Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 4
jonthor@frettabladid.is
KÍNA Ný skjöl varpa ljósi á fjölda-
fangelsun Kínverja á Úígúrum og
öðrum minnihlutahópum í svoköll-
uðum endurmenntunarbúðum þar
í landi. Þau bera nafnið Xinjiang-
lögregluskjölin.
Í skjölunum má finna þúsundir
ljósmynda af föngunum og þá þykja
þau sýna fram á að þeir sem reyni að
flýja búðirnar séu skotnir.
Hakkarar komust yfir skjölin og
sendu þau á fjölmiðla fyrr á þessu
ári. Í gær birtust fréttir upp úr þeim,
meðal annars frá BBC, en miðillinn
segir skjölin skýra stöðu fólks í búð-
unum.
Þessar fregnir hafa vakið upp
mikil viðbrögð. Til að mynda hafa
þýsk stjórnvöld kallað eftir rann-
sókn. n
Málefni sem snúa að
samgöngusáttmál
anum, Borgarlínunni
miðað við frumdrög
og allt sem snýr að
Miklubraut í göng og
Sæbraut líka, eru líka á
dagskrá.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar í Reykjavík
Þjóðarbrot Úígúra býr
að mestu leyti í Xing
janghéraði í Kína og
eru flestir múslimar.
Samgöngur, hröð bygging
íbúða, velferðarmál og grænar
áherslur gætu orðið málefna-
grunnur í formlegum meiri-
hlutaviðræðum. Borgarstjóra-
stóllinn gæti þó orðið bitbein.
bth@frettabladid.is
REYKJAVÍK „Já, ég sé fyrir mér að
Sundabraut verði byggð. Það er lík-
legt en útfærslan er enn óljós,“ segir
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar.
Undir þetta tekur Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, oddviti Viðreisnar:
„Við munum leggja áherslu á að
fara í Sundabraut, að mínu mati
er Sundabraut partur af þéttingu
byggðar og uppbyggingu atvinnu-
fyrirtækja á Esjumelum,“ segir Þór-
dís Lóa. Hún bætir við að Sunda-
braut sé umhverfisvæn og góð
framkvæmd.
Einar Þorsteinsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins, sagðist talsmaður
Sundabrautar í kosningabaráttunni.
Ekki er vitað til að andstaða sé meðal
Pírata við Sundabraut. Flest bendir
því til að ráðist verði í mannvirkið
á kjörtímabilinu. Ef næst að mynda
meirihluta milli flokkanna fjögurra.
Á blaðamannafundi í gær og í
samtölum Fréttablaðsins við full-
trúa Framsóknarf lokksins, Sam-
fylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata
komu fram áherslur sem vænta má
að verði ræddar í ýmsum málefnum.
Velferðarmál, hröð fjölgun íbúða,
græn stefna í samgöngum og Sunda-
braut verða í kastljósinu.
Fulltrúar flokkanna halda þó að
nokkru spilunum að sér „enda er
ferðalagið sjálft fram undan“, eins
og einn þeirra orðaði það.
„Málefni sem snúa að samgöngu-
sáttmálanum, Borgarlínunni miðað
við frumdrög og allt sem snýr að
Miklubraut í göng og Sæbraut líka,
eru líka á dagskrá,“ segir Þórdís Lóa
um áherslur. Málefnalegur „þétt-
leiki“ sé innan hópsins.
Það mál sem helst gæti orðið bit-
bein og sundrað samstöðu er sjálfur
borgarstjórastóllinn.
„Ég ætla ekkert að úttala mig um
það hver eigi að verða borgarstjóri,
hvenær eða hvernig það verður,“
sagði Einar Þorsteinsson, oddviti
Framsóknarmanna.
Áður hafði Fréttablaðið spurt Dag
B. Eggertsson borgarstjóra og Einar
hvort til greina komi að annar full-
trúi en þeir tveir úr hópi flokkanna
fjögurra verði borgarstjóri. Hvor-
ugur svaraði því beint.
Heimildir blaðsins herma að hjá
Pírötum og innan Viðreisnar hafi
verið rætt hvort lending í átökum
Dags og Einars um borgarstjóra-
stólinn gæti orðið ef einhver annar
en þeir tveir yrði borgarstjóri.
Mjög óljós svör bárust frá þeim
tveimur um þetta á fundinum í gær.
„Það er alveg rétt að átök um
borgarstjórastólinn eru líklegasta
ástæða ágreinings í þessum viðræð-
um,“ sagði innanbúðarmanneskja í
Framsóknarflokknum í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Stíf krafa er meðal margra Fram-
sóknarmanna um að þeir fái borgar-
stjórann. Aðrir telja að reynsluleysi
Einars standi slíkri kröfu fyrir
þrifum.
Tíu dagar voru liðnir frá kosn-
ingum í gær þegar Framsókn, Sam-
fylking, Píratar og Viðreisn kynntu
formlegar viðræður. Oddvitar allra
f lokkanna fjögurra lýstu ánægju
með skrefið.
Dagur lýsti ánægju með upphaf
formlegra viðræðna en gat þess að
staðan væri f lókin. Verkefnið væri
að tryggja meirihluta heilt kjör-
tímabil. n
Flokkarnir sammála um Sundabraut
Formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar milli borgarstjórnarflokka Framsóknar, Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Frumsýning
á morgun
borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða
ggunnars@frettabladid.is
IÐNAÐUR Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, hefur sett saman
teymi sem undirbýr nauðsynlegar
aðgerðir til að liðka fyrir komu
erlendra sérfræðinga til landsins.
Samkvæmt Samtökum iðnaðar-
ins þurfa fyrirtæki í hugverkaiðnaði
að ráða níu þúsund sérfræðinga
á næstu fimm árum ef þau eiga að
geta nýtt vaxtartækifæri sín. Nokk-
ur stór fyrirtæki eru þegar farin að
horfa út fyrir landsteinana vegna
þess hve erfiðlega hefur gengið að
ráða fólk hér að undanförnu.
Áslaug Arna telur mikilvægt að
bregðast hratt við þeirri stöðu sem
upp er komin.
„Þetta er umfangsmikið verkefni
sem kallar á samvinnu ráðuneyta og
Ráðherra hyggst opna hraðleið fyrir erlenda sérfræðinga
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir, ráðherra
undirstofnana. Við þurfum að bæta
þjónustu, hraða afgreiðslu og auka
upplýsingagjöf. Ég horfi til þess að
hér verði opnað fyrir hraðleið og
skilgreiningar rýmkaðar.“
Áslaug vonast til að geta tilkynnt í
hverju tillögurnar felast strax í júní.
„Þetta verða aðgerðir sem snúa
að því að Ísland verði fyrsti val-
kostur fyrirtækja. Bæði varðandi
skattaumhverfi vegna rannsókna
og þróunar en ekki síður til að opna
Ísland fyrir þeim sem hingað vilja
koma.“
Að mati Áslaugar felst lykill að
bættum lífsgæðum í því að hugvit
verði stærsta útflutningsgreinin.
„Ef það á að raungerast þurfum
við f leira fólk. Við eigum í alþjóð-
legri samkeppni um besta fólkið og
Ísland verður að vera eftirsóknar-
verður valkostur.“ n
Gögn bendi til að
Kína beiti Úígúra
miklu harðræði
Franskir aktívistar mótmæla með-
ferð á Úígúrum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
4 Fréttir 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ