
hryðju verk“, stöðvi fjár mögnun
hryðju verka hópa og stöðvi vopna-
f lutninga til Verka manna f lokks
Kúrda og sýr lenskra upp reisnar-
hópa. n
Svíar og Finnar
ræða við Tyrki
2 Fréttir 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ