Fréttablaðið - 25.05.2022, Síða 28

Fréttablaðið - 25.05.2022, Síða 28
Blár ópal Þetta alís- lenska nammi er goðsögn og þótt það hafi lengi verið ófá- anlegt getur nostalgían enn kallað fram ólýsanlegt bragðið þegar þau sem voru svo heppin að ánetjast þessu hugsa til baka. Hin fá líklega því miður aldrei að vita hverju þau misstu af þar sem líkurnar á því að lykilbragðefnið finnist aftur eru hverfandi. Leitin að því ætti samt vitaskuld að vera í algerum forgangi hjá Nóa-Síríus svo leið- rétta megi sorglegustu skekkju íslenskrar sælgætissögu. benediktboas@frettabladid.is Þau gleðitíðindi bárust í gær að morgunkornið sígilda Cocoa Puffs muni snúa aftur í hillur verslana eftir árs fjarveru. Ritstjórn Fréttablaðsins stóð upp og klappaði enda tilheyra þar margir kókópöffs-kynslóðinni svokölluðu. En betur má ef duga skal og þegar þvælst er um höll minninganna rifjast margt gamalt og gott upp sem margir myndu gjarnan vilja endurheimta.   Allt hitt sem við viljum fá aftur í kjölfar Blackberry-símarnir Einu sinni voru Blackberry-sím- arnir sannkallað þarfaþing og höfðu um 20 prósent markaðs- hlutdeild árið 2010. Það var afar þægilegt að komast í tölvu- póstinn og það var þægilegt að skrifa skilaboð með gömlu góðu tökkunum. En iOS og Android tóku fram úr og tæknin sem Blackberry keyrði á varð úrelt. Þann 4. janúar í ár var til- kynnt að ekki væri lengur hægt að hringja eða senda SMS. Subaru Justy Fjórhjóladrifið tryllitæki sem komst allt. Af hverju Justy lifði ekki lengur er hulin ráðgáta því í minningunni framleiddi bíllinn nánast bensín. Þetta var hinn full- komni unglingabíll úti á landi því í vetrarfærðinni var ekkert sem stoppaði hann. Ekkert. Það var einfaldlega ýtt á fjór- hjólatakkann sem var ofan á gírskiptingunni og haldið af stað í hvaða veðri sem var. Og það voru oft vond veður úti á landi í gamla daga. McDonald’s Það er auðvitað rannsóknarefni af hverju Mc- Donald’s skuli ekki vera á Íslandi. Það er reyndar enn frekari rannsóknarefni af hverju erlendar skyndibitakeðjur haldast illa á Klakanum því hér er ekki Starbucks, Burger King, Popeyes eða The Cheesecake Factory svo eitthvað sé nefnt. McDonald’s er eins um allan heim og Ólympíu- farar nota veitingastaðinn til að seðja hungrið á leikunum. Ef það er nógu gott fyrir Ólympíufara er það nógu gott fyrir landann og ferðamenn- ina sem sakna þess að fá sér tvo ostborgara, franskar og gos. Þetta þarf ekki að vera flókið. Lars Lagerbäck Hver vill ekki Lars aftur? Mað- urinn er enn þá alfa og ómega í fótboltaheiminum hér á Íslandinu góða. Þó að verið sé að reyna að afmá fingraför hans af landsliðsumhverfinu lifir hann í hjörtum Íslendinga sem maðurinn sem breytti áhugamönnum í lið sem vann Eng- land á EM 2016. Það mun aldrei gleymast. Vegasjoppurnar Háglans og yfirlýstar vegasjoppur nútímans eru afskaplega ósjarmerandi. Er ekki hægt að fara einhvern milliveg? Hafa einhvers konar kósí án þess að hafa lýsinguna í rauðabotni. Margir minnast gamla Staðarskála með hlýju í hjarta en gleyma lyktinni sem mætti fólki í stiganum þegar það gekk niður á klósettið. Það var alvöru hlandlykt. Nýi Staðarskálinn er oflýstur og því frekar stoppað í Víðigerði. Heiðarlegar tilnefningar Baugur Group Hver saknar ekki stuðsins sem var í kringum Baug? Það var endalaust partí. Gospillurnar Kannski saknar þeirra enginn enda var gerð bein árás á alla tannhirðu með þeim. Í pillunum voru einhver efni svo sterk að það sveið undan þeim í tunguna. Plastskeiðar í skyr og rör í safa Það getur bara ekki verið að þetta sé leiðin. Þetta pappadrasl er ekki að gera sig. Fresca Já, takk. Þarf ekkert frekari útskýringar. Það sem má vera gleymt og grafið n Grímunotkun n Kassettur n Textavarpið n Símaskráin Bazooka-tyggjó Þau eru fjölmörg sem sakna enn þessa sprúðl- andi fjöruga tyggigúmmís sem er þó sennilega mun bragðbetra í minningunni en það var í glæstri fortíðinni. Tyggjóið var heldur hart undir tönn en þegar búið var að tyggja það til tók augnablikssæla við. Ekki spillti heldur fyrir að tyggjóið var vafið inn í litla myndasögur af ævintýrum hins vígalega Joe. Cocoa Puffs 24 Lífið 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.