Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 25.05.2022, Blaðsíða 24
Hann var með lokuð augun allan tímann og fyrir vikið virtist hann auðmjúkur á einhvern heillandi hátt. Hér í þessu sýningar- rými koma saman fortíð í formi eldri verka, eins konar beinagrind úr Sólon Íslandus, nútíðin er samtalið við sýn- ingarrýmið hér og hauskúpan möguleg framtíð. TÓNLIST Andrea Bocelli söng blandaða dagskrá Með honum komu fram: Jóhanna Guðrún, Maria Aleida Rodriguez og Anastasyia Petryshak. Sinfonia Nord lék. Söngsveitin Fílharmonía kom fram. Stjórnandi: Marcello Rota Kórinn í Kópavogi laugardagur 21. maí Jónas Sen Ég tók myndskeið af öllum fjöld- anum í hléinu á tónleikum Andrea Bocelli í Kórnum á laugardagskvöld- ið og birti á Facebook. Einn vinur minn kommenteraði: „Hefði verið fullkomið tækifæri til að bólusetja með fjórðu sprautunni. Bara svona fyrst allir gamlingjar á höfuðborgar- svæðinu voru á annað borð mættir.“ Ég verð að mótmæla þessari hæðni! Það voru síst bara gaml- ingjar á tónleikunum, þótt meðal- aldurinn hafi verið fremur hár. En fagnaðarlætin voru svo sannarlega alveg jafn mikil og á popptónleikum með æstum unglingum. Alsæla tón- listarinnar spyr ekki um aldur. Söngur misjafn en mikið karisma Andrea Bocelli er reyndar ekki besti óperusöngvari í heimi. Rödd hans er fremur hörð, mjó og virðist dálítið klemmd á efstu tónunum. Engu að síður voru tónleikarnir bráð- skemmtilegir. Gríðarlegt karisma, það er sviðssjarmi, vóg upp á móti veiku hliðunum, og tilfinningin í hverju lagi var svo sannarlega ekta. Bocelli söng áreynslulaust og af óheftum krafti, og lögin voru hvert öðru skemmtilegra. Þau voru allt þekktir óperusmellir fyrir hlé, en seinni hluti dagskrárinnar var poppaðri. Lögin sem Bocelli söng voru til dæmis La donna e mobile eftir Verdi, You'll Never Walk Alone eftir Rodgers, Nessun Dorma eftir Pucc- ini og Con te partiro eftir Sartori. Það síðastnefnda er spilað þrisvar sinnum í einum þættinum um Soprano-fjölskylduna, og þá ein- mitt með Bocelli. Söngvarinn er nefnilega heimsfrægur og hefur selt óguðlega mikið af plötum. Söngvarinn var með lokuð augu Bocelli er blindur, og það ásamt því að hann er fjallmyndarlegur og glæsilegur, er án efa stærsti hluti sviðssjarmans og frægðarinnar. Hann var með lokuð augun allan tímann og fyrir vikið virtist hann auðmjúkur á einhvern heillandi hátt. Maður fékk einfaldlega ekki nóg af því að horfa á hann. Með söngvaranum spilaði Sin- fonia Nord undir stjórn Marcello Rota. Hún gerði það mjög vel. Auðvit- að var tónlistarflutningurinn magn- aður upp, annað væri ekki hægt í slíku gímaldi sem Kórinn er. Klass- ísk tónlist er viðkvæm fyrir slíku, en hér var virkilega vel að verki staðið. Hljómsveitarleikurinn var skýr en að sama skapi mildur og í fínu styrk- leikajafnvægi. Spilamennskan var nákvæm og fagmannleg, allar nótur voru á sínum stað. Góðir gestir Nokkrir listamenn komu fram með söngvaranum. Maria Aleida Rodriguez söng af yfirburðum, þar á meðal nokkra dúetta með Bocelli. Rödd hennar virtist samt örlítið lægri í hátalarakerfinu. Sennilega var það með ráðum gert. Enginn mátti skyggja á stjörnuna. Jóhanna Guðrún var sérstakur gestur á tónleikunum. Söngur hennar kom best út þegar hún flutti Vetrarsól eftir Gunnar Þórðarson. Flutningurinn var tilf inninga- þrunginn og glæsilegur, röddin sérlega mögnuð. En dúettarnir hennar með Bocelli voru síðri af ofangreindum ástæðum. Hljóð- blöndunin var Bocelli í hag og lítið heyrðist í söngkonunni. Anastasyia Petryshak lék svo á fiðlu, meðal annars hinn fræga Czardas eftir Monti. Það var smart, fiðluleikurinn var öruggur og jafn, og það gneistaði af honum. Fiðlu- hljómurinn var þó skrýtinn í hljóð- kerfinu, hljóðjöfnunin hampaði of mikið neðra tónsviðinu, með þeim afleiðingum að fiðlan hljómað bara hreint ekkert eins og fiðla. Eins og áður sagði voru fagnaðar- lætin gífurleg, það var æpt og grenj- að á eftir hverju lagi, enn meira eftir hlé. Öll umgjörð tónleikanna virtist líka vera til fyrirmyndar, skipulagið var gott og það rann allt snurðu- laust. Þetta var virkilega gaman. ■ NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtilegir tónleikar. Hinn blindi Bocelli var kóngurinn í hljóðkerfinu Það var æpt og grenjað á eftir hverju lagi. MYND/AÐSEND Húbert Nói Jóhannesson myndlistarmaður sýnir verk í Portfolio galleríi að Hverfis- götu 71. Sýningin hefur yfir- skriftina Innri-Ytri veruleiki. Þetta er 35. einkasýning listamannsins og á henni eru ný og eldri verk. Verkin á sýningunni eru fimmtán og eiga í sam tali inn byrðis og við sýn ing ar rýmið. „Elsta verkið er geó- metrískt verk, hluti arkitektúrs úr Gallerí Sólon Íslandus sem ég gerði eftir minni. Hugsunin á bak við þessi verk var viðleitni til að stöðva tímann. Á sínum tíma kynnti ég þessi staðbundnu verk sem litninga úr rýminu og nú hefur þessi litn- ingur sem ég gerði 1993 tvöfaldað sig,“ segir Húbert Nói. Við hliðina á verkinu er nú kominn skúlptúr eða hluti arkitektúrs, frásögn, úr Gall- erí Sólon Íslandus þannig að annað sýningarrými er nú til sýnis í þessu sýningarrými hér. „Það er til verk af sama toga úr sal Nýlistasafnsins, þá á Vatnsstíg 3, og hugur minn stendur til þess að endurgera þann sal út frá því mál- verki sem frístandandi leikmynd í stóru rými, til dæmis Listasafni Íslands, og bjóða valinkunnum listamönnum að sýna þar í stóra salnum í gamla Nýló,“ segir Húbert Nói. Annað verk er málverk af glugga- pósti í sýningarrýminu. „Ég lagði þennan gluggapóst á minnið og málaði hann og hengdi myndina síðan upp við hliðina á gluggapóst- inum. Þannig á verkið í samtali við sýningarrýmið og endurspeglar það,“ segir listamaðurinn. Annað dæmið um þetta samtal frá árinu 1995 er listaverk á vegg og í nánd við það er málverk af þessu sama listaverki upphengdu í rýminu. Hauskúpa og bílkerti Á sýningunni er hauskúpa sem listamaðurinn gerði úr leir og postulíns-bílkertum sem mynda tanngarð. „Hauskúpan kom dálítið baka megin inn í mitt höfundar- Viðleitni til að stöðva tímann „Sýningarrýmið á sýningartíma er eins og ytri skynfæri listamannsins.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hauskúpan magnaða með bílkertum í stað tanna. verk. Ég fer oft í göngutúra með hundinn minn á Ægisíðu. Þar voru bílaverkstæði áður fyrr og karlarnir virðast hafa hent bílkertum út í sjó og núna er sjórinn að skola þessum kertum aftur á land. Þessi kerti fönguðu athygli mína og ég fór að safna þeim og setja í vasana. Svo fór hugmynd um að nota þá í verk að þróast í tengslum við umræðuna og ábendingar vísindamanna um hamfarahlýnun. Nánast eina leiðin til að túlka eða takast á við mögu- lega framtíð er symbólismi og þetta verk er táknmynd um mögulega framtíð fyrir tilverknað mannsins. Þarna er vera með bílkerti í önd- unarveginum sem framleiða kol- díoxíð við bruna á jarðefnaelds- neyti. Bílkertin staðsetja einnig verkið í tíma brunahreyfilsins sem spannar einhver eitt hundrað ár í sögu mannkyns.“ Um samspil sýningarrýmisins og verkanna segir Húbert Nói: „Sýn- ingarrýmið á sýningartíma er eins og ytri skynfæri listamannsins. Hér í þessu sýningarrými koma saman fortíð í formi eldri verka, eins konar beinagrind úr Sólon Íslandus, nútíðin er samtalið við sýningar- rýmið hér og hauskúpan möguleg framtíð.“ Blásandi borhola Í sal á neðri hæð gallerísins eru þrjú olíu-landslagsmálverk sem sýna ytri veruleika en einnig innri, því verkin eru gerð eftir minni. „Þegar ég útskrifast úr myndlistarnámi var konseptið við völd. Sem lista- maður vill maður búa til eitthvað sem bætir einhverju við það sem hefur verið gert og ég fór því að gera tilfinningaþrungin verk máluð af staðsetningum eftir minni til að hengja við hliðina á konseptlist- inni í eins konar samtali. Þegar ég tók síðan til við að nota GPS-stað- setningartæki við gerð málverka var það svipuð nálgun, það er að nota þá nýjustu tækni, ofurklukkur í gervitunglum, geimvísindi og hafa þau í einu verki samofin tilfinn- ingaminni manneskju.“ Í sama sal er vídeóverk, Geometría frá 2005, blásandi borhola á Hellis- heiði. „Ég spegla hana lóðrétt og lárétt. Nú er verið að dæla kolvetni aftur inn í jörðina á Hellisheiði, það er mögulegt að framtíðin hafi komið sér á framfæri í þessu gamla verki þar sem koldíoxíð mun mynda kristalla með basalti en það mynd- ast kristallaform við þessa fjórföldu speglun á útblæstri borholunnar. Annars hefur speglun í mínum verkum verið mér það augnablik þegar ytri og innri veruleiki ná um stundarsakir einhvers konar sam- hljómi,“ segir Húbert Nói. Sýning hans stendur til 11. júní. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is 20 Menning 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.